Tíminn - 11.01.1983, Page 3
■ Jóhannes Eðvaldsson skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir Motherwell gegn
Dundee. Það dugði þó ei, því lan
Ferguson, Ray Stephen og Peter McGee
skoruðu fyrir Dundee.
Murdo Mc Leod skoraði eitthundrað-
asta mark ■ Celtic á tímabilinu á
laugardag, og það reyndist nóg til þess
að viðhalda þriggja stiga forskoti Glas-
gow liðsins. Mc Leod skoraði þetta mark
í leik gegn StMirren rétt fyrir leikhlé, og
þannig er Celtic nú með 34 stig af 38
mögulegum í skosku úrvalsdeildinni.
Aberdeen, aðalkeppinautarnir sigr-
uðu 2-0 á heimavelli í hörkuleik gegn
Morton. I'eir urðu að berjast í 70
United, og þessi 2-1 sigur batt enda á
níu leikja feril án sigurs hjá þeim. John
Reilly skoraðí fyrst fyrir Dundee á tólftu
mínútu, en sænski landsliðsmaðurinn í
liði Rangers Robert Prytz, jafnaði með
skalla fjórum mínútum fyrir leikhlé, og
Andy Kennedy skoraði sigurmarkið um
miðjan síðari hálfleik. En lítum á úrslit
leikja í Skotlandi um helgina:
Úrvalsdeild:
Aberdeen - Morton 2:0
Dundee - Motherwell 3:1
Kilmarnock - Hibernian 0:2
Rangers - Dundee United 2:1
St. Mirren - Celtic 0:1
St. Mirren
Morton
Motherwell
Kilmarnock
Leikir í fyrstu deild á laugardag:
Clyde - Airdrienians 2:1
Dumbarton - Raith Rovers 2:1
Falkirk - Oueen's Park 2:0
Hearts - Hamilton 2:1
Partick Thistle - Allor Athletic 1:1
St. Johnstone - Ayr United 2:0
Þá voru 8 leikir í annarri umferð skosku
bikarkeppninnar:
mínútur áður en þeir byrjuðu að Staðan í skosku úrvalsdeildinni er nú Albion Rovers - Stranraer 0
uppskera ávöxt erfiðis síns, þá skoraði þessi: Berwick Rangers - Stirling Albion 0
Neil Simpson og Mark McGee bætti Celtic 19 16 2 1 53 20 34 Brora Rangers - Montrose 0
öðru við rétt fyrir leikslok. Baráttuandi Aberdeen 20 14 3 3 40 13 31 East Fife - Brechin City 0
Dundee United á toppnum í Skotlandi Dundee Utd. 19 12 4 3 44 16 28 Elgin City- Gala Fairydfan 2
virðist heldur vera að hjaðna, eftir Rangers 19 6 8 5 28 23 20 Forfar Athletic - Inverness Caley 0
annan ósigurinn í röð í deildinni. Dundee 19 6 6 7 24 23 18 Oueen Of South - Hawick R. Albert 0
Það var Rangers sem nú lagði Dundee Hibernian 20 3 9 8 16 26 15 Stenhousemuir - Arbroath 0
■ Sigurður Gunnarsson skorar eitt af sínum stórglæsilegu mörkum á sunnudagskvöld. Kristján Arason
(númer 10) er til varnar í allri sinni lengd, en allt kemur fyrir ekki. Skömmu síðar hafnaði knötturinn í
stöng FH marksins og fór þaðan í netið.
