Tíminn - 23.02.1993, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.02.1993, Blaðsíða 2
Tíminn 8 Þriðjudagur 23. febrúar 1993 Þriðjudagur 23. febrúar 1993 Tíminn 9 Molar Danski iandsli&smaöurinn Flemming Povlsen leikur ekki meö danska landsliöinu gegn Argentlnska landslíðinu, en liöin mætast I vináttuleik á miðviku- dag. Povlsen meiddist I leík með liði slnu, Borussia Dortmund I sýsku úrvalsdeildinni um helg- ina, en liöið vann 1-0 sigur á Bochum. Forráðamenn liðsins segja aö hann veröi heldur ekki meö liðinu um næstu heigi. Þeir vonast hins vegar að hann veröi búinn að ná Sér þegar Dortmund mætir Roma f átta liða úrslitum i Evrópukeppninni þann 2. mars næstkomandi. Sergei Bubka setti um helgina sitt 34. heimsmet ( stangarstökki á „Bubka mótinu“ sem haldið var (Úkrainu um helgina. Bubka fór yfir 6,15 metra og gerði það í þriðju og sfðustu tilraun. Bubka virðist vera aö ná sér á strik eftir iéleg- an árangur á ólympiuleikunum I Barcelona þar sem hann náði ekki gildu stökki. ... Llverpool hefur nú aðeins gert tvö mörk mörk f síðustu tólf leikjum f ensku úrvalsdeiidinni í knattspyrnu. Nú spyrja áhang- endur Liverpool sig: „Hvenær verður Souness rekinn?“ . Ekkert var leikiö i deildar- keppninni f knattspyrnu (Atbanfu um helgina vegna verkfalls knattspyrnudómara þar I landi. Talsmaður dómaranna sagði f samtali viö fjölmíöla aö þeim þætti leitt að þurfa að gera þetta en þaö væri eina leiöin til að fá aimenning og knattspyrnuyfir- vðld til að skilja aöstööu þeirra. Knattspyrnusambandið sem er ríkisrekiö hefur að sögn dómara engan skilning á máiefnum þeirra og hefur komið illafram viö þá. Dómararnir sem eru um 500 talsins vitja fá kjör sín bætt, en ekki er ólfklegt að verkfall leikmanna fylgi 1 kjölfariö. ... Alllr leikmen enska þriðju- deildarliösins Barnet sem hefur átt f míklum fjárhagsvandræðum hafa verið settir á sölulista. Fyrir skömmu varð liöið að greiða sekt vegna óreiöu á bókhaldí og van- skilum á greiðslum launa. Það er forseti félagsins sem fyrirskipaði þetta og fékk þjálfarinn ekkert aö gert. Barnet, sem fyrst kom inn f deildarkeppninna áriö 1990, á góða möguleika á þvf aö komast 12. deild, en svo fer fram sem horfir eiga líkurnar eftir að minnka til muna. ... Martina Navratilova sigraöi Monicu Seles I úrslitaleik opna Parísarmótsins í tennis á sunnu- dag. Seles hafið ekki tapað ieik á árinu og ekki f sföustu 35 leikj- um. Navratilova sigraöi 6-3, 4-6 og 7- 5. ... Elgandl og forseti Chelsea, Ken Bates, hefur tilkynnt öllu starfsliði félagsins, ieikmönnum og skrifstofuliöl, aö meötöldum hinum nýja framkvæmdarstjóra Dave Webb, aö það sé hjá iiölnu aðeins til reynslu fram á voriö. Hann sagði að allir ættu það á hættu að missa störf sfn. Chels- ea hefur nú ekkl unnlö f 13 leikj- um í röð og er óðfluga að nálg- ast hættusvæði f úrvalsdeildinni, Aðeins nfu stig skilja að Chelsea og Notthlngham Forest sem er f þriðja neðsta sæti. í desember- mánuðl var Chelsea í öðru sætl í deildinni en er nú f þvl tólfta. Bates hefur ritaö ársmlðahöfum bréf þar sem hann lýsir þessu. íslenska landsliðið í handknattleik: ísland neðst á Frakklandsmótinu íslendingar höfnuðu í neðsta sæti á Frakklandsmótinu í handknattleik en mótinu lauk á laugardag. Auk ís- lendinga tóku þátt í mótinu lið heimamanna, Sviss og Tékka. ís- lenska landsliöið tapaði tveimur leikjum en vann einn gegn Sviss á föstudagskvöld. Á laugardag áttust við lið fslands og