Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 5. október 1988 Tíminn 13 ÚTLÖND Guggnar Pinochet á kosningunum í dag? Stjórnarandstaðan í Chile óttast nú að Pinochet forseti muni guggna á „já-nei“ forsetakosningunum sem fram eiga að fara í Chile í dag og að herinn muni grípa inn í og stöðva eða falsa kosningarnar á einhvern hátt. Bandaríkjastjórn hefur lýst yfir svipuðum áhyggjum og gruna Pinochet um að gera allt til þess að halda völdum, en Bandaríkjastjórn ætti að kannast við kauða þar sem upplýst er að CIA stóð á bak við hann þegar herinn gerði blóðuga uppreisn í landinu 1973 undir hans stjórn. Augusto Pinochet forseti Chile. Bæði stjórnarandstaðan í Chile og Bandaríkjastjórn óttast að hann muni ógilda forsetakosningarnar sem fram fara í dag ef hann býður lægri hlut. Áhyggjur stjórnarandstöðunnar og Bandaríkjastjórnar byggjast á því að síðustu skoðanakannanir stjórnarandstöðunnar sýna að Pin- ochet muni verða undir í forseta- kosningununi með allt að því 20% mun. Skoðanakannanir herforingja- stjórnarinnar sýna hins vegar að Pinochet hafi stuöning rétt rúmlega helmings kjósenda. „Pinochet er maður sem getur gert annað en að horfa fram á ósigur," sagði Andres Zaldivar vara- formaöur Kristilega demókrata- flokksins, stærsta stjórnamálaflokks Chile, í gær. Pá sökuðu sósíalistar öfgamenn til hægri um að hafa þegar undirbúið að taka völdin ef Pinochet verður undir í forsetakosningunum. Þá sagði Phyllis Oakley talsmaður stjórnarráðs Bandaríkjanna að Bandaríkjastjórn liafi borist fréttir af því að herinn muni ógilda kosn- ingarnar ef Pinochet verður undir í þeim. Þó meirihluti kjósenda muni merkja við „nei“ á kjörseðlinum og hafna þannig Pinochet sem forseta, þá mun hann samt halda forsetaemb- ættinu í rúmt ár í viðbót, því þá eiga að fara fram nýjar forsetakosningar þar sem öllum á að vera frjálst að bjóða sig fram, cf herinn mun leyfa það. Hins vegar mun Pinochet fá um- boð til að ríkja sem forseti til ársins 1997 ef hann hlýtur stuðning meiri- hluta kjósenda. Leiðtogafundur Suður- og Norður-Kóreu gæti átt sér stað í Pjongjang: Roh Tae-woo vill hitta Kim ll-sung Roh Tae-woo forseti Suður-Kóreu sem eflaust er í sjöunda himni eftir velheppnaða Ólympíuleika í Seoul segist vera reiðubúinn að halda til Pjongjang og ræða við hinn „guðdóm- lega“ Kim Il-sung leiðtoga Norður-Kóreu um leiðir til að sameina Kóreuskagann í eitt ríki. í yftrlýsingu sem Roh las við setningu þingsins í Suður-Kóreu sagðist Roh innan tíðar leggja fram tilboð um nýja sameiningaráætlun og í henni yrði að finna nokkrar þær tillögur sem Norður-Kóreumenn hafa lagt fram. Hins vegar tiltók Roh ekki hvaða tillögur það yrðu. „í forsetatíð minni mun ég kepp- ast við að hefja grunn að sáttum í samskiptum Suður- og Norður-Kór- eu sem hafa verið í djúpfrysti í 40 ár. Með hliðsjón af þeirri staðreynd að þann 8. september svaraði Kim for- seti tilboði mínu, þá lýsi ég því nú yfir að ég er tilbúinn að halda til Pjongjang til fundar við hann, ef norðanmenn eru reiðubúnir til þess.“ Roh vísar hér til ræðu Kim Il-sung er hann hélt á 40 ára afmæli komm- únistastjórnarinnar í Norður-Kóreu, en þá sagðist Kim reiðubúinn til viðræðna við Suður-Kóreumenn ef leiðtogar Suður-Kóreu væru reið- ubúnir að leggja land undir fót og heimsækja Pjongjang til að ræða griðarsáttmála milli ríkjanna og brottflutning 43 þúsund manna her- liðs Bandaríkjamanna í Suður-Kór- eu. Roh sagði að leiðtogafundur Kór- euríkjanna tveggja ætti að taka fyrir „öll þau mál sem aðilar legðu fram, þar með talin sameiginleg griðayfir- lýsing og sameining