Tíminn - 26.01.1990, Side 10
10 Tíminn
Föstudagur 26. janúar 1990
ÞATTTAKA
TRYGGINGASTOFNUNAR RÍKISINS
í KOSTNAÐIVIÐ
TANNRÉTTINGAMEÐFERÐ
Vegna nýrra laga um greiöslur Trygginga-
stofnunar ríkisins fyrir tannréttingar vill
stofnunin hvetja forráðamenn barna og
unglinga til þess aö fresta því aö leggja
út í kostnað viö nýja tannréttinga-
rrieöferð þar til nýjar endurgreiðslureglur
hafa verið auglýstar. Aö því loknu skal
fólki bent á aö afla sér úrskurðar
Tryggingastofnunar um mögulega
greiðsluþátttöku stofnunarinnar áöur en
meöferö hefst. Tekið skal fram, aö tann-
réttingameðferð, sem sannanlega hófst
fyrir 1. nóvember 1989 veröur áfram
endurgreidd samkvæmt eldri reglum.
P5| TRYGGINGASTOFNUN
m RÍKISINS
Guðrún Alda
Matarspjallsfundur
Landssamband framsóknarkvenna verður með matarspjallsfund í
Lækjarbrekku, miðvikudaginn 31. janúar nk. kl. 19.30, þar sem
Guðrún Alda Harðardóttir fóstra kynnir drög að frumvarpi til laga um
leikskóla.
Allir velkomnir.
LFK.
m
Elín R. Líndal
Viðtalstími LFK
Elín R. Líndal, varaþingmaður á Norðurlandi vestra, verðurtil viðtals,
þriðjudaginn 30. janúar nk. kl. 17-19 í Nóatúni 21, sími 24480.
Allir velkomnir.
LFK.
Borgnesingar - Nærsveitir
Spilum félagsvist í Félagsbæ, Borgarbraut 4, í fundarsal Verkalýðs-
félags Borgarness kl. 20.30 föstudaginn 28. janúar n.k.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Keflavík
Skoðanakönnun meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins um
val frambjóðenda í komandi bæjarstjórnarkosningum fer fram í
Félagsheimili flokksins að Hafnargötu 62 sunnudaginn 28. janúar kl.
10.00-17.00.
Skoðanakönnunin er opin öllum stuðningsmönnum flokksins.
Mætið vel og takið þátt í könnuninni. Kaffiveitingar á staðnum.
Uppstillingarnefnd
Áshildur Haraldsdóttir.
EVRIDÍS, flautukonsert
Þorkels Sigurbjórnssonar
leikinn í Mexíkó
Áshildur Haraldsdóttir einleikari
og Öm Óskarsson stjórnandi
Áshildur Haraldsdóttir er nú stödd í
Mexíkó þar sem hún mun leika einleik
með sinfóníuhljómsveitinni Filharmoni-
caó del Bajío, en stjórnandi hljómsveitar-
innar er íslendingurinn Örn Óskarsson.
Áshildur mun leika einleik í flautukonsert
Þorkels Sigurbjörnssonar, Evridísi, á
fernum tónleikum síðast í janúarmánuði,
og Örn stjórnar öllum tónleikunum. Önn-
ur verk sem flutt verða á tónleikunum cru
eftir Egil Hovland og Jean Sibelius.
Þorkell Sigurbjörnsson samdi Evridísi
fyrir Manuelu og hljómsveit árið 1978 og
hún frumflutti konsertinn og hefur flutt
víða um heim.
Áshildur Haraldsdóttir hefur stundað
nám í Bandaríkjunum frá 1983 og lauk
BA prófi með láði frá New England
Conservatory í Boston 1986 og Meistara-
prófi frá Juilliard skólanum, þá 22 ára
gömul. Áshildur hefur haldið einleikstón-
leika hér heima og erlendis og unnið til
margra verðlauna.
Örn Óskarsson dvaldi í Bandaríkjun-
um sl. fjögur ár og stundaði nám í
hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskóla
Washingtonfylkis í Seattle. Þaðan lauk
hann námi í hljómsveitarstjórn vorið
1989 og hélt þá til Mexíkó, þar sem hann
hefur starfað síðan.
