Tíminn - 16.08.1988, Síða 3
Þriðjudagur 16. ágúst 1988
Tíminn 3
Forseti íslands heim-
sækir Húnavatnssýslur
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, fer í opinbera
heimsókn í Húnavatnssýslur dagana 25. til 28. ágúst. í fylgd
með forseta verða Kornelíus Sigmundsson, forsetaritari, og
eiginkona hans, Inga Hersteinsdóttir.
Föstudaginn 26. ágúst verður farið
út Vatnsnesið að Hvítserki, opið hús
Við sýslumörkin við Hrútafjarð-
ará tekur sýslumaður og sýslunefnd
Vestur-Húnavatnssýslu á móti for-
seta. Þaðan verður ekið að Reykja-
skóla og Byggðasafnið skoðað. í
Miðfirði verður skoðaður minn-
isvarði um Ásdísi, móður Grettis
Ásmundarsonar. Sýslunefnd og
hreppsnefndir Hvammstanga- og
Kirkjuhvammshrepps bjóða til
kvöldverðar að kvöldi fyrsta dagsins.
verður í Þorfinnsstaðaskóla, farið
að Borgarvirki og gengið upp í það.
Eftir hádegi verður opið hús í Víði-
hlíð, síðan ekið að sýslumörkum,
við Gljúfurá, þar sem sýslunefnd
Austur-Húnavatnssýslu tekur á móti
forseta. Farið verðu til Blönduóss og
þaðan til Skagastrandar. Kvöldverð-
ur verður þar í boði hreppsnefnda
Höfðahrepps, Vindhælis- og Skaga-
hrepps. Um kvöldið verður opið hús
í félagsheimilinu fyrir íbúa hrepp-
anna.
Laugardaginn 27. ágúst verður
ekið frá Blönduósi í Húnaver þar
sem opið hús verður fyrir íbúa
Svínavatns-, Bólstaðarhlíðar- og
Engihiíðarhreppa. Síðan verður far-
ið íBlönduvirkjun þarsem Jóhannes
Nordal, stjórnarformaður, Hálldór
Jónatansson, forstjóri Landsvirkj-
unar og Sveinn Þorgrímsson, staðar-
verkfræðingur, taka á móti forseta.
Eftir að stöðvarhúsið hefur verið
skoðað verður ekið að stíflumann-
virkjum á Auðkúluheiði og þau
skoðuð. Frá Blönduvirkjun verður
ekið áleiðis til Húnavalla þar sem
verður opið hús fyrir íbúa Torfalækj-
ar-, Sveinsstaða- og Ásahreppa. Um
kvöldið verður kvöldverður í boði
bæjarstjórnar Blönduóss.
Sunnudaginn 28. ágúst verður
ekið frá Blönduósi út Skaga, ef
veður leyfir, og þar skoðaðið ýmsir
markverðir staðir. Sýslumannshjón-
in bjóða forseta og fylgdarliði í
hádegisverð á heimili sínu á Blöndu-
ósi og eftir hann verður bærinn
skoðaður. Opið hús verður í félags-
heimilinu fyrir bæjarbúa og aðra
Húnvetninga um miðjan daginn.
Síðdegis verður ekið frá Blönduósi
að Þingeyrum og kirkjan skoðuð.
Þaðan verður ekið um Vatnsdal,
staðnæmst við Þórdísarlund og síðan
haldið til Reykjavíkur.
í ferðinni verður trjám plantað á
nokkrum stöðum, m.a. við Reykja-
skóla, við Barnaskólann á Hvamms-
tanga, við Þorfinnsstaðaskóla, í
Víðihlíð, á Skagaströnd, við Húna-
ver, í skógræktarreit við Blöndu-
virkjun, á Húnavöllum, í Hrútey og
í Þórdísarlundi í Vatnsdal. SH
Samantekt Bílgreinasambandsins
á nýskráningum Bifreiðaeftirlitsins
fyrstu sjö mánuði ársins:
Fimmti hver
bíll kom
f rá Heklu hf.
