Tíminn - 09.11.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.11.1983, Blaðsíða 1
íslendingaþættir fylgja bladinu í dag FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 9. nóvember 1983 260. tölublað - 67. árgangur Siðumula 25—Postholf 370 Reykjavik—Ritstjorn 86300—Augiysingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvóidsimar 86387 og 86306 SFORMARKAMRNIR ERU AÐ FA LAUGARDAGSOPNUNINA í GEGN — Búist við að borgarstjórn samþykki breytinguna endanlega í næstu viku ■ Allt bendir tU þess að á næstu vikum verði reglugerð um opnunartíma verslana í Reykja- vík breytt í þá veru að framvegis megi verslanir hafa opið eftir hádegi á laugardögum, til kl. 20.00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 22.00 á föstudögum, auk þess sem til greina kemur að leyft verði að opna kl. 08.00 á morgnana. Búast má við að þessi nýja tilhögun taki gildi fyrir næstu mánaðamót og yrði hún mikill sigur fyrir stórmarkaðina með Hagkaup í broddi fylkingar, sem hafa barist hart fyrir rýmk- uðum opnunartima í samræmi við hliðstæðar verslanir í ná- grenni Reykjavíkur. Kaupmannasamtök fslands, Verslunarmannafélag Reykja- víkur og Neytendafélag Reykja- víkur og nágrennis hafa náð samkomulagi um að óska eftir því við borgarráð ReykjaVíkur að gerð verði tilraun með nýtt fyrirkomulag varðandi opnunar- tíma verslana á höfuðborgar- svæðinu. Bréf þess efnis barst borgarráði í gær frá formönnum ofangreindra félaga og farið fram á að svar berist sem fyrst vegna þess hve málið sé orðið aðkall- andi. Lagt er til í bréfinu að fram til 1. júní n.k. verði leyfilegur opnunartími verslana frá kl. 08.00-20.00 frá mánudegi til og með fimmtudags, kl. 08.00-22.00 á föstudögum og k. 08.00-16.00 á laugardögum. Ákvörðun um framhald yrði síðan tekin í ljósi fenginnar reynslu. Þetta erindi verður tekið til fyrri umræðu á aukafundi borg- arstjórnar annað kvöld og til síðari umræðu fimmtudaginn 17. nóvember. Taliðervíst að mikill meirihluti borgarstjórnar styðji erindið nú þegar hagsmunaaðilar hafa náð um það samkomulagi. Staðfesting félagsmálaráðherra þarf síðan að koma til áður en væntanleg reglugerðarbreyting öðlast gildi. JGK Óvenjulegur heybruni á Sudurlandsvegi: KVIKNAÐI í BÖGGUM Á VÖRUBÍLSPALLI! ■ Nokkuð óvenjulegur hey- bruni varð í gær þegar kviknaði í heyi á fullhlöðnum vörubíl á Suðurlandsvegi á móts við fjár- borg við Rauðavatn. Þegar bíl- stjórinn varð var við eldinn sturt- aði hann heyinu á vegarbrúnina og kallaði á slökkviliðið. Það tók síðan þrjá og hálfan tíma að ráða nðurlögum eldsins. Að sögn slökkviliðsins var bíll- inn á leiðinni úr Fljótshlíð með vélbundið hey á pallinum. Talið er að heitt hafi verið í heyinu og að þegar loft hafi leikið um það á pallinum hafi eldurinn brotist út. Slökkviliðið fékk tilkynningu um brunann kl. 12.30 í gær og það kom á staðinn með tvo slökkvibíla. Þá logaði glatt í heyinu og gekk illa að ráða við eldinn. Rífa þurfti næstum alia baggana í sundur þar sem glæður leyndust lengi og slökkvibílarnir fóru 3-4 ferðir á Árbæjarslökkvi- stöðina til að sækja vatn. Slökkvistarfinu lauk síðan ekki að fullu fyrr en kl. 16.00 ,Að sögn slökkviliðsmanna var eitthvað reynt að vinsa úr heyinu en talið er að það sé allt ónýtt. GSH EINKAFUIGVEL HUKKnST Á í FUIGTAKIÁ EGIISSTÖÐUM — Eigendurrair höfðu aðeins átt vélina í 1Q daga ■ Lítilli einshreyfilsflugvél af gerðinni Cessna 172 hlekkt- ist á í flugtaki á Egilsstöðum í gær. Hreyfill flugvélarinnar missti afl skömmu eftir flugtak en flugmanninum tókst að lenda á túni um 400 metra frá flugbrautinni. Rétt í þann mund og vélin var að stöðvast eftir lendingu hvolfdi henni en hvorki flugmann né farþega sakaði. Vélin er hinsvegar tal- in vera mikið skemmd eftir óhappið Ekki er enn vitað hvað olli því að hreyfill vélarinnar missti afl en rétt eftir að flug- maðurinn hafði lokið flugtaki fékkst hreyfillinn ekki til að skila afköstum. Flugmannin- um tókst að láta vélina svífa yfir Eyvindará sem er um 2-300 metra frá norðurenda flugbrautarinnar á Egils- stöðum, og lenda á svokölluðu Finnstaðanesi handan árinn- ar. Töluverður snjór var þarna á túninu og var hann misþykk- ur og blautur. Þegar vélin hafði runnið um 60 metra eftir lendinguna lenti framhjól hennar á fyrirstöðu, þannig að hægra afturhjól vélarinnar lyftist upp og vinstri vængur- inn rakst niður. Við það hvolfdi vélinni fyrirvaralaust. Vélin var á lítilli ferð þegar henni hvolfdi og mennirnir tveir sem í henni voru reyrðir í ólar þannig að þá sakaði ekki. Flugvélin mun vera illa farin eftir óhappið, m.a. báðir vængir hennar gengnir til. Ekki er vitað um orsakir óhappsins en menn frá loft- ferðaeftirlitinu eru væntanleg- ir austur í dag til að rannsaka málið. Cessnavélin hefur einkenn- isstafina TF-MUS og er í eigu Flugklúbbs Egilsstaða. Klúbb- félagarnir keyptu vélina fyrir aðeins 10 dögum og höfðu flogið henni í 7 flugtíma þegar óhappið varð. ■ Dyrhólaey, útvörður landsins í suðri T ímamynd: Ámi Sæberg Engin loðna fengist enn — sennilega tuttugu bátar farnir á sjó ■ „Meðan ekki er búið að finna loðnuna eru þeir mikið aö svffa um fyrir-aoröan, næst- jim austur við Kolbeinscyjar- mið. Þeir voru tvcir búnir að kasta síðast þegar ég vissi, en fengu ekkcrt," sagði Andrés Finnbogason, hjá Loðnu- nefnd, í samtali við Tímann í gær. Hann sagði yð 13 bátar hefðu verið farnir tiMoðnu- veiða um hádegisbilið í gær. Bjóst hann við að cinhverjir myndu lcggja af stað með kvöldinu þannig að í dng yrðu upp undir tuttugu bátar á miðunum eða á leið á þau. -Sjó.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.