Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 20
 Átjan mán. binding RÍKIS^KIP NÚTÍMA FLUTNINGAR -Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, ® 28822 § 7,5% SAMVINNUBANKINN | HRESSA KÆTA STRUMPARNIR Mikil eftirspurn eftir íbúðum með fullum húsnæðislánum áhvílandi: Aðgangur að bakdyrum kerfisins á 300 þús. Fasteignasölum ber saman um að það sem af er þessu ári hafi stórlega aukist eftirspurn eftir íbúðum með fullum áhvflandi húsnæðisstjórnarlánum. Helgast það af því að á sama tíma og biðraðir eru langar eftir lánum hjá Húsnæðis- stofnun og aðgangur að þeim er takmarkaður er hægt að yfirtaka slíkt lán við kaup á íbúð og komast þannig inn í húsnæðiskerfið bakdyramegin eins og það hefur verið kallað. Jón Guðmundsson, sölustjóri hjá Fasteignamarkaðnum í Reykjavík, segir að eftirspurn eftir slíkum íbúðum sé mikil og mun meiri en framboðið. „íbúðir með fullum áhvílandi lánum sem koma í sölu hjá okkur að morgni má segja að seljist undantekningalaust fyrir lokun að kvöldi," segir Jón. Hann segir það áberandi að yngra fólk sækist eftir slíkum íbúðum, sem annaðhvort hefur þrotið þolin- mæði að bíða eftir lánsloforði frá Húsnæðisstofnun ríkisins eða eigi hreinlega ekki kost á lánsloforði. Jón segir að flestar þessar íbúðir séu í blokkum og nefnir hann sem dæmi að lítil blokkaríbúð, verð- lögð á 4,2 milljónir króna, sé föl fyrir milligjöf áhvílandi láns (2,7-3 milljónir) og andvirði íbúðarinnar. Á þessu sést að í sumum tilfellum getur fólk eignast slíkt íbúðarhús- næði með 1200-1500 þúsund króna útborgun, annaðhvort við undirrit- un eða á allt að 12 mánuðum. Athyglisvert er að verð á um- ræddum íbúðum er 150-300 þús- undum hærra en sambærilegum íbúðum með lítið af áhvílandi lánum. Jón Guðmundsson segir að verðlagning þessa íbúðarhúsnæðis helgist af markaðslögmálum. Hátt verð haldist í hendur við mikla eftirspurn. Jón bætir við að á tímum tregðu á lánamarkaðnum vilji fólk, sem selur þessar íbúðir, einfaldlega fá einhverja þóknun fyrir að útvega öðrum lánsloforð eða öllu heldur fullt 40 ára húsnæð- isstjórnarlán. Jafnvægi virðist vera að komast á á nýjan leik á fasteignamarkaðn- um eftir umrót í heimi stjórnmál- anna síðustu vikur. Sala á íbúðum datt niður að mestu meðan ríkis- stjórn Þorsteins féll og menn unnu að því að koma ríkisstjórn Stein- gríms á legg. En eftir að ró færðist yfir stjórnmálavígvöllinn á nýjan leik fór fólk á stúfa og leitaði eftir kaupum á íbúðum. Hinsvegar er sama ördeiðan í sölu á atvinnu- húsnæði og áður, að sögn fast- eignasala. Jón Guðmundsson segir að verð á fbúðarhúsnæði hafi nán- ast staðið í stað síðan í febrúar- mars á þessu ári. Kristján Kristjánsson hjá Fast- eignaþjónustunni í Reykjavík segir að íbúðaskipti hafi aukist að undanförnu. Hann segir að algeng- ast sé að yngra fólk sækist eftir að stækka við sig og skipti þá á t.d. blokkaríbúðum við roskið fólk sem kýs minna húsnæði í ellinni. „Ég, tel að slík viðskipti geti í flestum tilfellum komið betur út fyrir fast- eignasala og ekki síst