Frá brunanum á ruslahaugunum á Gufunesi í gær. Mikill reykur kom út frá brunanum sem fór þó ekki yfir bæinn
þar sem vindur stóð í átt frá borginni. iímani,nd:Pje(ur
Bruni á ruslahaugunum á Gufunesi:
Kviknadi í bílhræjum
Um kl 12:30 í gær var slökkvilið í
Reykjavík kallað út vegna bruna í
bílhræjum á ruslahaugunum á Gufu-
nesi. Fastlega ertalið aðum íkveikju
hafi verið að ræða.
Tveir bílar og fjórir menn fóru á
staðinn og voru í miklum erfiðleik-
um með að slökkva eldinn, en því
lauk ekki fyrr en um kl. 16:00. Mikið
af olíu og bensíni var í bílhræjunum
og urðu miklar sprengingar þegar
eldurinn barst að bensíntönkum bíl-
hræjanna.
Slökkviliðið fór fljótlega að skorta
vatn og voru þá tankbílar frá
Reykjavíkurborg, fullir af vatni,
sendir á staðinn. Eftir það gekk
greiðlegar að slökkva eldinn.
Eldurinn breiddist nokkuð mikið
út um bílhræin, en engin hætta var á
því að hann næði til nærliggjandi
húsa, sem eru ekki mörg.
Að sögn varðstjóra hjá slökkvilið-
inu þarf ekki meira en glóð til að
gera eld á þessum stað, þar sem olía
og bensín er út um allt. -gs
Stofnframlag til sjóðs
sem styrkja á söngnema
Bílaumboðið Hekla hf. var það
umboð sem seldi flesta fólksbíla á
íslandi fyrstu sjö mánuði ársins.
Liggur nærri að fimmti hver bíll sem
skráður var nýskráningu hjá Bif-
reiðaeftirlitinu hafi verið af bifreiða-
gerðum sem Hekla hefur umboð
fyrir. Það helst í hendur að Hekla
átti einnig söluhæstu bílategundina
þá mánuði sem liðnir eru af árinu,
en það er Mitsubishi. Þurfa þessar
niðurstöður ekki að koma á óvart
þegar það er skoðað í skýrslum
Bifreiðaeftirlitsins að Japanar fram-
leiða meira en helming allra fólks-
bíla sem landsmenn kaupa inn.
Aðeins fjögur stór
Það kemur einnig fram í þessum
skýrslum að ef eingöngu er miðað
við fjölda þeirra fólksbíla sem seldir
hafa verið og skráðir á þessum fyrstu
sjö mánuðum, kemur í ljós að við
íslendingar eigum fjögur stór fólks-
bílaumboð, fjögur miðlungs umboð
fyrir fólksbíla og fjölda smárra fólks-
bílaumboða.
Þegar talað er um fólksbílaumboð
í þessu samhengi er miðað við
samantekt Bílgreinasambandsins. í
henni er talað um einn flokk fyrir
fólksbíla og jeppa og er það kallað
fólksbílaflokkur til aðgreiningar frá
pallbílum og vörubílum.
Þau fjögur stærstu urríboð sem
minnst var á áðan eru Hekla með
19,5% allra nýskráðra fólksbíla, To-
yota umboðið með 14,4%, Ingvar
Helgason með 13,4% og Bifreiðar
og landbúnaðarvélar með 12,8%.
Miðlungsumboðin eru einnig fjög-
ur en það eru Jöfur með 9,6% allra
nýskráðra fólksbíla, Sveinn Egilsson
með 7,8%, Brimborg með 6,9% og
Bílaborg með 6,1%.
„Minni umboðin"
Minni umboð samkvæmt þeim
tölum sem nú liggja fyrir um ný-
skráningar eru Bílvangur með 2,9%,
Honda með 2,6%, Glóbus með
1,7%, Kristinn Guðnason með
1,3%, Egill Vilhjálmsson með 0,7%,
Ræsir með 0,3% og Höldur með
innan við 0,1%. Eitt bílaumboð er
ekki með í þessum tölum en það er
Porche umboðið. Skýring þess er að
það flytur að mestu inn notaðar
bifreiðar. Önnur umboð en þessi
hafa ekki selt neinn bíl það sem af
er árinu en dæmi um slíkt umboð er
Pintzgauerumboðið sem aðeins hef-
ur selt þrjá bíla frá upphafi og
umboðið fyrir Portarojeppana.
