Tíminn - 08.09.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.09.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn Fimmtudagur 8. september 1988 — i Hafnarfjarðarbær ssss -Áhaldahús Verkamenn óskast í almenna útivinnu og á loftpressur. Mötuneyti á staðnum. Hagstæður vinnutími. Upplýsingar í síma 652244, yfirverkstjóri. Sjónvarp til sölu Mjög gott 1 árs gamalt, 14 tommu litasjónvarp til sölu. Selst á kr. 15.000. Upplýsingar gefur Sigga í síma 686300 frá kl. 9-17 og í síma 23037 eftir kl. 17.00. Vantar starfsmann á fuglabú, góð laun fyrir samviskusaman mann. Upplýsingar í síma 98-66053. DAGBÓK Helgarferðir F.í. 9.-11. sept. Landmannalaugar - Jökulgil Jökulgil er fremur grunnur dalur, sem liggur upp undirTorfajökul til suðausturs frá Landmannalaugum. Fjöllin þarna eru mjög litfögur, þau eru úr líparíti og soðin sundur af brennisteinsgufum. Jökulgilið er einungis ökufært á haustin, þegar vatn hefur minnkað í Jökulgilskvíslinni. Ekið er meðfram og eftir árfarvegi. Gist er í sæluhúsi F.f. í Landmanna- laugum. Þórsmörk - Langidalur. Góð gistiaðstaða í Skagfjörðsskála í Langadal. Gönguferðir við allra hæfi um Mörkina. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélags íslands, Öldugötu 3. Brottför í báðar ferðirnar er kl. 20:00 á föstudag. Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum. Sigtúni 3 í dag, fimmtudag 8. sept. Kl. 14:00. - Frjáls spilamennska. Kl. 19:30 - Félagsvist, hálft kort. Kl. 21:00 -Dans. Hallgrímskirkja - Starf aldraðra Sunnudaginn 11. september verður far- in messuferð í Víðistaðakirkju í Hafnar- firði. Lagt veröur af stað frá Hallgríms- kirkju kl. 10:30. Eftir messu verður hressing í safnaðarheimili Víðistaða- kirkju. Komið verður við í Hellisgerði. Ferðin endar í Listasafni ríkisins við Fríkirkjuveg. Nánari upplýsingar gefur Dómhildur Jónsdóttir í síma 39965. t Útför bróður okkar Eiríks Guðjónssonar í Ási verður gerð frá Selfosskirkju laugardaginn 10. september kl. 13.30. Jarðsett verður frá Áskirkjugarði sama dag kl. 17. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Systkinin t Eiginmaður minn Sigurður Þórðarson bóndi, Tannastöðum verðurjarðsunginnfrá Kotstrandarkirkju laugardaginn 10. september kl. 14.00. Blóm og kransar afbeðin, en þeir sem vildu minnast hans eru beðnir um að láta Sjúkrahús Suðurlands njóta þess. F.h. aðstandenda Halldóra Hinriksdóttir Dagsferðir Ferðafélagsins sunnudaginn 11. september Kl. 08:00 - Þórsmörk/dagsferð Dvalið verður um 4 klst. í Þórsmörk. (1200 kr.) Kl. 10:00 - Óiafsskarö - Geitafell - Þrengslavegur. Gengið inn Jósepsdal, yfir Ólafsskarð, á Gcitafell að Þrengslavegi. (600 kr.) Kl. 13:00 Nýja brúin yfir Ölfusárósa Ekið um Þrengslaveg, Hafnarskeið og Hraunskeið og yfir nýju brúna við Óseyr- artanga. Ekið verður um Eyrarbakka og komið við í vcrksmiðjunni Alpan, síðan Stokkseyri, Selfoss og Hveragerði og til Reykjavíkur um Hellisheiði. (1000 kr.). Brottför frá Umferðarmiðstöðinni. austanmegin. Farmiðar í dagsferðir við bíl. Fritt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag íslands Dagsferðir Útivistar 11. sept. Strandganga í landnámi Ingólfs 21. ferð a og b. a. Kl. 10:30 Selvogur - Þorlákshöfn - Þessi strandlengja kemur á óvart vegna fjölbreyttra jarðmyndana. Skemmtileg leið. (900 kr.) b. Flesjar - Þorlákshöfn. Létt ganga vestan Þorlákshafnar. Einnig litast um í plássinu. Byggðasafnið skoðað. Ferð við allra hæfi. A bakaleið verður ekið um Ölfusárbrúna nýju.