Unglingalidid í 5. sæti
á Nordurlandamótinu í Árósum
■ íslenska unglingalandsliðið í körfuknattleik lék
um helgina í Norðurlandamóti unglinga í körfuknatt-
leik í Arósum í Danmörku. Liðið hafnaði í fimmta
sæti, tapaði öllum sínum leikjum, en náði athygl-
isverðum árangri gegn Dönum, Norðmönnum og
síðast Svíum. Sögulegastur varð leikurinn við Svía,
þar hafði verið jafnt allan leikinn, og allt í járnum
þar til tíu mínútur voru til leiksloka. Þá fékk Páll
Kolbeinsson besti maður íslenska liðsins útaf með 5
villur. islenska liðið datt þá niður um tíma og Svíar
komust í 10 stiga forystu. En íslenska liðið náði sér
aftur, og Þorkell Andrésson sem kom inn fyrir Pál í
„bakkarastöðuna“ átti ágætan leik og skoraði
nokkrar körfur. íslenska liðið náði að jafna aftur og
staðan var 77-77. Svíar skoruðu 79-77, íslendingar
misstu boltann, Svíar aftur í sókn. Skammt til
leiksloka, og Svíar notuðu allan tímann sem þeir
máttu. Skot í körfuhring íslendinga, og Kristinn
Kristinsson náði frákastinu með glæsibrag. En þá
gerðist hneykslið:30 sekúndna klukkan gall, og
leikurinn var stöðvaður. Það ótrúlega gerðist að
dæmt var uppkast!?!?! Það var sama og gefa Svíum
boltann, því stærðarmunurinn var svo mikill Svíar
skoruðu síðan síðustu körfu leiksins rétt fyrir
leikslok, og Svíar sigruðu 81-77.
Sannarlega sárt fyrir íslensku strákana, þegar
svona litlu munaði. Danir sigruðu Islendinga á
föstudag 83-79. Páll Kolbeinsson og Tómas Holton
voru bestir íslendinga í leiknum, Páll skoraði 28 stig
og Tómas 22.
Gegn Norðmönnum töpuðu okkar menn 65-69 í
góðum leik, en Norðmenn sigruðu bæði Dani og Svía.
Þar gerðist svipað og í leiknum gegn Svíum á
sunnudag, Páll fór útaf með 5 villur og Norðmenn
skoruðu 9-0 í rykk. íslendingar náðu síðan ekki að
saxa neitt að ráði á það, en leikurinn hafði verið jafn
fram að því. Kristinn Kristinsson úr Haukum átti
stórleik með íslenska liðinu í þessum ieik, og hélt
alveg niðri sterkum miðherja Norðmanna, sem er 220
pund á þyngd og 2.06 m. á hæð.
í leiknum við Finna töpuðu íslendingar 118-76. Til
samanburðar má geta þess að Finnar sigruðu
Norðmenn í úrslitaleik 114-76.
Finnar voru með yfirburðalið á mótinu, lið sem
varð í fjórða sæti á heimsmeistaramóti drengja í
körfuknattleik fyrir tveimur árum. Liðið sigraði m.a.
Sovétmenn í því móti með fjögurra stiga mun.
„Ég var mjög ánægður með liðið og strákana hvern
um sig,“ sagði Einar Bollason annar tveggja þjálfara
íslenska liðsins. Hinn er Jón Sigurðsson. „Þeir
sigruðu að vísu ekki í neinum leik“ sagði Einar, „en
þcir stóðu sig langt umfram það sem við höfðum
þorað að vona. Þeir voru almennt kallaðir litlu
strákarnir á mótinu. Hin liðin höfðu svo miklu stærri
mönnum á að skipa. Finnarnir til dæmis eru eins og
rígfullorðnir menn, svo sterkir og stórir. Til saman-
burðar er Kristinn Kristinsson Ianghæsti leikmaður
íslenska liðsins 1.92 m. á hæð.“
„Strákarnir stóðu sig virkilega vel, þeir komu mest
á óvart hér á mótinu, og það kemur dagur eftir
þennan dag.“
... ..:„ r -
Jafntefli í Hafnarfirði hjá
Þrótti og Stjörnunni
■ Páll Kolbeinsson t.h.
