Tíminn - 19.07.1983, Blaðsíða 1
Allt um íþróttir helgarinnar — bls. 9 til 12
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Þriðjudagur 19. júlí 1983
164.tölublað-67. árgangur
Stðumúla 15—Pósthólf 370Reykjavík-Ritstjórn86300—Augiýsingar 18300— Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Gæðamat á togaraþorski gífurlega misjafnt síðustu vertlð:
KARLSEFNI FÉKK AÐEINS 35%
AFLA METK) í FYRSTA FLOKK
— á meðan þeir bestu fengu 96% metið í fyrsta flokk
■ Gæðamat á togaraþorski
reyndist gífurlega misjafnt á síð-
ustu vetrarvertíð. Fengu þeir allt
frá 96,1% metið í fyrsta flokk,
niður í 35,2%, samkvæmt
skýrslu sem afhent var á blaða-
mannafundi hjá Fiskifélagi ís-
lands í gær.
Besta matið fékk Rauðinúpur
frá Raufarhöfn, 96,1%, en það
lakasta Reykjavíkurtogarinn
Karlsefni, 35,2%. Aðeins sex
togarar fá minna en 70% þorsk-
aflans metið í fyrsta flokk: Arin-
björn RE með 62,2%, Bjarni
Benediktsson 59,4%, Haförn
GK 57,8, Aðalvík KE_57%,
Ögri RE 38,3% og Karlsefni,
sem áður getur. 37 togarar fá yfir
90% þorskaflans í fyrsta flokk.
Mat hjá botnvörpubátum var
einnig mjög misjafnt, eða allt
frá 99,6% í fyrsta flokk niður í
38,3. Sjö bátar fá undir 70% í
fyrsta flokk: Sjávarborg
GK,Lyngey SF, Júpiter RE,
Haukafell SF, Sigurður Þorleifs-
son GK, Hafnarey SF og Ingólf-
ur GK, sem var lang lægstur,
12,2% fyrir neðan þann næsta.
21 bátur fékk yfir 90% í fyrsta
flokk.
Netabátar, sem að jafnaði
fengu mun lélegra mat en bátar
sem réru með önnur veiðafæri,
fengu að meðaltali rúmlega 70%
í fyrsta flokk, ef frá eru taldir
þeir bátar sem leggja upp í
vinnslustöðvum þar sem ekkert
mat fer fram, en í þeim fer oftast
allur aflinn í fyrsta flokk.
Á blaðamannafundinum kom
fram að minna af þorski fer nú í
fyrsta flokk en fyrir nokkrum
árum; hvort sem því valda,
meiri kröfur eða lélegri fiskur.
Þorskafli, annar en togaraþorsk-
ur, fær mjög misjafnt mat eftir-
verstöðvum. í mörgum verstöðv-
um fór yfir 90% í fyrsta flokk, en
í einum 8 fór minna en 60% í
fyrsta flokk. í þeim hópi eru
Grindavík, Keflavík, Reykjavík
og Höfn í Hornafirði.
Þorsteinn Gíslason, fiskimála-
stjóri, telur líklegt að matskröfur
séu misjafnar eftir verstöðvum.
-Sjó
■ Slökkviliðið berst við eldinn í þurrkklefanum, en eigendur
Rörsteypunnar töldu nokkuð Ijóst að leitt hefði út með rafmagnsblás-
urum í þurrkklefanum, þar sem milliveggir voru þurrkaðir, og það
orsakað eldsvoðann. Tímamyndir:Ari
■ Hilmar Guðjónsson fyrrverandi aðaleigandi Rörsteypunnar og
núverandi hluthafi og aðaleigandi Rörsteypunnar Ólafúr Björnsson
fylgjast með starfi slökkviliðsins í gærkveldi.
¥ íss ;■*: , i/S ixj' f #***»£* t jnl * *
tvlli
f !S”
ELDSVOÐII
RÖRSTEYPU
I KOPAVOGI
■ „Það bendir allt til þess að
sjálfvirku rafmagnsblásaramir,
sem eiga að fara í gang kl. 20 á
kvöldin hafi gefið sig, leitt hafi
út, eða „átómatið“ hreinlega
klikkað,“ sagði Ólafur
Bjömsson, einn aðaleigandi
Byggingarfélagsins Óss, sem á
Rörsteypuna við Fífuhvamms-
veg, í samtali við Tímann við
Rörsteypuna í gærkveldi, en
seint á tíunda tímanum í gær-
kveldi var slökkviliðið í Reykja-
vík kvatt að Rörsteypunni vegna
elds sem kom upp í þurrkklefa
fyrirtækisins.
Þegar Tímamenn bar að garði,
laust upp úr kl. 22 logaði eldur
glatt í þurrkklefanum, sem er
hliðarbygging við bygginguna.
„Við reynum að halda eldinum
frá aðalbyggingunni,11 sagði
Rúnar Bjarnason slökkviliðs-
stjóri sem stjórnaði aðgerðum
slökkviliðsins á staðnum, „en
mér virðist sem hann hafi eitt-
hvað náð til þaksins á bygging-
unni.“
Er Tíminn spurði Ólaf um
hversu miklu tjóni hann teldi
fyrirtækið hafa orðið fyrir, sagði
hann: „Við sjáum ekki enn hve
mikið tjónið er, enda er maður
ekki í stuði til þess að áætla
tölur, þegar maður horfir á
fyrirtækið sitt brenna. Ef til vill
verður stærsta tjónið það, að
framleiðsla stöðvast, en það ger-
ir hún ef þetta fer að einhverju
ráði í aðalbygginguna. Hérvinna
á milli 18 og 20 manns, og við
gætum sjálfsagt komið upp svona
húsi á 2 til 3 vikum, en ef
rafmagnið, sem er reyndar ný-
endurbætt, er allt í ólagi eftir
þetta, þá tekur það mun lengri
tíma að koma framleiðslunni í
gang á nýjan leik. Hér fyrir
innan er t.a.m. gufuþurrkklefi,
þar sem mjög dýrmæt tæki eru,
og ef þau laskast eitthvað eða
alveg, þá er tjónið miklum mun
meira en það verður ef eldurinn
breiðist ekki meira út. Og ef
hann kemst í aðalbygginguna þá
förum við þar ekki inn aftur.“
Tíminn hitti einnig einn hlut-
hafa Rörsteypunnar, Hilmar
Guðjónsson að máli, en hann
var einmitt aðaleigandi hennar
1964, þegar gífurlega mikill
bruni varð í sama fyrirtæki.
„Þetta er nú ekki mikið, miðað
við brunann sem varð þá,“ sagði
Hilmar, „sem betur fer, en nóg
er það samt.“
Á tólfta tímanum í gærkveldi
hafði slökkviliðinu tekist að ráða
niðurlögum eldsins, en þó logaði
enn í glæðum víðs vegar, svo
áfram var unnið við slökkvistarf-
ið og auk þess voru slökkviliðs-
menn á vakt við Rörsteypuna í
alla nótt. - AB