Tíminn - 08.10.1986, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.10.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 8. október 1986 FRÉTTASKÝRING Snæfari landar fyrsta síldarfarminum: Síldarvertíðin er hafin Síldarvertíöin er nú hafin og veiddist fyrsta síldin í Mjóafirði í fyrrinótt. Það var Snæfari RE-76 sem veiddi þessa síld og var lienni landað á Eskifirði þar sem hún var fryst í beitu. Skipstjóri á Snæfara er aflaklóin Ingvi Rafn Albertsson, en hann hefur jafnan verið með Guðmund Kristin' SU-404 frá Fá- skrúðsfirði, cn nú er verið að koma fyrir nýjum síldarleitartækjum í Guðmundi Kristni og er hann ekki tilbúinn ennþá. Síldin virðist stór og falleg en endanlegar niðurstöð- ur úr prófunum munu ekki liggja fyrir fyrr en í dag. Söltun að hefjast Nú liggurfyriraðstrax ogsöltun- arstöðvar hafa orðið sér úti um vinnsluleyfi getur söltun hafist upp í samninga við Svía og Finna. Samningar hafa nú tekist við inn- flytjendur frá þessum löndum um sölu á samtals 51.000 tunnum af ýmsum tegundum saltaðrar síldar, en það er um 15% meira magn en í fyrra. Síldina sem Snæfari landaði á Eskifirði átti upphaflega að salta á Fáskrúðsfirði hjá Pólarsíld þarsem Snæfari jafnan leggur upp á síldar- vertíð, en ekki tókst aö fá söltunar- stöðina tekna út af Ríkismati sjáv- arafurða nógu snemma og var hún því send í frystingu á Eskifjörð. Hjá Pólarsíld er nú allt tilbúið til söltunar og vantar aðcins samþykki Ríkismatsins til aö söltun gcti hafist. Skarphcöinn Óskarsson hjá Rikismatinu sagði við Tímann í gær að maður frá þeim væri á leiðinni austur og að öllum líkind- um yrði hægt að hefja söltun á Fáskrúðsfirði í dag miðvikudag, ef allt væri eins og það ætti að vera. - stefnt að söltun á Fáskrúðsfirði í dag Enn ekkert síldarverð Enn hefur ekki verið ákveðið verð á síld til söltunar, frystingar, eða í úrgang og ekki boðaður nýr fundur í Verðlagsráði um þetta mál. Hugmyndin mun vera sú að bíða og sjá hvernig samningar við Sovétmenn þróast. Formlegar við- ræður Síldarútvegsnefndar og Prodintorg, sovéska fyrirtækisins sem sér um síldarinnkaup, hefjast í dag og eru menn almennt sam- mála um að mikið beri á milli samningsaðila. Þrátt fyrir að söltun upp í samn- inga við Svía og Finna geti hafist strax auðveldar það ekki ákvörðun um það hvað greiða eigi fyrir síld upp úr sjó þar sem öll sala á saltsíld er miðstýrð og fer í gegnum Síldar- útvegsnefnd. Þannig fá saltendur ekki hærra verð fyrir síld sem fer til Skandinavíu en síld sem fcr til Rússlands eða öfugt. Þröng staða Ljóst er því að mikið liggur við að ná samningum við Sovétmenn hið fyrsta, en það er jafnframt ljóst að sjaldan eða aldrei hafa samn- ingaviðræður dregist jafn lengi og sjaldan hefur samningsaðstaða okkar veriðjafn þröng. Norðmenn og Kanadanienn hafa undirboðið Suðurlandssíldina verulega á okk- ar helstu mörkuðum og er þess skemmst að minnast að umtalsvert bakslag kom í viðræður við Svía og Finna fyrir skömmu vegna undir- boða Nórðmanna á elleftu stundu. Síldarsaltendur eru nú einnig mjög varkárir eftir óskemmtilega reynslu í fyrra þegar stórtap varð á síldarsöltun, og telja þeir sig ekki geta greitt mjög hátt verð fyrir síldina án þess að til komi veruleg Frá síldarsöltun á Reyðarfirði. tekjuaukning af sölu erlendis á móti. Á þessari vertíð verður ieyft að veiða 65 þúsund tonn af síld og alls munu 97 bátar taka þátt í veiðun- um, en Irestur til þess að skila inn síldarkvóta sínum og fá í staðinn botnfiskkvóta rann út sl. sunnu- dag. Þetta þýðir að rúm 600 tonn koma í hlut hvers báts en heimild er fyrir því að sameina tvo kvóta. þannig að hámarkskvóti á bát verð- ur því rúm 1200 tonn. Síld í bræðslu Sjávarútvegsráðuneytið hefur tilkynnt að í ár verði leyft að veiða síld til bræðslu að einhverju leyti en ekki er enn Ijóst nákvæmlega hversu mikið eða hvaða sfld leyft verður að bræða. Verður beðið með frekari ákvörðunartöku um það hvernig síldin verður nýtt þar til línur fara að skýrast í sölumálum til Sovétríkjanna. Þórður Eyþórs- son deildarstjóri í sjávarútvegs- ráðuneytinu sagði í samtali við Tímann í gær að þangað til bæri að túlka þessa tilkynningu ráðuneytis- ins þannig að komi bátur með afla að landi og einhver hluti hans nýtist ekki í aðra vinnslu, það væri t.d. mikið af átusíld eða sleginni síld þá væri ekkert því til fyrirstöðu að hún færi í bræðslu. Flestir þeir sem Tíminn ræddi við í gær töldu að ótrúlegt væri