Tíminn - 20.07.1983, Blaðsíða 1
FJÖLBREYTTARA
OGBETRABIAD!
Miðvikudagur 20. júlí 1983
165. tölublað - 67. árgangur
Síðumúla 15-Pósthólf 370 Reykjavik-Ritstjórn 86300-Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Tillögur Seðlabankans um
breytingar á lánskjaravísitölu:
NÝ vísitala
FYRIR HÚS-
BYGGJENDUR?
■ Ríkissljórnin ijallaði í gær
um tillögur Seðlabankans um
breytingar á lánskjaravísitölu
þeirri sem nú gildir. Hugmyndir
munu vera um að tekin verði
upp sérstök húsnæðislánavisitala
til verðtryggingar á lánum til
íbúðabygginga/kaupa, sem taka
mundi verulegt tillit til þróunar
kaupmáttar. Oljóst mun þó enn
hve mikið af þeim íbúðalánum
sem þegar hafa verið veitt yrði
hægt að tengja inn á þessa nýju
vísitölu.
Lánskjaravísitala mundi hins
vegar áfram gilda um önnur lán,
en hugmyndir eru jafnframt um
að taka upp útreikning á grunn-
vísitölum hennar mánaðarlega,
þannig að breytingar á verðlagi
hefðu fyrr og oftar áhrif á grunn
lánskjaravísitölunnar. Láns-
kjaravísitala miðast nú sem
kunnugt er að 2/3 við framfærslu-
vísitölu og 1/3 við byggingarvísi-
tölu, sem koma inn í grunn
hennar á víxl tvo mánuði af
hverjum þrem, en þriðja mánuð-
inn er svo miðað við vísitöluspá.
Ekki er vafamál að væntanleg
húsnæðislánavísitala mundi
hækka töluvert minna næstu
mánuðina en lánskjaravísitalan.
Hver þróunin yrði þegar til lengri
tíma er litið munu hins vegar
skiptar skoðanir um, þar sem
a.m.k. bjartsýnismenn vilja ekki
trúa því að verðlag haldi enda-
laust áfram að hækka meira en
kaupgjaldið. Ef samið yrði um
verulegar kauphækkanir mundu
þær hækkanir koma fyrr inn í
grunn hugsanlegrar húsnæðis-
lánavísitölu heldur en lánskjara-
vísitölunnar.
Samkvæmt heimildumTímans
munu lögfræðingar Seðlabank-
ans hafa komist að þeirri niður-
stöðu að ekki væri lagalegur
grundvöllur til að breyta þeim
grundvelli sem gilt hefur fyrir
útreikning lánskjaravísitölu á
mörgum þegar gerðum samning-
um, m.a. á ríkistryggðum
skuldabréfum. Mun gert ráð fyr-
ir að lánskjaravísitala haldi á-
fram að gilda sem verðtrygging
á innlánum í bankakerftnu.
-AB/HEI
■ Sirkus Arena frá Danmörku sem sýnir nú á hverju kvöldi á flötínni við TBR húsið í Heimunum. Þessi
lék listir sínar með eld ■ gærkveldi. Timamynd - Árni Sæberg
Hrossum fjölgað um 20 þúsund
á 13 árum en heildarafurðir af þeim ekkert:
„FÆKKUN HROSSA UM ÞRKU-
UNG EÐA HELMING TÍMABÆR”
—Málið til athugunar hjá Búnaðarfélagi
og Landgrædslu ríkisins
■ Hrossastofn hér á landi tekur nú um þriðjung ailrar
úthagabeitar, eða helming á við sauðfé. Frá 1970 hefur
hrossum fjölgað um tuttugu þúsund, úr 34 í 54 þúsund, en
á sama tíma hafa heildarafurðir af þeim í raun ekkert aukist.
Þessar upplýsingar fékk Tím-
inn hjá Ólafi Dýrmundssyni
landnýtingarráðunauti Búnaðar-
félagsins, en hann telur að þær
veki upp þá spurningu hvort
hross í landinu séu ekki orðin
alltof mörg.
„Flestir sem hugsa málið í
alvöru telja að fækkun um þriðj-
ung eða jafnvel helming sé orðin
tímabær." sagði Ólafur. Kvað
hann beitarerfiðleika víða um
- land vegna lélegrar grassprettu í
úthögum gera fækkun hrossa
brýnni en áður.
