Tíminn - 28.07.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.07.1983, Blaðsíða 1
Farþegum með Herjólfi fjölgar — Sjá baksíðu FJÖLBREYTTARA OG BETRABIAD! Fimmtudagur 28. júní 1983 172. tölublað - 67. árgangur ■ Hrcssar stelpur úr Vinnu- skóla Reykjavíkurbreðga á lcik í Viðey en þangað fóru um 800 nemendur skólans í gær í boði Reykjavíkurborgar. Sjá nánar á blaðsíðu 2. Tímamynd Ari. Gerðardómsúrskurður í dagpeningadeilu ferðakostnað- arnefndar og fjármálaráðuneytisins: AKVÓRÐUN FERDAKOSTNAD- ARNEFNDAR STANDI OBREYTT ■ Gerðardómur sem skipaður var til að leysa úr deilu ferða- kostnaðarnefndar og fjármála- ráðuneytisins hefur sent frá sér niðurstöðu, þar sem segir að auglýsing ferðakostnaðarnefnd- ar skuii standa óbreytt. Forsaga málsins er sú að ferða- kostnaðamefnd sendir frá sér tilkynningu í maflok, þar sem tilkynnt var um 31% hækkun dagpeninga frá 1. júní. Launa- deild fjármálaráðuneytisins brá þá við og tilkynnti 8% hækkun þessara greiðslna í stað 31%. Samkomulag tókst svo með BSRB og BHM annars vegar og fjármálaráðuneytisins hinsvegar um að gerðardómur skæri úr í þessari deilu. Unnsteinn Beck lögfræðingur, sem sæti átti í gerðardómnum, sagði í samtali við Tímann að dómurinn hefði fjallað um hvort bráðabirgðalögin tækju til þessara tegunda greiðslna eða hvort að- gerðir nefndarinnar ættu að standa og hefði niðurstaðan orð- ið sem að ofan greinir. „Við teljum þetta rétta af- greiðslu. Þetta er útlagður kostn- aður ekki laun og við vildum'fá úrskurð á þeim grundvelli“ sagði Kristján Thorlacíus formaður BSRB í samtali við Tímann. f auglýsingu ferðakostnaðar- nefndar sem er í fjórum liðum stendur; að til greiðslu á gisti- og ISALTAPADI400 MIIUONUM1982 ■ „Arið 1982 var hið versta í sögu áliðnaðarins,“ segir í upp- hafi ársskýrsíu ísal, sem lögð var frant á aðalfundi fyriríækisins í gær. Segir cnnfremur að eftir- spurn og vcrð á áimörkuðum hafi lækkað þriðja árið i róð og sá bati sem efnahagssérfræðingar hafí spáð hafí ekki komið fram. Tap á reksfrarreikr.mgi nemur ails 406.582.418 ísienskra króna. Á árinu voru framleidd 77.400 tonn af fljótandi áli, en það er 88% af framleiðslugetu. Hreinar sölutekjur námu 1.078.050.344 krónur. Kostnaður við ýmsar breytingar og uppsetningu þurr- hreinsibúnaðar nam á árinu 3.5 milljónum Bandaríkjadala. Launakostnaðurvar 198.168.565 íslenskar krónur. - JGK, ferðakostnaði innanlands komi 1060 kr. fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring. í öðru lagi að fyrir gistingu í einn sólarhring komi 480 kr. í þriðja lagi að fyrir fæði einn dag komi 580 kr. (minnst 10 tímar) og í fjórða lagi að fyrir kaup á fæði hálfan dag- inn komi 290 kr. (minnst 6 tímar). „Þessi úrskurður hlýtur að hafa fordæmisgildi um dagpen- inga hjá öðrum“ sagði Kristján. Indriði Þorkelsson deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu sagði í samtali við Tímann að hjá þeim hefði þetta verið ákveðin túlkun á bráðabirgðalögunum en þar sem niðurstaðan hefði orðið þessi bæri að hlíta henni. Hann sagði að hækkunin samkvæmt auglýsingunni væri ekki 31% heldur 22-27% eftir atriðum. -FRl. Evrópumótið í bridge: ÍSLENDINGAR BURSTUÐU JÚGÓSLAVANA 19-1 ■ íslendingar unnu Júgó- slava 19-1 á Evrópumótinu í bridge í