Tíminn - 22.03.1983, Blaðsíða 6
í spegli tímans
■ Stúlkurnar voru í miklum
meiríhluta á söngvakeppninni,
og hér eru tvær frá Alaborg,
sem sögðust a.m.k. vera
reynslunni ríkarí eftir kepp-
nina, þótt þær hefðu ekki
sigrað, og þær hefðu skemmt
sér vel. Lagið þeirra hét Gi’r
du et knus? (Ætlarðu að faðma
mig?)- og lagið þeirra var í
öðru sæti, og verður gefið út á
plötu.
■ Nýlega var söngvakeppni í
Danmörku, sem vakti mikla
athygli þar í landi, en sigurveg-
arinn í keppninni á svo að taka
þátt í Evrópukeppninni í
Múnchcn 23. apríl.
Það var 18 ára stúlka, Gry
Johansen, sem vann með lag-
inu „Jörðin snýst“, sem hún
sjálf segir að sé dæmigerð
dægurfluga, og það verði á-
reiðanlega eitt af gleymdu lög-
unumeftir árið, þó allir blístri
það nú.
Gry er sögð „Marilyn Mon-
roe-týpa“, Ijóshærð og mjög
lagleg, og tilboðum rignir nú
yfir hana, en hún segist taka
öllu rólega og ekki gera neinar
áætlanir fyrr en hún sjá hvern-
ig þetta gangi í Múnchen.-
Það er bara verst að ég er
óánægð með lagið, en það
verður að vera með í keppninni
þar, úr því að ég vann á það lag
hér heima í Danmörku, - en
það er víst að ég hef það ckki
á efnisskrá minni þegar - eða
ef - ég fer í söngferð, eins og
ráðgert hefur verið.
„Mjaðmahnykkurinn“ „Ja,
hann gerði lukku og þetta
sprell mitt á senunni var allt
æft og uppfundið af Brunellu
Benneweis, (úr sirkus-fjöl-
skyldunni Benneweis), sem
æfði mig í sviðsframkomu,
sagði Gry sigurvegari með sig-
urbros á vör.
■ Gry Johanson,sigurvegari í Grand Prix í Danmörku morgun-
inn eftir: „Eg vona að þetta verði stökkbretti fyrir mig að einhverju
betra en „Kloden Drejer“, en það er gaman að hafa sigrað.
■ „Sú stuttklædda vann“, sagði fókið, en Gry þótti hafa sérstaklega skemmtilega sviðsframkomu með einhverjum hoppum og mjaðmahnykkjum (Einn gagnrýnandim
spurði reyndar hvort daman hefði verið laus í mjaðmaliðnum því hún hefði greinilega verið hölt og skökk)
Sigurvegarinn \ söngvakeppninni í Danmörku:
„ÉG HMf SKAMMAST
MfN FYMR AD VINNA
MEÐ KSSIIIAGI”
viðtal dagsins
Rætt vid sr. Gunnar Kristjánsson, formann Kirkjulistar-
nefndar um kirkjulistarsýninguna á Kjarvalsstöðum
KIRKJAN ER ENN SEM AÐUR
VETTVANGUR FYRIR UFANDIUSÍ
■ „Þessi sýning er af okkar
hálfu hugsuð að nokkru leyti
sem tilboð til starfandi lista-
manna um samstarf, við viljum
vekja athygli þeirra á þeim stóra
vettvangi sem kirkjan er fyrir
lifandi list,“ sagði dr. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur á
Reynivöllum í Kjós og formaður
Kirkjulistarnelndar þegar Tím-
inn ræddi við hann i gær um
sýningu þá á kirkjulegri og trúar-
legri list, sem nú stcndur yfir á
Kjarvalsstöðum.
„Bara á Reykjavíkursvæðinu
eru 10 kirkjur á teikniborðinu
eða í smíðum og þarna er um að
ræða stórar kirkjur með safnað-
arheimilum og alveg gífurlegur
starfsvettvangur fyrir Iistamenn
samtímans og framtíðarinnar.
Við viljum líka vekja athygli á
því hvers konar list getur átt
heima í kirkjum og í tengslum
við kirkjuna, því að hugmyndir
manna eru oft á tíðum dálítið
staðnaðar í sambandi við það.
Það hefur verið þannig hér hjá
okkur á íslandi, ’að áliti okkar í
kirkjulistanefnd, að sú gróska
sem hefur átt sér stað í kirkjulist
bæði vestan hafsi'og á meginlandi
Evrópu hafi ekki náð hingaðsém
skyldi og að menn hafi ekki gert
sér nægilega grein fyrir því
hversu stór þessi vettvangur er.
Ekki bara fyrir skreytilist í þess-
um gamla hefðbundna danska
altaristöflustíl, heldur rúmast
þar alíar listgreinar innan kirkj-
unnar, málaralistin, skúlptúrinn,
tréskurðurinn, vefaralistin,
gullsmíði, glerlist og tónlist, allar
þessar listgreinar hafa alltaf átt
athvarf innan kirkjunnar og eiga
enn.
Eru verkin á sýningunni
kannske meira eða minna unnin
fyrir þessa sýningu?
Megnið af verkunum eru unn-
in í tilefni afþessarisýningu. Það
eru hátt á annað hundrað verk
■ Sr. Gunnar Kristjánsson.