Tíminn - 10.11.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
DAGBÓK
90 ára afmæli
í dag, föstudaginn 10. nóvember, verð-
ur níræður Guðmundur Bcrnharðsson
frá Ástúni, Hátúni 10. Hann tekur á móti
gestum í safnaðarheimili Áskirkju kl. 5-8.
Neskirkja:
Félagsstarf aldraðra
Samverustund á morgun, laugardag kl.
15 í safnaðarheimiii kirkjunnar. Guðrún
Jónsdóttir syngur einsöng. Upplestur.
Munið kirkjubíiinn.
Kvenfélag Fríkiikjusafnaðarins:
BASAR
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík heldur árlegan basar sinn á
morgun, laugardaginn 11. nóvember, í
safnaðarheimili kirkjunnar að Laufásvegi
13 og hefst hann kl. 14.00.
Tekið verður við munum á basarinn í
dag, föstudag, í safnaðarheimilinu kl.
17-21 og í fyrramálið frá kl. 9.00.
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudaginn 12. nóv.:
Kl. 13.00 MOSFELL
Ekið að Hrísbrú í Mosfellsdal og
gengið þaðan á Mosfell (276 m). Létt
gönguferð. Munið hlý föt og þægilega
skó.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn að 15 ára aldri. Verð kr. 600.-.
Ferðafélag íslands.
Útivist um helgina
Dagsferð, sunnud. 12. nóv.
Skemmtileg gönguleið í landi Mosfells-
bæjar: Reykjaborg -Æsustaðafjall.
Brottför kl. 13.00 frá Umferðarmið-
stöð-bensínsölu. Stoppað við Árbæjar-
safn og í Mosfellsbæ við Kaupfélagið.
Kvðldferð mánud. 13. nóv.
Tunglskinsganga og fjörubál á Álfta-
nesi. Brottför kl. 20.00 frá Umferðarmið-
stöð-bensínsölu.
Útivist.
Vetrar-
hjólbarðar
Hankook há-
gædahjólbarð-
ar frá Kóreu á
lágu verði.
Mjög mjúkir og
sterkir.
Hraðar hjól-
barðaskiptingar
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavfk
Símar: 91-30501 og 84844.
Ingibjörg Eyþórsdóttir við eitt verka sinna.
FÍM-salurinn:
BAUTASTEINAR
Ingibjörg Eyþórsdóttir opnar fyrstu
einkasýningu sína í FÍM-salnum í kvöld
kl. 20.00
lngibjörg stundaði nám við Myndlista-
skóla Reykjavíkur árin 1982 til 1983 og
síðan við Myndlista- og handíðaskóla
íslands á árunum 1983 til 1987. Myndirnar
sem hún sýnir eru allar málaðar á sl. einu
og hálfu ári.
Sýningin ber yfirskriftina Bautasteinar.
Sýningarsalur FÍM er opinn kl. 13-18 á
virkum dögum en kl. 14-18 um helgar.
VASAR, eitt verka Kristínar ísleifsdóttur á sýningunni.
Kjarvalsstaðir:
Síðasta sýningarhelgi
Nú stendur yfir sýning á verkum Sveins
Björnssonar málara í Vesturforsal Kjar-
valsstaða. Á sýningunni eru málverk,
skúlptúrar og fleiri verk. Sýningunni
lýkur sunnudaginn 12. nóvember nk.
Sýningu Kristínar ísleifsdóttur, sem er
í Vesturforsal Kjarvalsstaða, lýkur einnig
sunnudaginn 12. nóv. nk. Á sýningu
hennar eru 80 verk unnin í leir á sl. tveim
árum.
Sýningarnar eru opnar alla daga kl.
11-18.
Styrktarfélags vangefinna
Sala er hafin á jólakortum félagsins.
Pau eru með myndum af verkum listakon-
unnar Sólveigar Eggerz Pétursdóttur.
Hefur hún gefið félaginu frummyndirnar,
4 talsins, og verður dregið um þær 20.
janúar 1990 og vinningsnúmer þá birt í
fjölmiðlum.
Í»:; • -
kort verða í hverjum pakka og
fylgir spjald, sem gildir sem happdrættis-
miði. Verð pakkans er kr. 400. Kortin
verða til sölu á skrifstofu félagsins að
Háteigsvegi 6, í versluninni Kúnst,
Laugavegi 40, Nesapóteki Eiðistorgi og á
stofnunum félagsins.
Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að
kortin eru greinilega merkt félaginu.
Til sölu
50 notuð kanínubúr ásamt fylgihlutum.