Frakklands fyrir fullu húsi og töp- uðu stákarnir okkar með fjögurra marka mun, 19-23, eftir að þeir höfðu haft yfir í hálfleik 12-9. ís- lenska liðið lék vel í fyrri hálfleik og raunar 40 mínútur síðari hálfleiks- ins einnig. Þegar svo var komið var mótlætið farið að fara verulega í taugar Frakka og leystust síðustu 20 mínútur leiksins upp í hálfgerð slagsmál. Þar voru í lykilhlutverki tveir leik- manna Frakka sem reyndar varð að taka útaf áður en slys hlytust af. Það voru pólskir dómarar sem dæmdu leikinn og var það samdóma álit for- ráðamanna íslenska og franska landsliðsins eftir leikinn að þeir hefðu dregið taum franska liðsins f leiknum. íslendingar fengu fjölda brottvísana undir lok leiksins og náðu Frakkar þá að síga fram úr. Bjarki Sigurðsson var bestur í ís- lenska liðinu og hljóta það að vera góðar fréttir fyrir Þorberg Aðal- steinsson. Þá voru þeir Gunnar Beinteinsson og Geir Sveinsson traustir. Mörk íslands: Bjarki Sigurðsson 4, Geir Sveinsson 4, Gunnar Gunnars- son 3, Gunnar Beinteinsson 3, Héð- inn Gilsson 2, Júlíus Jónasson 2 og Sigurður Bjamason 1. Frakkar sigmðu á mótinu en hin löndin voru öll með tvö stig, en ísland með lélegustu markatöluna. Frjálsar íþróttir: Þórdís Gísladóttir vann í Svíþjóö Þórdís Gísladóttir, frjálsíþróttakona úr Héraðssambandinu Skarphéðni, tók um helgina þátt í opna sænska meistaramótinu í fijálsum íþrótt- Knattspyrna: Markalaust um innanhúss, en mótið fór fram í Malmö. Þórdís gerði sér lítið fyrir og sigraði í hástökkinu og stökk 1,87 metra og var einum sentímetra frá eigin ís- landsmeti sem er 1,88. Þórdísi tókst ekki að ná lágmarkinu fyrir heims- meistaramótið sem haldið er í Tor- onto í Kanada í næsta mánuði en það er 1,89. Bandaríkjamenn og Rússar gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust Kaliforníu í vináttuleik í gær. Þetta er annar leikur liðanna á skömmum tíma en einnig varð jafntefli í fyrri leiknum. Alls sáu 26 þúsund manns leikinn. ísknattleikur: 26 marka sigur á Birninum Skautafélag Akureyrar vann fá- heyrðan stórsigur á ísknattleiks- félaginu Birninum í leik liðanna nyrðra á laugardag. Lokatöiur urðu 27-1 SA í hag og skoraði einn Finnanna í SA tíu mörk í leiknum. Einhvern hluta skýr- ingar á tapinu má rekja til þess að ekki komust allir Bandaríkja- mennirnir sem leika með Birnin- um með í förina til Akureyrar og var liðið því veikara en ella. Stjörnuleikur NBA-deildarinnar í körfuknattleik: Stórleikur Malone og Stock' ton tryggðu Vestur-sigur Úrvalsliö leikmanna úr liðum á Vesturströnd Bandaríkjanna sigr- aði úrvalslið frá Austurströndinni í árlegum stjömuleik á sunnudag, 135- 132, eftir framlengdan leik. Karl Malon gerði 28 stig í leiknum og John Stockton lék frábærlega í framlengingunni. Þeir voru að leik loknum kosnir menn leiksins, en þeir leika báðir með Utah Jazz og hafa greinilega kunnað vel við sig enda var leikið á heimavelli Utah. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1959 sem tveir leikmenn skipta með sér nafnbótinni, en þá voru þeir Elgin Baylor frá Minnesota og Bob Pettit frá St.Louis kosnir menn leiksins. Leikurinn var í heild sinni skemmtilegur á að horfa. Framan af leiknum og fram í síðari hálfleik áttu leikmenn erfitt með að setja knöttinn í körfuna en í fjórða leik- hluta batnaði hittnin. Lið Vestur- strandarinnar var tveimur stigum yfir undir lok leiksins en Patrick Ewing náði að knýja fram framleng- ingu með tveimur