Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 5. október 1988
Kaupmenn og innflytjendur tvístígandi vegna áframhaldandi verðstöðvunar:
Tæknileg atriði
stanaa í mönnum
„Menn eru tvístígandi, enda þarf að taka á málunum með
allt öðrum hætti núna, frá því sem var í verðstöðvuninni í
september. Núna eru ákvæði um að hækka megi vöru, ef
hækkunin er af erlendum toga, auk þess sem gengisfelling
hefði orðið á sama tíma,“ sagði Guðmundur Sigurðsson hjá
Verðlagsstofnun í samtali við Tímann aðspurður hvort ný
vandamál hefðu komið upp samfara framlengingu verðstöðv-
unar.
Guðmundur sagði að það væru stæðu í mönnum. „Talað er um að
einkum tæknileg vandamál sem ekki megi vera með hærri krónutölu-
álagningu en við upphaf verðstöðv-
unar 27. ágúst. Menn eru hins vegar
flestir með prósentuútreikninga,
þannig að vandamálið hjá flestum er
hvernig eigi að bregðast við þessu.
Mest af þeim fyrirspurnum sem við
fáuni nú er af þessum toga,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur sagðist gera ráð fyrir
að þessi vika færi að miklu leyti í
fundahöld með aðilum viðskiptalífs-
ins, þar sem reynt verður að útskýra
hverjar leikreglurnar eru. „Það ger-
ist ekki fyrr en á reynir að við getum
útfært hvernig reglurnar verða í
smáatriðum, þó svo að við höfum í
meginatriðum verið búin að setja
niður fyrir okkur hvernig að hlutun-
um eigi að standa. Pað verður að
meta svolítið eftir aðstæðum."
-ABÓ
Blönduós:
Nýtt pósthús
Nýtt póst- og símahús að
Hnjúkabyggð 32 á Blönduósi var
tekið í notkun 3. október sl.
Húsið er 355 fermetrar, teikn-
að af Jósef S. Reynis, arkitekt.
Verkfræðiteikningar unnu Al-
menna verkfræðistofan og Raf-
teikning hf. Aðalverktaki við
smíði hússins var Fjarðarsmiðjan
hf. í Garðabæ, en afgreiðsluinn-
réttingar voru smíðaðar á tré-
smíðaverkstæði Póst- og síma-
málastofnunar.
Eldra húsnæðið fyrir póst- og
símaafgreiðslu á Blönduósi var
fyrir löngu orðið ófullnægjandi
sökum þrengsla, en það var tekið
í notkun 1946.
Nýja húsið býður upp á góða
aðstöðu jafnt fyrir starfsfólk sem
viðskiptavini.
Stöðvarstjóri er Sigurður Her-
mannsson.
Norræn ráðstefna í
Danmörku um þátttöku
kvenna í atvinnurekstri:
i
Konureru
utangátta
-M Unnið er að undirbúningi nor-
rænnar ráðstefnu um konur og rekst-
' ur fyrirtækja, sem fyrirhugað er að
halda í Danmörku 22.-24. janúar
% Í1989.
Pátttaka kvenna í uppbyggingu
atvinnulífs hefur töluvert aukist á
Norðurlöndum, einkum í dreifbýli.
Konurnar reka gjarnan öðruvtsi
fyrirtæki en karlar. Lítil fyrirtæki í
þjónustugreinum eru algeng og for-
sendur fyrirtækjanna aðrar en hjá
körlum.
Konur stofna oftar til fyrirtækja-
rekstrar vegna þess að atvinnumögu-
leikar þeirra eru minni en karla,
bæði vegna atvinnuleysis og byggð-
aröskunar og eru dæmi um slíkt
bæði hérlendis, í Danmörku og
Svíþjóð.
Þrátt fyrir að hlutdeild kvenna á
sviði fyrirtækjarekstrar hafi aukist
eru konur enn að miklu leyti utan-
gátta í viðskiptaheiminum og utan
við samskiptanct karlanna og hafa
þær því stofnað samskiptanet
kvenna í atvinnurekstri og eru slík
þegar til hér á landi.
Tilgangurinn með ráðstefnunni í
Danmörku er að safna þeirri þekk-
ingu sem fyrirfinnst um stöðu
kvenna í atvinnurekstri, líta til fram-
tíðar og á hvern hátt verði byggt upp
betra samfélag fyrir alla.