(900 kr.) Frítt fyrir börn með fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu (og Sjóminjasafninu Hafnar- firði). Sjáumst! Utivist Höfum opnað hina árlegu haustutsölu okkar, á veiðifatnaði, þará meðal jökkum, vestum, kuldafatnaði, regnfatnaði, peysumog o.m.fl. 20—70% afsláttur Hausttilboð I ^ Bjóðum viðskiptavinum vorum 10% afslátt af öllum öðrum vQrumjneðan ív^útsölunni stendur r* vCC'v '* * 4 *, 7.' \ ÆíMté&é íoltsvegi 111 x 104 Reykjavik j 6870'90 Sýning í Norræna húsinu: N0RRÆNT GRAFÍK-ÞRÍÁR Nú stendur yfir sýning í sýningarsölum Norræna hússins er nefnist Norrænt grafík-þríár. Norrænt grafík-þríár (nýyrði yfir trí- ennal) er sýning, sem Norræna húsið hcfur unnið í samráði við félagið íslensk grafík, og eins og nafnið gefur til kynna er ætlunin að sýning sem þessi verði fastur liður í sýningarhaldi hússins 3ja hvert ár héðan í frá. Hugmyndin er að skapa sýningar sem kanna ákveðið viðfangsefni í grafíklist á Norðurlöndum (og víðar). Til dæmis er það þema, sem tengir þá listamenn, sem nú sýna í Norræna húsinu, maðurinn og notkun mannsmyndar í verkum þeirra. Listamennirnir sem sýna að þessu sinni eru: Vignir Jóhannesson frá íslandi, Yngve Næsheim frá Noregi, Finn Ri- chardt Jörgensen frá Danmörku, Krys- tyna Piotrowska frá Svíþjóð og Tuomo Saali frá Finnlandi. Auk þess eru verk eftir Mimmo Paladino frá Ítalíu, sem er sérstakur gestur sýningarinnar. Krystyna Piotrowska verður viðstödd, þegar sýningin verður opnuð á laugardag. I tengslum við sýninguna flytur Lesfie Luebbers, listfræðingur fyrirlestur í fund- arsal Norræna hússins sunnud. 11. sept.. en hún skrifar grein um listamennina og verk þeirra í sýningarskrá. Sýningin stendur fram til sunnudagsins 18. september. Gallerí Svart á hvítu Haustdagskrá: Gallerí Svart á hvítu byrjar haustdag- skrá sína á morgun. föstudaginn 9. sept. kl. 20:00 með sýningu á höggmyndum Brynhildar Þorgeirsdóttur. 1 október og nóvember verða síðan sýningar á höggmyndum Rósu Gísladótt- ur, Sóleyjar Eiríksdóttur og málverkum Jóns Óskars, en hann ereinn fimm ungra myndlistarmanna sem sýna í Listasafni íslands um þessar mundir. Brynhildur Þorgeirsdóttir er fædd 1958 í Árnessýslu. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Islands 1974 — 1979. Hún var við nám við Gerrit Rietveld Academie í Hollandi veturinn 1979 -’80 og California College of Arts and Craft 1980-1982. Einnig hefur hún verið við nám í Orrefors Glass School í Orrefors í Svíþjóð og við Pilchuck Glass Sehool í Stanwood, Washington, USA. Brynhildur starfar og býr í New York. Hún hélt síðast einkasýningu á íslandi í Nýlistasafninu 1983. 1986 sýndi hún í New York Experimenetal Glass Work- shop í New York. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Á sýningunni í Gallerí Svart á hvítu verða höggmyndir unnar úr gleri, járni og steinsteypu. Sýning Brynhildar er opin alla daga nema mánudaga kl. 14:00-18:00. Síðasti sýningardagur er 25. september. Listaverkasala gallerísins (efri hæð) er opin á sama tíma og sýningarsalurinn alla daga nema mánudaga kl. 14:00-18:00. Þar eru til sölu verk eftir ýmsa myndlistar- menn, m.a.: Karl Kvaran, Georg Guðna, Huldu Hákon, Helga Þorgils Friðjóns- son, Halldór Björn Runólfsson, Guðm- und Thoroddsen, Jón Óskar, Jón Axel, Brynhildi Þorgeirsdsóttur, Pétur Magnús- son, Kees Visser, Ólaf Lárusson, Svan- borgu Matthíasdóttur, Sigurð Guð- mundsson, Sigurð Örlygsson, Pieter Hol- stein ogTuma Magnússon. Skip Sambandsins munu ferma til (slands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriöjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Varberg: Annan hvern miðvikudag Moss: Annan hvern laugardag Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Skip............... 12/9 Gloucester: Este ...............20/9 New York: Este ...............21/9 Portsmouth: Este .............21/9 SK/PADE/LD SAMBANDSJNS • •. *. C> ' . ' LINDABGÖTU 9A • 101 REYKJAVÍK SlMI 698100 ■ i. A A A A A A A TÁKN TRAUSTRA FLUTNITJGA BILALEIGA með útibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öörum. Reykjavík 91*31615/31815 Akureyri 96*21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.