Nánari upplýsingar í síma 93-56672 eftir kl. 7 á
kvöldin.
t
Útför eiginkonu minnar,
Sigríðar S. Sigurðardóttur
(rá Vfðlvöllum, Fljótsdal,
Berugötu 7, Borgarnesi
verður gerð frá Borgarneskirkju, þriðjudaginn 14. nóv. n.k. kl. 2, eftir
hádegi.
Jón Sigurðsson
Basar Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs heldur sinn árlega
basar í Félagsheimilinu sunnudaginn 12.
nóvember kl. 14:00. Munum veitt mót-
taka laugard. 11. nóvember kl. 13;00-
17:00 og sunnud. 12. nóv. frá kl. 10:00.
Á næstunni kemur út ný plata Bergs
Þórðar. Á plötunni eru 10 lög. Öll lög og
allir textar eru eftir Berg. Auk hans
syngja og leika á plötUnni þau Ásgeir
Oskarsson, Magnús Sigurðarson, Friðrik
Sturluson, Sigurður R. Jónsson, Ingólfur
Steinsson og Andrea Gylfadóttir.
5 F (fimm eff) gefur plötuna út, en
Skífan sér um dreifingu.
Föstudagur 10. nóvember 1989
Sigríður Ella Magnúsdóttir syngur við
undirleik Geoffreys Parsons á Ijóðatón-
leikum í íslensku óperunni.
, Ljóðatónleikar
í íslensku óperunni
Sigríður Ella Magnúsdóttir, mezzo-
sópran og Geoffrey Parsons, píanóleik-
ari, halda ljóðatónleika í íslensku óper-
unni sunnudaginn 12. nóvember nk. kl.
15.00. Á efnisskránni eru íslensk og
erlend Ijóð, m.a. eftir Haydn, Schubert,
Delius, Sibelius, Sigvalda Kaldalóns og
Árna Thorsteinsson.
Aðgöngumiðar eru seldir í Islensku
óperunni.
Hana nú:
Laugardagsganga
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
11. nóvember. Lagt af stað frá Digra-
nesvegi 12 kl. 10.00.
I misjöfnum veðrum vetrarins búum
við okkur hlýlega í bæjarröltinu. Mark-
mið göngunnar er súrefni, samvera og
hreyfing. Nýlagað molakaffi.
MÍR:
Mexíkómynd Eisensteins
„Lifi Mexíkó" nefnist kvikmyndin sem
sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
nk. sunnudag, 12. nóv. kl. 16. Myndin er
byggð á hugmyndum og myndefni sem
Sergei Eisenstein, hinn frægi, sovéski
leikstjóri, kvikmyndatökumaðurinn
Edvard Tisse og kvikmyndaleikstjórinn
Grígorí Alexandrov söfnuðu á ferð sinni
til Mexíkó árið 1932. Eisenstein auðnað-
ist aldrei að vinna úr efniviði sínum, en
Alexandrov hefur sett þessa mynd saman
úr því myndefni sem til var. Kvikmyndin
sækir efni í sögu Mexíkó, langa og litríka.
Skýringar á ensku eru með myndinni.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Þrjá Ijóðabækur eftir ung skáld
Almenna bókafélagið hefur gefið út
þrjár ljóðabækur ungra ljóðskálda og er
það liður í átaki félagsins til eflingar
íslenskri ljóðlist.
Stundir úr lífi stafrófsins ncfnist ljóða-
bók Sigmundar Emis Rúnarssonar. Sig-
mundur er þekktur sem frétta- og fjöl-
miðlamaður, en hann hefur áður gefið út
tvær Ijóðabækur.
Frostdinglar nefnist fyrsta ljóðabók
Birgittu Jónsdóttur. Hún myndskreytir
einnig bók sína.
Einleikur á regnboga er fyrsta ljóðabók
Steinunnar Ásmundsdóttur. f bókinni
eru einnig ljósmyndir eftir Ingu Lísu
Middleton.
Ljóðskáldin þrjú munu kynna Ijóð sín
á næstu vikum á höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni.
„Að vera - eða hafa veríð.
Þúsundasti og annar dagurínn
í lífi Halldórs Guðbrandssonar“
og Sjóferðin mikla, bamabók
Bókaútgáfan Lífsmark hefur sent frá
sér smáskáldsöguna „Að vera - eða hafa
verið. Þúsundasti og annar dagurinn í lífi
Halldórs Guðbrandssonar", eftir Guð-
mund Björgvinsson. Þetta er fimmta bók
höfundar, en hann hefur áður gefið út
þrjár skáldsögur og eina matreiðslubók.
Bókin Að vera - eða hafa verið er
fyrstu um sinn til sölu hjá höfundi, í
strætinu á daginn, en á öldurhúsum um
nætur.