viðskipta- vini,“ segir Kristján. Hann segir að fasteignaskipti nái líka til atvinnu- húsnæðis. Þá taki fyrirtæki stund- um atvinnuhúsnæði upp í í skiptum og selji það síðan strax aftur. Þær upplýsingar fengust hjá Páli Halldórssyni, hjá fasteignasölunni Biðröð við aðaldyr húsnæðiskerfisins við bakdyrnar. Eignakjöri á Akureyri, að sala á íbúðarhusnæði þar í bæ hafi dottið niður í pólitíska umrótinu að undanförnu en hún væri nú aftur að færast í eðlilegt horf. „Málið er það að við höfum ekki nægilega mikið úrval fasteigna. Ásóknin núna er satt að segja mun meiri en hefúr hleypt upp aðgangseyrinum við getum sinnt. Hingað vill fólk flytjast frá höfuðborgarsvæðinu og reyndar allsstaðar að af landinu,“ segir Páll. Hann segir algengt verð á 60 fm, 2 herb. íbúð vera á bilinu 2,5-2,8 milljónir en fyrir 3 herb. íbúð greiði menn 3,4-3,6 milljónir króna. óþh Sameinað Alþingi: Guðrún kjorin forseti Starfsmenn Alþingis voru kosnir á fundi í sameinuðu þingi í gær. Það fór eins og spáð hafði verið að Guðrún Helgadóttir (G.Rvík) var kosin forseti sameinaðs þings, en forseti efri deildar er Jón Helgason (B Suðurl.) og Kjartan Jóhannsson (A Reykjan.) var kjörinn forseti neðri deildar. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni að kona er kjörin forseti sameinaðs Alþingis og lýsti Guðrún þeirri skoðun sinni í stuttri ræðu, er hún tók við embættinu, að þetta væri mikilvægur áfangi í sögu kvenrétt- indabaráttunnar. Reyndar virðist jafnréttið í uppsveiflu í þinginu um þessar mundir, því báðir varafor- setar í sameinuðu þingi eru einnig kvenkys, þærSalóme Þorkelsdóttir (D Reykjan.) og Valgerður Sverr- isdóttir (B. Nl.ey.) - ág Guðrún Helgadóttir, forseti sam- einaðs Alþingis. Tímamynd:Gunnar Nefndakjör á Alþingi: Ágreiningur í stjórnar- andstöðunni Eftir hádegi í dag verður kosið í nefndir á vegum Alþingis og munu stjórnarflokkarnir hafa náð sam- komulagi um uppstillingu manna í þær. Ósamkomulag er hinsvegar ríkjandi í herbúðum stjórnarand- stöðunnar um tilnefningu sameigin- legs lista. \ Þetta ósamkomulag mun tíl komið vegna ágreinings Borgaraflokks og Sjálfstæðisflokks um val manna í nefndir og geta borgaraflokksmenn til að mynda ekki sætt sigjvið að sjálfstæðismenn eigi tvo menn í utanríkismálanefnd. Þannig er óljóst hvort stjórnarandstaðan muni stilla upp sameiginlegum lista á móti stjórninni eða ekki. Samkomulag stjórnarflokkanna felst m.a. í því að í sameinuðu þingi mun Jóhann Einvarðsson (B Reykjan.) taka við formennsku í utanríkismálanefnd, en Kjartan Jó- hannsson (A. Reykjan.) verður varaformaður hennar. Sighvatur Björgvinsson (A. Vestfj.) verður formaður fjárveitinganefndar og Al- exander Stefánsson (B. Vesturl.) varaformaður. Þá verður Guðni Ág- ústsson áfram formaður allsherjar- nefndar. Samkvæmt samkomulag- inu munu framsóknarmenn fá for- mennsku í fjórum nefndum efri deildar, þar á meðal sjávarútvegs- nefnd og mun Stefán Guðmundsson (B. Norðurl.v.) væntanlegt for- mannsefni þar. -ag

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.