Tíminn - 20.04.1989, Blaðsíða 23

Tíminn - 20.04.1989, Blaðsíða 23
Tíminn 23 Fimmtudagur 20. apríl 1989 BÆKUR ■ Afleitur frágangur Guðjón fsberg, Rafn Sigurðsson: Töflureiknirinn Excel, Tölvutal, 1989. Pað fer víst ekki á milli mála að tölvur hafa breytt lífinu mikið víða í þjóðfélaginu. Fyrir okkur, sem vinn- um við ritstörf, hafa þær haft í för með sér algjöra byltingu. Nú eru prentsmiðjuhandrit á pappír nánast úr sögunni, ásamt þeirri prentvillu- hættu sem þeim fylgdi alltaf óhjá- kvæmilega. í staðinn semja menn nú texta sína inn á disklinga, láta tölv- una prófarkalesa þá og senda disk- lingana síðan í prentsmiðjur, þar sem aðrar tölvur eru notaðar til að setja prenttexta beint upp af þeim. Það er að segja þeir sem vinna ekki í neti og senda textana beint frá sér inn í setningartölvuna. Þess vegna er ég víst síður en svo einn um það þessi misserin að hafa áhuga á öllu sem viðkemur tölvum. Meðal annars af þeim sökum fór ég að lesa mér til í þessari nýju kennslu- bók í meðferð töflureiknisins Excel, þegar hún barst mér í hendur á dögunum. Reyndar er hér um tvær bækur að ræða um sama efni, aðra fyrir þá útgáfu þessa forrits sem gengur á PC-vélar og hina fyrir Macintosh. Ég valdi mér PC-útgáf- una, því að slíkum vélum er ég vanari. En mér brá þó illilega þegar ég fór að lesa. Bókin hefst nefnilega á þessari málsgrein: „Þessi bók er um Microsoft Excel töflureiknirinn fyrir IBM og samhæfðar vélar og miðast hún við útgáfu 2.0 af forritinu." Ég hélt satt að segja að allir vissu að orðið „töflureiknir" beygist eins og „læknir“, þ.e. r-laust í þolfalli og þágufalli, þannig að hér á vitaskuld að tala um „Microsoft Excel töflu- reikninn". En því miður er þessi málvilla langtífrá einsdæmi í bókinni. £ inn- gangi, sem er rétt um það bil ein bókarsíða, fann ég sex mál- og prentvillur. Ég hélt áfram og fór yfir fyrsta kaflann, sem er 25 blaðsíður. Þar rakst ég við fljótan yfirlestur á 40 villur. Þar hætti ég svo frekari leit, en gat þó ekki betur séð en að á svipaðan hátt væri haldið áfram bókina á enda. Með öðrum orðum að við gerð þessarar bókar hafi allir hinir nýju og í rauninni stórkostlegu möguleikar ritvinnslunnar síður en svo verið notaðir. Þvert á móti lítur hún út eins og óleiðrétt próförk af þeirri tegund sem menn gátu fengið í hendur meðan enn var notað blý og sátur hér í prentsmiðjum. Það þarf í rauninni ékki orðum að því að eyða að svona á ekki að ganga frá bókum. Það á til dæmis ekki að þurfa að tala um „vistri" hluta vinnu- blaðs í stað „vinstri“ hluta eins og gert er á blaðsíðu 5. Það á líka að vera óþarfi að tala um „dálka" sem „bálka" eins og gert er á blaðsíðu 8. Að ekki sé minnst á að tala um „all vinnublaðið" eins og er á síðu 20, en ekki „allt vinnublaðið". Þá er líka talað um „remmibrautirnar" á blað- síðu 25, sem væntanlega ættu að heita „rennibrautir" upp á góða og gilda gamaldags íslensku. Allir, sem setjast niður til að skrifa bók, þurfa nefnilega að kunna stafsetningu og einföldustu reglur um málbeitingu. Ef þeir eru veikir fyrir er tvennt til, að þeir setjist sjálfir niður og læri reglurnar eða fái einhvern sér málfróðari til að laga fyrir sig textann. Þetta hefur ekki verið gert hérna, og því verður frágangur bókarinnar hreint út sagt að teljast afleitur að þessu leyti. Að því er efnið í þessari bók varðar get ég ekki orðið annað en fáorður. Þar er á ferðinni kennsla í vinnubrögðum á töflureikninn Excel, en með það forrit hef ég aldrei unnið og þekki það því ekki af eigin reynd. Éftir lýsingu