■ Þróttur og Stjarnan skildu jöfn í
fy rstu deild karla í handknattleik í
iþróttahúsinu í Hafnarfírdi er þau mætt-
ust þar á sunnudagsk'öldið. Þróttarar
höfðu fruntkvæði í lcikuum framan af
en Stjörnumenn náðu að jafna í síðari
hálfleik, skömmu fyrir leikslok.
Staðan í leikhléi var 9-7 Þrótti í hag,
og þá höfðu Þróttarar verið mun sterkari
í leiknunt. En Stjörnumenn náðu að
jafna 11-11 eftir rammaslag í byrjun
síðari hálflciks. Þróttarar náðu 14-11, en
Stjarnan jafnaði 16-16 skömmu fyrir
leikslok og það urðu lokatölur leiksins.
Bæði liðin ætluðu að bjarga stigi í
viðbót það sem eftirvai leiksins frá því
að sextánda mark Stjörnunnar var
skorað, en það gekk hvorki né rak.
Páll Ólafsson var að venju aðalmaður
Þróttara, og Óiafur H. Jónsson var af
gömlum vana sterkur. Páll skoraði mest
Þróttara, 4 mörk, Ólafur H. og Guð-
mundur Sveinsson 3 mörk hvor, Jens
Jensson 2, og Lárus Karl Ingason,
Magnúsog KonráðJónsson tmarkhver.
Magnús Teitsson var sprækastur
Stjörnumanna, þó ekki markahæstur.
Eyjólfur Bragason skoraði 5 mörk,
Magnús 4, Guðntundur Óskarsson 2,
Guðmundur Þórðarson 1 og Viðar
Símonarson 1.
Eins og sést hér að ofan skoraði Viðar
Símonarson I mark fyrir Stjörnuna.
Viðar hefur nú tekið fram skóna enn á
ný. Viðar er ns og allir vita gamall jaxl
úr handbolti. ium, og styrkir næstum
hvaða lið sem er þrátt fyrir að vera
kominn aðeins á fertugsaldurinn.
Það scm var þó mest til vonbrigða í
sambandi við leik þeirra Þróttara og
Stjörnumanna á sunnudagskvöldið voru
Athugaðu að vinningum hefur nú verið fjölgað í Happdrætti
SÍBS. Hver miði kostar 50 kr. en kaupirðu ársmiða sparar þú
ómæida fyrirhöfn.
Snúðu þértil þessara aðila:
Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130.
Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26, sími 13665.
Sjóbúðin, Grandagarði 7, sími 16814
Hreyfill bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632.
Versl. Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800.
S. í. B. S.-deildin, Reykjalundi, Mosfellssveit.
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180.
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18,
Garðabæ, sími 42720.
Vilborg Sigurjónsdóttir c/o Bókabúð,
Olivers Steins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, sími 50045.
Lilja Sörladóttir, Túngötu 13,
Bessastaðahreppi,
sími 54163.
HAPPDRÆTTISÍBS
Meira en fjórði hver miði hlýtur vinning.
þau mistök skipuleggjenda að dómarar
mættu ekki til leiksins. Tveir ungir
Hafnfirðingar hlupu undir þennan bagga
að lokum, en þá hafði þegar orðið
töluverð töf á þvi að leikurinn gæti
hafist. Piltarnir úr Hafnarfirði Jón
Hauksson og Ingimar Haraldsson gerðu
ekki verr cn luegt var að búast við, þeirra
fyrsti leikur í fyrstu deild. Það er
vonandi að þetta sé einstakt tilfelli hjá
Handknattleikssambandinu, því þetta
er mjög leiðinlegt fyrirbæri í íþróttum,
sérstaklega fyrir áhorfendur sem allir
vilja alltaf fá sem mest af. Að sjálfsögðu
er þetta líka niðurdrepandi fyrir leik-
menn og alla aðra sem hlut eiga að máli.
■ Páll Olafsson var að venju aöalmaður Þróttar á sunnudag.
VÍKINGAR KAFFÆRÐU FH
strax í fyrri hálfleik
■ Alveg var leikur þeirra Víkinga og
FH-inga á sunnudagskvöldið stór-
skemmtilegur. Þar mættust tvö góð lið.
