Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 5. október 1988 .Tíminn 5 Skákmeistararnir Viktor Kortsnoj og Geza Maroczy hafa setið að tafli í tæp 4 ár: 30 leikjum lokið í skák Kortsnojs og Maroczvs! „ÁatcDu fyrir því að ég ákvað að tefla þessa skák er að ég trúi á líf eftir daoðann,“ sagði Kortsnoj. Hann hefnr í fjögor ár verið að tefla við framliðinn skákmeistara er lést árið 1951. nraqri: Ání Bjanu Hinn framliðni skákmeistari, Geza Maroczy, er teflir við Kortsnoj að handan. „Jú, ég tel nú að ég hafi dágóða vinningsmöguleika í skákinni gegn Maroczy. Staðan var í jafnvægi í byrjun en síðan fór að halla á hann í miðtaflinu ekki síst vegna þess að hann lék af sér manni,“ segir skák- meistarinn Viktor Kortsnoj um gang skákarinnar við hinn látna Geza Maroczy, en eins og Tíminn greindi frá í gær hefur ungverskur miðill, Roberts Roland, að nafni, miðlað leikjum í skák Maroczys og Kortsnojs. Það færðist bros yfir hörkulegt andlit Viktors Kortsnojs þegar blaðamaður færði þetta mjög svo sérstaka mál í tal við hann á Hótel Holiday Inn í gær. „Heyrðu jú, ég kannast við þetta. Eigum við ekki að segja að ég segi þér eitthvað um skákina ef þú ferð með mig í staðinn upp í verslunarhöllina, þarna við hliðina á leikhúsinu þar sem við teflum," sagði Kortsnoj. Vissulega voru þetta mjög svo aðgengilegir kostir fyrir undirritaðan og því var samkomulagið staðfest umsvifa- laust. Kortsnoj sagði þessa skák vissu- lega mjög sérstaka en hann hafi síður en svo verið því mótfallinn að reyna fyrir sér á þeim merkilega vettvangi skáklistarinnar, þar sem annar keppanda væri lifandi en hinn látinn. „Skýringin á því að ég féllst á að tefla þessa skák er einföld. Ég trúi sjálfur á líf eftir dauðann,“ segir Kortsnoj. 1 frétt Tímans í gær var látið að því liggja að skák Kortsnojs og Maroczys væri lokið. Því fer hinsveg- Guöjón Baldvinsson, varafor- maður Sálarrannsóknarfélagsins, hefur ekki áöur heyrt getið um „handanheimsskák": Sú fyrsta sinnar tegundar? íslenskir sálarrannsóknarmenn segjast ekki hafa heyrt þess getið áður úr heimi sálarrannsókna að núlifandi skákmeistari hafi teflt skák við framliðinn skákmeistara með aðstoð miðils. Guðjón Bald- vinsson, varaformaður Sálar- rannsóknarfélags íslands, segir að sér vitandi hafi ekki verið greint frá þvílíku í bókum eða tímaritum á sviði sálarrannsókna. Það bendir því margt til að skák Viktors Kortsnojs og Geza Maro- czys sé fyrsta skák í sögunni sem tefld er milli stórmeistara í þessu lífi og látins stórmeistara. „Mér virðist sem þarna sé um að ræða hreinan miðilsskap. Skákmeistar- inn fyrir handan talar einfaldlega í gegnum miðilinn," segir Guðjón. „Menn eru reyndar með ýmsar svona kúnstir í gangi. Til dæmis hef ég heyrt af því að í fjórum löndum, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Lúxemborg og Sviss hafi menn verið að gera tilraunir með talsamband við heiminn handan við í gegnum þartilgert tæki. Þétta sel ég náttúrlega ekki dýrara en ég keypti, en mér hefur skilist að nú í nóvember sé að vænta einhverra yfirlýsinga um hvernig þessar athuganir hafa gengið til,“ segir Guðjón Bald- vinsson. óþh ar víðs fjarri. Að sögn Kortsnojs hafa nú verið leiknir um 30 leikir í skákinni og ekki sér enn fy rir endann á henni. Meistararnir settust að taflborði árið 1984 að sögn Kortsnojs og hafa verið að síðan með mismunandi löngum hléum. Kortsnoj segir enga reglu á því hve langur tími líði á milli leikja. „Það er margt sem ræður því. Ég get t.d. ekki sinnt