að bátar myndú fara að gera eingöngu út á síld til bræðslu nema ef leyfi kæmi frá ráðuneytinu um að slá saman fleiri en tveimur kvótum, 1200 tonn væru full lítið fyrir hvern bát í slíka vinnslu. Hins vegar er1 jafnljóst að sumar bræðslurnar myndu ekki slá hendinni á móti síld ef skynsamlegir samningar tækjust um verð, og koma þá helst til greina þær verksmiðjur er cru út á „enda“ eins og kallað cr, þ.e. þær sem lengst eru frá loðnumiðunum. Ein slík verksmiðja er Síldar- verksmiðja ríkisins á Reyðarfirði sem vel getur annað meira hráefni og myndi þá, eftir áralangt hlé á ný bera nafn með rentu. Enn er þó spurningin um síld til bræðslu vangaveltur einar og fýsi- leiki þessa valkosts kemur til með að velta á niðurstöðum þeirra við- ræðna sem hefjast í dag milli Sovétmanna og íslendinga. Hitt er svo annað mál hversu lengi fslend- ingar geta haldið þeirri sérstöðu sinni að salta til manneldis meiri- hlutann af þeirri síld sent þeir veiða, en Norðmenn t.d. salta einungis um 5% af síldarafla sínum. -BG Bandarískir sjónvarpsmenn: Viðstaddir messu í kirkju í Flóanum Frá fréttaritara Tímans í Ciaulverjabæjarhreppi, Stefáni Jasonarsyni Þau koma víða við sögu umsvif erlendra fjölmiðla um þessar mundir Heimildar- rit um Erró, 1974-1986 Fyrir skömmu kom út hjá Storðar- útgáfunni, bók um hinn fræga ís- lenska málara Erró. Bókin er heim- ildarrit um list ntálarans frá árinu 1974 til ársins 1986. I bókinni er að finna Ijósmyndir af öllum þeim verkum sem Erró hefur unniö á ofangreindu tímabili, auk lista aftast í bókinni yfir allar þær sýningar sem málarinn hefur tekið þátt í sem og einkasýningar. Eins er skrá um allar þær bækur, ritdóma eða blaðagreinar þar sem fjallað er um málarann. Tvöhundruð eintök af bókinni voru tölusett og árituð af lista- manninum og fylgja þessum eintök- um fjögurra lita litógrafía, sem Erró vann sérstaklega í tilefni af útkomu- bókarinnar. Bókin, scm heitir fullu nafni Erró, Myndverk 1974-1986 kemur samtímis út á ís- lensku, frönsku og ítölsku. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðing- ur ritaði inngang bókarinnar, og ber hann nafnið „Krókaleið heim að Klaustri". Bókin er til sölu í öllum bókabúðum sem og hjá forlaginu. og kynning á landi og þjóð erlendis. vegna leiðtogafundarins í Reykja- vík. Til dæmis voru mcnn frá CBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum við guðsþjónustu í Gaulverjabæjar- kirkju á sunnudaginn var. Sjónvarpsstöðin, sem hefur að fróðra manna sögn meira en 100 manna lið við efnisöflun hér á landi mun áður en langt um líður sýna fjölbreyttan fræðsluþátt frá íslandi þar vestra og er guðsþjónusta í íslenskri sveitakirkju (rar mcðal efnis. Kirkjusókn í Gaulverjabæjar- kirkju á sunnudaginn var ágæt og hugljúfur alvöru og helgiblær yfir athöfninni. Kont sóknarpresturinn, séra Úlfar Guðmundsson víða við í ágætri ræðu og gerði meðal annars að umtalsefni þýðingu þeirrar ráð- stefnu sem fyrirhugað er að halda í Reykjavík næstu daga og ákvarðanir leiðtoganna sem hvor urn sig hafa fjöregg heimsfriðarins í sínum hönd- um og framtíð mannkyns á þessari jörð. Athugasemd Af gefnu tilefni skal tckið lram að umferðarslys við Klcifá á Snæfellsnesi sem sagt var frá í blaðinu í gær, varð ekki á þeim vegarkafla sem lögreglan í Stykk- ishólmi gagnrýndi í sömu frétt vegna lélegs viðhalds. Frá sýningu á verkuni Eyjólfs J. Eyfells á Kjarvalsstöðum. Tímamynd: Sverrir Aldarminning Eyjólfs J. Eyfells: Yfirlitssýning á Kjarvalsstöðum Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir yfirlitssýning á verkum hins þjóð- kunna málara Eyjólfs J. Eyfells. Eyjólfur fæddist þann 6. júní 1886 að Seljalandsseli undir Eyjafjöllum, þannig að í ár eru eitt hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Hann fluttist tuttugu og tveggja ára gamall til Reykjavíkur og hóf þá teikninám hjá Stefáni Eiríkssyni, sem kallaður var hinn oddhagi. Þar var hann við nám í þrjú ár en fyrstu sýningu sína hélt hann ekki fyrr en árið 1919. Síðar, eða 1923 hélt Eyjólfur til náms í Þýskalandi og nam þá undir handleiðslu hins þekkta portrett- málara E.O. Simonsen-Castelli. Eyjólfur hafði málaralistina að ævistarfi, eða frá árinu 1914 til ársins 1977. Þekktastur er Eyjólfur fyrir landslagsmálverk sín og þá stemmn- ingu sem hann nær fram í verkum sínum. Sýningin, sem er í Kjarvalssal stendur fram til hins 19. október.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.