Að sögn Ólafs er hin gífurlega
fjölgun hrossa í engu samræmi
við markaðsþarfir. Markaður
fyrir íslensk hross erlendis er
orðinn mjög lítill, og innan við
200 hross eru seld utan árlega.
Veldur því einkum þrennt,
versnandi efnahagsástand, mikið
er ræktað af íslenskum hrossum
erlendis og svokallaður sumar-
kláði hrjáir útfluttu hestana.
Besti markaður fyrir reiðhesta
hefur verið í þéttbýli hér innan-
lands, en þar örlar á tregðu.
Mikil sala hefur verið á hrossum
undanfarinn áratug svo vera
kann að sá markaður sé að
mettast, og eins setur efnahags-
ástandið og eigin hrossarækt
þéttbýlisbúa strik í reikninginn.
Loks er útflutningsmarkaður fyr-
ir hrossakjöt orðinn lítill,miklar
birgðir kjöts eru til í landinu og
ekki útlit fyrir breytingu í bráð.
„Þegar á heildina er litið hlýtur
niðurstaðan að verða sú að
hrossastofninn sé of stór og
fækkun verði að koma til. Sjálfur
treysti ég mér ekki til að dæma
um hve mikil fækkun er nauðsyn-
leg, en þriðjungur virðist nær
lagi,“ sagði Ólafur Dýrmunds-
son. Taldi hann rétt að í hrossa-
búskap yrði farið inn á sömu
brautir og í sauðfjár- og naut-
griparækt, leggja meiri áherslu á
gæði, en minni á fjölda.
Ólafur benti á að frá landnýt-
ingarsjónarmiði væri fjöldi og
fjölgun hrossa áhyggjuefni. Þau
eru beitarfrek, en af þeim er lítill
arður. í þessum efnum væri
ástandið sérstaklega slæmt í af-
réttum á Norðurlandi vestra,
þ.e. Húnavatnssýslu og Skaga-
firði. Þar er talið að um fjórðung-
ur allrar beitar fari í hross, en á
santa tíma er mikið grasleysi
vegna kulda undanfarin sumur.
„Kjarni málsins er sá að við
þurfum að sníða okkur stakk
eftir vexti í hrossarækt, ekkert
síður en í öðrum búskapargrein-
um, og fækkun hrossa nú er
öllum til hagsbóta, ekki síst eig-
endum," sagði Ólafur Dýr-
mundsson ráðunautur að Iokum.
Þessi mál eru nú til frekari
athugunar á vettvangi Búnaðar-
félagsins, og hjá Landgræðslu
ríkisins sem fer með gróðureftir-
lit í landinu.
- GM
Fargjöld Flugleida á Evrópuleiðum:
ERU 30% 1ÆGRI
EN HIÁ ÖDRUM!
■ _„í samanburði við önnur
Evrópuflugfélög stöndum við
mjög vel að vígi hvað verð
snertir, því í Ijós hefur komið
að Flugleiðir eru með fargjöld
á Evrópuleiðum sem eru að
ineðaltali um 30% lægri en
önnur Evrópuflugfélög setja
upp,“ sagði Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða m.a. á fundi
með' fréttamönnum í gær, í
tilefni þess að í dag eru 10 ár
liðin frá því að Flugfélag ís-
lands hf. og Loftleiðir samein-
uðust í einu flugfélagi Flug-
leiðum.
Forstjórinn sagði jafnframt
að hann teldi að heldur væru
•bjartari horfur framundan í
flugheiminum en verið hefur
undanfarin ár. Taldi hanp að
m.a mætti rekja það til þess að
efnahagsástand Bandaríkj-
anna færðist- nú hægfara til
betri vegar.
Þá kom fram í máli forstjór-
ans að Flugleiðir eru með
launagreiðslur á ári hverju sem
nema um 370 milljónum króna
á núgildandi verðlagi. Há-
marksfjöldi farþega á sólar-
hring getur náð tölunni 3500,
veruleg aukning hefur orðið á
Atlantshafsfluginu á þessu ári,
eða um 24%, en talsverður
samdráttur hefur orðið í flugi
á Evrópuleiðum.
Sjá nánar bls. 16 og 17