Tíminn - 08.09.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 08.09.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 8. september 1988 Gísli Konráðsson framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Skrifstofa Gísla Konráðssonar, framkvæmdastjóra Útgerð- arfélags Akureyringa er laus við ailan íburð. Þar fyrirfinnast þó þeir hlutir sem telja verður nauðsynlega á hvaða skrifstofu sem er. Skrifborð, stóll, reiknivél, ritvél, sími, skjalaskápur og lampi, svo eitthvað sé nefnt. Og eins og á öllum góðum skrifstofum er auðvitað almanak á veggnum. Allt hið nauðsynlega er til staðar, en fátt þar umfram. Raunar gæti þessi lýsing að sumu leyti átt við um rekstur Útgcrðarfé- lags Akureyringa. Þar hefur að sögn þeirra sem til þekkja aldrei verið bruðlað með peninga. Fjárfesting- arnar hafa verið markvissar þó að á stundum hafi verið tekin nokkur áhætta. Hvað um þaö, dæmið hefur vissulega gengið upp og ÚA er nú eitt af allra burðugustu sjávarútvegs- fyrirtækjum landsins. Mörgum má þakka þessa velgengni fyrirtækisins. Framkvæmdastjórarnir Gísli Kon- ráðsson og Vilhelm Þorsteinsson eiga aö margra mati dágóðan hlut í henni. Um næstu áramót verða tímamót hjá Gísla. Á 73. aldursári stendur hann upp úr framkvæmdastjóra- stólnum eftir rúmra 30 ára gifturíkt stárf og annar tekur við stjórnar- taumunum. Hvcr það verður er ckki ráðiö ennþá. Mál munu væntanlega skýrasteftirstjórnarfund ÚA í næstu viku. Starfsmaður hjálparstofn- unar Sameinuðu þjóðanna Þingeyingurinn Gísli Konráðsson, fæddur að Hafralæk í Aðaldæla- hreppi, var ráðinn sem fram- kvæmdastjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf. um mitt ár 1958. Áöur hafði hann reyndar komið nálægt sjávarútveginum m.a. sem skrifstofustjóri hjá Útgerðarlclagi KEA hf. á árunum 1937-1944, að afloknu stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1937. Árið 1945 lá leiðin til Bandaríkj- anna. „Um þctta leyti voru Samein- uðu þjóðirnar að komast á legg. Þar á nteðal var stofnun sem bar nafnið UNRRA og hafði hún aðsetur í Washington DC. UNRRA var eins- konar hjálparstofnun Santeinuðu þjóðanna. Til hcnnar voru tveir fslendingar ráðnir og ég var annar þeirra." Gísli segir það hafa verið mest fyrir orð Vilhjálms Þórs, fyrr- verandi kaupfélagsstjóra KEA, sem hann réðist til UNRRA. „Hjá Út- gerðarfélagi KEA hf. annaðist ég rekstur vöruflutningaskipsins Snæfells. Þessi reynsla nýttist mér við það starf sem ég tók að mér hjá flutningadeild UNRRA.. Starfið fólst í því að sjá um að vörum, sem saínað var saman handa stríðshrjáð- um þjóðum, væri komið í flutning frá höfnum í Norður-Ameríku og víðar, til þeirra landa sem þær áttu að fara. Mitt svið var að sjá um flutning vara til Grikklands." Frá Washington til Utgerðarfelags KEA. hf. „Þetta átti að vera tveggja ára starf en ég kom heim fyrr en ætlað var, eða á miðju sumri árið 1946, vegna þess að fyrrverandi húsbóndi minn hjá Útgerðarfélagi KEA hf., Gunnar Larsen, féll skyndilega frá. Það varð úr að ég tók við hans starfi sem framkvæmdastjóri Útgerðarfé- lags KEA hf. og varð jafnframt deildarstjóri þeirrar dcildar KEA sem sá um sölu á fiski félagsmanna. Einnig kom í minn hlut að stýra síldarsöltunarfélaginu Nirði hf.