Tíminn - 17.08.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.08.1983, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1983 3 fréttir Móðurmálskennarar veita verðlaun í smásagnakeppni: „VERIU EKKI MEÐSVONA BlA AUGU” — eftir Olgu Gudrúnu hlaut fyrstu verðlaun, kr.20 þús. ■ Samtök móðurmálskennara efndu til samkeppni um smásögur handa börn- um á síðastiiðnum vetri. Frestur til að skila sögum rann út 1. júní s.l. og bárust alls 77 sögur. Verdlaunaafhcnding fór fram í gær í Torfunni við Lækjargötu þar sem saman voru komnir fulltrúar frá samtökunum auk dómnefndar. Veitt voru ein verðlaun að upphæð kr. 20.000. Verðlaunin hlaut Olga Guðrún Árna- dóttir fyrir sögu sína „Vertu ekki með svona blá augu“. Formaður samtaka móðurmáls- kennara, Sigurður Svavarsson. flutti ávarp við verðlaunaafhendinguna og sagði m.a. að dómnefndinni hefði verið mikill vandi á höndum við úrskurð sinn. Mjög margar góðar sögur hefðu borist og erfitt hefði verið að gera upp á milli. Megin áherslan hefði verið lögð á að sagan væri góð út frá bókmenntalegu sjónarmiði, á góðu máli og að hún segði börnunum eitthvað sem máli skipti og væri auk þess góð til kennslu. Flestar þeirra smásagna sem borist hefðu, væru þessum kostum gæddar enda væri nú ráðgert að gefa út 21 sögu sem borist hefði í tveim bókum nú á næstunni. ■ Olga Guðrún Árnadóttir tekur við verðlaunafénu af Sigurði Svavarssyni formanni móðurmálskennara. Tímamynd Róbert Verður önnur ætluð börnum en hin unglingum. Höfundar þeirra sagna sent út koma eru: Andrés Indriðason. Ármann Kr. Einarsson, Ása Sólveig. Benóný Ægis- son, Elías Snæland Jónsson, Elísabet Þorgeirsdóttir, Guðjón Sveinsson, Guðmundur Ólafsson, Herdís Egils- dóttir, Jón Dan, Jórunn Sörensen, Krist- ín Steinsdóttir, Njörður P. Njarðvík, Oddný Guðmundsdóttir, Ólafur Haukur Símonarson, Sigrún Björgvinsdóttir, Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, Svanhildur Friðriksdóttir og Pórður Helgason. Auk þessara sagna bárust tvær sögur sem dómnefnd telur mjög góðar en cru taldar ciga frckar heima í sérstakri bók en í smásagnasafni. Það eru sögurnar „Músíkalska ntúsin" eftir Þórunni Gröndal og „Sumarið með Aðalsteini" eftir Trausta Ólafsson, sem er of löng til að birtast í safninu. Eru samtökin mjög ánægð með árangur þessarar samkeppni og telja þetta sýna að nóg sé til af höfundunt scm vilja og geta skrifaö góðar bókmenntir fyrir börn og ung- linga. -ÞB íslensk framleidsla: VARMO SNJÓ- BRÆÐSLU RÖR — Reykjalundur framleiðandi en Þýsk-íslenska verslunar félagid med söluumboðið ■ „Með þessu hefst samvinna iönfyr- irtækis og markaðsfyrirtækis sem ég á von á að verði árangursrík", sagði Guðmundur G. Þórarinsson hjá Þýsk-ís- lenska verslunarfélaginu á fundi með blaðamönnum er kynnt var ný legund snjóbræðsluröra sem Vinnuheimilið að Reykjalundi í Mosfellssveit framleiðir og Þýsk-íslenska verslunarfélagið hefur tekið að sér söluumboð fyrir. Snjó- bræðslurörin heita VARMO, en það er skammstöfun á Vinnuheimilið að Rcykjalundi, Mosfcllssveit. í forsvari fyrir Reykjalund voru þeir Jón Ben- ediktsson og Björn Ástmundsson en fyrir Þýsk-íslenska verslunarfélagið þeir Guðmundur G. Þórarinsson og Magnús Bjarnfreðsson. Snjóbræðslurörin eru framleidd úr hitaþolnu plasti frá fyrirtækinu Huls í V-Þýskalandi. Eru þau fyrst og fremst ætluð fyrir afrennslisvatn, sem má þann- ig nýta til þess að halda auðum gangstétt- um, gangstígum, bifreiðastæðum, heilu götunum og jafnvel íþróttavöllum. Tvær stórframkvæmdir eru nú þegar í gangi hér á landi þar sem VARMO- snjóbræðslurörin eru notuð. Á Akureyri er verið að leggja þau í Hafnarstrætið og þessa dagana er verið að leggja þau í bílastæði við hið nýja stórhýsi Vöru- markaðarins á Seltjarnarnesi. Það kom fram á fundinum að sér- stakur bæklingur verður gefinn út með tæknilegum upplýsingum um rörin, með- höndlun þeirra o.fl. Einnig er í undir- búningi