Tíminn - 16.10.1992, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.10.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur 16. október 1992 Guðmundur Matthíasson frá Ospaksstöðum Fæddur 1. apríl 1897 Dáinn 8. október 1992 Þegar svo langt er liðið á þessa öld, sem raun ber vitni, verður æ fátíð- ara að horfa þurfi á bak og veita hinstu kveðju þeim er fyrst litu dagsins ljós á öldinni sem leið. Þessi svonefnda aldakynslóð hefur nú þegar, að meginhluta, runnið sitt æviskeið. Þetta var mjög styrkur stofn er oft þurfti að lúta köldum kjörum, en upplifði aftur á móti þá mestu stökkbreytingu í framförum og tækni er um getur í sögu lands og þjóðar. Síðustu ár aldarinnar sem leið voru æði erfið íslensku þjóðinni sökum harðinda, og fólk flúði land í talsverðum mæli. Sá, er hér verður minnst, hefur komist í nána snert- ingu við þessar mismunandi að- stæður og umbreytingar, þar sem hann var búinn að fylla hálfan tí- unda tuginn. Guðmundur Matthíasson var fædd- ur að Auðshaugi í Vestur- Barða- strandarsýslu 1. apríl 1897. Foreldr- ar hans voru Matthías Ebenesersson og Katrín Guðmundsdóttir. Eftir því sem ég best veit munu þau hjón eigi hafa stundað búskap í ríkum mæli, heldur hafi hugur hans sér í lagi beinst öllu fremur að sjósókn. Frá Auðshaugi fluttu foreldrar Guð- mundar með litla snáðann á fyrsta ári út í eyjar á Breiðafirði til búsetu. Heimildir hef ég fremur óljósar frá þessum tíma, en þó held ég að mér sé óhætt að nefna í þessu sambandi bæði Rúfeyjar, Rifgirðingar og Gjarðey. Sá, er bjó við Breiðafjörð, var að ýmsu leyti betur settur en margur annar, því svo sem alkunna er hefur hann alloft verið nefndur matarkista íslands. Við þessar aðstæður ólst Guð- mundur upp ásamt Pétri bróður sín- um, sem var nokkru yngri. Eftir eyjadvölina flutti síðan fjölskyldan að Straumi á Skógarströnd. Hugur Guðmundar beindist að sjósókn og ungur maður hélt hann burt að heiman í leit að frama í hinum stóra heimi. Hann réð sig á togara og komst í það minnsta á einn enskan, auk nokkurra íslenskra. Um smá- tíma vann hann hjá B.M. Sæberg í Hafnarfirði, sem hafði þá nýverið stofnað bifreiðastöð og hafði hann meðal annars borið við að aka leigu- bifreið. í Hafnarfirði kynntist Guð- mundur ungri konu, Jóhönnu Guðnadóttur frá Óspaksstöðum. Þau felldu hugi saman og gengu í hjónaband. Trúlega var hugur Guð- mundar enn bundinn átthögunum, því hin ungu hjón fluttu vestur og hófu búskap á Straumi. Þeim hjónum Guðmundi og Jó- hönnu varð fjögurra barna auðið: Jóhann Gunnar, f. 4. júlí 1926, ógift- ur og barnlaus; Matthea Katrín, f. 14. ágúst 1928, gift undirrituðum, þau eiga þrjú börn; Sigrún, f. 10. ág- úst 1935, á tvær dætur; og Gísli, f. 12. nóvember 1936, giftur Guðrúnu Árnadóttur, átti tvö börn, hann er nú látinn. Barnabörn eru 7 og barnabarnabörn 11. Straumur var fremur lítil jörð og kostarýr. Því varð að ráði að þau brugðu þar búi á vordögum 1936 og fluttu norður í Hrútafjörð að Óspaksstöðum. Mun þar trúlega hafa ráðið talsverðu átthagatryggð, því Jóhanna var dóttir Guðna Ein- arssonar og Guðrúnar Jónsdóttur er búið höfðu þar í allmörg ár. Að flytja um þetta langan veg, á þessum tíma, var talsvert átak og það með allan búsmala. Farið var á báti inn að Kambsnesi við Hvammsfjörð, þaðan farið á hestum inn allan Haukadal, yfir Skarð og heim til Óspaksstaða. Börnin þá þegar orðin þrjú, tvö þau eldri það sjálfbjarga að þau gátu sjálf setið hross, en það yngsta var enn í móðurörmum og hún barnshafandi, því drengur fæddist í nóvember sama ár. Við