Tíminn - 27.01.1990, Blaðsíða 8

Tíminn - 27.01.1990, Blaðsíða 8
Tolli, Þorlákur Kristinnson, er maður sem undanfarin ár hefur orðið sífellt meira áber- andi í heimi íslenskrar mynd- listar. Þorlákur, eða Tolli eins og hann gjarnan kallar sig, stendur á ákveðnum tímamótum um þessar mundir, en einmitt í dag opn- ar hann sýna fyrstu einka- sýningu á Kjarvalsstöðum. Það hefur aldrei verið nein lognmolla í kringum Tolla, hvort sem gripið er niður í myndlistinni, eða litið lengra aftur til þess tíma er hann leiddi baráttu íslenskra far- andverkamanna. Við mœlt- um okkur mót á vinnustofu hans upp á Höfða. Mér var boðinn stóll og kaffi. Noestu tvo klukkutímana sat ég á stólnum og spurði, hann málaði á meðan, og svaraði. Þessi sýning hefur átt sér tveggja ára aödraganda," segir Tolli. „Hún samanstendur af olíu- málverkunt og grafíkmyndum; ol- ían er frá síðast liðnum tveimur ár- um, en grafíkverkin vann ég í haust í samvinnu við Silkiprent hf.“ — Nú er þetta í fyrsta skipti sem þú sýnir á Kjarvalslöðum, eru þetta ekki áveðin límamót fyrir þig sem myndlistarmann? „Jú, vissulega. í lilefni þess að maöur hefur fengið inni í félags- heimili borgarinnar, Kjarvalstöð- um, haföi ég samband við nokkra vini mína og í sameiningu ákváðum við að lífga upp á félagslíf bœjarins, með því að halda kvöldvöku í tengslum við sýninguna." — Hvaða vinir eru þaö, og við hverju má fólk búast? Tolli brosir við og heldur síðan áfram. „Þessir vinir mínir eru bróð- ir minn Bubbi og kollegi ltans Meg- as og hin klassíska söngkona Sig- ríður Hjálmtýsdóltir frá Túnfœti, ásamt undirleikaranum Önnu Guð- nýu Guðmundsdóttur. Þetta er tón- listarfólkið, en að auki munu Sigfús Bjarlmarsson, ljóðskáld og Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, lesa upp úr verkum sínum. Kvöld- vakan fer fram á Kjarvalstöðum nœst komandi sunnudag, kvöldið eftir að ég opna málverkasýning- una. Hún er öllum opin svo lengi sem pláss leyfir." íslenskir fiskar á hóteli í Kaupmannahöfn — Hvað er annars á döfinni hjá þér, fyrir utan sýninguna á Kjar- valsstöðum? „Strax í byrjun febrúar fer ég til Kaupmannahafnar til að vinna á U.M.—grafíkverkstœðinu á Nörre- bro, þar sem ég kem til með að vinna að grafíkverkum fyrir nýtt hótel sem verið er að reisa í mið- borg Kaupmannahafnar, Hótel Pó- seidon.“ „Þeir höfðu séð myndir eftir mig þar sem ég sœki efnið til minnar eingin fortíöar, í sjómennskuna og lífið í sjávarþorpunum úti á landi,“ segir hann, og bœtir þvt' við að kannski sé einmitt vel við hœfi að skreyta konungsríki undirdjúpanna, ríki Póseidons, með íslenskum fisk- um. Fór sínar eigin leiðir Tolli opnaði, fyrstur Islendinga einkasýningu í Seoul í Kóreu, fyrir um einu og hálfu ári síöan. Nú hef- ur honum verið boðið að sýna að nýju í Kóreu nœsta haust, en auk þess mun hann vera með verk á samsýningu í Köln í vor og einka- ..Stökkið úr torfi yfir í steinsteypu var salíbuna á regnboganum,"'segir Tolli. (Tímamynd Árnl). Úr verbúð inn á Kjarvalsstaði sýningu skammt frá Berlín Þýska- landi í lok maí. Ástœða þess að hann sýndi í Kóreu á sínum tíma, var samstarf hans við kóreskan fé- laga sinn, er hann kynntist þá er hann var við nám í Hochschule der Kúnste í Vestur Berlín árin 1983 — 1984. „A þessum tíma hafði átt sér stað mikil uppstokkun meðal Vest- ur - - Evrópskra myndlistarmanna og þessara strauma gœtti mjög mik- ið í Berlín," segir Tolli. „Tjáningar- þörfin og sköpunarkrafturinn var í algleymingi og menn freistuðu þess að fara inn á nýjar braulir, fara sínar eingin leiðir. Eg varð að velja mína leið, og stóð frammi fyrir spurning- unum, hver er ég, og hvaðan er ég?“ — Og hvaða leið valdir þú? „Ég fór þá einu leiö sem rökrétt var að fara og sótti myndefnið til minnar eigin reynslu. Minn bak- grunnur er íslensk náttúra og menn- ing ásamt fleiru." Hann þagnar smá stund og segir síöan hugsandi. „Það má segja að á mínum ferli sem málari, hafi ég smám saman ferðast frá óbyggðum til byggða. I fyrslu málaði ég óbyggðirnar, bara grjót og auðn, síðan komu varðan, siglinganterk- ið, bœkur, kauptúnin, fólkiö og fleiri tákn sem eru gegnum gang- andi í mínum verkum." Stoll i viðu samhengi Tolli þagnar aftur og ég spyr hann hvað hann eigi við með tákn- um, fyrir hvað þau slandi? „Hvaðmeð þennan stól til dœmis?,“ segi ég og bendi á mynd af manni sem er staðinn upp af grœnum stól og þann veginn að brjóta af sér járnhlekki. „Þessi tegund stóla barst hingað með hernámsliðinu á sínum tíma,“ segir Tolli. „Hernámsstóllinn hefur svipuðu hlutverki aö gegna og vörðumar og siglingamerkin höfðu á sínum tíma, hann hefur táknrœna merkingu sem hlutur. Sjáöu til, þegar ég er að mála fiska, hús, bœkur, eða hvað annað sem er, þá er ég ekkert endilega að mála ntyndir af þessum hlutum, heldurþví sem þeir standa fyrir.