Tíminn - 10.10.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.10.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur 10. október 1987 Frá undirritun kaupsamnings* milli ríkisins og Sambands ísl. samvinnufélaga kl. 11.43 í gær. Gudjón B. Ólafsson forstjóri SÍS, Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra og Valur Arnþórsson stjórnarformaður SÍS. Tímamynd Pjetur Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS og Ragnar Aðalsteinsson, hrl., um- boðsmaður landeigenda, undirrita kaupsamninginn. Tímamynd brein Landið „Mikið er það gaman að nú fari á milli tckki scm ekki er tckið við mcð fyrirvara," sagði Valur Arnþórsson, stjórnarformaður SÍS, við afhend- ingu fyrri hluta útborgunar í hús- eignir Sambandsins við Sölvhólsgötu og Lindargötu. Undirritunin og af- hending fyrstu greiðslu fór fram í Borgartúni 6 í gær og var skrifað undir kl.l 1,43. Sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, af þessu tilefni að nú væri lokið þreifingum og viðræð- um sem í raun hafi staðið frá því árið 1981, og vonaðist hann til að andi Jónasar frá Hriflu og annarra góðra manna, fylgdu með í kaupunum. Ekki var Guðjón B. Ólafsson, for- stjóri Sambandsins tilbúinn til að skilja hann alveg eftir en sagðist „vona að gæfa og gengi fylgi ráðu- neytum þeim sem í húsið fara eins og okkur sambandsmönnum í þessu góða húsi." Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra, sagði að ákvörðunin um kaup á húscignum og lóðarrétt- indum þessum „væri rétt ákvörðun að bestu manna yfirsýn". Upplýsti hann síðan að kaupverð- ið væri um 36.000 kr. á fermetra og að heildarverð húseignanna væri 280 milljónir. Fyrri hluti útborgunar væri greiddur nú við undirritun, 50 millj- ónir, en síðari hluti, aðrar 50 millj- ónir, yrðu greiddar eftir 6 mán. frá undirritun. Afborganir verða síðan greiddar samkvæmt kaupsamningi þessum, að fullu, innan tæplega fjögurra ára. Einn sá besti kostur við kaupin væri nálægðin við Arnarhvol og ekki síður mjög gott ástand húsanna. Byggingarréttur lóðanna fylgir og leigugjöldin, sem fylgir ráðuneytum nú, næmu um 25 millj- ónum á ári. Þá sagðist hann telja að að Menntamálaráðuneytið væri í hvað mestri húsnæðisþröng um þess- ar mundir. Ekki vildi hann segja til um það hvaða starfsemi yrði flutt inn í Sambandshúsin, enda væri það forsætisráðherra að ákveða það. Hann hafi aðeins séð um kaupin. Um er að ræða húseignina nr. 4 við Sölvhólsgötu, ásamt tilheyrandi eignarlóð, húsið nr. 9a við Lindar- götu, ásamt tilheyrandi eignarlóð, eignarlóðina nr. 12 við Sölvhólsgötu og ennfremur framsal á eignarrétt- indum leigulóðanna nr. 6 og 8 við Sölvhólsgötu. KB f gær var undirritaður kaupsamn- ingur milli Sambands íslenskra sam- vinnufélaga og umboðsmanns land- eigenda Smárahvamms í Kópavogi. Kaup voru gerð á 2^05 hekturum byggingarsvæðis t' landi Smár- ahvamms, sem er vestan Reykja- nesbrautar. Kaupverðið nam 120 milljónum króna. Nánar var gerð grein fyrir landi þessu í Tímanum í gær. Afhending var gerð við undirskrift og er samningurinn gerður með fyrirvara um forkaupsrétt Kópa- vogskaupstaðar, og voru aðilar sam- mála um að hann standi í 28 daga í samræmi við lög þar um. KB Önnur hæö Kaupstaðar opnuð á fimmtudag: 200 fermetrar af nýju verslunarrými Það bætast heilir tvö þúsund og tvö hundruð fermetrar við verslun- arplássið í Breiðholti á fimmtudag- inn kemur, þegar KRON opnar nýja deildaskipta stórverslun á annarri hæð í Kaupstað í Mjódd. Núna er rétt rúmlega ár liðið síðan KRON keypti þessa verslun og opnaði hana undir nýju nafni. Þá var húsið aðeins ein tvö