Einnig var flautukonsertinn Evridís
fluttur í Bryggeteatret í Oslo sunnud. 21.
jan. sl. Þar dansaði Susanne Valentin við
tónlistina ásamt dönsurum frá Svíþjóð.
Dansað var líka eftir fleiri tónverkum.
Endurteknir Ijóðatónleikar
í Gerðubergi
Eins og menn muna gekk fárviðri yfir
mánudaginn 8. janúar. Það kvöld voru
ljóðatónleikar í Gerðubergi, - en vegna
fjölda tilmæla hefur verið ákveðið að
cndurtaka Ijóðatónleikana laugardaginn
27. jan. kl. 15:00.
Um er að ræða þriðju tónleikana í
Ijóðatónleikaröð sem haldin er á vegum
Gerðubergs nú í vetur. John Speight,
bariton, syngur við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Fluttur verður laga-
flokkur eftir B. Britten, svo og sönglög
eftir Purcell, H. Wolf, F. Schubert, R.
Schumann, C. Ives o.fl.
John Speight stundaði tónlistarnám við
Guildhall School of Music and Drama
1964-’72, einnig nam hann tónsmíðar hjá
Richard Rodney Bennett. Hann hefur
sungið víða á Englandi og írlandi, bæði í
óratoríum, óperum og á ljóðatónleikum.
John hefur tekið þátt í mörgum óperusýn-
ingum, bæði í Þjóðleikhúsinu og Islensku
óperunni. Auk söngsins er John afkasta-
mikið tónskáld.
Hafnarborg:
„Det Grönne Mórke“ - Sýning á
verkum fimm norskra málara
1 Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, Strandgötu 34, var
nýlega opnuð sýning á verkum fimm
norskra málara. Listamennirnir eru:
Anne Katrine Dolven, Erík Annar
Evensen, Olav Christopher Jenssen, Jon
Arne Mogstad og Björn Sigurd Tufta.
Til sýningarinnar er stofnað af hálfu
Norrænu listamiðstöðvarinnar í Sveaborg
í Finnlandi og hefur hún verið sett upp í
Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og nú
síðast í Noregi. Verk eftir þessalistamenn
hafa ekki verið sýnd hér á landi áður,
utan sýningar á verkum Björn Sigurd
Tufta í Norræna húsinu árið 1987.
Formáli í sýningarskrá er skrifaður af
Maaretta Taukkuri, sýningarstjóra Nor-
rænu Listamiðstöðvarinnar í Sveaborg.
Sýningin í Hafnarborg stendur til 4.
febr. n.k. Opnunartími er kl. 14:00-19:00
alla daga nema þriðjudaga.
Sunnudagsferðir F.í. 28. jan.
Sunnudaginn 28. janúarkl. 13:00 verða
tvær dagsferðir á vegum Ferðafélags
íslands. Onnur ferðin er sú fyrsta af fimm
svokölluðum „verferðum". Tilgangur
þeirra er að kynna gamlar verstöðvar frá
árabátatímabilinu. Á sunnudaginn verð-
ur farið til Grindavíkur og gengið þar á
milli hverfanna. Byrjað verður austur við
bæinn Hraun og gengið vestur um
Grindavík í Staðarhverfið. Staðfróður
heimamaður slæst í hópinn.
Hin ferðin er skíðagönguferð á Hellis-
heiðina, en þar er kominn ágætur snjór til
skíðaiðkana. Skíðagönguferðir verða á
dagskrá Ferðafélagsins alla sunnudaga
svo lengi sem snjóalög leyfa. Brottför í
ferðirnar er frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin.
Ferðafélag tslands
„Fjallahringur" - Leirverk eftir Guðnýju
Sýningar á Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 27. janúar verða opnað-
arþrjár sýningar að Kjarvalsstöðum.
I vestursal opnar Þorlákur Krístinsson
(Tolli) sýningu á olíumálverkum.
I vesturforsal opnar Guðný Magnús-
dóttir sýningu á Ieirmunum.
I austurforsal opnar Bragi Þór Jósefs-
son sýningu á ljósmyndum.
I austursal er sýningin „Kjarval og
landið", verk í eigu Reykjavíkurborgar.
Magnúsdóttur.