Sama bókaútgáfa hefur gefið út barna-
bókina „Sjóferðin mikla“, eftir Guð-
mund Björgvinsson. Bókin segir frá
ævintýralegri siglingu fimm ára stúlku í
bleikri tunnu um heimshöfin. Hún kemst
í náin kynni við fjölmörg sjávardýr á leið
sinni, borðar t.d. rækju, leikur á hákarl
o.s.fiv. Að lokum skolar henni á landi í
Afríku, þar sem hún hittir fyrir flesta þá
sem hún hefur hvað mestar mætur á; Línu
langsokk, Mikka mús, Einar Áskel og
fleiri.
Þetta er fyrsta bamabók höfundar.
Allar myndimar í bókinni em eftir höf-
und hennar, Guðmund Björgvinsson.
Gallerí Borg:
Þórður Hall sýnir teikningar
Um þessar mundir sýnir Þórður Hall
teikningar í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9.
Sýningin er opin virka daga kl. 10-18 og
um helgar kl. 14-18. Þetta er seinni
sýningarhelgin. Henni lýkurþriðjudaginn
14. nóv. 1989.
SMVAR
STUNDASKRA
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
SJÁVARSTUNDASKRÁ
Samvinnubankans hf.
Samvinnubanki íslands hf. hefur látið
gera stundaskrá fyrir skólanemendur
landsins - stundaskrá, sem bæði gegnir
hinu hefðbundnu hlutverki og miðlar um
leið fróðleik.
Sjávarstundaskráin liggur frammi í öll-
um afgreiðslustöðum bankans um land
allt. Þar er greint frá helstu nytjafiskum
og fiskimiðum við Island.
Stundaskráin er myndskreytt af norska
teiknaranum Rolf Sörby. Auglýsingastof-
an Nýr Dagur hf. sá um hönnun stunda-
skrárinnar.
VERA 5. tbl. 8. árg.
Tímarit um konur og kvenfrelsi
1 þessu tölublaði Vera er m.a. grein
sem hefur að fyrirsögn „111 meðferð á
börnum“ og er þar sagt frá námstefnu
sem heilsugæsluhjúkrunarfræðingar og
barnahjúkrunarfræðingar stóðu fyrir.
Sektarkennd - kúgun eða afsökun? er
yfirskrift að samtali við konur, en þar er
rætt við Helgu Sigurjónsdóttur og Hönnu
Maríu Pétursdóttur og sálfræðingurinn
Guðfinna Eydal segir sitt álit sem sérfræð-
ingur. Einnig leggja þær Albína Thordar-
son og Þórhildur Þorleifsdóttir orð í belg.
Þá er frásögn konu sem flúði frá Suður-
Afríku.
Þá er í blaðinu frásögn Sigurveigar
Guðmundsdóttur kennara í Hafnarfirði,
en hún segir frá blíðu og stríðu í lífi sínu.
Sigurveig er orðin áttræð. Grein er í
blaðinu um konumar í Kyrrahafinu og
síðan segir frá Kvennalistakonum í frá-
sögn sem hefur að fyrirsögn „Með brjóst-
vitið og innri röddina í veganesti“. Einnig
er þátturinn „Úr listalífinu" og ýmislegt
fleira í blaðinu.
Ljósmyndasýning
sumarbúða skáta:
Skátar byggja upp fyrir fatlaða
Önnur sölusýning sumarbúða skáta að
Úlfljótsvatni var opnuð í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi laugardaginn 4. nóv-
ember sl. Sýningin verður opin til 17.
nóvember.
Þetta er sýning á verkum 8-12 ára bama
sem dvöldu f sumarbúðum skáta að
Úlfljótsvatni síðastliðið sumar. Verkin
sem em til sýnis em ljósmyndir teknar á
myndavélar sem bömin bjuggu sjálf til og
flestir þekkja sem kassamyndavélar (latn.
CAMERA OPSCURA). Ljósmyndun
með þessari aðferð er gömul því að fyrstu
ljósmyndirnar voru teknar með þessu
móti.
Sýningin er sölusýning. Öllum ágóða af
sölu myndanna verður varið til uppbygg-
ingar á aðstöðu fyrir fatlaða að Ulfljóts-
vatni.
Bjórg örvar sýnir á Hesthálsi
Björg Örvar er myndlistarmaður nóv-
embermánaðar á myndlistarkynningu
FlM-salarins og húsgagnaverslunar
Kristjáns Siggeirssonar í húsakynnum
verslunarinnar að Hesthálsi 2-4.
Björg stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands á ámnum 1975-
1980. Síðan var hún tvö ár í Bandaríkjun-
um og stundaði framhaldsnám við Kali-
fomíuháskóla, Davis. Hún hefur haldið 7
einkasýningar hér á landi og tekið þátt í
samsýningum hér heima og erlendis.