þessar aðstæður hefði mátt álykta að hamingjan væri í hendi; að vísu mun hún hafa verið það, en stundum er hún æði skammvinn. í hönd fóru erfið ár. Til landsins hafði verið flutt inn sauðfé til kynblöndunar, erlendis frá, en eigi tókst betur til en það að með því barst skaðvænn sjúkdómur, svo- nefnd mæðiveiki, er átti eftir að leggja í valinn sauðfjárstofn ís- lenskra bænda að stórum hluta. Sem dæmi má nefna það, að bústofn Guðmundar féll úr 130 ám niður í 9. Afkoma heimilisins þar með nánast brostin. Til þess að afla tekna varð að leita á önnur mið. Hugur Guð- mundar var enn bundinn sjávarafla. Hann lagði því land undir fót, ásamt eldri dóttur sinni Mattheu, sem var þá enn kornung að aldri, allt suður til Njarðvíkur til þess að vinna þar við fiskverkun. Vágesturinn ill- ræmdi varð yfirunninn. Árin liðu og börnin uxu úr grasi og allt virtist leika í lyndi. Samt sem áður hneig hamingjusólin til viðar fyrr en vænta mátti. Seint á árinu 1957 varð heimilið að Óspaksstöð- um fyrir miklu áfalli. Þá féll í valinn húsmóðirin sjálf, Jóhanna Guðna- dóttir, löngu fyrir aldur fram, aðeins 56 ára. Um þessar mundir voru flest börnin flutt burt að heiman og nán- ast ekkert tiltækt ráð framundan hjá Guðmundi annað en bregða búi, selja bústofn og flytja til Reykjavík- ur. Lífið heldur áfram sinn veg og eitt tekur við af öðru. Nokkrum dögum eftir fráfall Jóhönnu fæddist okkur hjónum lítil og fríð stúlka er hlaut nafn ömmu sinnar. Við vorum að koma okkur upp notalegu heimili að Bugðulæk 13 og gátum tekið Guð- mund til okkar um nokkurt skeið, meðan hann var að átta sig á tilver- unni. Síðan keypti hann sér sína eig- in íbúð að Hjallavegi 4. Við áttum heimilinu að Óspaks- stöðum margt gott að unna og bár- um til þess alla tíð hlýjan hug. Þar hafði Matthea, kona mín, átt marga notalega sumardvalarstund og börn okkar notið sveitasælu í faðmi afa og ömmu. Ég, sem þessar línur rita, hafði fengið þar húsaskjól, lítill drengur, móðurlaus á tíunda ári, í fylgd með ömmu minni og áttum við þar að- setur um tveggja ára skeið. Kom síð- an þangað aftur röskum áratug síðar ungur sveinn og sótti mitt ágæta kvonfang. Eftir að Guðmundur sett- ist að í Reykjavík fékk hann starf hjá Landssíma íslands og vann þar allt til þess dags er aldur setti stól fyrir dyrnar. Núna allmörg síðustu árin bjó hann í lítilli einstaklingsíbúð í húsi aldraðra að Lönguhlíð 3. Nota- legt heimili og vel að vistfólki búið. Að vísu er þar eigi sjúkradeild. Skulu hér færðar innilegar þakkir og kveöjur til alls samferðafólksins, bæði tengt dvöl og starfi. Þann 7. apríl 1989 varð Guðmund- ur fyrir mikilli lífsreynslu. Þá missti hann yngri son sinn, Gísla að nafni, aðeins rúmlega fimmtugan að aldri. Þetta var mikil raun fyrir öldung, kominn yfir nírætt. Guðmundur var að eðlisfari Ijúfur í lund, félagslyndur með afbrigðum, naut í ríkum mæli mannfagnaða og var afar vinmargur. Hann lagði ríka áherslu á að viðhalda tryggðabönd- um. Hann hafði mjög ákveðnar og óhaggandi skoðanir varðandi stjórn- mál. Hvikaði aldrei um hársbreidd frá sinni stefnu, dáði sína forystu- menn og vann fyrir þá dyggilega. í nóvember 1991 varð hann fyrir miklu áfalli, datt á sléttu gólfi og braut annan lærlegginn. Var hann fluttur á Landakotsspítala, þar sem hann gekkst undir aðgerð. Við þetta hrakaði heilsu hans æði mikið og lá hann rúmfastur að mestu eftir þetta til lokadægurs. Við hjónin vorum þá þegar búin að bóka ferð alla leið til Ástralíu, til samfunda við okkar ást- vini. Við vorum uggandi varðandi