Tíminn - 19.07.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDDf
Skemmuwegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
& ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
» ^THabriel
pHÖGGDEYFAR
UGJvarahlutir s“ma1
f t
V
36. Evrópumótið í bridge í Wiesbaden 1983
ISLENDINGAR TEKNIR A BÐN-
K) AF BELLADONNA OG GAROZZO
■ íslenska liðinu gekk ekki vel
í fyrstu þrem leikjum sínum á
Evrópumótinu í bridge. í fyrstu
umferðinni tapaði liðið fyrir
Bretum, 3-17; í annari umferð
tapaði liðið fyrir Tyrkjum 7-13
og í þriðju umferð spiluðu ís-
lendingar við Ítalíu og þurftu að
draga 3 stig frá inneign sinni en
Ítalía fékk 20 stig.
Mótið hófst á laugardag með
glæsilegri setningarhátíð sem
endaði á stóreflis flugeldasýn-
ingu. Spilamennskan hófst síðan
á sunnudag en þá voru spilaðar
tvær umferðir. ( gær voru aftur
spilaðir tveir leikir, við Italíu og
Frakkland, en úrslitin í leiknum
við Frakkland höfðu ekki borist
þegar blaðið fór í prentun.
Að sögn Guðmundar Péturs-
sonar fyrirliða liðsins er næstum
ólíft í Wiesbaden sökum hita og
var talið að hitinn komist í 40 stig
þegar verst er. Engin loftræsting
er á hótelinu sém liðið býr á og
ekki heldur á spilastaðnum en
þar bjargar nokkru hvað hátt er
til lofts í spilasalnum. Guðmund-
ur sagði að jafnvel ítalirnir
kveinkuðu sér vegna hitans.
Guðmundur sagði að fyrsti
dagurinn hefði verið nokkuð
dæmigerður fyrir íslendinga á
'Evrópumóti; hann væri yfirleitt
slakur. Jón Baldursson og Sævar
Þorbjörnsson spiluðu fyrri hálf-
leik á móti Bretum en Jón Ás-
björnsson og Símon Símonarson
komu í seinni hálfleik fyrir
Guðmund og Þórarin. Jón og
Símon og Jón og Sævar spiluðu
síðan allan leikinn á móti
Tyrkjum.
ftalía sendir nú sitt alsterkasta
lið á mótið með heimsmeistarana
margföldu Belladonna og Gar-
ozzo í fararbroddi. Þeir spiluðu
fyrri hálfleikinn í opna salnum á
móti Jóni og Símoni og Guð-
mundur sagði að þeir hefðu setið
rólegir og tekið á móti stigunum
sínum. íslendingarnir börðust
eins og þeir gátu en þetta var
•einn af þeim leikjum þar sem allt
var dæmt til að mistakast. Staðan
í hálfleik var 18-72 fyrir ftalíu og
þá fóru Belladonna og Garozzo
útaf og létu Franco og DeFalco
sjá um að halda fengnum hlut.
■ Gömlu refirnir frá Ítalíu, Giorgio Belladonna og Beníto Garozzo,
fóru illa með íslenska landsliðið í gær á Evrópumótinu í Wiesbaden.
Mosca og Lauria spiluðu allan
leikinn fyrir ftalíu. Guðmundur
og Þórarinn spiluðu allan leikinn
fyrir ísland en Jón og Sævar
komu í seinni hálfleikinn.
í gærkvöldi spilaði ísland við
Frakkland en að sögn Guðmund-
ar Péturssonar hefur franska lið-
ið spilað mjög vel fyrstu þrjá
leikina. Úrslitin í leiknum verða
að bíða birtingar í Tímanum til
morguns.
Staðan á mótinu eftir 3 um-
ferðir er sú að Spánn er í fyrsta
sæti með 52,5 stig, Frakkland í
öðru með 52 stig, Belgía í þriðja
með 46,5 stig og Ítalía í fjórða
með 46 stig.