Kjarvalsstaðir eru opnir kl. 11:00-18:00
daglega og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
„Upphaf aldarloka”
Kvöldvaka verður á sýningu Tolla
sunnudagskvöldið 28. janúar kl. 20:30,
en yfirskriftin yfir kvöldvökunni er „Upp-
haf aldarloka'*.
Fram koma: Megas, Bubbi, Sigfús
Bjartmarsson, Einar Már Guðmundsson,
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný
Guðmundsdóttir.
Útivist um helgina:
Þórsmerkurgangan, 2. ferð sunnud. 28.
jan.
Gengin verður gamla Seljadalsleiðin
frá Árbæ upp Leirdal, norður fyrir Reyn-
isvatn, sunnan í Reynisvatnsási, síðan
austan Langavatnsheiði að Miðdal. Þetta
erelsta Þingvallaleiðin. Brottförkl. 13:00
frá Umferðarmiðstöð, bensínsölu. Far-
miðar við bíi (600 kr.)
Skíðagöngunámskeið sunnud. 28. jan.
Brottför kl. 13:00 frá Umferðarmið-
stöð, bensínsölu. Vanur skíðakennari
(600 kr.)
Myndakvöld Útivistar, fimmtud. 2. febr.
Myndakvöld verður í Fóstbræðraheim-
ilinu, Langholtsvegi 109 og hefst kl.
20:30. Margrét Margeirsdóttir sýnir
myndir úr hálendisferð sumarið 1989:
Snæfell - Kverkfjöll - Mývatn og myndir
frá Grænlandi.
í hléi er boðið upp á góðar kaffiveiting-
ar sem eru innifaldar í miðaverði. (aðg.
400 kr.)
Hlutu verðlaun
frá Þjóðminjasafni
Jólasýningu Þjóðminjasafns íslands
lauk þann 7. janúar og var aðsókn að
sýningunni mjög góð. Fjöldi bama og
unglinga tók þátt í jólaleik safnsins og
hefur nú verið dregið úr réttum lausnum.
Verðlaunahafar hafa fengið verðlaunin
send í pósti.
Verðlaun hlutu: Dagný Huld Hinriks-
dóttir, Beykihlíð 5, Rvk,
Guðný Björg, Heiðarási 6, Rvk, Katrín
Svana Eyþórsdóttir, Melgerði 7 Rvk.,
Lilja Rut, Kaplaskjólsvegi 39, Rvk.,
Margrét Björk Sigurðardóttir, Bogahlíð
9, Rvk.,
Máni Gunnarsson, öldugranda 1, Rvk.,
Oddbergur Sveinsson, Breiðvangi 24,
Hafnarfirði,
Unnur Brynjólfsd. Bárugötu 17, Rvk.,
Þorvaldur, Hegranesi 19, Garðabæ, Þórir
H. Þórisson, Skeljagranda 2, Rvk.
Nýhafnarklúbburinn
starfar á ný
Nýhafnarklúbburinn tekur aftur til
starfa 5. febrúar nk. Þetta er annað árið
sem hann starfar, en starfsemi klúbbsins
byggist á fyrirlestrum um myndlist og
verða fjórir fyrirlestrar á vorönn og fjórir
á haustönn. 23. júlí verður svo Jóns-
messuhátíð eins og sl. ár.
Ætlunin er að fara í listskoðunarferð til
Madrid í fylgd sérfróðra manna um
miðjan marsmánuð. Sú ferð er á vegum
ferðaskrifstofunnar Lands og Sögu í
Bankastræti, sem veitir allar upplýsingar.
Fjöldi þátttakenda í klúbbnum er tak-
markaður og ganga meðlimir síðasta árs
fyrir, en þeir sem hefðu áhuga á að bætast
í hópinn geta Iátið skrá sig í listasalnum
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, sími 12230,
fyrir 1. febrúar.
Safnaðarkvóld í Laugames-
kirkju með Dr. Sigurbirni
Einarssyni biskupi
I kvöld, föstud. 26. jan., verður al-
mennt safnaðarkvöld í safnaðarheimili
Laugarneskirkju kl. 20:30. Dr. Sigur-
björn Einarsson biskup flytur erindi er
hann nefnir: Sorgin og trúin.
Einnig mun strengjakvartett úrTónlist-
arskólanum í Reykjavík leika verk eftir
Mozart.
