Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 20
Opiö virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuveg' 20 Kopavogi S.mar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs 5AMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 T* SsZ' abriel HÖGGDEYFAR \j QJvarahlutir sZZlvo. riamarshöfða 1 IAUSA SEMENTIÐ LAT1Ð GREIÐA NKNIR VERD A POKASEM ENTINU? ■ „Ég hcld aö innflutningur á lausu scmcnti yröi erfiður. Til hans þyrfti sérstaklega útbúin skip. Hins vegar eru aðrir mögu- leikar í stööunni, til dæmis aö flytja inn gjall og reisa myllu til aö inala það. Blanda gjalliö síöan gifsi og kísiljárni og þar með væri komin öll framleiöslan nema brennslan,“ sagöi Víg- lundur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjöri B.M. Vallá, þegar hann var spuröur hvort steypu- framleiðendur hefðu hugleitt innflutning á sementi. Á blaöamannafundi með verðlagsstjórum íslands og Sví- þjóðar í vikunni kom fram að jafnvel væri ódýrara fyrir steypu- framleiðendur hér á landi að flytja inn laust semcnt frá Suður- Svíþjóð en að kaupa frá Sementsverksmiðjunni á Akra- nesi. Verðmunurálaususementi í Stokkhólmi og í Reykjavík væri 60% en hins vegar væri verðmunur á sekkjuðu sementi nánast enginn. þrátt fyrir mikinn kostnað sem fylgir því að pakka sementinu. Víglundur sagði að við verð- lagningu hér á landi hefði aldrei verið tckið tillit til þess hagræðis sem skapaðist af því að flytja semcnt laust. Það væri ástæðan fyrir því að steypa væri dýrari hér en til dæmis í Svíþjóð. „Það er Ijóst að ef við fengjum laust sement á svipuðu verði og steypustöðvar í Svíþjóð myndi steypuverð hér lækka um meira en 30%. Þá væri líka steypuverð í löndunum nákvæmlega sam- bærilegt," sagði Víglundur. Hann sagði einnig að steypu- framleiðendur myndu kynna sér niðurstöður verðlagsstjóranna gaumgæfilega. Sérstaklega með tilliti til þess hvort um væri að ræða verulega peningatilfærslu frá húsbyggjendum á höfuðborg- arsvæðinu og til byggjenda í dreifbýli í formi þessa háa verðs á lausu sementi, sem nær ein- göngu er notað í steypustöðvum. - Sjó Verðkönnun Verdlagsstofnunar á byggingarvörum í Reykjavík og Svíþjód: SEMENT AISLANDI 60% DÝRARA EN í SVÍÞJÓÐ ■ „Ef miöaö er viö verðlag á sementi nú, væri jafnvel ódýrara fyrir steypustöövarnar að flytja það inn frá Suöur-Svíþjúö en aö kaupa þaö frá Sementsverk- smiöju ríkisins," scgir í nýút- kominni könnun sem verðlags- stofnun gekkst fyrir í júníniánuöi s.l. í samráöi við verölagsyfirvöld í Svíþjóð. I könnun þessari var gerður samanburður á samtals 33 vöru- tegundum, þar af 22 sem fram- leiddar eru í Svíþjóð undir sænskum vörumerkjum og eru m.a. seldar í Reykjavík. Niður- stöður Verðlagsstofnunar eru um margt athyglisverðar og veit- ir samanburðurinn innsýn í verð- myndun á byggingarvörum á íslandi. Vcrð á þeim vörum sem born- ar voru saman var oftast hærra í Reykjavík en í Svíþjóð (26vöru- teg. dýrari í Reykjavík, 7 vöru- teg. dýrari í Svíþjóð). Þrátt fyrir háan flutningskostnað og að- flutningsgjöld til íslands var verömunur hins vegar minni en ætla hefði mátt á þeiin vörum sem fiuttar eru inn. Það athyglisverðasta sem lesa má út úr könnuninni er fyrir utan fyrr nefnt sementsverð, að timb- ■ urverð gæti í sumum tilfeilum verið lægra á íslandi en í Svíþjóð ef fiutningskostnaður