að halda námskeið fyrir pípu- lagningamenn, kynningarfundi fyrir verkfræðinga um þessi rör. Meterinn af þessum snjóbræðslu- rörum kemur til með að kosta ca. 35 krónur út úr búð en það er töluvert ódýrara en innflutt rör kosta. Rörin verða til sölu í flestum byggingarvöru- verslunum landsins. _jó| ■ Guðmundur G. Þórarinsson, Björn Astmundsson og Jón Benediktsson standa hér innan um VARMO-snjóbræðslurörin sem verið er að leggja undir bflastæði við stórhýsi Vörumarkaðarins á Seltjarnamesinu. Tímamynd-'Ari Reykjavlkurvikan: KVIKMYNDIR EFTIR ÓSKAR GÍSLASON ■ Kvikmyndir eftir Óskar Gíslason kvikmyndagerðarmann, verða sýndar í Reykjavíkurviku. Sýnt verður úr kvik- myndinni „Reykjavík vorra daga,“ frá ’46 í Iðnó á fimmtudaginn kl. 20.30. f myndinni bregður m.a. fyrir ■ svipmyndum frá miðbæ Reykjavíkur. Einnig koma fram í myndinni þekktir borgarar svo sem Sveinn Björnsson forseti íslands og Bjarni Benediktsson borgarstjóri. Kvikmyndin „Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra", verður svo sýnd í Iðnó sunnudaginn 21. ágúst kl. 16.00. -Jól. Flugleidir: Ný flug- vél f áætlun- arflug ■ Ný gerð flugvélar byrjar áætlun- arflug á lciðum Flugleiða hinn 18. ágúst. Það er DC-8-71 en þaö cr flugvél sem búin hcfur veríö nýjum hreyflum og er hreytt þannig að innan í henni er brciðþotu innrétting. Er vélin 249 sæta og vegna nýju hreyflunna eyðir hún minna eldsney ti og er hljóölátari en eldri gerðir. Islenskar áhafnir munu fljúga vél- inni og tekur endurþjálfun á henni aðeins einn dag sem er bóklegt námskeið. Átta áhafnir verða þjálf- aðar til flugs á þessa vél. Að sögn Leifs Magnússonar fram- kvæmdastjóra Flugrekstrarsviðs er dýrt að breyta flugvélum i þessa átt, kostarum 15 tnilljótiir doilara. „Fyrir slíka upphæð er hægt að fá breiðþot- ur af ýmsum gerðum". sagði Leifur. Gengið hefur vcrið frá vetraráætl- un millilandaflugs Flugleiða næsta vetur. Ein meginbreyting hefur vcr- ið gcrð frá því scm verið hefur að undanförnu: Flug til Glasgow færast af mánudögum og föstudögum yfir á þriðjudaga og laugardaga. í vetur vcrður flogið til 3 borga í Ameríku: New York, Chicago og Baltimore. Til New York verður llogið á þriðjudögum, fimmtudögum, föstu- dögum og laugardögum. Til Chicago og Baltimore verður svo flogið á sunnudögum. Evrópuflug verður til Osló og Stokkhólms á mánudögum og föstu- dögum. Til Kaupmannahafnar verð- ur flogið alla daga nema mið- vikudaga. Til Glasgow þriðjudaga og laugardaga og til London veröa fjór- ar ferðir, á mánudögum, miðviku- dögúm, föstudögum og sunnu- dögum. -Jól Reykjavíkur vika íkvöld: Ungt fólk með tón- leíka og upplestur ■ Vcri er að vekja athygli á tveim listviðburðum Reykjavíkurviku í kvöld. Kl. 20.30 hefst í Gerðubergi dagskrá í tali og tónum sem neínist Reykjavfk fyrr og nú. Flytjendur verða Anna Einarsdóttir, Emil Guðmundsson, Valgcir Skagfjörð og Þörunn Pálsdóttir. Stjórnandi er Helga Bachmann. Á Kjarvalsstöðum kl. 21 .<K)hcfjast tónleikar á Kjarvalsstöðum, ungt tónlistarfólk úr Rcykjavík leikur og syngur. Þau scm koma fram eru Ásthildur Haraldsdóttir flautuleik- ari, Haukur Tómasson píanóleikari, Elísabet F. Eiríksdóttir sópran, Júlíus Vífill Ingvarsson tcnór, Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari, Sigríður llelga Geirlausdóttir píanóleikari og Laufcy Sigurðardótt- ir fiðluleikari. -JGK Kópavogur: Ekið á stúlku ■ Ekið var á 10 ára gamla stúlku á Skemmuvcginum í Kópavogi í gær- kveldi klukkan níu. Var hún að koma úr íþróttahúsinu er ekið var á hana. Slasaöist hún ekki alvarlegacn þó var hún á slysadeild Borgarspítal- ans í nótt en átti að fá að fara heim í dag. Á sama tíma urðu tveir árekstrar annars staðar í Kópavoginum en engin slys urðu þar á mönnum, sem betur fer. - Jól. ■ ■ Úr myndinni „Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra" eftir Óskar Gíslason.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.