Boðið verður upp á kaffi. Kvöldinu
lýkur með stuttri helgistund í kirkjunni.
Þetta er annað safnaðarkvöldið í vetur
þar sem fer saman fræðandi erindi og góð
tónlist. Safnaðarkvöldin eru öllum opin.
Jún D. Hróbjartsson sóknarprestur.
FÍM-salurinn
Samsýning félagsmanna í Félagi ís-
lenskra myndlistarmanna stendur yfir í
FÍM-salnum og Galleríinu, Garðastræti
6. Opið er kl. 14:00-18:00 virka daga.
FRÁ FÉLAGIELDRIB0RGARA
Göngu-Hrólfur Félagar í Göngu-Hrólfi
hefja laugardagsgöngu sína að venju kl.
11:00 að Nóatúni 17 laugardaginn 27.
janúar. Göngunni lýkur að þessu sinni
með samkomu í Langholtskirkju og fagna
þar þorra með söng og kaffiveitingum.
Dansnámskeið Dansnámskeið hefst á
ný laugardaginn 3. febrúar í Nýja Dans-
skólanum. Upplýsingar hjá skólanum.
Tölvunámskcið Tölvunámskeið hefst
7. febrúar. Kennt verður á miðvikudög-
um og föstudögum kl. 14:00. Þrír tímar í
senn. Verð 5000 kr. fyrir námskeiðið.
Tvö þorrablót Tvö þorrablót verða í
Goðheimum, Sigtúni 3. Það fyrra 9.
febrúar og hiðsíðara 23. febrúar. Upplýs-
ingar á skrifstofu Félags eldri borgara,
sími 28812.
Frá Listasafni íslands
1 Listasafni íslands stendur nú yfir
sýning á verkum í eigu safnsins. Verkin
eru unnin á árunum 1945-1989.
Listasafnið vill minna á breyttan opn-
unartíma. Safnið er nú opið alla daga,
nema mánudaga, frá kl. 12:00 til 18:00.
Veitingastofa safnsins er opin á sama
tíma.
Almenn leiðsögn um sýninguna sem
stendur í safninu fer fram á sunnudögum
kl. 15:00 í fylgd sérfræðings. Leiðsögnin
„Mynd mánaðarins" er á fimmtudögum
kl. 13:30.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga „Hana nú“ í
Kópavogi verður á morgun, 27. janúar.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00.
„Gönguglaðir Kópavogsbúar heilsa
þorranum með vaxandi bjartsýni og þátt-
töku í bæjarröltinu ... Einkunnarorð
eru: Samvera, súrefni, hreyfing. Nýlagað
molakaffi," segir m.a. í fréttatilkynningu
frá Frístundahópnum Hana nú.
MÁLVERKAUPPBOÐ1. febrúar
Gallerí Borg heldur málverkauppboð
fimmtudaginn 1. febrúar. Málverkaupp-
boðið fer fram að Hótel Sögu og hefst kl.
20:30. Tekið verður á móti verkum á
uppboðið fimmtudaginn 25., föstud. 26.
og mánudaginn 29. jan. í Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9.
Félagsvist
Breiðfirðingafélagsins
Breiðfirðingafélagið í Reykjavík held-
ur félagsvist í Breiðfirðingabúð, föstudag-
inn 26. janúar kl. 20.30. Góð verðlaun.
Kl. 23:00 verður dansað. Harmoniku-
músík. Allir velkomnir.
Árshátíð
Snæfellingafélagsins
Félag Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavík heldur árshátíð sína laugar-
daginn 10. febrúar n.k. í- Goðheimum,
Sigtúni 3.
Leiðrétting
I myndartexta með frásögn af Sýning-
um á Kjarvalsstöðum í Dagbók fimmtud.
25. jan. var villa sem hér með er leiðrétt.
Myndin var af málverki eftir Þorlák
Kristinsson, (TOLLA), en hann er með
sýningu í vestursal Kjarvalsstaða.
Árshátíð
Húnvetningafélagsins
Árshátíð Húnvetningafélagsins í
Reykjavík verður haldin 3. febr. n.k. í
Glæsibæ, Álfheimum 74, og hefst hún
með borðhaldi kl. 19:00.
Upplýsingar í símum 41204 og 30752.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Siminn er 21205 - opinn ailan sólar-
hringinn.