- GSH
77
ÞETTA VAR HEIL-
MIKIL SPRENGING”
— Breskt tundurdufl frá styrjaldarárunum
sprengt á Landeyjarsandi f gær:
Fallhlífastökkslysid i Grímsey:
Öryggisbún-
aður í lagi
■ „Þetta var heilmikil spreng-'
ing og það myndaðist líklega um
2ja metra djúpur og 6 metra
breiður gígur eftir hana“, sagði
Sveinn ísleifsson lögreglumaður
á Hvolsvelli í samtali viðTímann
Bráðkvaddur
í trillubát
■ Maður lést um borð i trilíu-
bát rétt fyrir utan Reykjavíkur-
höfn í gær morgun. Maðurinn
var einn í bátnum. Trillubátur-
inn sást á hringsóli í gærmorgun
og þar scm hann var greinilega
stjórnlaus var hafnsögumanni
gcrt viðvart. Þegar hann kom
um borð í bátinn fannst maður-
inn látinn. Að sögn rannsóknar-
lögreglunnar bendir allt til þess
að maðurinn hafi orðið bráð-
kvaddur.
-GSH
en hann var viðstaddur þegar
breskt tundurdufl var sprengt á
Landeyjarsandi í gær.
Tundurduflið, sem er frá
seinni heimsstyrjöld, kom í
trollið hjá Hásteini ÁR 8 þar
sem báturinn var að Humarveið-
um skammt frá Geirfugladrangi.
Sprengihleðsla duflsins var enn
virk þó kveikiútbúnaður væri
ónýtur en samkvæmt upplýsingum
frá Landhelgisgæslunni er talið
að duflið hafi verið skotið í kaf á
sínum tíma og síðan legið á
sjávarbotni þar til það kom í
humartrollið.
Hásteinn kom með duflið til
Vestmannaeyja um kl. 8 í gær-
morgun og þá var Landhelgis-
gæslunni gert viðvart. Lögreglan
á Hvolsvelli var síðan beðin um
að velja stað á Landeyjarsandi
til að sprengja duflið á þar sem
ekki var talið hættandi á að
sprengja það í Vestmanna-
. eyjum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
flutti duflið síðan á Krosssand og
þar var duflið sprengt rétt eftir
kl. 13.00 af Gylfa Geirssyni sem
er einn af sprengjusérfræðingum
Landhelgisgæslunnar.
Talið er að þó nokkuð sé til í
sjónum hér við land af svona
tundurduflum frá stríðsárunum
sem enn hafa virka sprengi-
hleðslu.
-GSH
■ Rannsóknarlögreglan á Ak-
ureyri, sem unnið hefur að rann-
sókn á fallhlífarstökksslysinu í
Grímsey, hefur ekkert fundið
sem telja má beina orsök þess að
Rosemarie Abelson le'nti eftir
fallhlífarstökk í hamrabeltinu á
austurhlíð Grímseyjar og lét við
það lífið.
Að sögn Ófeigs Baldurssonar
rannsóknarlögregluntanns á Ak-
ureyri virðist allur öryggisútbún-
aður stökkvarannahafa verið í
lagi og fallhlíf konunnar einnig.
Ófeigur sagði að það hefði verið
alfarið ákvörðun stökkvaranna
sjálfra hvenær stokkið var úr
vélinni en það haft síðar komið í
ljós að stökkstaðurinn var ekki
alveg réttur miðað við vindátt.
Það hafi að vísu verið erfitt að
gera sér grein fyrir því í þcssari
hæð, um 14500 fet, og einnig hafi
smá goluhnútar getað haft sín
áhrif. Samt átti ekki að vera nein
hætta á ferðum vegna þessa því
fallhlífastökkvararnir voru ailir
atvinnumenn og því átt að geta
stjórnað sér til lendingar á örugg-
um stað. Þeir voru allir með
björgunarbelti ef þeir skyldu
lcnda í sjónum og auk þess var
bátur til taks til að taka þá upp.
-GSH
Bannað að veiða þann gula í viku
■ Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur gefið út reglugerð um bann
við þorskveiðum tímabilið frá og
með 24. júlí til 2. ágúst næst
komandi.
