Tíminn - 10.03.1990, Blaðsíða 14

Tíminn - 10.03.1990, Blaðsíða 14
26 Tíminn Laugardagur 10. mars 1990 Sýningarsalur FÍM: „Obsessions 2“ Guðjón Bjarnarson Guðjón Bjarnarson sýnir að KJARVALSSTÓÐUM í dag, 10. mars, opnar Guðjón Bjarnar- son sýningu í austursal og forsal Kjar- valsstaða. Á sýningunni cru áttatíu mál- verk og skúlptúrar, unnin í tré og striga í Bandaríkjunum og hcrlendis á sl. ári. Guðjón er fæddur 1959 í Reykjavík. Hann varð stúdent frá MR 1979, nam lögfræði við lagadeild Háskóla Islands 1979-’81, en hélt þá til Bandaríkjanna. Þar lagði hann stund á nám í arkitektúr við Rltode Idland School of Design í Providence í Nýja Englandi. Hann lauk BFA gráðu 1983 og B. Arch. ári seinna. Frá Ferðafélagi íslands Sunnudagsferð 11. mars Kl. 10:30 - Skíðaganga um Kjósarskarð. (kr. 1000) Kl. 13:00 Stórstraumsfjöruferð: Hval- Ijörður - Hvammsvíkurhólmi. Létt rölt um fjölbreytta strönd. (kr. 1000) Kl. 13:00 -Skíðagöngunámskeið. Leiö- beinandi er Halldór Matthíasson. (kr. 1000) Kl. 13:00 - Skíðaganga á Mosfellshciði. Brottför frá Umferöarmiöstööinni, aust- anmegin. Farmiöar við bíl (kr. 1000). Mánudagur 12. mars kl. 20:00 - Kvöld- ganga og blysför í Viðey. Létt ganga á fullu tungli. Litiö inn í Viöeyjarkirkju. Brottför frá Viöeyjarbryggju Sundahöfn. Far 500 kr. og blys kr. 100. Vetrarfagnaður í Risinu, Klúbbnum, Borgartúni 32, laugard. 17. mars. Pantiö tímanlega. l'áskaferðir: 1. Snæfellsnes - Snæfells- jökull 3 og 5 dagar. 2. Þórsmörk 3 og 5 dagar. 3. Landmannalaugar, gönguskíöa- ferö. Athugiö sértilboö á Árhókum F.í. Aðalfundur F.í. veröur haldinn í Sókn- arsalnum, Skipholti 50A, miövikudaginn 14. mars kl. 20:30. Venjuleg aöalfundar- störf. Félagsmenn sýni ársskírteini frá árinu 1989 viö inngangi. Stjórn Ferðafélags íslands Erindi í Neskirkju Tvo næstu sunnudaga, 11. og 18. mars, llytur dr. Gunnar Kristjánsson erindi í safnaðarheimili Neskirkju að lokinni guðsþjónustu. Erindin fjalla urn helstu stef föstunnar og píslarsögunnar i myndlist. Það fyrra tekur fyrir efni er tengist síðustu kvöld- máltíðinni en í því síðara verður fjallað um krossfestinguna. Auk talaðs máls sýnir dr. Gunnar litskyggnur af kunnum listaverkum. Erindin hefjast kl. 15.15. Veitingar verða á boðstólum. Öllum er að sjálf- sögðu heimill aðgangur. Lagadeild H.í: Lektor í skoskum sifjarétti heldur fyrirlestur Mánudaginn 12. mars kl. 12.00 heldur dr. Anne Griffiths, lektor í skoskum sifjarétti við Edinborgar-háskóla, fyrir- lestur á vegum lagadeildar Háskóla íslands. Fyrirlesturinn nefnist „Disputing the Family: Legal Rulesof Social Process- es“ og fjallar um sáttaumleitan í fjölskyld- uerjum meðal Kwena-ættbálksins í Botswana t' Suður-Afrfku, með sérstakri hliðsjón af stöðu kvenna. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar, og er öllum opinn. Hafnarborg Nýlega var opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarð- ar, sýningin NONAGINTA. Þátttakendur eru: Björn Roth, Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Kjartan Guðjónsson og Ómar Stefánsson. Sýningin er opin kl. 14:00-19:00 alla daga nema þriðjudaga. Sýningin stendur til 19. mars. Minningarkort SJÁLFSBJARGAR í Reykjavík og nágrenni - fást á eftirtöldum stöðum: Reykjavfk: Reykjavíkur apótek, Garðsapótek, Vesturbæjarapótek, Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð Fossvogs, Grímsbæ við Bústaðaveg, Bókabúðin EmbL Drafnarfelli 10, Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67, Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10. Hafnarfjörður: ‘iókabúð Olivers Steins, Strandgötu ! Kópavogur: Póstliúsið. Minningarkort f.ist • innig á skrifstofu Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta. Árið 1987 lauk hann meistaragráðu í myndlist og skúlptúr við School of Visual Art í New York og lagði síðan stund á framhaldsnám í arkitektúr við Columbia háskóla og lauk meistaragráðu í arkitekt- úr sl. vor. Guðjún býr og starfar í New York. Þetta er önnur einkasýning hans og sú fyrsta hér á landi, en hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á sl. árum í Bandaríkjunum. Slagverkshópurinn Snerta og Infermó 5 munu leika tilbrigði við verkin við opnun sýningarinnar á laugardag og á sunnudag kl. 20:30 leika Jón Aðalstcinn Þorgilsson og Þorsteinn Gauti rómantísk verk á klarinett og píanó. Sýningin er opin daglega til 25. mars. Útivist um heigina Þórsmerkurgangan, 5. ferð, sunnudaginn 11. mars. Nú erum við komin til byggða. Gengin verður gamla þjóðleiðin frá Reykjum í Ölfusi meðfram Ingólfsfjalli. fram hjá Sogni, Gljúfri og Hvammi að Fjalli. Síðan verður gengið um Hellisbrú að hinni fornu lögferju hjá Laugardælum. Ef skilyrði veröa hagstæö veröur ferjað yfir ána á gamla vaðinu með aðstoð Slysa- varnardeildarinnar Tryggva. Staðfróðir Árnesingar verða fylgdarmenn. Brottför kl. 10,30 frá Umferðarmiðstöð- bensín- sölu. Stansað við Árbæjarsafn. Eftirmið- dagsferð: Samcinast morgungöngunni við Kögunarhól. Brottför kl. 13.00 frá Um- ferðarmiðstöð- bcnsínsölu. Stansað við Árbæjarsafn. Skíöaganga, sunnudaginn 11. inars Genginn léttur hringur í nágrcnni Jós- efsdals. Brottför kl. 13.00 frá Umferðar- miðstöð-bensínsölu. Stansað við Árbæj- arsafn. Sigluf jarðarprestur og kirkjukór heimsækja Grafarvogsprestakall Grafarvogs-söfnuður tekur á móti góð- um gestum á sunnudag, því að þann dag mun guðsþjónusta sunnudagsins í Grafar- vogi vera flutt af sóknarpresti Siglfirð- inga, sr. Braga Ingibergssyni, kirkjukór Siglufjarðar undir stjórn Tonys Raleys. Að lokinni guðsþjónustunni er „kirkju- kaffi“ á vegum Siglfirðingafélagsins í Reykjavík. Guðsþjónustan veröur í messuheimili Grafarvogssafnaðar, Fél- agsmiðstöðinni Fjörgyn, en þar fcr fram allt guðsþjónustuhald safnaðarins, barna- messa kl. 11:00 og guðsþjónusta kl. 14:00 hvern sunnudag. Sóknarprestur Grafarvogs-safnaðar er Vigfús Þór Árnason, sem áður var prestur á Siglufirði. Almanakshappdrætti Þroskahjálpar Almanakshappdrætti Landssamtak- anna Þroskahjálpar. Virmingurinn í janúar kom á nr. 6726 og vinmngurinn í febrúar á nr. 2830. Spilakvöld í Kópvogi Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur spilakvöld í Þinghóli, Hamraborg 11, þriðju hæð, mánudaginn 12. mars kl. 20:30. Allir velkomnir. FRÍKIRKJAN í Reykjavík Helgistund verður kl. 17:00. Föstuguðsþjónusta er á miðvikudag kl. 20:30. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson Ein af myndum Karólínu á sýningunni Karólína sýnir í NÝHÓFN Karólína Lárusdóttir opnar sýningu í Listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugardaginn 10. mars kl. 14:00-16:00. Á sýningunni verða vatnslitamyndir og dúkristur. Karólína er fædd í Reykjavtk árið 1944. Hún nam við Ruskin School of Art í Oxford 1965-’67 og Barking College of Art 1980 undir handleiðslu Harry Ecclest- on. Hún kenndi myndlist um fimm ára skeið, en vinnur nú alfarið að list sinni. Karólínu var boðin aðild að Royal Society of Painter-Etchers and Engravers árið 1980 og kosin meðlimur 1984. I sept. 1989 fékk hún Dicks and Greenbury verðlaunin fyrir mynd sína „Bið“ á haustsýningu Painter-Etchers í Bankside Gallery í London. Þetta er þrettánda einkasýning Karó- línu, en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga erlendis. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 10:00-18:00 og kl. 14:00- 18:00 um helgar. Henni lýkur 28. mars. Þorsteinn Gauti Sigurðsson og Jón Aðal- steinn Þorgeirsson. Ásgeir Smári sýnir nýjar olíu- og vatnslitamyndir í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10-18 og um helgar frá 14-18. Henni lýkur þriöjudaginn 20. mars. Sunnudaginn 11. mars heldur hljóm- sveitin Súld tónleika í Duus húsi við Fischersund. Súld hefur ekki leikið opin- berlega síðan í júlí 1988 en þá kom hljómsveitin fram á djasshátíð í Montrcal í Kanada. Tónlistin sem Súld flytur eru Páll Pálsson, bassi, Tryggvi Húbner, gítar, Lárus Grímsson, hljómborð, Steingrímur Guðmundsson, trommur, og Maarten Van der Valk, slagverk. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30. Sunnudaginn 11. mars halda þeir Jón Aðalsteinn Þorgeirsson klarinettleikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleik- ari tónleika að Kjarvalsstöðum og hefjast þeir kl. 20.30. Flutt verður tónlist frá rómantíska tímabili tónlistarsögunnar. Á efnisskránni er sónata eftir C. Saint Saens op. 167 fyrir klarinett og píanó, Grand Duo Consertant op. 48 fyrir klari- nett og píanó eftir C.M.V. Weber og loks sónata fyrir klarinett og píanó eftir J. Brahms op. 120, nr. 2. Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík Bandalag kvenna í Reykjavík heldur aðalfund sinn laugardaginn 10. mars 1990 í Höfða, Hótel Loftleiðum, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 09:00 meö helgi- stund í fundarsal í umsjón Sigrúnar Einarsdóttur, form. Kirkjumálanefndar BKR. Þá setur Kristín Guðmundsdóttir, formaður BKR, fundinn, en síðan verða ávörp gesta og önnur aðalfundarstörf. Eftir hádegishlé verður sérstakt mál- efni á dagskrá sem nefnist „Þjónusta í þágu aldraðra", en sú dagskrá er í umsjá Ellimálanefndar BKR. Aðalfundinum er síðan slitið kl. 19:00 í kvöldverðarfagnaði í Víkingasal Hótels Loftleiða. Breiðfirðingafélagið í Reykjavík: Félagsvist Breiðfirðingafélagið í Reykjavík verð- ur með félagsvist í Breiðfirðingabúð, Faxafcni 14, sunnudaginn 11. mars og hefst kl. 14.30 stundvíslega. Góð verð- laun. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Laugardaginn 10. mars verður opnuð í sýningarsal FÍM sýning á verkum hönn- uðarins og listamannsins Daniel Morgen- stern. Sýningin nefnist „Obsessions 2“. Elinborg Guðmundsdóttir, leirlist, Erla B. Axelsdóttir, listmálun, Helga Ármanns, graltk, Margrét Gunnarsdótt- ir, leirlist og Sigrún Gunnarsdóttir, leirl- ist, standa að Art-tíún hópnum. Myndlist og skák í Faxafeni Art-Hún hópurinn hefur opnað mynd- listarsýningu í hinum nýju húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambands Virgill litli og Tóta Sigga, en Karl Emil horfir á Leikfélag Kópavogs: „Virgill litli“ sýndur um helgar Nýlega frumsýndi Leikfélag Kópavogs barnaleikritið „Virgil litla“ eftir hinn kunna barnabókahöfund Ole Lund Kirkegaard, en hann hefur m.a. skrifað barnabækurnar Fúsa Froskagleypi, Gúmmí Tarsan o.m.fl. Þetta er í þriðja skipti sem Leikfélag Gestir frá Sovétríkjunum hjáMÍR Dagana 13.