er dreginn frá. Þá vekur athygli að mikill kostnaður leggst á innkaupsverð margra vörutcgunda hér en þrátt fyrir það eru sumar vörur ódýrari til kaupcnda í Reykjavík en í Svíþjóð. Þykir það benda til hagstæðra innkaupa innflytjenda á markaði þar sem samkeppni er mikil. Einna athyglisverðust er athugunin á glermarkaðnum en hérlendis er samkeppnin mikil og er þar að auki ekki háð verðlagsákvæðum. Verðmis- munur á þeirri vörutegund er íslendingum 42% í hag. Að sögn Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra verður að skoða hvern markað fyrir sig þegar svona könnun er gerð. Svo virð- ist sem frjáls verðmyndun tryggi lágt vöruverð á sumum mörk- uðum en ekki öðrum. Georg taldi að íslensk verðlagsyfirvöld mættu nokkuð vel við una hvað þessa könnun áhræðri ef undan- skilið væri verð á sementi. Jafnhliða verðkönnuninni voru laun starfsmanna í bygging- arvöruframleiðslu og starfs- manna í byggingarvöruverslun- um á íslandi borin saman við laun sömu starfsstétta í Svíþjóð. Nokkurrar óvissu gætir um laun á íslandi, einkum er varðar skatta en reynt var að bera saman ráðstöfunartekjur. Má þá með nokkurri nákvæmni segja að tekjur fyrmefndra stétta að frádregnum beinum sköttum séu um 30% hærri í Svíþjóð en á íslandi. Gefur það vísbendingu ásamt verðupplýsingum um hvað það kostar þessa launþega á íslandi að kaupa byggingarvörur í hlutfalli við laun með hliðsjón af sömu starfsstéttum í Svíþjóð. - ÞB dropar „Vildi ráðfæra mig við sérfræðing“ ■ Koskinn sveitamaður kom til læknis sem haföi fótasjúk- dóma sem sérgrcin. Sveita- maðurinn bar sig heldur illa, sagðist ónýtur til gangs og hefði óþægindi og verki í fótun- um. „Farðu úr skóm og sokk- um og leyfðu mér að líta á“, sagði læknirinn. Þcgar sá gamli var kominn úr skónum blöskraði lækninum ólyktin og sóðaskapurinn og sagði: „Þú mættir nú fara að skipta um sokka.“ „Þetta sagði læknirinn heima líka, en ég vildi nú ráðfæra mig við sérfræðing fyrst“, sagði sá gamli. Lifandifréttir- allt í járnum! ■ Fréttir sjónvarpsins í fyrra- kvöld voru góðar að því leytinu til, að í þeim var bæði í máli og myndum, sagt frá atburð- um sem voru að gerast á þeim augnablikum sem fréttaút- scnding stóð yfir. M.a. voru myndir frá veislu þeirri sem Steingrímur Hermannsson, forsætisráðhcrra, hélt til heið- urs George Bush, varaforseta Bandaríkjanna, sem hófst um það leyti sem fréttatíminn byrj- aði, og eins sagt í máli og myndum frá komu ítölsku flug- sveitarinnan. sem kom hingað til lands í fyrrakvöld til að minnast þeirra fimmtíu ára sem liðin eru frá því að Balbo flugkappi og menn hans komu hingað til lands. ■ ítalski flughópurinn sem hér er staddur í tilefni 50 ára afmælis komu Balbo flugkappa sýndi listir sínar fyrir Reykvíkinga í gærkvöldi. Tímamynd ARI En þetta gekk ekki alveg átakalaust fyrir sig, að því er heimildir Dropa herma. Því auk þessara tveggja frétta var sú þriðja sem ekki var tilbúin þegar útsending hófst. Mun þuli hafa verið skipað að hægja vel á sér við lestur frétta, og með því móti tókst að smella fréttatímanum saman, þannig að viðkomandi fréttamaður og myndir komu inn . á réttum stað. Er ekki örgrannt að margir hafi andað léttar þegar allt var afstaðið. Krummi ...vill heldur fá fréttirnar á 45 snúningum...!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.