“ Gísli minnist þess að á stríðsárun- um hafi Kaupfélag Eyfirðinga séð um fisksölu frá sjómönnum við Eyja- fjörð til færeyskra skipa. Oft á tíöum beiö fjöldi skipa eftir lestun, sem síðan sigldu með fiskinn til sölu í Brctlandi. Rambaði á barmi gjaldþrots Útgerðarfélag Akureyringa hf. var stofnað á árinu 1945. Tveimur árum síðar lagðist fyrsti togari fé- lagsins, Kaldbakur að bryggju á Akureyri. Síðar komu togararnir hver af öðrum; Svalbakur, Sléttbak- urog Harðbakur. Þessirfjórirtogar- ar voru í eigu Útgerðarfélagsins þegar Gísli réðist til þess árið 1958. „Félaginu vcgnaði vel á fyrstu árun- um. Hingað réöust góðir skipstjórar og aflamenn. Fiskurinn var að mestu leyti fluttur út ísaður en fljótlega var hafin söltun og skreiðarvinnsla. Frystihús tók til starfa skömmu áöur en ég hóf hér störf, eða í ágústmán- uði 1957. Um þetta leyti tók að halla veru- lega undan fæti og í raun má segja að um áramótin 1957-1958 hafi fyrir- tækið verið gjaldþrota. Mikil skrif og untræður urðu um það hvort ætti hreinlega að nema staðar og gera fyrirtækið upp eða hvort reyna ætti áframhaldandi rekstur. Mönnum var það auðvitað Ijóst að til mikils var að vinna fyrir bæinn að halda rekstr- inum áfram, því Útgerðarfélagið veitti fjölda manns atvinnu, og var í raun á sínum tíma stofnað til þess að skapa atvinnu í bænum," segir Gísli. Margar ástæður voru fyrir þessum tímabundnu erfiðleikum Útgerðar- félagsins. Meðal annars var fjár- mögnun frystihússins mjög erfið. Lánsfé lá ekki á lausu og því tók fyrirtækið á sig miklar skuldir. Akureyrarbær tók að sér að ábyrgjast reksturinn um óákveðinn tínta á meðan komist var yfir erfið- asta hjallann. Gísli gerðist fulltrúi bæjarins hjá Útgcrðarfélaginu á meðan á þessu ábyrgðartímabili stóð, eða frá og með áramótum 1957-1958', en tók síðan við starfi framkvæmdastjóra félagsins af Guð- mundi Guömundssyni á miðju ári 1958. Þegar rekstur Útgerðarfélagsins komst aftur á réttan kjöl var ákveðið að breyta því lánsfé, sem Akureyrar- bær hafði lagt fram á erfiðleikatím- anum, í hlutafé. Bærinn jók síðan við hlut sinn í Útgerðarfélaginu og nú eru ríflega 70% hlutafjár í Út- gerðarfélaginu í hans eigu. Hlutur Akureyrarbæjar er nú nálægt 233 milljónum króna af um 330 milljóna heildarhlutafé Útgerðarfélagsins. 450 manns á launaskrá Þrír áratugir er óneitanlega langur tími í starfi hjá sama fyrirtæki. Gísli segir að vissulega hafi verið mikill tröppugangur í rekstrinum. „En slíkt fylgir bara sjávarútvegnum. Markaðir breytast og aflabrögð eru stopul," segir hann. Útgerðarfélag Akureyringa hefur vissulega tekið áhættu í fjárfesting- um og framkvæmdum en staða þess er sterk í dag. í eigu þess eru nú 6 togarar, Svalbakur, Kaldbakur, Harðbakur, Sléttbakur, Sólbakurog Hrímbakur. Sléttbaki var breytt í frystitogara á sl. ári en hinir fintm togararnir færa fiskinn á land til vinnslu í frystihúsi, söltun ogskreið- arvinnslu ÚA. Á launaskrá þcss eru nú 400-450 manns, þ.m.t. áhafnir skipa og allt landverkafólk. Á síðasta ári voru heildarverðmæti framleiddrar vöru um 950 milljónir króna. Þar af er hlutur frystingar nálægt 85%, salt- fisks 10% og skreiðar 5%. Traust starfsfólk Útgerðarfélag Akureyringa er oft ncfnt til sögunnar sem fyrirmyndar- fyrirtæki í sjávarútvegi á Islandi. Þessu til staðfestingar nefna menn að á síðasta ári