Tíminn - 12.07.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.07.1983, Blaðsíða 4
14 íþróttir 3. deild... 3. deild... 3. deild... A-riðill ÚRSLIT HELGARINNAR: HV:Selfoss ................. 1:3 Armann:Snæfell.............. 2:1 Grindavík:Skallagrímur ..... 0:0 ÍK:Víkingur................. 1:1 Selfoss heldur áfram sigurgöngu sinni í þessum riðli og nú um helgina lögðu Selfyssingar lið HV með þremur mörkum gegn einu. Mörk Selfyssinga gerðu Heimir Bergsson 2 og Jón B. Kristjánsson 1 og voru þau öll gerð í fyrri hálfleik undan strekkings vindi. í síðari hálfleik tókst HV ekki að svara nema cinu sinni fyrir sig og var þar að verki Steinn Helgason sem skoraði úr vítaspyrnu. Snæfell hafði yfir, 0:1, í hálfleik gegn Ármanni og skoraði Ingvar Jóns- son mark gestanna. í síðari hálfleik knúði Ármann hins vegar fram sigur og skoruðu þeir Óskar Ásmundsson (víti) og Brynjar Jóhannesson mörk Ármenninga. Grindavík og Skallagrímur gerðu markalaust jafntefli í miklum baráttu- leik í Grindavík. Leikurinn þótti held- ur bragðlítill og jafn á báða bóga. ÍK og Víkingur Ólafsvík gerðu jafn- tefli í fjörugum og jöfnum leik í Kópavogi. Mark ÍK gerði Þröstur en Magnús Stefánsson jafnaði fyrir Vík- inga. Tindastóll hefur gert 12 mörk í tveimur síð- ustu leikjum Guðbrandur Guðbrandsson með fernu gegn Sindra B-riðill ÚRSLIT HELGARINNAR: HSÞ:Magni .............. 1:2 Huginn:Valur............ 1:0 Þróttur:Austri.................. 1:1 TindastólbSindri................ 6:0 Tindastóll sigrar nú í annað sinn í röð með sex mörkum gegn engu og í þetta skiptið var það Guðbrandur Guðbrandsson sem blómstraði í markaskoruninni en hann skoraði 4 af mörkunum. Sigurfinnur Sigurjónsson og Björn Sverrisson gerðu sitt markið hvor. Svo virðist sem Króksararnir séu illstöðvandi um þesar mundir og hafa þeir nú 2 stig í forskot og 1 leik til góða á Austfjarðaliðin þrjú, Austra, Þrótt og Hugin en eiga reyndar eftir að heimsækja þau öll og er hætt við að Austfirðingarnir bíti frá sér á heima- velli. Þróttur og Austri gerðu jafntefli, 1:1, í blíðskaparveðri á Neskaupsstað- arvelli á föstudagskvöldið. Fjöldi áhorfenda mætti á völlinn til að hvetja sína menn og sáu þeir Bjama Kristjáns- son taka forystuna fyrir Austra í fyrri hálfleik með gullfallegu marki, boltinn þaut í þverslána og þaðan inn í markið. Hinn kornungi Birkir Sveins- son sem kom inn á sem varamaður jafnaði síðan fyrir Þrótt í s.h. og þar við sat. Huginn vann góðan sigur á Val, 1:0. Mark Seyðfirðinga gerði Kristján Jóns- son en hann hafði þá ekki gert mark í 1 ár og 10 daga en hafði gert 8 mörk í fyrstu 4 leikjum Hugins í fyrra. Þeir Hringur Hreinsson og Jón Ing- ólfsson tryggðu Magna sigur gegn HSÞ. Mark HSÞ gerði Bjarni P. Arn- aldsson. AST. Staðan í A-riðli Selfoss 8 7 0 1 21:9 14 ÍK .. 8 14 3 11:11 6 Skallagr. ... 7 5 2 0 15:4 12 HV .. 8 3 0 5 15:22 6 Grindavik .. 8 5 12 13:11 11 Ármann.. .. 7 115 5:10 3 VíkingurÓl .8 2 3 3 10:11 7 Snæfell .. .. 6 0 1 5 4:16 1 Staðan í B-riðli Tindastóll . .7 6 1 0 24:3 13 Magni .. ... 6303 7:6 6 Austri .8512 15:7 11 HSÞ ... 8206 7:14 4 Þróttur .... .8512 15:9 11 Valur .... ... 7205 5:14 4 Huginn ... .8512 11:8 11 Sindri .... ... 8008 5:28 0 4. deild... 4. deild... 4. deild. Hrafna-Flóki tapaði áttun- um og Haukar sigruðu 14-0 A-riðill ÚRSLIT HELGARINNAR: StefninBolungarvík............ 3:1 Haukar:Hrafna-Flóki...........14:0 Haukar tóku á móti Hrafna-Flóka með kjafti og klóm og áður en leikur- inn var úti höfðu Hafnfirðingarnirgert hvorki meira né minna en 14 mörk, 10:0 í hálfleik. Markaskorun: Ómar Strange 4, Björn Svavarsson 4, Gunnar Svavarsson 2, Loftur Eyjólfsson 1, Henning Henn- ingsson 1, Þór Hinriksson 1 ogGuðjón Sveinsson 1. Mörk Stefnis gcgn Bolvíkingum gerðu Halldór Antonsson, Þorsteinn Guðbjörnsson og Örn Hólm. Leikmenn Óðins mættu ekki til leiks gegn Reyni Hnífsdal, leikurinn var flautaður á ogaf og Reyni dæmd stigin. Staðan: Haukar...... 