þúsund fermetra hæð með jafnstórum kjallara undir, en í mars á þessu ári var byrjað að byggja tvær hæðir í viðbót. Þær framkvæmdir hafa gengið með þeim ágætum að nú er sú neðri að verða tilbúin, og sú efri nánast fokheld. Raunar munu viðskiptavinir sjá breytingarnar þegar er þeir koma inn í búðina á neðstu hæðinni. Fast við innganginn er nú verið að inn- rétta upplýsingaþjónustu fyrir við- skiptamenn, síðan tekur við hrað- framköllun fyrir filmur sem verið er að setja þar upp þessa dagana, þá kemur smávörubúð og síðan skyndi- bitastaður þar sem fólk mun geta fengið heita smárétti til að taka með sér heim. í Kaupstað hefur um nokkra hríð verið hægt að kaupa sér tilbúna rétti til að fara með heim, og Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri sagði að sú þjónusta hefði reynst vera mjög vinsæl. Deildaskipt stórverslun Inngangurinn á efri hæðina verður síðan innst í anddyrinu, beint á móti útidyrunum, og þar er kominn stór og mikill rafknúinn rennistigi sem flytja á fólk upp í nýju búðina á annarri hæð. Þessa dagana er þar unnið baki brotnu við að setja upp Kaupstaður í Mjódd. innréttingar og raða upp vörum. Sjálf verslunin verður ekki með því markaðssniði, sem flestar stærri verslanir hér eru reknar undir í seinni tíð, heldur öllu nær því að mega kallast deildaskipt stórverslun. Þarna verða sérstakar deildir fyrir hvers konar sérvörur, og búðakassar verða á átta stöðum, þar sem fólk greiðir vörur sínar, í stað þess að allt sé gert upp á einum stað líkt og í mörkuðunum. Þarna verður m.a. mikið úrval af fatnaði hvers konar, en sérstakar deildir verða fyrir kvenföt, tískuvörur, barna- og ung- lingafatnað, ungbarnaföt, íþrótta- fatnað og herrafatnað. Þá verður þarna sérstök snyrtivöru- og skart- gripadeild, úra- og klukkudeild, að ógleymdri skódeild. Fjölbreytt vöruval » Og margt fleira verður þarna á boðstólum, svo sem vefnaðarvörur til heimilisnota, heimilistæki, bús- áhöld, eldhúsáhöld, hljómtæki og hljómplötur, myndavélar, leikföng, tómstundavörur hvers konar, að ó- gleymdum bókum og ritföngum. Pálmi Guðmundsson sagði að hér væri verið að opna verslun sem leggja myndi mikla áherslu á þjón- ustu og gæði. Hún myndi m.a. verða með töluvert úrval af dýrari merkja- vörum, sem endranær væru einkum seldar í sérvörubúðum, en vegna stærðarinnar ætti hún að geta verið með þær á mun hagstæðara verði en litlu búðirnar. Pálmi gat þess einnig að allar innréttingar væru mjög vandaðar, en skipulag þeirra væri hannað af búðasérfræðingi frá Umelasch, þekktu innréttingafyrirtæki í Aust- urríki, sem unnið hefði hér í sam- starfi við íslenska arkitekta. Þetta fyrirtæki sagði hann að hefði m.a. séð um innréttingar fyrir verslanir fyrirtækja á borð við Karstadt og Kaufhof í Þýskalandi, og fleiri svip- uð í öðrum löndum. Þá verður einnig kaffitería inni í nýju versluninni, svo og sérstakt svið fyrir uppákomur, svo sem tísku- (Tímamynd: Pjetur.) sýningar, að ógleymdum sérstökum barnakrók. Á efstu hæð byggingar- innar er síðan fyrirhugað að skrif- stofur KRON verði, en nokkuð er þó enn í að húsnæðið verði fullbúið til að þær geti flutt þar inn. f versluninni á neðstu hæðinni eru einnig fyrirhugaðar ýmsar breyting- ar samhliða þessu, en m.a. er ný- komið þar í notkun sérstakt bakarí þar sem margs konar kökur og brauð eru bökuð á staðnum. Starfs- menn í Kaupstað verða vel á annað hundrað þegar önnur hæðin er kom- in í gagnið. „Ég vona að nýja búðin eigi eftir að koma fólki þægilega á óvart,“ sagði Pálmi Guðmundsson að lokum. -esig

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.