Bann þetta tekur til allra
veiða, annarra en togveiða
skipa, er falla undir skrapdaga-
kerfið og línu og handfærabáta,
sem eru 12 rúmlestir og minni.
Það að þorskveiðar eru bann-
aðar þýðir, að hlutfall þorsks í
heildarafla hverrar veiðiferðar
má ekki vera meira en 15%.
■fHBwwffrrra tw
dropar
Innflutningur
í Hafnarfjörð
■ í nýjasta hefti Frjálsrar
verslunar er frá því sagt að
nýlega hafí fyrirtækið Dvergur
hf. í Hafnarfirði tekið að sér
vöruafgreiðslu fyrir Flugfrakt
Flugleiða, og einnig vöruaf-
greiðslu fyrir Hafskip, þ.e.a.s.
geymslu og afhendingu á inn-
fluttum vörum. „Hefur þessi
starfsemi Dvergs farið ört vax-
andi, ekki vegna mikils inn-
llutnings hafiifirskra fyrirtækja,
heldur vegna þess að sífellt
fleiri innflutningsaðilar beina
innflutningi sínum um Hafn-
arfjörð.
Eru þeir þannig að flýja
yfirráðasvæði Tollstjórans í
Reykjavík," segir í Frjálsri
verslun, „en pappírsbákn em-
bættisins er orðið þvflíkt að
viðskiptavinir þess eyða orðið
meira í tíma í að leysa út vörur
en að selja þær. Á meðan
herskarar Tollstjórans taka sér
iðulega tvo til þrjá daga til að
fjatla með innflutningsskjöl
tekur afgreiðsla þeirra aðeins
um eina klukkustund hjá fóget-
anum í Hafnarfirði. Það er
orðið atriði til að standast sam-
keppni að fá vörurnar heim um
Hafnarfjörð.“
Til hvers var
græna hliðið?
■ En það er fleira athygl-
isvert sem fram kemur í Frjálsri
verslun, eins og meðfylgjandi
greinarstúfur ber með sér „Fýr-
ir nokkrum árum fetaði tollur-
inn á KeflavíkurflugveUi í fót-
spor tollgæslu í öðrum Evrópu-
löndum og tók upp svokaUað
grænt hlið til að flýta fyrir
afgreiðslu farþega, sem voru
að koma til landsins án toll-
skylds varnings og væntanlega
til að spara mannskap. Nú
virðist sem tflgangur græna
hliðsins sé löngu gleymdur hafi
hann á annað borð nokkura
tíma verið Ijós yfirmönnum
tollgæslunnar. Flestir heiðvirð-
ir borgarar, sem vanir eru að
ganga hindrunarlaust um græn
hlið á flugvöllum nágranna-
landanna eru hér meðhöndlað-
ir eins og grunaðir glæpamenn.
Sjaldan sleppa menn hér í gegn
án þess að vera spurðir spum-
inga og flestir em niðurlægðir
af tollvörðum, sem telja sig
vera að gæta almannaheilla
með því að kássast ofan í
Fríhafnarpokum og öðmm far-
angri. Og að hverju er verið að
leita? Þrjú hundruð króna
brennivínsflösku og ósoðnu
kjöti undir því yfirskyni að það
geti komið drepsótt í rollu
norður í landi. Á meðan toU-
þjónustan á Keflavíkurflug-
veUi þarf fjóra tfl fimm toU-
verði í græna hliðið til að
afgreiða 200 farþega þurfa toll-
gæslunnar á Kastrup og Heat-
hrow þrjá menn til að afgreiða
10 þús. farþega. Þama er liður
sem þú getur skorið niður
Albert!“, segja þeir á Frjálsri
verslun.
Krummi
...er yfir sig hissa á íbúum þeim
í Brciðholtinu, sem köUuðu á
kúrekasveit lögrcglunnar til að
reka T-bónin og fflein úr görð-
um sínum, eins og verðhækk-
aniraar hafa verið að uiijjan-
fömu...!