-18. mars dveljast hér á landi á vegum MÍR, Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna, tveir gestir frá Sovétríkjunum, þau Elena A. Lúkjanova lögfræðingur og Alexander V. Lapúkhin blaðamaður. Koma þau m.a. fram, flytja fyrirlestra og svara fyrirspurnum, í félagsheimili MÍR, Vatnstíg 10, þriðjudagskvöldið 13. mars Id. 20:30 og a aðalfundi félagsins á sama stað laugardaginn 17. mars, að loknum aðalfundar-störfum sem hefjast kl. 14:00. Elena Lúkjanova er dósent við laga- deild Ríkisháskólans í Moskvu og sér- grein hennar innan lögfræðinnar er ríkis- réttur. Hún hefur samið nokkur fræðirit og tekið þátt í samningu frumvarps til nýrra laga um alþýðufræðslu í Sovétríkj- unum Alexander Lopúkhin er sálfræðingur og hagfræðingur að mennt, en hefur um langt árabil unnið við blaðamennsku og starfar nú á ritstjórn dagblaðsins Prövdu. Aðgangur að fyrirlestrum gestanna frá Sovétríkjunum á Vatnsstígnum er öllum heimill. Það er tímaritið Mannlif sem gengst fyrir þessari sýningu. Daniel Morgenstern kom til Bretlands fyrir þremur árum frá heima- landi sínu, ísrael, og hefur skapað sér nafn sem einn merkasti hönnuður þar í landi. Sýningin verður opin alla daga kl. 14:00-18:00 til 27. mars. íslands við Faxafen. Sýningin er haldin í tengslum við Stórveldaslaginn og Búnað- arbankamótið, sem haldin eru í mars. Sýningin er opin meðan á skákmótunuin stendur. I Art-Hún hópnum eru 5 myndlistar- Tienn sem hafa allir vinnustofur á sama itað, að Stangarhyl 7 í Reykjavík, og reka þar jafnframt Gallerí. Kópavogs frumflytur verk eftir Kirke- gard. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson þýð- ir og staðfærir leikgerð höfundar, ásamt því að semja lög og söngtexta í leikritið. Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir, Gerla hannar leikmynd og búninga, en Egill Örn Árnason sér um lýsingu. Sýningar á Virgli litla eru í Félagshei- mili Kópavogs á laugardögum og sunn- udögum kl. 14:00. Hægt er að panta miða allan sólarhringinn í sima 41985. Frá Félagi eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á morgun sunnud. kl. 14:00. Frjálst spil og tafl. Kl. 20:00 er dansað. Athugið: Dagur aldraðra í umferðinni. Guðsteinn Þengilsson frá Medical Alert og fulltrúi frá Umferðarnefnd halda fram- söguræður um „Öryggi í umferðinni” sunnudaginn 11. mars kl. 15:00 í Goð- heimum, Sigtúni 3. Kjarvalsstaðir: EPTA píanótónleikar Á mánudagskvöld kl. 20.30 verða haldnir EPTA píanótónleikar á Kjarvals- stöðum. Þar leikur Nína Margrét Gríms- dóttir verk eftir Bach, Haydn, Jónas Tómasson, Debussy og Choptn. Kvikmynd Stanislavs Rostotskí „Hvíti Bim Eymablakkur“ sýndíMÍR Sunnudaginn 11. marskl. 16:00 verður sýnd verðlaunamyndin „Hvíti Bim Eyrnablakkur”, eftir hinn kunna sovéska kvikmyndaleikstjóra Stanislavs Rostotskí í bíósal M(R, Vatnsstíg 10. Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR er ókeypis og öllum heimill.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.