Þrjátíu fulltrúar frá hverju
Norðurlandanna munu sækja ráð-
og verða fulltrúar kvenna í
stjórnmálafólks og
þátttakendur. -sá
^SSSssm.;.
Reykvíkingar heppnir með veður
Eftirlætísfjall fjölmargra Reykvfldnga er nú orðið nær alhvítt. Engu að síður hafa höfúðborgarbúar getað fagnað fallegu
veðrí síðustu daga, ekki hvað síst þegar höfð eru í huga veðurfarsleg örlög annarra landshluta s.s. Vestfjarða þar sem
hríðarbyljir gerðu Vestfirðingum lífið leitt um helgina. Eins og myndin sýnir var falleg sýn yfir höfhina í Reykjavík í
fyrrakvöld. Tímamynd Ámi Bjama
Ungir jafnaðarmenn:
IGNA NYRRI
HKISSTJÓRNI
Stjórn Sambands ungra jafnað-
armanna kom saman 1. október sl.
og samþykkti eftirfarandi ályktun:
Stjórn Sambands ungra jafnað-
armanna fagnar myndun ríkisstjórn-
ar Alþýðuflokks, Alþýðubandalags
og Framsóknarflokks. Samstjórn
þessara flokka gefur félagshyggju-
fólki í landinu tækifæri til þess að
vinna að framgangi sameiginlegra
baráttumála. Náið samstarf félags-
hyggjufólks hvar í flokki sem það
stendur getur lagt grundvöllinn að
stórum flokki jafnaðarmanna á ís-
landi í framtíðinni. Mikilvægt er að
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar farist landsstjórnin vel úr
hendi og friður ríki í stjórninni.
Sérstaklega er brýnt að vel takist til
um stjórn ríkisfjármála og peninga-
mála. Þróun efnahagsmála má ekki
fara úr böndunum í tíð þessarar
ríkisstjórnar. Það vekur ugg að með-
al fyrstu aðgerða ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum er mikil tilfærsla á
fjárntunum frá almenningi til at-
vinnufyrirtækja. Þessi tilfærsla er
ekki í anda skynsamlegrar hag-
stjórnar. Velfcrðarkerfi hins opin-
bera á að vera fyrir fólkið í landinu
en ekki fyrirtækin. Atvinnutrygg-
ingasjóður útflutningsgreina er sér-
stakt áhyggjuefni. Verulegar breyt-
ingar eru að verða á atvinnuháttum
hér á landi. Stefna ríkisstjórnarinnar
í atvinnumálum á ekki að miða að
því að fresta þessum breytingum
heldur að beina þeim inn á heilla-
vænlega braut fyrir þjóðina alla.
Fyrstu fréttir af jólabókunum:
Guðbergur með þrjár
Fyrstu fréttir af komandi jóla-
bókavertíð eru að byrja að berast.
Það vekur athygli að Guðbergur
Bergsson rithöfundur sendir frá
sér þrjár bækur nú í ár.
Ein þeirra er viðtalsbók, heitir
Trúin, ástin og efinn, og er fyrra
bindi endurminninga séra Rögn-
valdar Finnbogasonar á Staðastað
sem Guðbergur hefur skráð. í
henni rifjar séra Rögnvaldur upp
æskuminningar sínar úr Hafnar-
firði, námsár sín í guðfræðideild
Háskóla íslands og fyrstu prest-
skaparár sín í Bjarnanesi.
Önnur bókin er smásagnasafn
sem bera mun heitið Maðurinn er
myndavél. 1 því verða þrettán
sögur.
Þriðja bókin er svo þýðing Guð-
bergs á sögu sem nefnist Andrúms-
loft glæps. Hún er eftir spænskan
höfund, Juan Benet, og gerist á
auðnum Spánar á valdatíma
Francos.
Það er bókaútgáfan Forlagið
sem gefur allar þessar þrjár bækur
Guðbergs út. Margar aðrar bækur
eru væntanlegar þar nú fyrir jólin.
Þar á meðal eru nýjar ljóðabækur
eftir Nínu Björk Árnadóttur og
Sigurð Pálsson, viðtalsbók við ís-
lenska utangarðsunglinga sem Sig-
urður Á. Friðþjófsson tekur
saman, og þýddar skáldsögur eftir
Toni Morrison og Doris Lessing.
Auk þess gefur Forlagið út nokkrar
barnabækur í ár og meðal þeirra er
handbók fyrir börn og unglinga um
tónlist. -esig
Guðbcrgur Bergsson.