Tíminn - 30.05.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.05.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 30. maí 1987 . Tíminn 5 Þorsteinn Pálsson skilaöi umboðinu: Segir Kvennalistann hafa viljað lögbinda öíl íaun og á því hafi strandað. Kennir áhugaleysi Framsóknar um Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins gekk í gær á fund forseta Islands og skilaði honum umboði því sem hann fékk til myndunar ríkisstjórnar. Forseti hafði í gær ekki ákveðið hverjum skyldi veitt umboð til stjórnarm- yndunar, en hallast menn að því að nú sé komin röðin að Jóni Baldvin Hannibalssyni, eða þá að Stein- grími Hermannssyni verði veitt umboð á nýjan leik. Sagði Þorsteinn að aðilar þeirra þriggja flokka sem nú reyndu myndun ríkisstjórnar, hafi verið komnir nærri sameiginlegum “markmiðagrundvelli" fyrir ríkis- stjórnina, en hins vegar hafi ágrein- ingur milli Sjálfstæðisflokks og Kvennalista um ákvörðun lág- markslauna komið í veg fyrir að svo mætti takast. „Það var ljóst að þessir aðilar voru sammála því markmiði að það þyrfti að móta stefnu til að tryggja stöðu þeirra lakast settu í þjóðfélaginu. Við sjálfstæðismenn lögðum fram hug- myndir, sem byggðu á þeim grund- viðræður með þeim og Alþýðuflokki velli að slík stefna yrði mótuð á þann veg að ríkisvaldið í kjaras- amningum við opinbera starfsmenn, setti fram tillögur um lágmarkslaun og dreifingu launa- hækkana, þannig að mest kæmi í hlut þeirra sem lægst hafa launin. Við vildum ekki fara lögbindingar- leið eða hlutast til um frjálsa kjar- asamninga. Kvennalistinn vildi fara leið einhliða aðgerða og laga- setningar. Okkar mat var að slík stefna færði launahækkanir þeirra lægst launuðu upp allan launastig- ann og samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun, þýddi slík 25% launahækkun á alla yfir 90% verð- bólgu í lok ársins og við vorum ekki tilbúnir að taka þá áhættu. Því náðu þessar viðræður ekki lengra,“ sagði Þorsteinn. Aðspurður sagði Þorsteinn að hann gerði ráð fyrir að Kvennalistinn hafi viljað koma í veg fyrir þessi óheppilegu hliðar- áhrif með lagasetningu varðandi öll laun í landinu. „Ég held að það Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins. fari ekki á milli mála að annar kostur hafi ekki verið fyrir hendi, hefði þessi leið verið farin.“ Sagði Þorsteinn að þegar þessi niðurstaða hafi legið fyrir hafi menn leitt hugann að framhaldinu og Sjálfstæðisflokkur hafi helst bundið vonir við stjórnarmyndun- artilraun með Alþýðuflokki og Framsóknarflokki. „Mat mitt var að ekki eru hafnar það eftir að hafa kynnt mér viðhorf Framsóknarflokksins með viðræð- um við formann flokksins, að þar væri ekki nægjanlegur áhugi á að taka þátt í viðræðutn um slíka stjórn, til þess að það gæfi okkur ástæðu til að halda áfram," sagði Þorsteinn Pálsson. Sagði Þorsteinn að þó hafi komið fram að Fram- sóknarflokkurinn hefði ekki neitað að ganga til slíkra viðræðna, en að hans mati hafi áhuginn ekki verið nægur. Sagði hann að þingflokkur- inn hafi verið honum sammála í þessari stöðu að skila bæri umboð- inu til forseta. Aðspurður hvort Jón Baldvin hafi lýst yfir endurnýjuðum áhuga á ríkisstjórnarsamstarfi við Framsókn, sagði Þorsteinn að ljóst væri að erfiðleikar væru á samstarfi þessara tveggja flokka og hann vildi þar ekki kenna einum frekar en öðrum um. en heildarmatið væri að það væri ekki nægjanlegur vilji af „hálfu þessara aðila til að hefjast handa til að gera slíka tilraun". - phh Jón Baldvin Hannibalsson um ríkisstjórnarsamstarf með Framsókn og íhaldi: KEMUREKKITIL GREINA UNDIR FORYSTU FRAMSÓKNAR „Ég hef aldrei hafnað viðræðum við Framsóknarflokkinn. Hitt er annað mál að við höfum líka sagt að við höfum ekki áhuga á að verða þriðja hjól í vagni fráfarandi ríkisstjórnar og ef að slíkum samn- ingaviðræðum kæmi þá yrði það að vera á nýjum málefnagrundvelli, nýrri verkaskiptingu og undir nýrri forystu. Þetta hefur verið og er okkar afstaða,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í samtali við Tímann í gær eftir að þingflokksfundur Framsóknar hafði lýst áhuga sínum á tilraun til ríkisstjórnar undir forystu Framsóknar með Alþýðu- og Sjálfstæðisflokki. Aðspurður hvaða kostur til ríkis- stjórnarmyndunar honum þætti fýsilegastur í dag, þar sem Alþýðu- flokkur ætti hlutdeild að, sagði Jón Baldvin geta svarað því á þá leið að fárra góðra kosta væri völ. En ef samningar tækjust milli fráfar- andi ríkisstjórnarflokka og AI- þýðuflokks um róttækar breytingar á stjórnarstefnu þ.