þess í bókinni að dæma virðist þó vera hér um býsna fullkominn hugbúnað að ræða, sem gefi notendum mikla möguleika til að setja saman töflur hvers konar, sem og að setja þær fram í línu-, köku- eða súluritum líkt og nú er mikið tíðkað. En aftur á móti er svo að sjá af bókinni að seljendur þessa forrits hér á landi hafi ekki enn lagt í að láta íslenska í því skipanirnar, heldur séu þær allar á ensku. Fyrir íslenskan notendamarkað hlýtur slíkt að verða að teljast töluvert mikill galli. Hér á landi hefur síðustu árin verið lögð mikil vinna í að íslenska tölvumálið, sem vitaskuld er bæði rétt og skylt. Þessu fylgir líka að innflytjendur erlends hugbúnaðar þurfa eiginlega að reyna eftir fremsta megni að láta íslenska jafnóðum þau forrit sem hér eru sett á markað til almennrar notkunar í fyrirtækjum og heima- húsum. I þessu eru reyndar hæg heimatök- in til samanburðar, því að hér á Tímanum vinnum við með rit- vinnsluforritið Orðsnilld (Word Perfect), þar sem allar skipanir eru á íslensku. Skilst mér reyndar að seljendur þess hér á landi hafi einnig sett á markaðinn töflureikni, sem sé samstilltur við þessa ritvinnslu og þar sem allar skipanir hafi sömuleið- is verið íslenskaðar. Ég legg það ekki að jöfnu hvað það er ólfkt þægilegra að vinna með slíkt íslensk- að forrit heldur en önnur þar sem allar skipanir eru á ensku. Að því þá ógleymdu að vitaskuld eiga allir landsmenn að leggja metnað sinn í að reyna að standa vörð um tunguna með því að gera íslenska tölvumálið íslenskt. Að því er bókina varðar þá veldur þetta því að í henni úir allt og grúir af enskum orðum þar sem verið er að ræða um hinar ýmsu skipanir forritsins. Af því leiðir svo stíll á borð við þennan: „Ef við afveljum gridlines í option valmyndinni þá verða þeir reitir, sem ekki eru locked, undirstrikaðir og við getum unnið með þá eins og reiti á óvernd- uðu vinnublaði (sjá nánar cell prot- ection skipunina hér á eftir)“ (bls. 52). Þetta er vægast sagt ákaflega óeðlilegt málfar og raunar mjög óþægilegt aflestrar í íslenskri bók. Þó er hér vitaskuld ekki við höfunda bókarinnar áð sakast, því að þeir geta að sjálfsögðu ekki annað en notað þau nöfn á skipunum sem væntanlegur notandi forritsins þarf síðan að vinna með á skjánum. Þvert á móti stafar þetta af því að ekki hefur enn verið haft fyrir því að láta íslenska þetta enska forrit, þó að það hafi verið sett hér inn á íslenskan notendamarkað. -esig MINNING Jón Sigurðsson Rjóðri, Djúpavogi. Jón Sigurðsson, Rjóðri, Djúpa- vogi, andaðist skyndilega á pálma- sunnudag s.l. Hress og kátur eins og venjulega var hann er ég hitti hann á förnum vegi fyrir helgina. Sá hinn sami og við höfðum þekkt hann í mörg ár með bros á vör, vísu og glettniyrði á hraðbergi. Ég ætla ekki að rekja æviatriði Jóns í Rjóðri í smáatriðum. Það hefur Brynjólfur bróðir hans gert vel og skilmerkilega í blaðagrein. En skylt er mér að mæla nokkur kveðj uorð eftir þennan vin minn og félaga. Svo löng og góð var viðkynning okkar orðin og verð- ur aldrei fullþökkuð. Jón ólst upp á Melrakkanesi í Álftafirði hjá góðu fólki, Sigþóru Guðmundsdóttur og Helga Einars- syni. Mörg voru spor hans um þessar æskuslóðir og þar þekkti hann hvern stein. Margsinnis leitaði hann á vit náttúrunnar, annaðhvort einn síns liðs eða sem fræðari og leiðsögumað- ur annarra. Jón var fyrsti bílstjóri á Djúpavogi. Hann ók um skeið vörubíl sem Kaupfélag Berufjarðar fékk vorið 1942. Stundaði hann akstur og ökukennslu um skeið, en annars ýmsa vinnu er til féll. Jóni í