Tíminn - 07.01.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.01.1993, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 7. janúar 1993 MOLAR V______J ... Fyrirliöi og miðvörður Glasgow Rangers verður frá keppni I þrjár vikur vegna meiösia sem hann varð fyrir f leik f skosku úrvalsdeildinni f knattspyrnu. Hann fékk högg á lærið og olli það innvortis blæð- ingum inn á vöðva. Einnig verð- ur lan Ferguson, miðjuleikmað- urinn hjá Glasgow Rangers, frá keppni f nokkra leiki vegna brotins fingurs. ... ÞaA vakti athygli, að með liði Fjölnis á Reykjavfkurmótinu ( knattspyrnu um síðustu helgi, léku tveir Júgóslavar. Það voru þeir Zoran Coguric, sem lék með Stjörnunni f fyrra og maður að nafni Miladin Kuc, sem lék áður með félagi sem heitir Ko- ala Lumpur f Malasíu. Það varð hins vegar stutt stopp hjá þeim sfðarnefnda þvf frammistaða hans var með þeim hætti að hann hefur nú verið sendur heim á ný. ... Birgir Skúlason mun næstkomandi tfmaþil leika með fyrrum félögum sínum I Völ- sungi, en hann hefur undanfar- ið leikið með FH ( knattspym- unni. Völsungar hafa nýlega ráðið þjálfara, en það mun verða Aðalsteinn Aðalsteins- son. ... Ágúst Ólafsson, sem uppalinn er hjá Fram, en lék sfðasta tfmabil með ÍR f 2. deildinni f knattspyrnu, hefur ákveðiö að snúa heim á ný og leika með Fram f sumar. ... Talandi um félagaskipti, þá má greina frá þvf að Leiknir Reykjavík hefur fengið liðsstyrk, en það eru þeir Ragnar Bald- ursson, sem áður var f KA á Ak- ureyri og Úlfar Helgason sem var áður f rööum Þróttara við Sæviðarsund. ... NjarAvíkur-stúlkur eru hættar þátttöku f fyrstu deildinni f körfuknattleik kvenna, en þær höfðu þegar þær ákváðu þetta, ekki fengið stig f deildinni. Þær munu ekki hafa átt f lið lengur. ... VI6 sögAum frá þvf hér á dögunum að þeir Rúnar Sig- mundsson úr Stjörnunni og Rút- ur Snorrason úr ÍBV myndu báðir leika með Fram á næsta keppnistímabili og hefur Rúnar nú haft félagaskipti yfir f Fram. Hvað Rút varðar hefur verið gengið frá þvf að hann veröur um kyrrt f Eyjum og leikur með ÍBV á næsta ári. ... Keppni f islandsmótinu ! innanhúsknattspyrnu hefst næstkomandi föstudag með keppni f 4. deild. Hefst keppnin klukkan 17.00 í fþróttahúsinu við Austurberg. Keppninni verður framhaldið á laugardag og á sunnudag tekur 3. deildin við. Laugardaginn 16. fer fram keppni 2. deild, en á sunnu- daginn 17. verður leikið (1. deild karla og kvenna. Allir leikir nema f 1. deild karla verða leiknir f íþróttahúsinu við Aust- urberg. 1. deild karlaveröur leikin f Laugardalshöllinni. Körfuknattleikur: NBA úrslit Úrslit leikja í NBA-deíldinn) bandarísku í fyrrinótt: LA Lakers-Chicago Buils ...91-88 New Yoric-Cleveland....95-91 Phoenix-Houston...„...106-104 Utah-San Antonio___„...113-87 Portland-Dallas 109-95 Boston-Charlotte ••*••••••* 107-103 New Jersey-Oriando «••••••• 102-99 Washington-Atlanta ..„..107-100 Indiana-LA Clippers „„..114-106 Miami-Detroit__________89-83 Milwaukee-Minnesota „..114-100 Seattle-Golden State .„..116-106 Sacramento-Denver___126-106 Deila handknattleiksliðanna, Vals og FH, við mótanefnd HSÍ vegna niðurröðunar leikja á m íslandsmótinu í handknattleik: Oleysanlegur hnútur? Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og fundarhöld í gær hefur ekki tekist að leysa þann hnút sem félögin Valur og FH annars vegar, og Mótanefnd HSÍ og landsliðiö í handknattleik, hinsvegar mynda. Sá hnútur er tilkominn vegna óska FH og Vals um að fresta leikjum vegna þátttöku í Evrópukeppni, en mótanefnd neitar og hafa liðin lýst því yfir að landsliðsmönnum þeirra verði neitað að fylgja landsliðinu í keppnisferð til Noregs, en ferðin markar upphaf undirbúnings landsliðsins fyrir HM í Svíþjóð sem hefst í mars næstkomandi. Eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins í gær, hafa bæði Valur og FH hótað HSÍ því að ef ekki verði farið að kröfum þeirra um að fresta leikjum félaganna þann 13. janúar, vegna þátttöku þeirra í Evrópukeppni bikarhafa og meistaraliða um næstu og þar næstu heigi, þá muni félögin ekki gefa eftir landsliðsmenn sína á Lotto- mótið sem fram fer f Noregi eftir rúman hálfan mánuð. í gær voru haldnir tveir fundir þar sem reynt var að finna ein- hverja lausn á málinu. í hádeginu hittust fulltrúar mótanefndar HSÍ, félaganna og HSÍ og var hann án árangurs og í gærkvöldi reyndi formaður HSÍ, Jón Ásgeirsson að finna lausn á málinu með mótanefnd en sá fundur var einnig árangurslaus. í samtali við Tímann sagði Jón Ásgeirsson for- maður HSÍ að málið væri í sömu stöðu og það hefði verið fyrir fundina í gær. Mótanefnd hefði sínar ástæður fyrir því að ekki væri hægt að fara að tillögum félaganna um að leikur Stjömunnar og FH færi fram 6. febrúar og Vals og HK þann 10. febrúar næstkomandi og félögunum hefði verið greint frá því. Næsta skrefið í þessu máli væri það að Þorbergur Aðalsteinsson veldi það landslið sem hann myndi fara með til Noregs og síðan kæmi í ljós hvaða leikmenn gæfu ekki kost á sér. Lúðvík Sveinsson formaður Vals sagði í samtali við Tímann í gær að landsliðsmönnunum í liði Vals hefði verið tilkynnt það að þeim yrði ekki leyft að fara með landsliðinu til Noregs ef ekki fyndist lausn á málinu og þeir myndu sætta sig við það. Lúðvík sagðist ekki sjá hvað væri til fyrirstöðu að leikimir fæm fram á þeim tíma sem Valur og FH hefðu lagt til, því þrátt fyrir að 10. febrúar lenti of- an í æfingatíma landsliðsins, hefði Þorbergur Aðal- steinsson lýst sig samþykkan því að leikurinn færi fram þá. Gunnar Gunnarsson, framkvæmdarstjóri HSÍ, sagði í samtali við Tímann í gær að í sumar þegar raðað hefði verið niður leikjum vetrarins, hefði fé- lögunum verið gefinn kostur á því að gera athuga- semdir um leikdaga og hefði þá verið Ijóst hvenær leikið yrði í átta liða úrslitum í Evrópukeppninni í handknattleik. Fjórar óskir hefðu komið fram um breytingar, en hvorki Valur né FH hefðu gert at- hugasemdir við leikdaginn 13. desember, þótt fé- lögunum hefði verið sérstaklega bent á það. Jón Ásgeirsson vildi ekki meina að málið væri komið í hnút og það myndi áreiðanlega leysast í ró- legheitunum. I samtölum Tímans við aðra innan handknattleiksins í gær var þó ekki sömu skoðun að heyra og var það mál manna að málið væri í óleysanlegum hnút. Knattspyrna: Friörik Sæbjörns- son í Stjörnuna Samkvæmt heimildum Tímans hefur Friðrik Sæ- björnsson, sem leikið hefur með Vestmannaeyingum á undanfömum árum, gengið til liðs við Stjömuna í Garðabæ og fetar þar í fótspor Sigurláss Þorleifssonar, sem þjálfar Stjömuna og Leifs Geirs Hafsteinssonar. Friðrik sem er 25 ára varnarmaður, er sjötti lejkmaður- inn sem yfirgefur herbúðir Vestmannaeyinga, lék átta leiki með liðinu í sumar og gerði tvö mörk. Hinir sem horfið hafa á braut frá liðinu eru þeir Bojan Bevcic, sem hefur haldið til síns heima, Heimir Hallgrímsson og Ómar Jóhannsson sem leika með Hetti á Egilstöðum, Tómas Ingi Tómasson sem Ieikur með KR og Leifur Geir Hafsteinsson sem leikur með KR á næstkomandi keppn- istímabili. Þeir hafa þó fengið til liðs við sig þá Bjarna Sveinbjörnsson úr Þór og Anton Björn Markússon úr Fram. Hvorki náðist í Friðrik Sæbjörnsson í gærkvöldi, né for- ráðamenn Stjörnunnar Körfuknattleikur: Joe Wright mætt- ur til Breiðabliks Körfuknattleikur: „Pétur Guð- mundsson er ekki á leið í KR“ Á íþróttasíðu DV í gær mátti lesa það, að áður en langt um líður muni Pétur Guðmunds- son körfuknattleiksmaður, ganga til liðs við KR. Ingólfur Jónsson, formaður Körfu- knattleiksdeildar KR, sagði í samtali við Tfmann að engar viðræður hefðu átt sér stað á milli félagsins