skilaði félagið nokkr- unt hagnaði eitt fárra sjávarútvegs- fyrirtækja á landinu. Sú spurning vaknar auðvitað hver sé lykillinn að slíkum rekstri? Gísli spennir greipar og hugsar sig um stutta stund. Segir síðan: „Ég er oft spurður um þetta og svara öllum á sama hátt. Við höfum cngan töfrasprota eða patentlykil. Þetta byggist umfram allt á traustu starfs- fólki, bæði á sjó og landi. Þá er það mjög veigamikið að lengst af höfum við átt því láni að fagna að hafa ágæta og samhenta menn í stjórn félagsins, sem borið hafa fullt traust til framkvæmdastjóranna og gefið okkur hæfilega frjálsar hendur um reksturinn án þvingandi aöhalds, og það er gaman að vinna með slíkum mönnum. Einnig má benda á það, sem ég tel mikils virði, að veiðar og vinnsla er á einni og söniu hendi. Þá er rétt að geta þess að mörg undan- farin ár höfum við lítið sem ekkert flutt út af ferskum fiski. Við höfum lagt áherslu á að anna aflanum hér heima. Það hefur tvímælalaust verið félaginu og bænunt til góðs. Númer eitt er að reka fyrirtækið þannig að einhver hagnaður verði. En það er líka hlutverk þess að halda uppi sem mestri atvinnu á Akureyri. Með því móti að landa aflanum hér gctum við stuðlað að því." Þrátt fyrir góða afkomu Útgerðar- félagsins á síðasta ári eru horfurnar fyrir yfirstandandi ár ekki alltof góðar. „Ég vil ekki fullyrða að fyrirtækið verði rekið með tapi á þessu ári, en það má vissulega þakka fyrir ef hægt verður að ná endum saman. Þessu ráða fyrst og fremst umtalsverðar lækkanir á flestöllum erlendum mörkuðum," segir Gísli. Sjávarútvegur og verslunarhallir Offjárfesting í sjávarútvegi á síð- ustu árunt hefur oft verið nefnd sem ein af ástæðum fyrir slæmum hag fiskvinnslunnar um þessar mundir. Gísli telur það ekki eiga við unt Útgerðarfélag Akureyringa. „Auð- vitað er þetta mismunandi eftir fyrir- tækjum en þegar á heildina er litið vil ég fullyrða að sjávarútvegurinn hafi ekki fjárfest um of. Mér sýnist vera fjárfest á öðrum sviðum í þjóðfélaginu. Þá á ég við öll þau musteri og verslunarhallir sem rísa einkum á suðvesturhorni landsins. Því miður er það nú svo að mikill hluti þjóðarinnar gerir sér ekki grein fyrir því að sjávarútvegurinn sé undirstaða okkar velmegunar." Á liðnum árum hefur vinnuafls- þörf frumvinnslugreinanna, sjávar- útvegs og landbúnaðar, ntinnkað verulega og margir telja að frekari samdráttur sé óumflýjanlegur sam- fara sífellt meiri tækni í þessunt atvinnugreinum. Gísli telur að á næstu árum verði ekki stórar breytingar á starfi útgerð- arfélagsins og annarra sjávarútvegs- fyrirtækja. „Á meðan ekki finnast aðrar betri leiðir trúi ég að menn feti áfram hefðbundnar brautir í með- ferð sjávarafla. Frystingin er ótví- rætt besta aðferðin sem enn þekkist til að varðveita gæði og ferskleika fisks um langan tíma. Hinsvegar horfa menn fram á þær breytingar á næstu árunt í sjávarútvegi að þurfa að takmarka aflann enn frekar. Það er erfitt að sjá fyrir áhrif slíks á vöxt og viðgang fiskvinnslufyrirtækja. Augljóslega verða þau þó að sníða sér stakk eftir vexti og haga sér eftir stærð aflakvóta." Eftirsóttur framkvæmdastjórastóll Það er komið áð tímamótum hjá Gísla Konráðssyni, éins og áður Hvorki töfrasproti né patentlykill

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.