Rjóðri var margt til lista lagt. Kunn- astur var hann fyrir kvæði sín og vísur. Oft var hann beðinn að yrkja ljóð við ýmis tækifæri. Kom reyndar oft ótilkvaddur er mest lá við og flutti snjallt kvæði. Lausavísur gerði hann fjölmargar af ýmsu tilefni. Hann hafði gott vald á móðurmáli sínu og setti saman ljóð af einstakri smekkvísi, enda þaullesinn í verkum hinna eldri meistara. íþróttir hugans voru honum tamar og kærar og hög var einnig hönd hans. Á síðari árum smíðaði hann báta- og skipalíkön af einstökum hagleik. Dvaldi löngum í kjallaranum í Rjóðri við þá iðju er frístundir gáfust. Hafa skip hans víða farið. Jón var eftirsóttur félagi á mannamótum. Hafði hann alltaf á takteinum eitthvert efni til að gera fólki glatt í geði, frásögn, kvæði eða vísu. Lionsmenn á Djúpavogi þakka honum sérstaklega samfylgd og sam- starf í 16 ár. Alltaf var hann hinn óeigingjarni og góði félagi tilbúinn að leggja góðu máli lið. Það er bjart yfir minningu Jóns í Rjóðri. Lítið sjávarþorp á Aust- fjörðum er eyðilegra og fátækara eftir að þorpsskáldið og sögumaður- inn er burt kallaður. Ég og fjölskylda mín vottum Jónínu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilega samúð okkar. Ingimar Sveinsson Afmælis* og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningar- greinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar. ■nr—fiTi W rkvnnau i m "E Steingrímur J. Sigfússon ráðherra Guðni Ágústsson, alþingismaður Borgfirðingar - nærsveitamenn Framsóknarfélag Borgarness efnir til almenns fundar um: Framtíðarsýn í landbúnaðar- og samgöngumálum. Fundurinn verður haldinn í Hótel Borgarnesi þriðjudaginn 25. apríl kl. 20.30. Frummælendur verða: Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar og samgönguráðherra, og Guðni Ágústsson, alþingismaður. Dagskrá: 1. Ræður framsögumanna. 2. Fyrirspurnir og almennar ræður. Allir velkomnir. Framsóknárfélagið í Borgarnesi. Páskahappdrætti SUF 1989 Útdráttur í Páskahappdrætti SUF er hafinn. Vinningsnúmer eru sem hér segir: 20. mars, vinningur nr. 1, 5242 vinningur nr. 2, 3145 21. mars, vinningur nr. 3, 1995 vinningur nr. 4, 144 22. mars, vinningur nr. 5, 538 vinningur nr. 6, 7401 23. mars, vinningur nr. 7, 7342 vinningur nr. 8, 7227 24. mars, vinningur nr. 9, 3991 vinningur nr. 10, 1377 25. mars, vinningur nr. 11, 868 vinningur nr. 12, 6818 26. mars, vinningur nr. 13, 5356 vinningur nr. 14, 5960 Hvert miðanúmer gildir alla útdráttardagana, það er 20. til 26. mars 1989. Velunnarar SUF eru hvattirtil að leggja baráttunni lið. Munið, ykkar stuöningur styrkir okkar starf. SUF SUF á Akureyri Helgi Pétursson SUF og kjördæmissambandið efna til fjölmiðlanámskeiðs á Akureyri helgina 22.-23. apríl nk., ef næg þátttaka næst. Leiðbeinandi: Helgi Pétursson. Efni: A. Áhrif fjölmiðla. B. Þjálfun í sjónvarpsframkomu. Þátttaka tilkynnist Braga Bergmann í síma 96-24222, Sigfúsi Karlssyni f síma 96-26600 og Skrifstofu Framsóknarflokksins í Reykjavík, sími 91-24480. SUF Létt spjall á laugardegi Húsbréf - Ráðherrastóil Laugardaginn 22. apríl n.k. mun Guðmundur Gylfi Guðmundsson, yfirhagfræðingur Fast- eignamats ríkisins, fjalla um húsnæðiskerfið á fundi í Nóatúni 21, kl. 10.30. Allir velkomnir. Fulitrúaráðið Guðm. Gylfi Skagfirðingar - Sauðárkróksbúar Komið í morgunkaffi með Stefáni Guðmundssyni, alþingismanni, laugardaginn 22. apríl kl. 10 til 12 í Framsóknarhúsinu, Sauðárkróki. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sfmi 43222. K.F.R.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.