Tíminn - 14.03.1989, Qupperneq 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 14. mars 1989
Hafnarfjörður:
Heiðursborgara minnst
Þann 8. mars s.l. voru hundrað ár liðin frá fæðingu Bjarna
Snæbjörnssonar læknis, fyrsta og eina heiðursborgara Hafnarf jarðar.
Af þessu tilefni hefur bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt að veita
400 þúsund krónur í Afmælisgjafasjóð Hafnfirðinga, sem stofnaður
var á 75 ára afmæli Bjama Snæbjörnssonar. Ennfremur hafa nokkrir
af afkomendum Bjarna gefið 250 þúsund krónur ■ sjóðinn.
Sjóðurinn veitir móttöku framlögum einstaklinga og fyrirtækja á
merkisdögum í ævi þeirra og starfi. Tilgangur hans er að styrkja hverja
þá starfsemi í Hafnarfirði sem unnin er í þágu barna og unglinga undir
16 ára aldri. SSH
Yfirlitssýning á verkum SÚM hópsins var opnuð að
Kjarvalsstöðum fyrir skömmu.
Þar eru sýnd um hundrað listaverk eftir fimmtán listamenn.
í SÚM-hópnum eru nokkrir listamenn sem tóku sig saman
um miðjan 7. áratuginn og gerðu uppreisn á listasviðinu.
SÚM-arar rufu hefðina og brydd-
uðu upp á ýmsum nýjungum í list-
sköpun sem voru ekki að öllu leyti
vel séðar. Margir áhorfendur áttu
erfitt með að njóta verkanna út frá
eigin hefðbundnum menningarleg-
um og fagurfræðilegum forsendum
einmitt vegna þess hve verkin voru
óhefðbundin.
SÚM var ekki hugsað sem list-
hreyfing eða skóli heldur hópur
listamanna með innbyrðis ólíkar
skoðanir og listhugmyndir. Hið eina
sem virtist sameina þá var andstaðan
við hinn þrönga, opinberlega viður-
kennda stakk sem myndlistinni var
sniðinn. Þeir leituðu eftir nýjum
leiðum og nýttu sér í þeim tilgangi
hinar ýmsu stefnur hvort sem þær
kölluðust ný-dadaismi, konsept,
Fluxus, pólitísk listsköpun eða
eitthvað annað.
Hópurinn gerði sér grein fyrir því
að hefðbundið form myndlistarinnar
var úr sér gengið. Einkum vegna
tilkomu fjölmiðlanna og aukins
framboðs myndefnis af öðru tagi.
Þeir reyndu jtess vegna til dæmis að
þurrka út mörkin milli listgreina eins
og Ijóð- og myndlistar og fleira.
Hreyfilist og gjörningar, listform
sem varð sífellt vinsælla á þessum
tíma víðar um heim varð einnig
áberandi í listsköpun SÚM-ara.
Margar sýningar voru haldnar á
vegum hópsins, bæði einka- og sam-
sýningar. Þar sem bæði sýndu inn-
lendir og erlendir einstaklingar.
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru Arnar Herbertsson,
Gylfi Gíslason, Haukur Dór, Hildur
Hákonardóttir, Hreinn Friðfinns-
son, Jón Gunnar Árnason, Kristján
Guðmundsson, Magnús Tómasson,
Ólafur Gíslason, Róska, Sigurður
Guðmundsson, Sigurjón Jóhannes-
son, Tryggvi Ólafsson, Vilhjálmur
Bergsson og Þórður Ben Sveinsson.
Sýningunni lýkur níunda apríl. jkb
Skákþingið um páskana
Skákþing íslands verður háð um páskana að venju. Keppni í
áskorendaflokki fer fram á Akureyri og er öllum heimil þátttaka sem
hafa 1800 stig og þar yfir. Tvö efstu sætin gefa rétt til þátttöku í
landsliðsflokki í haust. Skráning í Reykjavík er hjá Skáksambandi
íslands og á Akureyri í síma: 26350 (Páll).
í Reykjavík verður teflt í opnum flokki. Skráning er hjá Skáksam-
bandinu og á mótsstað, að Grensásvegi 46 við upphaf 1. umferðar.
Keppni í báðum flokkum hefst laugardaginn 18. mars n.k. kl. 14.00
og lýkur annan dag páska. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad kerfi.
Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður:
MENNINGARRÁÐGJÖF
TIL LANDSHLUTANN A
Valgerður Sverrisdóttir þingmað-
ur hefur lagt fram tillögu til þings-
ályktunar um að komið verði á fót
starfi menningarráðgjafa í hverjuin
landshluta. í frumvarpi um breytta
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
er gert ráð fyrir að félagsheimila-
sjóður falli niður. Hugmyndin unt
menningarráðgjafa er hugsuð sem
svar við því.
í greinargerð með frumvarpinu
segir að í öllum sveitarfélögum á
landinu eigi sér stað menningarstarf-
semi á einhverju sviði og virkust sé
þátttaka almennings í kórum og
leikfélögum. Á allra síðustu árum
hafi þóunin verið í þá veru að æ fleiri
gerðust sinnulausir um slík mál og
viðhorf til lista og menningar hafi
verið að breytast með auknum áhuga
á veraldlegum gæðum. Menningar-
ráðgjafi í hverjum landshluta geti
orðið mikilvægur þáttur í að virkja
einstaklinga á sviði menningar og
lista, miðla efni á milli héraða.
skipuleggja menningarstarfsemina í
samráði við heimamenn á hverjum (
stað og vera skólastjórum til aðstoð-
ar við listaviðburði í skólum.