Líldega tvö þau bestu í deildinni. Það
sem skyggði á var þegar FH liðið datt
niður síðast í fyrri hálfleik.
FH-ingar byrjuðu leikinn af miklum
krafti. Guðjón Guðmundsson skoraði
fyrsta markið, og Hans sá um það næsta
með þrumuskoti f stöngog inn. Víkingar
ekki alveg með á nótunum fram að
þessu, en síðan fór vélin að lulla. Árni
Indriðason skoraði fyrsta mark þeirra af
línunni, eftir fallega fléttu. Síðan fiskaði
Guðmundur Guðmundsson víti eitt af
mörgum sem áttu eftir að fylgja eftir
gegnumbrot Guðmundar. Viggó skorar.
Ólafur Jónsson fiskar annað víti, og
Viggó skorar. 3-3. En Óttar er á línuni
hjá FH, og hann sá um næsta, 5-4. Árni
jafnar, og í næstu sókn brýst Viggó inn
úr horninu og skorar. Boltinn loks farinn
að rata framhjá Haraldi Ragnarssyni, en
hann varði fyrstu 4 skot Víkinga í
leiknum, og annaðhvert þar til hann var
búinn að verja 6 skot, þá var það búið.
Hans jafnaði úr langskoti 5-5, en þá
hófst þáttur Sigurðar Gunnarssonar,
sérlega fallegt langskot 6-5, en Hans
jafnar með löngu lágskoti 6-6. Óttar
með fallegt mark af línuni 7-6, en
Sigurður lyftir sér jafnfætis hátt í loft
upp af punktalínuni pomm stöngin inn,
stórglæstilegt 7-7 Víkingar ná boltanum
aftur og endurtekið efni pomm alveg
eins 8-7. Óttar nær frákasti á línunni 8-8,
og Kristján Arason skorar úr hraðaupp-
hlaupi 9-8. Annars var Kristján ekkert
búinn að sýna, skjóta tvisvar og varið,
og það fyrsta sem hann gerði í leiknum
var að misnota víti, skaut í stöng.
Sjalfgæft hjá Kristjáni. Þegar staðan var
9-8 FH í hag skipti Bogdan þjálfari
Víkinga Kristjáni Sigmundssyni útaf, og
inn kom Ellert Vigfússon. Kristján hafði
aðeins varið tvö skot. Ellert varði
PALL EINN
ÞEIRRA BESTU
■ „Lið okkar kom verulega á óvart
hér, þrátt fyrir smæðina", og Páll
Kolbeinsson var talinn einn besti leikmað-
ur mótsins" sagði Einar Bollason þjálf-
ari, í símaviðtali á sunnudag, eftir að
Norðurlandamóti unglinga var lokið í
Arósum í Danmörku.
„Páll var sterkasti maður liðsins, það
var enginn vafi, og við græddum mest á
því að við höfðum svo góða „bakkara",
sagði Einar.
Páll Kolbeinsson er 17 • ára ganiall, og
er þegar orðinn einn af máttarstólpum
KR liðsins í körfuknattleik. Hann hefur
leikið mjög vel í úrvalsdeildinni í vctur.
Páli er heldur ekki illa í ætt skotið hvað
körfuknattleik snertir, faðir hans er
Kolbeinn Pálsson sá kunni körfuknatt-
leiksmaður sem lék með KR á árum
áður.
stórkostlega það sem eftir var leiks.
Enda skoruðu FH-ingar ekki aftur fyrir
leikhlé. Það gerðu aftur á móti Víkingar
svo um munaði.