framvindu mála, en létum það samt eigi hefta okkar för. Brátt varð okkur ljóst að hann ætti eigi afturkvæmt af sjúkrahúsi. Hann naut þeirrar náðar að fá að dvelja á Landakotsspítala þar til yfir lauk. Dvölin þar var farin að nálgast eitt ár. Það er æði langur og strangur rúmlegutími. Hann bar sig samt ævinlega vel, sagðist ekki líða miklar þrautir og var ávallt hress í tali, þar til verulega af hon- um dró undir það síðasta. Hann fékk afar hægt andlát, yfir honum hvfldi þessi sanna hæverska ró og heið- ríkja, á einum dýrlegasta degi haustsins. Guðmundur átti hér í Reykjavík allmörg notaleg ár, en þrátt fyrir það áttu sjórinn og sveitin hug hans all- an. Hann unni afar heitt sinni ást- kæru fósturjörð. Það má með sanni segja að hjartsláttur hans hafi slegið í takt við tilbrigði hinnar íslensku náttúru, því að í sama mund og bliknuð laufblöð eru að falla til jarð- ar í ríkum mæli og liljur vallarins drúpa höfði í foldar skaut, hneigði hann einnig sitt höfuð til hinstu hvflu. Fyrir hönd þess látna og okkar að- standenda færi ég alúðar kveðjur og þakkir til alls starfsfólks, lækna og sjúkrahússprests á Landakotsspít- ala. Börn hans þakka föðurum- hyggju og handleiðslu. Afa- og lang- afabörnin senda hlýjar kveðjur og þakkir. Ennfremur við tengdabörn- in, fjölskyldan í Ástralíu, aðrir ætt- ingjar og vinir þakka ánægjulega samíylgd og vináttu um langan ævi- veg. Himneski faðir, ég fel í forsjá þína sálu þessa framliðna öldungs og megi þín náð og miskunn fýlgja öll- um hans afkomendum um ókomna framtíð. Ingimar Einarsson í dag kveðjum við Guðmund Matt- híasson frá Óspaksstöðum í Hrúta- firði. Hann andaðist í Landakots- spítala 8. október síðastliðinn á 96. aldursári. Fundum okkar bar fyrst saman í Grænumýrartungu á fögru vor- kvöldi 1936. Guðmundur var þá ný- fluttur að Óspaksstöðum frá Straumi á Skógarströnd. Mér var starsýnt á þennan þrek- vaxna, glaðlynda mann. Hann var á einhvern máta öðruvísi en aðrir menn sem ég þá þekkti. Ég minnist þess hve hann var óþvingaður, léttur í lund, hló og gerði að gamni sínu. Ég var því óvanur að ókunnugur maður væri svona opinskár og spaugsamur. En þannig var Guð- mundur alla tíð. Hann var ófeiminn og fljótur að kynnast, átti auðvelt með að blanda geði við fólk og hafði gamanafaðspjalla. Þeir, sem eru fæddir um síðustu aldamót, eru oft nefndir aldamóta- menn. Það var svo sannarlega ekki mulið undir aldamótakynslóðina og Guðmundur fékk snemma að kynn- ast miklu erfiði og harðri lífsbaráttu. Hann ólst upp í Breiðafjarðareyjum og komst því fljótt í nána snertingu við sjó og sjósókn. Árið áður en hann fermdist réði hann sig á skútu frá Stykkishólmi, sem var á handfæraveiðum. Næstu vertíðir er hann svo á skútum frá Patreksfirði og Þingeyri. Guðmund- ur segir í viðtali, sem birtist við hann í Tímanum þegar hann var ní- ræður, að vissulega hafi vinnan á skútunum verið erfið fyrir hann, unglinginn, og viðurværið ekki beysið. Þetta eru að.sjálfsögðu orð að sönnu. Árið 1917 fer Guðmundur á togara, fyrst enska. Þá voru vökulögin ekki komin og sem dæmi um vinnu- hörku og þrældóm, segir í áður- nefndu viðtali, að þegar mikið fiskirí var þá hafi menn stundum verið látnir vera í aðgerð, standa í fisk- kösinni, í allt að fimmtíu tíma án hvfldar. Á togurum var Guðmundur meira og minna til 1932. Hann lenti í hinu svonefnda Halaveðri 1925. í því illræmda óveðri fórust tveir ís- Ienskir togarar á Halamiðum með allri áhöfn og aðrir sluppu naum- lega. Sjórinn heillaði Guðmund og sjó- mennskan átti vel við