og Péturs. „Það er ekkert að frétta. Pétur Guðmundsson er ekki á leið í KR. Þetta er bara orðrómur og ég veit ekkert um hvaðan hann kemur,“ sagði Ingólfur. Nýi Bandarikjamaðurinn í liði KR hefur hafið æfingar og sagði Ingólfur að þeim litist mjög vel á hann. Keith Nel- son, eins og hann heitir, mun vera í góðri æfingu og hann leikur sinn fyrsta leik með KR gegn Grindvfldngum á sunnu- dag. Breiðablik hefur fengið til liðs við sig nýjan Bandaríkjamann í Úrvalsdeild- arkeppnina í körfuknattleik, en hann heitir Joe Wright, er blökkumaöur og tæpir tveir metrar á hæð, en hann kom til landsins í gær og mætti á sína fyrstu æfingu í gærkvöldi. Joe Wright leikur að öllum lfldndum sinn fyrsta leik með liðinu um helgina, þegar Blikar mæta Keflvíkingum í Digra- nesinu. Haukur Hauksson formaður Körfu- knattleiksdeildar Breiðabliks sagði í samtali við Tímann í gærkvöldi að þeir myndu binda miklar vonir við þennan leikmann. Útlitið væri ekki gott, því liðið hefði aðeins tvö stig, en þaö væri á þriðja tug stiga enn í pott- inum. Haukur sagði að Wright hefði í vetur leikið með úrvalsdeildarliði í Finnlandi og hefði hann verið fenginn til liðsins til að reyna að bjarga því frá falli og hefði farið langleiðina með að gera það. Liðið hefði því fallið og í 1. deildinni er ekki heimilt að nota er- lenda leikmenn og því hefði Wright Samvinnuferðir-Landsýn: Hópferð á HM í handknattleik Samvinnuferðir-Landsýn og stuðningsmannaklúbbur lands- liðsins í handknattleik munu í samstarfi efna til hópferðar á heimsmeistarakeppnina í hand- knattleik sem haldin verður í Sví- þjóð og hefst þann 9. mars næst- komandi, með opnunarleik ís- lenska landsliðsins gegn heima- mönnum og fer leikurinn fram í Gautaborg. Brottför er áætluð að morgni 8. mars og verður þá haldið til Gauta- borgar. Líklegast er talið að ísland lendi í milliriðli sem leikið verður í í Stokkhólmi og verður ekið þang- að þann 14. mars og verður akstur- inn í höndum íslenskra aðila. Verð- ið á ferðinnni er 69.900 kr. á mann í tvíbýli og 73.900 kr. á manninn í þríbýli og er innifalið í verðinu, flug, gisting með morgunverði og allur akstur erlendis með Grétari Hanssyni, auk fararstjómar sem verður í höndum Willum Þórs Þórssonar. Samvinnuferðir sjá um að útvega miða á alla leiki íslenska liðsins og kosta þeir 16 þúsund krónur. Þeir sem áhuga hafa á ferðinni ættu að snúa sér sem fyrst til Sam- vinnuferða-Landsýn, í síma 691010. verið laus. Wright er ekki eini „Banda- ríkjamaðurinn" í liði Breiðabliks, því samhliða honum mun David Grissom r m jr \ leika með liðinu, en hann telst nú ís- lenskur eftir að hafa fengið íslenskan lÞROTTIR ríkisborgararétt. UMSJÓN: PJETUR SIGURÐSSON íþróttamaður ársins: Urslit í 1 ■ ■■ ■ ciorn nu Hér á eftir fara stig þeirra íþróttamanna sem fengu stig í kjöri til íþróttamanns ársins: 1. Sigurður Einarsson spjótkast 235 2. Kristján Arason, handknattleikur 210 3. Geir Sverrisson, handknattleikur 183 4. Eyjólfur Sverrisson, knattspyrna 179 5. Úlfar Jónsson, golf 137 6. Einar Vilhjálmsson, spjótkast 97 7. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, sund 94 8. ÓLafur Eiríksson sund 86 9. Bjarni Eiríksson, júdó 52 10. Sigurbjörn Bárðarson, hestaíþróttir 49 11. Jón Kr. Gíslason körfuknattleikur 39 12. Ragnheiður Runólfsdóttir, sund 8 13. Sigurður Sveinsson handknattleikur 15 14-15. Jónína Olesen, karate 3 14.15. Broddi Kristjánsson, badminton 13 16. Vésteinn Hafsteinsson, kringlukast 11 17. Valdimar Grímsson, handknattleikur 10 18. Arnar Gunnlaugsson, knattspyrna 7 19. Kristinn Björnsson skíði 4 20-23. Martha Ernstdóttir, hlaup 2 20-23. Lilja María Snorradóttir, sund 2 20-23. Inga Lára Þórisdóttir, handknattl 2 20-23. Ifnnnr Stefánsdóttir. hlaun 2

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.