Óli Jóns fiskaði víti, og Sigurður
Gunnarsson skoraði úr því. Sterkur
leikur Víkinga að láta þá skiptast á, tvö
og tvö. Steinar 10-9 með stórfallegu
langskoti, og Siggi Gunn úr víti eftir brot
á Guðmundi, Siggi aftur úr sprengiskoti
12-9, og þá byrjaði loks Guðmundur að
skora, en það átti hann eftir að gera í
leiknum. Inn úr horninu, 13-9, og Viggó
14-9 úr víti sem Óli fiskaði. Síðasta orðið
í fyrri hálfleik átti Guðmundur Guð-
mundsson er hann braust inn úr horninu
og skoraði 15-9. FH-ingar skoruðu
ekkert mark í lok fyrri hálfleiks, meðan
Víkingar skoruðu 7. Þetta var banabit-
Guðmundur blómstrar
í síðari hálfleik hófu FH-ingar að
leika vörnina með því að taka tvo menn
úr umferð. Þeir riðluðu að vísu kerfum
Víkinga, en þá bara blómstraði Guð-
mundur Guðmundsson, og ég endurtek,
þar fer einn alskemmtilegasti handknatt-
leiksmaður okkar fyrr og síðar. Einnig
kom Steinar Birgisson vel út úr því að
leika frjálst. Skoraði ló.markið, síðan
Guðmundur 3 í röð og svo Steinar aftur.
Munurinn hélst þetta 5 mörk, og þeir
atkvæðamestir FH-inga Hans og Óttar
sem fyrr. Einnig kom Guðmundur
Magnússon með tvö falleg mörk úr
horninu. Pálmi og Guðjón áttu reyndar
eitt hvor í upphafi hálfleiksins en eftir
að Guðmundur Dadú skoraði sín tvö
skoruðu varla nema Hans og Óttar.
Tölur eins og 20-15, 24-15 og 25-17 litu
dagsins ljós, og Guðmundur skoraði og
skoraði. Páll gerði að vísu tvö úr
hraðaupphlaupunum, og fór vel á að
hann gerði síðasta mark Víkinga. En
síðasta orðið átti Hans Guðmundsson í
FH, 28-23.
Sagt hefur verið að Víkingsliðið sé
mótor sem gangi eftir fyrirfram ákveðnu
mynstri. Vissulega rétt, en ef einhverjir
eru teknir úr umferð, á vélin að fara að
hökta. Það gerðist ekki á sunnudags-
kvöldið, þá blómstruðu stimplarnir einn
og einn, sérstaklega þó Guðmundur.
FH hélt í við meistarana með varnar-
aðferðinni4-2stundum, en ekki alltaf.
Guðmundur var eins og áður er sagt
bestur Víkinga, þá var Ellert markvörð-
ur stórgóður, varði alls 5 skot í fyrri
hálfleik, og 7 í þeim síðari. Sigurður
Gunnarsson var einnig frábær, skot-
krafturinn svakalegur, og það sem er
skemmtilegast að sjá við þcssa hávöxnu
langskyttu, er hvað hann hefur fjári góðan
stökkkraft.
Hans var bestur FH-inga, Óttareinnig
góður. Þeir blómstruðu einir í lokin,
verst að vonin var búin um að það hefði
eitthvað að segja. Kristján var eitthvað
miður sín, misnotaði tvö víti, en reyndar
tekinn úr umferð.
Mörkin:
Víkingur Guðmundur 9, Sigurður 7,
Viggó 4, Steinar 3, Páll og Árni 2 hvor,
og ungur og efnilegur hornamaður, Karl
Þráinsson 1.
FH: Hans 8, Þorgils Óttar 8, Guð-
undur Magnússon 2, Guðjón Guð-
mundsson 2, Kristján 1, Pálmi Jónsson
1 og Sæmundur Stefánsson 1.
Leikurinn var nokkuð vel dæmdur, en
það er erfitt að dæma svona leiki, það
er klárt.
Valsstúlkur efstar
■ Tveir lcikir voru utn helgina í
fyrstu deild kvenna í handknattleik.
Valur sigraði Fram 14-10 í Laugardals-
höll í gær, og FH sigraði Hauka í
Hafnarfirði 21-13.