“ — Hann bendir á annað málverk af ís- lensku sjávarþorpi, þar sem m.a. koma fyrir gömul íbúðarhús úr steini. — „Þetta eru hús, eins og þau fyrstu sem voru steypt hér á landi. Þó að þau séu nú flest horfin, eða um það bil að hverfa, eiga þau sér sína sögu. Stökkið úr torfi yfir í steinsteypu var salíbuna á regnbog- anum, og það var meira undur en við eigum eftir að sjá á húsnœðis- siglingu framtíðarinnar. Sagan er svo stór hluti af okkur. I raun er núið bara birtingarform fortíðarinnar, eins og stjarna sem sprakk fyrir milljónum ára. Þó að sauðkindinni yrði útrýmt með til- skipun frá Stjórnarráðinu, myndi hún halda áfram að jarma í vitund þjóðarinnar fram í óravídd eilífðar- innar.“ Svipað og að aðgreina lík- ama og sal — Þú hefur oft á tíðum sótt efni- við í myndir þínar til náttúrunnar, en málar þó ekki dœmigerðar landslagsmyndir, er þetta ekki dálít- ið óvenjulegt? „Náttúran, sem uppsprettulind listamanna er ódauðleg, svo lengi sem menn draga andann hér í þess- ari tilvist,“ segir Tolli ákveðinn. „Með því að mála landslag varð ég á sínum tíma að stíga yfir ákveöinn þröskuld. Landslagsmyndir voru á þeim tíma ákveðin bannhelgi og hálft í hvoru litið á þœr sem viö- fangsefni áhugamanna. Samskipti mannsins og náttúr- unnar er ein af þeim viðfangsefnum sem brenna hvað mest á fólki í dag. 1 raun og veru er villandi að tala um mann og náttúru sem eitthvað að- skilið og sitt í hvoru lagi; þaö er svipað og kristin miðaldaheimspeki sem aðskildi sál og líkama. Menn tala gjarnan um náttúruna sem eitt- hvað sem er fyrir utan dyrnar hjá þeim, eitthvað sem taka verður tillit til þegar þeir hafa tíma til þess. Þessi hugklofningur okkar hefur leitt til hœgfara sjálfstortímingar. Sambandið á milli mannsins og náttúrunnar verður ekki rofið, þetta er eilíf sambúð." „Farandverkamaðurinn“ varð til á Eskifirði —Þú segist sœkja myndefni til reynslu þinnar. Nú varstu á sínum tíma sjómaður og farandverkamaö- ur, voru það ekki róstursamir tímar? „Orðið „farandverkamaður" varð til í texta viö lag sem var sam- inn í verbúð austur á Neskaupstað. Þegar hugtakið haföi fœðst var hálfur sigur unninn,“ segir Tolli, og það er ekki laust við að nokkurs stolts gœti í röddinni. „Jú, það er rétt ég tók þátt í bar- áttunni fyrir bœttum kjörum og að- búnaði farandverkafólks á sínum tíma. Upphaf átakanna átti sér stað í Vestmannaeyjum árið 1979. Á þeim tíma var ég háseti á Hafernin- um, hjá brœðrunum Ingólfi og Matthíasi Óskarsonum og fleirum. Það brotnaöi öxull í skipinu og við lentum í langvarandi vélarbilun í Eyjum. Af þeim sökum dvaldist ég langtímum saman upp á verbúð og maður blandaði geði við landverka- fólkið. Þar var fólk mjög ósátt með sinn hlut og undir niðri kraumaði óánœgja og reiði í garð „Stöðvar- valdsins", seni við kölluðum svo, en það voru forsvarsmenn Vinnslu- stöðvarinnar. Við sáum að nú var lag, við höfðum noegan tíma til að- gerða og þetta var bara spurning urn að stilla saman kraftana. Kveikjan að þessu, voru lög og textar sem ég og Bubbi bróðir sömdum, þar sem við trölluðum um líf og leik farand- verkafólks." — Kom ekki til átaka á rnilli manna? „Jú, jú, það kom til virkilegra átaka og menn lentu í handalögmál- um,“ segir málarinn og brosir aö endurminningunni. Við urðum þarna fyrir miklum vonbrigðum með forystu Verkamannasam- bandsins, Gvend Jaka og þá kump- ána, þó svo að verkalýðsfélagið og sjómannahreyfingin í Eyjum hafi staðið dyggilega með okkur. Við fengum samt knúin í gegn lög sent tryggðu aðbúnað farandverkafólks, enda full þörf á því — Þetta var mikil reynsla og ánœgjuleg. Við vorum í góðu sambandi við ljölmíðla í Reykjavík og því meira harðrœði sem Slöðvarvaldið beitti, því meira unnum við á. Þetta er bara dœmi um það (eins og krúnkað var á skjáinn) hvemig það rnjúka sigrar hið harða, því árásargjarnari sem andstœðingurinn verður, því auðveldari er hann.“ Árni Gunnarsson. HELGIN Laugardagur 27. janúar 1990

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.