á m. um heildar- endurskoðun skattakerfisins, rót- tæka endurskipulagningu á ríkisút- gjöldum og um róttækt umbóta- prógram í félagsmálum með áherslu á húsnæðismál líf- eyrismál og stjórnkerfi, þá væri það ósköp gott. En líkurnar á að slíkt samkomulag takist væru ekki miklar. Aðspurður um hvort Alþýðuf- lokkur gerði það að skilyrði varð- andi ríkisstjórnarsamstarf við Framsókn, að tnargfrægum bú- vörusamningi yrði rift sagði Jón Baldvin að það væri pólitisk stað- reynd, sem hefði komið fram í undangengnum viðræðum að það Jón Baldvin Hannibalsson. eru a.m.k. fjórir flokkar sem styðji þennan samning fjögur ár fram í tímann. Það væri því pólitískur meirihluti fyrir honum og þýðing- arlaust að gera kröfu til að honum verði rift. - phh Kristín Einarsdóttir, Kvennalista: Ekki ætlunin að lögbinda öll laun Stjórnarmyndunartilraun Þor- steins Pálssonar strandaði á ágrein- ingi milli Sjálfstæðisflokks og Kvennalista um lögbindingu lág- markslauna. Taldi Þorsteinn að ef öll laun ættu ekki að hækka í kjölfar 25% hækkunar lágmarks- launa með þeim afleiðingum að verðbólga yrði um 90% í lok ársins, yrði að lögbinda öll laun og á það hafi ekki verið fallist. Kristín Einarsdóttir hjá Kvenna- lista sagði að það hafi ekki verið ætlun Kvennalistans að lögbinda öll laun. „Ef aðilar vinnumarkað- arins vilja þessa hækkun lágmarks- launa ekki, er þetta auðvitað mjög erfitt. En það má beita ýmsum aðhaldsaðgerðum stjórnvalda í þessu máli og maður hefði nú haldið að það hefði mátt sameinast um slíkar aðgerðir," sagði Kristín. Aðspurð sagði Kristín að viðræð- urnar hefðu reyndar ekki verið komnar svo langt að slíkar aðhalds- aðgerðir stjórnvalda hefðu verið ræddar og Kvennalistinn hefði ekki verið búinn að leggja neinar "pat- entlausnir" á borðið þar að lútandi. Aðspurð hvort svona breyting á launauppbyggingu kallaði ekki á hugarfarsbreytingu áður en hún væri framkvæmanleg og hvort Kvennalistinn hefði lagt einhverjar Kristín Einarsdóttir. línur þar að lútandi, sagði Kristín það rétt að hugarfarsbreyting væri skilyrði svona brcytinga. „En mér finnst það verðugt verkefni fyrir aðila vinnumarkaðarins að taka að sér, þegar ákveðið hefur verið og það orðið staðreynd að fólk fái ekki laun undir lágmarksfram- færslu, að stokka kerfið upp og jafna út þeirri fjárupphæð sem Þingflokkur Framsóknarflokks: Vilja Þriggja flokka stjórn Þingflokksfundur Frani- sóknarflokksins var haldinn í gær og voru óskir þingmanna varðandi hugsanlega ríkis- stjórnarþátttöku kannaðar. Mikil andstaða kom í Ijós við stjórn Framsóknar og Al- þýðuflokks undir forystu Sjálf- stæðisflokks og enn meiri andstaða við stjórn sömu flokka undir stjórn Alþýðu- flokks. Þá virtust þingmenn ekki telja stjórn einhverra fjögurra flokka undir stjórn Framsóknarflokks, kost sem leita ætti eftir á þessu stigi og þá ekki heldur stjórn með Kvennalista og Sjálfstæðis- flokki undir forystu Framsókn- ar. Hins vegar kom í ljós að flestir þingmanna flokksins settu stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks undir forystu Framsóknar efst á blað og nokkrir töldu þetta næst besta kostinn. í öðru sæti lenti stjórn með Sjálfstæðisflokki og Borgara- flokki, enn undirforystu Fram- sóknar og reyndist þessi val- kostur álíka vinsæll og fyrsti kosturinn. Þriðji vinsælasti kosturinn var áframhaldandi stjórn Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks með stuðningi þriðja aðila, t.d. Stefáns Val- geirssonar. - phh atvinnuvegirnir hafa úr að spila. Það verði gert þannig að þeir sem eru betur settir verði að sætta sig við það, að einhverjir drepist ekki og mér finnst það ekki vera stjórn- valda að raða fólki niður. Utan þessa atriðis auðvitað og einnig viljuin við leiðrétta hlut kvennast- éttanna," sagði Kristín Einarsdótt- ir. - phh PL'M^ íþróttavörur Stenzel Hvítir leðurskór. Gæðin þekkja allir. Stærðirfrá 3'/2-6. Verð kr. 2364.- Markmannspeysur frá kr. 1151.- Markmannsbuxur frá kr. 1328.- Markmannshanskar frá kr. 346.- Boris Becker tennisspaðar. Einning squashspaðar. I Vulkan hitahlifar. Verðfrákr.818.- Vulkan hitasokkar. Ballerina hanskasskinnskór, léttir og þægilegir á götuna. Litur: hvítir st. 31 -42 — bleikir st. 36-41 — svartir st. 36-46. Verð frá kr. 1388.- Póstsendum SPÖRTVÖRUl/ERSUJN JNGOLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg40. Á HORNÍKLAPPARSTIGS 0G GRÍTTISGÖTU s.nrn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.