6 5 1 0 32:1 11 Afturelding .5 3 2 0 18:6 8 Reynir Hn .. 7 3 1 3 9:8 7 Stefnir.... 7 1 5 1 12:12 7 Bolungarv. .7 3 1 3 8:13 7 Hrafna-Fl. .. 5 1 1 3 8:20 3 Óðinn...... 7 0 1 6 1:28 1 B-riðill ÚRSLIT HELGARINNAR: Augnablik:ÍR................... 2:4 Stjarnan:Hafnir................ 1:1 Grundarfjörður:Léttir ......... 1:2 1R vinnur hér þýðingarmikinn sigur á Augnabliki. Mörk ÍRgerðui Halldór Halldórsson 2 og Tryggvi Þór Gunn- arsson 2 en mörk Augnabliks gerðu Sveinn Ottósson og BirgirTeitsson. Hafnir náðu óvænt jafntefli gegn Stjörnunni á heimavelli hennar. Brynj- ólfur Harðarson skoraði fyrir Stjörn- una en Einar Haraldsson, gamall Garðbæingur, gerði markið fyrir Hafnir. Léttir komst í 2:0 undan vindi í fyrri hálfleik í miklum rokleik á Grundar- firði. Fyrramarkið var sjálfsmark cn hitt gerði Sverrir Geirsson eftir mikil varnarmistök Grundfirðinga. Kristján Ragnarsson minnkaði muninn fyrir heimamenn í síðari hálfleik. Staðan: Stjarnan.... 7 4 3 0 16:4 11 ÍR............ 7 5 0 2 18:14 10 Léttir...... 7 4 0 3 13:12 8 Augnablik .. 7 3 2 2 11:12 8 Grótta ....... 6 2 13 16:15 5 Hafnir...... 7 12 4 10:14 4 Grundarfj. .. 7 0 2 5 9:22 2 C-riðill ÚRSLIT HELGARINNAR: Drangur:Hveragerði............. 2:1 Eyfellingur:Árvakur............ 0:6 VíkverjhStokkseyri ............ 4:2 Hveragerði náði forustunni á 1. mín með merki Árna Svavarssonar. Drang- ur gafst hins vegar ekki upp og tókst að sigra með mörkum Ingva Karls Jónssonar og Guðna Einarssonar. Eyfellingum gekk illa að ná mann- skapnum úr sveitastörfunum og máttu þola stórt tap gegn Árvakri 0:6. Mörk Árvakurs gerðu Ragnar Hermanns- son 3, Friðrik Þór Friðriksson 1, Steinn Jónsson 1 og óþekktur 1. Víkverji heldur áfram sigurgöngu sinni og að þessu sinni lentu Stokkseyr- ingar í höndunum á glímuköppunum fótfráu. Gísli Felix Bjarnason (hand- boltamarkvörður), Hermann Björnsson, Þröstur Sigurðsson og Finnur Thorlasíus gerðu mörk Vík- verja sem hefur nú örugga forustu í riðlinum. Páll Leó Jónsson og Sól- mundur Kristjánsson skoruðu fyrir Stokkseyri. Staðan: Víkverji .... 7 6 10 20:5 13 Árvakur .... 7 4 12 20:10 9 Stokkseyri.. 7 3 13 19:15 7 Hveragerði . 7 3 0 4 13:11 6 Þór, Þorl.h. . 5 13 1 8:9 5 Drangur .... 6 2 0 4 8:14 4 Eyfellingur . 7 10 6 6:29 2 D-riðill I þessum riðli fór fram 1 leikur sem frestað var í 4. umferð. Glóðafeykir tapaði fyrir Hvöt, 1:3. Mark Glóða- feykis gerði Kolbeinn Konráðsson en ekki er vitað hverjir skoruðu fyrir Hvöt. Staðan: Hvöt.......... 3 3 0 0 6:1 6 HSS .......... 3 2 0 1 13:2 4 Skyttur ...... 4 112 2:12 3 Glóðafeykir ..4013 1:7 1 Frí var um helgina hjá liðunum vegna þess að þau eru ekki nema 4 í riðlinum. E-riðill ÚRSLIT HELGARINNAR: Leiftur:Árroðinn............... 1:1 Reynir:Vaskur ................. 4:0 Svarfdælir:Vorboðinn........... 0:2 Leiftur og Árroðinn gerðu snyrtilegt jafntefli á Ólafsfirði og þar með töpuðu Ólafsfirðingarnir sínu fyrsta stigi. Reynir sigraði Vask, 4:0 og fyrir heimamenn skoruðu Tómas Viðarsson 2, Guðmundur Hermannsson og Felix Jósafatsson. Mörk Vorboðans gerði Páll Þór Gunnarsson. Stadan: Leiftur...... 5 4 1 0 20:3 9 Reynir ...... 5 4 0 1 12:3 8 Vorboðinn ... 6 3 0 3 12:14 6 Árroðinn .... 6 2 13 13:13 5 Vaskur....... 6 2 0 4 10:17 4 Svarfdælir ... 6 1 0 5 7:24 2 F-riðill Vegna Sumarhátíðar Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands var ekk- ert leikið í riðlinum. - AST ÞRIÐJIIDAGUR U. JÚLÍ1983 Vio erum ódýrari! Póstsendum um land allt HfíGGPlMFOÍR Smiðiuveai 14. st'mi 77152

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.