Tíminn - 23.03.1986, Blaðsíða 20

Tíminn - 23.03.1986, Blaðsíða 20
20Tíminn FÖötudagúr 21. mars 1986 Önnur grein Haraldar Jóhanns- sonar um Picasso í tilefni af sýn- ingu á verkum hans á komandi Listahátíð 118. „Endurkair eöa „Út- för Casagemas." Rubin. I22. Pedro Manach. Penrose II. ^^U^jálfsmynd^an\ Pablo Picasso Els Quatre Gats við Plaza Catalonia IMIÐBORG Barcelona í lok 19. aldar voru götur þröngar, en á þeim var iðandi mannlíf frá morgni til kvölds. í hoði var varningur hvers konar glaðningurog frcistingar. Frá matstofum lagði angan af viðarolíu og kryddi, og frá vínstofum undir lágum hvelfingum, sem ámum var hlaðið upp undir, hárust til eyrna ástríðuþrungnir tönar, sem gestir tóku að hragði, og strengjaómur gítara. Við hliöargötu fast við Plaza Catalonia hafði víðförull hryti. Pere Romeu, opnað veglegan veitingastað, Els Quatre Gats, Kettina fjóra, 1897 (og rak til 1903). (Mynd 13) Þangaö komu einkum listamenn og mcnntamenn, flestir ungir, en nokkrir miðaldra, og urðu margirþcirra nafnknnnir. Eins konar öndvegi skipuöu Ramon Casa málari og Miguel Utrillo listfræðingur, einn þeirra, sem hófu El Grcco til nýs vegs. (en hann var fósturfaðir franska málarans Maurice Utillo). Sumarið 1899 fóru þeir að gefa út tímarit, Pel y Ploina, Pensil og penna, og stóð þaö að sýningum. Pá voru líka á miðjum aldri Santiago Rusenol. málari og leikritaskáld, og Zulocga, haskneskur málari. Á meðal hinna ungu voru allmargir listmálarar, Isdre Nonell, Sehastia Janyer Vidal. Carlos Casagemas; myndhöggvari, Manolo Hugue, arkitekt Ramon Reventos, skáld Jaime Sabartes, (síðar höfundur minninga um Picasso og ritari hans), safnari Carlos Janyer, bræöurnir Angel og Mateo Fernandez Soto og rithöfundur. Eugenie d'Ors, sem þrjátíu árum síðar skrifaði bók um Picasso. ABLO Ruiz Picasso sótti Els Ouatre Gats, eftir að hann kom aftur til Barcelona í fchrúar 1899. og varð þar gott til vina. Mál voru þar ekki rædd af tæpitungu, þótt róttækni væri síður af toga jafnaðarstefnu en stjórnleysis, sem þá átti skorinorða málsvara í Catalóníu. Einn þeirra, Jaime Brossa, hafði í janúar 1893 ritað í tímarit, L'Avcnue, á þcssa leið: Að því kemur, að maðurinn sætti sig ekki við hömlur á hugsun sinni; í þeirri upphafningu einstaklingsins megna engar hclgisagnir, skurðgoðcða goðmögn. þcssa heims eða annars, að hefta lausn eðlis hans, - kenningar, sem ýmsum mun þykja undirróður, þótt í þeim fléttist ncikvæður andi öðrum jákvæðum til að endurvekja og endurnýja þrotin öfl. Viðhorf þetta kann að enduróma í fleygum orðum Pablo Picasso fjörutíu árum síðar: „Verk mín eru samdráttur eyðileggingarinnar." Þótt sitt sýndist nú Pablo og föður hans um flesta hluti, kom hann nær daglega á heimili foreldra sinna, en hafði svefnstaö úti í bæ. Vinnustofu deildi hann með öörum. Var hann síteiknandi. í minnisbókum hans frá þessu ári, 1899, og hinu næsta, eru mcð ólíkindunt fjölskrúðugar svipmyndir: Afgötulífi, nautaati, vagnklárum, eklum, hafnarverkamönnum. mönnum á bátum, nautabönum, betlurum; og danssýningúm á krám, veitingastofum og hóruhúsum. í minnisbókunum eru líka nokkrar teikningar af landslagi, húsþökum og mannslíkamanum og urmull af andlitsmyndum af foreldrum hans, systurog kunningjum. (Mynd 14) Fáeinar teikningar hans birtust í tímaritum. Á Els Ouatre Gats dró hann upp auglýsingaspjöld og jafnvcl matseðla. Þar var sýning á ntyndum hans í fcbrúar 1900, en enga mynd fékk hann tekna í spænska sýningarskálann á heintssýningunni í París það ár. Pablo til utanferðar ásamt Carlos Casagemas, vini sínum frá Els Quatre Gats, og var för þeirra heitið til Parísar, en þar stóð þeirn til boða vinnustofa Nonells í Montmartre, en hann