Við fjármögnun menningarráð-
gjafanna gerir Valgerður ráð fyrir að
eyrnamerktur verði hluti þeirra 10%
skemmtanaskattsins sem renna í
menningarsjóð félagsheimila. - ág
Valgerður Sverrisdóttir þingmaður
vill að komið verði á fót starfi
menningarráðgjafa í hverjum
landshluta.
Flutningar og afkoma Eimskips 1988:
Hagnaður aðeins
0.2%aftekjum
Á síöastliðnu ári var hagnaður af rekstri Eimskipafélagsins
níu milljónir króna, sem er einungis 0.2% af heildartekjum
félagsins.
tölu lækkuðu tekjur félagsins að
raunvirði um 8%. Eigið fé félagsins
var 2.123 milljónir króna í árslok
1988 og eiginfjárhlutfall 37%.
Árið 1988 voru heildarflutningar
Eimskips 908 þúsund tonn en það er
svipað magn og árið á undan. Nokk-
ur aukning var á útflutningi en
minnkun í innflutningi. Síðan 1984
hafa heildarflutningar félagsins auk-
ist um 33%.
í tilkynningu frá félaginu segir um
hagnaðinn á síðasta ári að þessi
afkoma sé óviðunandi, miðað við
rekstrarumsvif félagsins, og að rekst-
ur þess hafi verið þungur á síðari
hluta ársins og svo sé enn.
Rekstrartekjur á árinu 1988 námu
rúmum 4.8 milljörðum króna en
voru árið áður rúmir 4.4 milljarðar.
Hækkun tekna á milli þessara ára er
því 9.2%. Miðað við byggingarvísi-
Eimskip er með 17 skip í föstum
rekstri. Tíu skip eru í eigu félagsins,
fimm á þurrleigu með íslenskum
áhöfnum og tvö á tímaleigu með
erlendum áhöfnum. Þess má einnig
geta að starfsmenn félagsins eru nú
um átta hundruð.
Aðalfundur Eimskips verður
haldinn að Hótel Sögu 16. mars n.k.
og verður þá lögð fram ársskýrsla
félagsins fyrir árið 1988 og gerð
nánari grein fyrir rekstri þess og
framtíðarverkefnum. SSH
Nashyrningarnir
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýndi á laugardag-
inn Nashyrningana eftir Eugéne
Ionesco.
Leikritið skrifað Ionesco árið
1958. Það er sagt endurspegla til-
finningar höfundarins þegar hann
yfirgaf Rúmeníu tuttugu árum fyrr
eftir að hafa horft upp á fleiri og
fleiri vini sína ganga til liðs við
fasistahreyfinguna.
Söguþráðurinn er á þá leið að
aðalpersónan, Berenger er ást-
fanginn af vinnufélaga sínum Daisy
en frökenin er þó ekki alveg til-
kippileg. Einn góðan veðurdag
verða þau vitni að því að einn eða
kannski tveir nashyrningar æða um
aðalgötu bæjarins. Eftir því sem á
líður taka fleiri og fleiri bæjarbúar
torkennilegan sjúkdóm sem lýsir
sér í umbreytingu þeirra í nashyrn-
inga.
Verkið fjallar um stökkbreyt-
ingu andans og hamskipti venju-
legs fólks. Bæði út frá tilgangsleysi
andstöðunnar með háði sem bein-
ist að einstaklingnum sem berst
fyrir hugsjónum og dyggðum og
ekki síður út frá fáránleika þeirra
sem sljóir fylgja straumnum gagn-
rýnislaust.
Andrés Sigurvinsson leikstýrir'
verkinu. Hilmar Örn Hilmarsson
hefur samið tónlistina, Rósa G.
Snædal hannar búninga, leik-
myndahönnuður er Magnús
Loftsson, Árni Kristjánsson sér
um hárgreiðsluna og förðunin er í
höndum Völu Tölu.
Auglýstar eru sjö sýningar en
Sigurður Pálsson, sem leikur Ber-
enger sagði Tímanum að ef næg
aðsókn fengist kæmi til greina að
þeim yrði fjölgað. Hann sagði
þetta vera mjög viðamikið verk.
„Þetta hefur þó allt gengið vel og
sýningin er að smella saman, alveg
á síðustu stundu, eins og vera ber. “
Að sögn annars leikara taka þau
á verkinu, ekki aðeins út frá um-
breytingu manneskjunnar í nas-
(ista?)hyrninga, heldur einnig út
frá svipuðum umbreytingum sem
verða og hafa orðið á manninum í
tímanna rás. jkb
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð:
Hluti SÚM-hópsins. F.v. Gylfi Gíslason, Sigurður Guðmundsson, Ólafur Gíslason, Kristján Guðmundsson og Hreinn
Friðfinnsson. Á milli þeirra stendur mynd Kristjáns Guðmundssonar. Tímamynd:Ámi Bjama.
Yfirlitssýning
á verkum SÚM
Úr leikritinu Nashyrningarnir eftir Ionesco sem leikfelag Menntaskolans
við Hamrahlíð frumsýndi sl. laugardag.