Staðan í fyrstu deild kvenna er nú
þessi:
Valur
Frarn
FH
ÍR
Víkingur
KR
Haukar
Þór Ak.
Haukar sigruðu
■ Tveir leikir voru í annarri deild
karla i handknattleik um helginaj
Reyndar áttu þeir að vera fjórir en
óvcður og ófærð settu strik í reikning-
inn í handknáttieik scm öðru. Haukar
sigruðu HK í Hafnarfirði á föstudags-
kvöld 26-21. Breiðablik fór upp í
Mosfetlssveit og lék þar við HK á
sunnudag. Þar varð jafntefli 18-18.
KA II 7 2 2 16
Grótta 10 7 0 3 14
Haukar 115 2 4 12
UBK 11 4 4 3 12
Þór Ve. 10 4 3 3 11
HK 114 16 9
UMFA 12 2 3 7 7
Ármann 10 1 3 6 5
HAPPDRETTISIBS:
Drætti frestað vegrta ófazriSar
VIÐDRÖGUM
HMMTUfDAG
13.JMUAR!
Héma kaupír þú míða
í Reykjavik og nágrenní
PODBORSKI DATT
fl100 KM. HRAÐfl
■ Erwin Resch frá Austurríki sigraði í
spennandi brunkeppni í Val d’Isere í
Frakklandi um helgina. Það kom nokk-
uð á óvart að Resch skyldi sigra í þessari
keppni þar sem hann átti sér marga
keppinauta þar, sem líklegri voru taldir
til sigurs. Þar ber fyrst að nefna Steve
Podborski, heimsbikarhafa í bruni, sem
féll í keppninni þegar hann hafði náð
um 100 km. hraða á klukkustund.
Podborski var heppinn hann hafði keyrt
á hlið, og síðan flotið út úr brautinni,
því að hann reis upp ómeiddur, en hafði
þó hlotið skrekk.
Peter Mueller sem náði öðrum besta
tímanum í keppninni var dæmdur úr leik
eftir að það hafði verið sannað að hann
hafði sleppt úr hliði.
Það voru því Svisslendingarnir Peter
Luescher og Conradin Cathomen sem
hlutu annað og þriðja sætið í keppninni.
Irene Epple frá Vestur-Þýskalandi
sigraði á laugardag í fyrstu risabrun-
keppni sem haldin er í heiminum og
tilheyrir heimsbikarkeppninni.
Hanni Wenzel frá Liechenstein varð
önnur, og Tamara McKinney frá Banda-
ríkjunum varð þriðja. Aðeins munaði
2/100 úr sekúndu milli þeirra McKinney
og Wenzel. Epple hafði aftur á móti
fjórðung úr sekúndu í forskot á Wenzel.
Heimsmeistarinn, Erika Hess frá Sviss
gat ekki tekið þátt í keppninni vegna
þess að hún er að jafna sig eftir uppskurð
á hné sem nýlega var á henni gerður.
Stadan
■ Staðan í fyrstu deild karla eftir
leiki helgarinnar er nú þessi:
Fram-Víkingur 20-26
Sljarnan-Þróttur 16-16
Víkingur-FH 28-23
Víkingur 12 8 2 2 18
Stjarnan 12 7 1 4 15
KR 11 7 0 4 14
FH 11 7 0 4 14
Valur 11 5 1 5 11
Þróttur 12 5 1 6 11
Fram 12 4 1 7 9
ÍR 11 0 0 11 0
Nokkuð virðist öruggt hvaða lið
það verða sem lenda í fjögurra liða
úrslitum, það er að segja þau fjögur
efstu. Valur á að vísu enn nokkra
möguleika, en ólíklegt verður að
teljast að þessi röð breytist mikið,
þar eð deildin hefur verið mjög jöfn
í vetur, að neðsta liðinu undanskildu.
CELTIC HEFUR ENN FORYSTU