Mest selt af Mitsubishi
Af einstökum fólksbílategundum
stendur Mitsubishi upp úr, en af
þeirri tegund voru 16,9% allra ný-
skráðra fólksbíla eða 1.461 stykki.
Næstu níu tegundir þar á eftir voru
Toyota (14,4%), Lada (12,7%), Su-
baru (8,7%), Mazda (5,5%), Dai-
hatsu (5,0%), Nissan (4,5%), Skoda
(3,5%), Suzuki (3,4%) og Peugeot
(3,1%).
52% frá Japan
Af þessu sést að mestur hluti
þeirra fólksbíla sem seldir hafa verið
á íslandi það sem af er árinu hefur
verið framleiddur í Japan. Það eru
Mitsubishi, Toyota, Subaru, Mazda,
Daihatsu, Nissan og Suzuki. Ladan
er frá Rússlandi og Skodinn frá
Tékkóslóvakíu, en aðeins ein fólks-
bílategund frá V-Evrópu er meðal
tíu efstu tegunda það sem af er
árinu.
Ef framleiðslulöndin eru skoðuð
sérstaklega kemur í ljós að fólksbílar
frá Japan eru 52% allra nýskráðra
bíla á íslandi. Næsta land er
Rússland, en þaðan koma 13,7%
nýskráðra fólksbíla. Þriðja stærsta
framleiðsluland fyrir íslandsmarkað
í fólksbílum eru Bandaríkin með
aðeins 7,4%. V-Þýskaland, Frakk-
land og Tékkóslóvakía fylgja Banda-
ríkjunum nokkuð fast eftir, en önnur
lönd áttu mun minni hlut að máli.
KB
Anna Nordal er Vestur-íslending-
ur, sem gefið hefur veglega peninga-
gjöf til að stofna sjóð til styrktar
ungum og efnilegum en félitlum
íslenskum söngnemendum. Gjöfin
er fimmtán þúsund kanadískir doll-
arar, eða um 570 þúsund íslenskar
krónur.
Anna fæddist árið 1902 í Kanada
og ólst þar upp, en foreldrar hennar
voru íslenskir og talar Anna lýta-
lausa íslensku.
Anna Nordal hefur alla tíð haft
mikinn áhuga á tónlist. Hún átti þá
ósk að læra söng, en varð að hætta
eftir eins árs nám vegna fjárskorts.
Að sögn Júlíus Vífils Ingvarsson-
ar, sem sæti á í sjóðstjórn ásamt
Kristni Hallssyni verður sjóðurinn
ávaxtaður eins og best þykir og
síðan veittir styrkir úr honum, en
ekki hefur verið ákveðið á hvern
hátt það muni verða.
Hann sagði að þetta væri í fyrsta
skipti sem einstaklingur gæfi gjöf til
þess eins og styrkja söngnemendur.
Gjöf Önnu er til minningar um
foreldra hennar, Rósu og Lárus
Nordal. SH
Banaslys á Reykjanesbraut
Ökumenn tveggja bifreiða létust
báðir í hörðum árekstri á Strandar-
heiði á Reykjanesbraut á laugar-
dagsmorgun.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að leigubifreið á leið til
Keflavíkur og bifreið á leið til
Reykjavíkur skullu saman á mikilli
ferð. Talið er að annar eða báðir
ökumenn hafi misst stjórn á bílun-
um.
Annar maðurinn lést samstundis
og hinn skömmu seinna. Þeir voru
einir í bílunum. Bílarnir eru
gjörónýtir.
Ökumaður leigubifreiðarinnar
hét Guðmundur Thorsteinsson,
fæddur 13. september 1948, til
heimilis að Dvergabakka 34,
Reykjavík. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og tvö börn.
Ökumaður hinnar bifreiðarinnar
var Hollendingur, búsettir á ís-
landi, John Roger DeGroot að
nafni. Hann var fæddur árið 1959,
til heimilis að Sogavegi 26. Hann
starfaði við garðyrkju. -gs