gær. íslenska liðið er enn í 20. sæti eftir 17 umferðir en bilið er að mjókka upp í efri sæti. Frakkar styrkja sífellt stöðu sína í efsta sætinu og eru nú með 54 stiga forskot en 6 umferðir eru eftir á mótinu. Elín Bjarnadóttir, sem dvelst með íslenska liðinu í Wiesbaden, sagði í samtali við Tímann í gær að leikurinn við Júgóslava hefði verið vel spil- aður af hálfu íslendinganna en Jón og Sævar og Jón og Símon spiluðu allan leikinn. Það sama var ekki að segja um leikinn við Dani sem íslendingar töp- uðu 20-1. í frétt f Tímanum í gær var sagt að leikurinn hefði tapast 20-2 en í gærmorgun unnu fslendingar kærumál úr leiknum og björguðu einu stigi á því. Guðmundur og Þórarinn spiluðu allan leikinn, en hin pörin skiptu í hálfleik. í 17. umferð unnu Frakkar Portúgali 20-2 og ítalir unnu Svía 19-0,5. Norðmenn töpuðu fyrir Austurríkismönnum 4-16 svo Skandinavar virðast ekki hafa haft gott af frídeginum á þriðjudag. Elín sagði að sífellt fjölgaði í fslendinganýlendunni í Wies- baden og í gær birtist bridge- spilarinn kunni, Guðlaugur R. Jóhannsson, allsóvænt til að hvetja íslendingana til dáða á lokasprettinum. Frakkar eru nú með 279 stig, ítalir með 225 stig, Ungverjar með 206,5 og Þjóðverjar með 203 stig. ísland er með 130,5 stig í 20. sæti. í kvennaflokki er Bretland efst með 91 stig eftir 6 umferðir. í gærkvöldi spilaði ísland við Rúmena en í dag er Spánn og ísraei á dagskrá. - GSH. Sidumuia 15 —Postholf 370 Reykjavik — Ritstjorn 86300-Augiysingar 18300— Afgreidsia og askrift 86300 — Kvöidsimar 86387 og 86306 Helgarpósturirm bidur afsökunar á skrifum sínum um okurlán tveggja TVEIR BIAÐA- MENN SEGJA UPP STÖRFUM! ■ Ritstjórar Helgarpóstsins, Björn Vignir Sigurpálsson og Árni Þórarinsson, munu í blað- inu sínu í dag birta afsökunar- grein þar sem hörmuð eru skrif Helgarpóstsins um meint okur- lánaviðskipti tveggja lögmanna hér í borg og viðskipti þeirra við fyrirtækið Böðvar S. Bjarnason sf. Stjórn útgáfufélags Helgar- póstsins styður þessa málsmeð- ferð. í kjölfar þessarar ákvörð- unar hafa tveir blaðamenn Helg- arpóstsins ákveðið að segja upp störfum, en það eru sömu blaða- menn og stóðu að birtingu og skrifum umræddrar greinar. Fyrrnefndar upplýsingar hefur Tíminn eftir áreiðanlegum heim- ildum, en Björn Vignir Sigur- pálsson, ritstjóri, vildi hvorki staðfesta þær né neita þeim í samtali við blaðiö í gær. Umrædd blaðagrein birtist í Helgarpóstinum fyrir viku. í henni voru tveir nafngreind- ir lögmenn hér í borg, Jón Magnússon og Sigurður Sigur- jónsson, sagðir hafa staðið í orkulánaviðskiptum og hafa komið stöndugu fyrirtæki í Reykjavík, Böðvari S. Bjarna- syni sf. á höfuðið. Eins og komið hefur fram í Tímanum mótmæltu lögmennirnir þessum áburði, og kváðust hafa undirbúið höfðun meiðyrðamáls á hendur Helg- arpóstinum fyrir vikið. Jafnframt mótmæitu fyrirsvarsmenn Böðv- ars S. Bjarnasonar sf. og „hörm- uðu þessi rugluðu skrif“. í kjölfar þessara viðbragða tóku ritstjórar Helgarpóstsins ákvörðun um birtingu afsökun- arbeiðni, eftir að ljóst varð að blaðið gat ekki staðið við um- mæli sín. í framhaldi af því hafa blaðamennirnir tveir sem ábyrgð báru á þessum skrifum sagt störf- um sínum lausum. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.