Kóreu“. Þó átök hafi ekki verið í Kóreu um áratugaskeið þá ríkir enn stríðs- ástand á milli ríkjanna tveggja og eru herir þeirra ávallt í viðbrags- stöðu. Sandinistar drepa tíu Kontraliða Stjómarherinn í Níkaragva drap tíu Kontraskæruliða sem gert höfðu árás á þorp í norðurhluta landsins og reynt að nema nokkra íbúa þorpsins á brott á mánudag. Ríkisútvarpið í Níkaragva skýrði frá þessu í gær. í frétt útvarpsins sagði að hópur Kontraliða hafi komist undan með fjóra gísla úr þorpinu San Juan del Rio Coco. Eins og áður sagði drap stjórnar- herinn tíu Kontraliða og náði her- fangi nokkru af bandarískum her- gögnum Kontranna. Ekki var minnst á hvort einhverjir Kontrar hafi særst eða hvort einhverjir stjórnarher- menn hafi fallið. Sagði útvarpið að lík Kontraliðanna yrðu til sýnis í dag. Bæði Kontraliðar og Sandinista- stjórnin í Níkaragva hafa lýst yfir vilja til að halda vopnahléð sem komst á 1. apríl og aðeins skjóta í sjálfsvörn. Hins vegar hafa aðilar sakað hvor annan um árásir er brjóti í bága við vopnahléð. Stærsti hluti herliðs Kontra dró sig inn í Hondúras þegar Bandaríkja- menn hættu hernaðarstuðningi við þá í febrúarmánuði, en Bandaríkja- stjórn hefur haldið Kontrum uppi á hergögnum og vistum þau sjö ár sem Kontrarnir hafa barist gegn Sandin- istastjórninni. Þetta eru ekki einu átökin sem virðast hafa átt sé stað í Níkaragva að undanförnu því Sandinistastjórn- in sendi mótmælaskeyti til stjórnar Hondúras á föstudaginn, því Sandin- istar segja að hermenn frá Hondúras hafi skotið á stöðvar Sandinista inn- an landamæra Níkaragva. Reykjanes Kjördæmissamband framsóknarmanna á Reykjanesi boðar til for- mannafundar fimmtudaginn 6. október n.k. kl. 20.30 að Hamraborg 5, Kópavogi. Stjórnin. Almennir stjórnmálafundir á Húsavík og Akureyri Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður boða til almennra stjórnmálafunda sem hér segir: Félagsheimilinu Húsavík fimmtudaginn 6. okt. kl.20.30. Hótel KEA, Akureyri föstudaginn 7. okt. kl. 20.30. Framsóknarflokkurinn. Ðorgnesingar nærsveitir Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 7. október kl. 20.30. Góð verðlaun. Mætum öll vel og stundvíslega. Framsóknarfélagið í Borgarnesi Virðisaukaskattur á matvöru? Almennur fundur verður haldinn um áhrif virðisaukaskatts á verð- myndun matvöru að Brautarholti á Skeiðum föstudaginn 7. okt. n.k. kl. 21.00. Frummælandi verður Gunnlaugur Júlíusson, landbúnaðarhagfræðingur frá Stéttarsam- bandi bænda. Umræður og fyrirspurnir. Fundurinn er öllum opinn. Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu og Landssamband framsóknarkvenna Hornfirðingar - Félagsfundur Framsóknarfélag A-Skaftfellssýslu heldur almennan fé- lagsfund í mötuneyti Skinneyjar hf. sunnudaginn 9. október kl. 17. Fundarefni: 1. Þjóðmálastaðan. Frummælandi Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra. 2. Sveitarstjórnarmál. Frummælandi Guðbjartur össurarson. 3. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing KSFA. 4. Önnur mál. Stjórnin. Aðalfundur Framsóknarfélags Kópavogs verður haldinn að Hamraborg 5, mánudaginn 10. október kl. 8.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, auk kosning fulltrúa á flokksþing. Stjórnin. Austurland Kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið í Hótel Valaskjálf Egilsstöðum dagana 14. og 15. október n.k. og hefst kl. 20.00. Nánar auglýst síðar. KSFA Nýtt umboð í Kópavogi Linda Jónsdóttir, Holtagerði 28, sími 45228. Tíminn Til sölu Dautz traktor 6750C, árg. 1984. Upplýsingar í síma 98-78558.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.