var þá nýkominn hcim. Frá Parísætluðu þeir til London. Því kann að hafa valdið dálæti föður hans á ýntsu því, sem enskt var, en það hafði óbcinlínis áhrif á hann í bernsku. („Þegar hann átti heima í Coruna, kom hann að gröf Sir John Moore og var sagt, að hann hefði dáið með nafn ástkonu sinnar á vörum, lafði HesterStanhope. Hann hafði þá lesið ævisögu hennar og kynnst konu gerólíkri þcim, sem hann hafði áður þekkt til, konu, sem unnið hafði sér frelsi og hjörtu manna.” Penrose, Picasso bls. 62) Pablo hét að koma hcim fyrir jól, er þeirlögðu upp, fáeirium dögum áður en hann fyllti 19. aldursár sitt. I París stóð þá heimssýning. Mikið var unt dýrðir í borginni, einsogekki fór framhjá þeim félögum. Vinnustofa Nonells var í 39 rue Gabrielle, ekki víðs fjarri Sacré Coeur. í Montmartre bjó þá myndhöggvarinn Manolu Hugue, kunningi þeirra frá Els Ouatre Cats. Greiddi hann götu þeirra, en hafði gaman af að kynna Pablo síðhærðan sem dóttur sína, því að á frönsku stóðu íhonum andmælin. (Mynd 15) Af för þeirra til London varð ekki. Pablo gekk á söfn og dvaldist við málverk frá öldinni öndverðri, einkum Ingresog Delacroix. Á málverkasölum sá hann myndir frá undanfarandi áratugum. Meðal annarra eítir Degas, Van Gogh, Gauguin og Toulouse-Lautrec, og eftir málara, sem voru að geta sér frægðar, svo scm Cezanne, Bonnard og Vuillard. Málverkasala Berthe Weil seldi hann þrjú málverk af nautaati á 100 franka. Og var hann þá kynntur Pedro Manach. catalónskum peníngamanni og listunnanda. Bauðst Manach til að greiða Pablo 150 franka á mánuði fyrir öll þau verk, sem frá hanshendi kæmu. Tók Pablo því boði. Kveið hann þá ekki lengur daglátum. IPARIS tók Pablo sér fljótlega pensil í hönd, og „málaði hann nokkrar myndir af því lífi í glaum og glæstum nautnum, sem þeir sáu í kringum sig." Hin fyrsta þeirra var „Moulin de la Galette". Aðra mynd málaði hann líka úr þeim garði, sem Toulouse-Lautrec hafði gert frægan, „Can-Can." „Á aðferð meistara ljóssins hafði hann fest sjónir og numið í sama vetfangi." (Penrose, Picasso, bls. 64) á „Moulin de la Galette" ber birtu ekki aðeins af gasljóskerum, heldur líka af litbrigðum á kjólum kvenna og gljáa á höttum karla. Orðheldni Picasso ein mun ekki hafa ráðið því, að þeir sneru heim rétt fyrir jól. Hann hafði áhyggjur af félaga sínum, Casagemas, sem hrifist hafði af sýningarstúlku, Laure Gargallo, sem kynni vildi ekki af honum hafa, og drakk. í Barcelóna stóðu þeir aðeins stutt við og héldu ferðinni áfram til Malaga og komu þangað 30. desember 1900. Aldamótafagnað sátu þeir hjá ættingjum Pablo, en ekki hresstist Casagemas. Hélt hann aftur til Parísar. Þar réð hann sér bana 17. febrúar 1901, skaut sig á kaffihúsi. í minningu hans málaði Pablo þrjú málverk, sem hann lauk við um sumarið. (Mynd 16). Frá Malaga fór Pablo Ruiz Picasso til Madrid undir miðjan janúar 1901, og hafði að honum hvarflað að setjast þar að. Þar hóf hann að gefa út tímarit ásamt Francisco de Asis Soler, einum kunningja sinna frá Barcelona, Arte Joven, Ung list. Var Pel y Ploma fyrirmynd að því. Af tímariti þeirra komu út fjögur hefti, hið fyrsta í mars. hið síðasta í júní 1901. (Mynd 17) að nokkru flutti það kastilínskar þýðingar á ritsmíðum catalónskra höfunda, að nokkru efni frá öðrum spænskum höfundum. og var kunnastur þeirra. Miguel Unamono, helsti rithöfuncíur jafnaðarmanna á Spáni. í maí 1901 var í Barcelona haldin sýning á pastelmyndum frá París og Madrid eftir P.R. Picasso, (eins og hann hafði farið að skrifa sig um veturinn í stað P. Ruiz Picasso áður). í grein um sýninguna sagði Miguel Utrillo: „List Picasso er mjög ung.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.