hann. Það fer samt svo að hann hættir á sjónum og gerist bóndi, fyrst að Straumi á Skógarströnd og síðar á Óspaksstöð- um í Hrútafirði. Á Óspaksstöðum bjó Guðmundur frá 1936-1959. Þá hættir hann að búa og flytur til Reykjavíkur. Jafnframt búskap fór hann oft á vertíðir suður með sjó. Eftir að Guðmundur kom suður vann hann fyrst hjá Grænmetinu, en lengst af hjá Landssímanum. Fulla vinnu stundaði hann þangað til hann var kominn hátt á áttræðis- aldur. Guðmundur Matthíasson hafði brennandi áhuga á þjóðmálum og fylgdist vel með því sem gerðist á þeim vettvangi. Hann var alla tíð einlægur og eldheitur stuðnings- maður Framsóknarflokksins. Gengi flokksins var hans hjartans áhuga- mál. Ég held hann hafi mætt á hvern einasta auglýstan fund hjá Framsóknarflokknum eftir að hann kom til Reykjavíkur. Þegar nálgaðist kosningar færðist hann allur í auk- ana og var í essinu sínu. Hann kom daglega á kosningaskrifstofu flokks- ins. Alltaf var hann hress og kátur og lífgaði upp á mannskapinn í mis- jöfnu veðurútliti með gamansemi og kímni. Slíkt er ómetanlegt. Við síðustu alþingiskosningar og einnig borgarstjórnarkosningar 1990 keyrði ég hann á kjörstað. Þá voru fæturnir orðnir mjög lélegir og hann átti erfitt með gang, skyldi engan undra. En Guðmundur kvart- aði ekki. Hann hló og gerði grín að sjálfum sér, þegar erfiðlega gekk að komast inn í bflinn eða ganga upp tröppur Sjómannaskólans. Ég spurði Guðmund hvort hann þyrfti ekki að fá aðstoð við að kjósa, því ég vissi að hann var orðinn sjóndapur. Þá sagði hann glettnislega: ,/Etli ég rati ekki á B-ið.“ Eins og áður hefur komið fram, var Guðmundur alla tíð lífsglaður og um leið gleðigjafi samferðamann- anna. Hann kunni þá list að ýta áhyggjum til hliðar, njóta líðandi stundar og skemmta sér í góðra vina hópi. T.d. dansaði hann af lífi og sál fram á níræðisaldur. Guðmundur var svo lánsamur að vera jafnan hraustur og heilsugóð- ur. En fyrir tæpu ári varð hann fyrir því óhappi að lærbrotna og eftir það átti hann ekki afturkvæmt af spítala. Ég sá Guðmund síðast á Landakots- spítala á 95. afmælisdegi hans. Þá voru kraftar hans að þrotum komn- ir. En þrátt fyrir það var hann með bros á vör og glettni í auga. Ég þakka Guðmundi Matthíassyni fyrir góðar samverustundir. Blessuð sé minning hans. Aðstandendum færi ég samúðarkveðjur. Þorsteinn Ólafsson Frá fjárlaganefnd Alþingis Viðtalstímar nefndarinnar Fjárlaganefnd Alþingis veitir nú eins og undanfarin ár viðtöku erindum frá stofnunum, félögum, samtökum og einstaklingum er varða fjárlög ársins 1993. Fjárlaganefnd gefur þeim aðilum, sem vilja fylgja erindum sinum eftir meö viðræðum við nefndina, kost á að eiga fundi með nefndinni á tímabilinu 9. til og með 20. nóvember nk. Þeir, sem óska eftir að ganga á fund nefndarinnar, skulu hafa samband i sima 91-624099 eigi síðar en föstudaginn 30. október nk. Þvi miður gefst ekki tími til þess að sinna viðtalsbeiönum, sem fram kunna að koma síðar, eða að veita viðtöl utan þess tíma, sem að framan greinir. FRÁ STARFSMANNAFÉLAGINU SÓKN Allsherjar- atkvæðagreiðsla Allsherjaratkvæðagreiðsla verður við kjör fulltrúa á 37. þing Alþýðusambands íslands, sem haldið verður á Akureyri 23.-27. nóvember n.k. Tillögur skulu vera um 15 fulltrúa og jafnmarga til vara. Tillögum, ásamt meðmælum eitt hundr- að fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 50a, eigi síðar en kl. 11:00 fyrir hádegi, föstudaginn 23. október n.k. Kjörstjórn Starfsmannafélagsins Sóknar Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.