þessu sem skyldi þegar ég tefli á stórmótum hér og þar. Einnig virðist Maroczy vera misjafnlega upplagður til að leika. Stundum hafa liðið nokkrar vikur áður en nýr leikur kemur frá honum,“ segir Kortsnoj. Hann segir það ekki ljóst hversu langur tími kunni að líða áður en dragi til tfðinda í skákinni. „Það er ómögu- legt að segja til um hversu langur tími líður áður en úrslit fást í skákinni." Skákmeistarinn tekur fram að hann hafi aldrei séð Roberts Roland, miðilinn sem miðlar leikjum í skák hans við Maroczy. Hann sé því ekki fær um að greina frá þeirri athöfn þegar miðillinn „sendir“ leikina yfir til Maroczy eða „móttekur" nýja leiki að handan. „Mér skilst að miðillinn kunni ekkert fyrir sér í skák, kunni ekki einu sinni mann- ganginn," segir Kortsnoj. Kortsnoj kemur skilaboðum um nýja leiki símleiðis eða í bréfi áleiðis til ungverska miðilsins. Sami háttur er hafður á þegar mótleikir Marocz- ys hafa borist að handan. Viktor Kortsnoj segir að þegar leitað var til hans um að tefla þessa sérstæðu skák hafi hann nefnt fleiri nöfn en Maroczy sem hugsanlega andstæðinga. Til dæmis hafi hann nefnt menn eins og þá víðkunnu meistara Capablanca og Keres. „Þau skilaboð fengust hinsvegar frá Mar- oczy að hann væri tilbúinn að tefla þessa skák. Þar með var það fast- mælum bundið," segir Kortsnoj. Kortsnoj segist ekki vita hvort Geza Maroczy fylgist grannt með því sem gerist í skákheiminum í dag. Það sé hinsvegar alls ekki ólíklegt. Það skyldi þó aldrei vera að þessi frægi ungverski skákmeistari fylgdist í fjarlægð með gengi meistaranna í Borgarleikhúsinu? Hver veit nema að hann reyni að læra inná einhver af klækjabrögðum Viktors Korts- nojs á skákborðinu? Aðspurður um hið firnasterka mót sem nú stendur yfir í Borgarleikhús- inu segir Kortsnoj að dagarnir fram- undan muni verða í hæsta máta erfiðir, margir geysilega Sterkir skákmenn séu mættir til leiks. Kort- snoj segist ekki vera sáttur við hlut sinn í fyrstu skák sinni á mótinu, gegn Ehlvest. Jafntefli varð í þeirri skák og segir Kortsnoj að hann hafi ekki náð að sýna þá sóknarskák- mennsku sem hann væri hvað þekkt- astur fyrir. En hver skyldi þá vera skýringin á „vængbrotnum“ Kort- snoj í upphafi heimsbikarmótsins. Skýringuna hefur skákmeistarinn á reiðum höndum. Hann segist eigin- lega vera skákheftur því að allur hans farangur hafi orðið eftir í Amstérdam vegna verkfalls flugvall- arstarfsmanna þar. „Á meðan ég ekki fæ ferðatöskuna mína kemst ég varla í gang því að þar er allur minn leyndardómur," segir Kortsnoj. Það má til sanns vegar færa því að í ferðatöskunni góðu eru skákbækur, -tímarit og ekki síst tölvudisklingar með öllum nauðsynlegum upplýsing- um um andstæðingana á heimsbikar- móti Stöðvar 2. „Ætli það sé ekki um eitt ár síðan ég byrjaði að nota tölvu mér til hagræðingar við undir- búning skákmóta. Óneitanlega er af henni mikil hagræðing," segir Kortsnoj. En hver skyldi nú, að mati Kortsnojs, vera líklegastur skák- mannanna til þess að sigra heimsbik- armótið? Hann segir mjög erfitt að spá fyrir um það. Kasparov sé vissu- lega líklegur til afreka „en mér segir svo hugur að hann, eins og aðrir meistarar á mótinu, muni eiga í erfiðleikum með nokkra af skák- mönnunum," segir Kortsnoj. Hann segist aðspurður ekki vilja úttala sig um sína möguleika á mótinu. Þó sé það ljóst að á meðan að ferðataskan sitji föst í Amsterdam sé vart að búast við mörgum stórafrekum frá hans hendi. óþh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.