stigum þegar átta sekúndur voru eftir. Vestur- ströndin var sterkari í framleng- ingu og vann eins og áður sagði leikinn. Leikurinn var sá 43. í röðinni og hefur Austurströndin sigrað 26 sinnum en Vesturströndin 17 sinn- um. Þetta er í fimmta sinn sem leik- urinn er framlengdur en í fyrsta sinn síðan árið 1987. Karl Malone var eins og áður sagði stigahæstur Vesturstrandarinnar með 28 stig en Michael Jordan, sem átti köflóttan leik, gerði 30 stig fyrir Austurstrandarliðið. Dan Majerle lék vel fyrír liðið og gerði mörg stig úr þriggja stiga skotum en Shaquill O’Neil gerði nokkur afdrifarík mis- tök. Báröur Eyþórsson úr Snæfelli lék vel gegn Breiðabliki og geröi 15 stig. Hér gerír hann sig líklegan við körfu Blikanna en hér haföi hann ekki erindi sem erfiði því Dav- id Grissom lék vel meö Blikum og varöi skot hans. Tímamynd Pjetur Japisdeildin í körfuknattleik: Japisdeildin í körfuknattleik: Ovæntur sigur Borgnes inga á Keflvíkingum Frá Margrétl Sanders, fréttaritara Tlmans á Suðurnesjum Skallagrímur blandar sér nú í baráttuna í b-riðli um sæti í úr- slitakeppninni í körfuknattleik, eftir að þeir sigruðu Keflvíkinga á heimavelli þeim síðamefndu á sunnudag 80-83. Staðan f hálfleik var jöfn 43-43. Borgnesingar höfðu yfirhönd- ina framan af fyrri hálfleik, en mest munaði tíu stigum á liðun- um. Keflvíkingar komust yfir um miðjan háifleik og jafnt var í hálfleik 43- 43. Jafnræði var með liðunum fram í miðjan síðari hálfleik, en Borgnesingar fóru þá að síga fram úr og þegar sex mín- útur voru til leiksloka höfðu Borgnesingar ellefu stiga for- ystu, 67-78. Keflvíkingar brugðu þá á það ráð að pressa stíft á Borgnesinga, söxuðu á forskotið og komust yfir 80-79. Borgnes- ingar fengu tvö bónusskot þegar 50 sekúndur voru til leiksloka og skoraði Skúli Skúlason, fyrrum leikmaður ÍBK, úr þeim báðum og staðan þá orðin 80-81. Kefl- víkingar höfðu möguleika á að komast yfir, en þeir nýttu sér það ekki og skoruðu Skallagríms- menn síðustu körfuna 80- 83. Skallagrímsmenn eru með mik- ið baráttulið, en það háir liðinu hversu litla breidd þeir hafa, þó svo að það hafi ekki komið mikið að sök f þessum leik. Byrjunar- líðið, þeir Henning, Gunnar, EI- var og Birgir, stóð sig vei, auk þess átti Alexander Ermolinskij ágætisleik, en hefur þó oft leikið betur. Henning er ómissandi hlekkur í liðinu sem rífúr menn áfram á þýðingarmiklum augna- blikum. Keflvíkingar spiluðu þennan leik undir getu og virkuðu dauf- ir. VÖrnin var góð hjá þeim sfð- ustu sex mínúturnar, en þá gerðu Skallagrímsmenn einung- is eitt stig á fimm mínútna kafla. Keflvíkingar pressuðu á þessum tíma, en það dugði þeim ekki, því þeir voru mistækir í sókninni. Jonathan Bow var bestur Keflvík- inga og hélt þeim á floti þegar illa gekk hjá liðinu. Sigurður Ingimundarson lék góöa vörn gegn Alexander og skoraði hann varla stig í gæslu Sigurðar. Krist- inn Friðriksson og Jón Kr. Gísla- son áttu einnig ágæta spretti, en liðið í heild spilaði eins og áður sagði undir getu. Dómarar: Leifur Garðarsson og Helgi Bragason. Tölur úr leiknum: 0-3, 5-7, 7- 15, 13-21, 21-21, 30-28, 38-38, 43-43 — 48-47, 48-54, 58-58, 62-69, 67-78, 71-79, 80-79, 80- 83. Stig Keflvíkinga: Kristinn Frið- riksson 22, Jonathan Bow 19, Guðjón Skúlason 13, Sigurður; Ingimundarson 10, Nökkvi M. Jónsson 6, Jón Kr. Gíslason 6, Al- bert Óskarsson 4. ■, Stig Skallagrfms: Birgir Mika- elsson 21, Alexander Ermolinskij 16, Henning Henningsson 15, Gunnar Þorsteinsson 14, Elvar Þórólfsson 10, Skúli Skúlason 5, Eggert Jónsson 2. Japisdeildin í körfuknattleik: Sigur Njarðvíkinga eftir framlengingu Frá Margréti Sanders, fréttaritara Timans á Suðumesjum Njarðvíkingar sigruðu Grindvíkinga 85-80, eftir framlengdan leik í Njarðvík á sunnudagskvöld. Staðan eftir venjulegan Ieiktíma var 76-76. Gríndvíkingar höfðu yfirhöndina nær allan fyrri hálfleikinn, en í lok hans náðu Njarðvíkingar að komast yflr og höfðu yfir í hálfleik, 38- 36. Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik og þegar rúm mínúta var til leiksloka var staðan jöfn 76-76. Hvorugt liðið náði að skora og því var framlengt. Grindvíkingar gerðu þrjú fyrstu stigin í framlengingunni, en Njarðvíkingar jöfnuðu 79-79. Á síðustu mínútu framlengingar voru Njarðvíkingar einu stigi yfir 81-80 og Grindvíkingar höfðu knöttinn og alla möguleika til að sigra. Þeim tókst þó ekki að nýta sér það og brutu síðan á Jóhannesi Krist- bjömssyni þegar 10 sekúndur vom til leiksloka. Dómararnir dæmdu ásetningsvillu, sem þýddi það að Njarðvíkingar fengu tvö vítaskot og héldu þar að auki knettinum. Jó- hannes skoraði úr báðum skotun- um, en aftur bmtu Grindvíkingar á Njarðvíkingum og nú á Ástþóri sem skoraði úr báðum skotunum. Sigur Njarðvíkinga því staðreynd, 85-80. Leikurinn í heild var mikill bar- áttuleikur. Njarðvíkingar spiluðu þennan leik ekki vel og spila ekki nægilega vel sem liðsheild. í fram- lengingunni var vörn þeirra feiki- sterk og skóp öðm fremur sigurinn. Ronday var bestur Njarðvíkinga, Teitur var góður í vörn og spilaði vel upp á aðra leikmenn. Ástþór var góður framan af leiknum og Jó- hannes átti ágæta spretti. Táp í þessum leik kemur sér afskap- Iega illa fyrir Grindvíkinga. Baráttan í b-riðli er geysihörð og þar munar um hvert stig. Grindvíkingar léku vel framan af leiknum, en það var eins og þeir næðu ekki að klára leik- inn. Guðmundur Bragason var best- ur þeirra, Jonathan Roberts var sterkur og Pétur Guðmundsson var góður í byrjun, en lék lítið eftir það. Dómarar: Kristinn Albertsson og Brynjar Þór Þorsteinsson. Hafa þeir oft dæmt betur. Tölur úr leiknum: 0-2, 3-8,14-14, 20-22,24-28,32-32, 38-36 — 44-49, 46-53, 54-53, 64-63, 71-71, 76-76. Frl.: 76-79, 79-79, 85-80. Stig UMFN: Ronday Robertson 29, Jóhannes Kristbjörnsson 17, Teitur Örlygsson 14, Ástþór Ingason 9, Gunnar Örlygsson 7, RúnarÁrnason 7, Atli Árnason 2. UMFG: Guðmundur Bragason 21, Jonathan Roberts 17, Helgi Guð- finnsson 11, Sveinbjörn Sigurðsson 10, Pétur Guðmundsson 9, Pálmar Sigurðsson 6, Marel Guðlaugsson 4, Hjálmar Hallgrímsson 2. Jamison með flugeldasýningu Snæfellingar sigruðu botnlið Japis- deildarinnar, Breiðablik, 98-105 í íþróttahúsi Digranesskóla í leik lið- Japisdeildin í körfuknattleik: Staðan A-riðill Keflavík...21 18 3 2130-1858 36 Haukar.....21 15 6 1880-1727 30 Njarðvík...21 11 10 1952-1933 22 Tindastóll.... 21 813 1770-1930 16 UBK.........21 2 19 1851-2063 4 B-riðill Snæfell.....21 14 7 1844-1860 28 Valur.......21 10 21 1703-172120 Grindavík...21 10 21 1768-1716 20 Skallagr....21 10 11 1748-1740 20 KR..........21 7 141750-182614 Japisdeildin í körfuknattleik: Valsmenn ekki meö Haukar unnu sannfærandi sigur, 96- 76, á Vaismönnum í Hafnar- firði á laugardag eftir frekar brös- ótt gengi í síðustu leikjum. Vals- menn virðast vera heillum horfnir eftir frábæra byrjun á mótinu og voru þeir nánast aldrei innf leikn- um. John Rhodes var bestur Hauka. Staðan i hálfleik var 52- 29. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristinn óskarsson. Stig Hauka: John Rhodes 29, Jón Arnar Ingvarsson 22, Sigfús Giz- urarson 11, Tryggvi Jónsson 10, Jón Örn Guðmundsson 9, Pétur Ingvarsson 6, Sveinn Stefánsson 5, Bragi Magnússon 4. Stig Vals: Magnús Matthíasson 20, John Taft 14, Lárus Pálsson 11, Ragnar Jónsson 11, Símon Ól- afsson 10, Brynjar Harðarsson 6, Guðni Hafsteinsson 2, Bjarki Guð- mundsson 2. anna á sunnudag. Staðan í hálfleik var 49-54, Snæfelli í vii. Snæfelling- ar voru betri aðilinn, en náðu samt aldrei að hrista Biika af sér. Leikurinn var ekki vel leikinn og oft á tíðum tómt rugl, ef frá er skilinn stórleikur Shawn Jamison hjá Snæfelli. Breiðablik byrjaði vel og hafði yfir fyrstu mínúturnar, en síðan tóku Snæ- fellingar við stjórninni. Joe Wright hitti illa, bæði út á vellinum og einnig í vítaskotum, en hins vegar lék Davíð Grissom þá mjög vel. Jamison var allt í öllu hjá Snæfellingum og með góðum lokakafla í fyrri hálfleik tókst þeim að breyta stöðunni úr 41-41 í 49-54. Það sama var upp á teningnum í síð- ari hálfleik. í hvert sinn sem Snæfell hafði náð einhverri forystu, tókst Breiðablik að vinna það upp. Undir lokin náðu þeir þó 15 stiga forskoti, 85-100, sem var of mikill munur fyrir Breiðablik, þrátt fyrir að Snæfellingar hefðu misst bæði Jamison og ívar As- grímsson útaf með fimm villur. Það, sem stóð upp úr í afleitlega leiknum leik, var stórleikur Shawn Jamison, sem tróð hvað eftir annað á glæsilegan hátt. Þegar Jamison varð að fara af leikvelli með fimm villur, en þá voru tæplega þrjár mínútur eftir af leiktímanum, hafði hann gert 50 stig. Þá misnotaði Jamison ekki eitt einasta vítaskot. Meiri breidd vantar í lið Snæ- fells og sem dæmi um það skoruðu að- eins leikmenn byrjunariiðsins stig í leiknum. Það háði Breiðablik að Joe Wright náði sér aldrei almennilega á strik, sérstaklega í fyrri hálfleik. David Grissom Iék vel í fyrri hálfleik, en hefði að ósekju mátt skjóta meira í þeim síð- ari. Bæði liðin léku nokkuð harða vörn í fyrri hálfleik. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Bergur Steingrímsson. Tölur úr leiknum: 8-5, 12-16, 36- 36, 41-41, 49-54 — 55,65, 63-67, 66-72, 76-74, 80-86, 83-92, 85-96, 85-100, 98- 105. Stig UBK: Joe Wright 39, David Griss- om 18, Brynjar Sigurðsson 15, Egill Viðarsson 8, Hjörtur Árnason 6, Hjör- leifur Sigurþórsson 5, Ingvi J. Logason 4, Björn Hjörleifson 3. Stig Snæfells: Shawn Jamison 50, Bárður Eyþórsson 15, Rúnar Guðjóns- son 15, Kristinn Einarsson 13, ívarÁs- grímsson 12. Knattspyrna: Maradona upp á kant við Sevilla Diego Maradona virðist vera lentur upp á kant við forráða- menn Sevilla, liðsins sem hann leikur með á Spáni. Það er kunnugleg staða fyrir Maradona en eins menn eflaust muna var allt í háalofti á milli hans og hans fyrra félags Napolí og sak- ar Napóli hann um að hafa ekki greitt skatta á Ítalíu. Hefur liðið tilkynnt yfirvöldum það. Maradona yfirgaf Spán í gær, án ieyfis Sevilla, til að taka þátt í landsleik Argentínu og Dana sem fram fer á miðvikudag. Mara- dona var í Argentínu í síðustu viku og lék þá með landsliði Arg- entínu við Brasilíu en flaug til Spánar á föstudag til að leika með liði sínu við Logrones, sam- kvæmt ítrekaðri ósk Sevilla. í framhaldi af því neituðu þeir honum um að fara aftur til Arg- entínu nú en hann virti það bann að vettugi. Maradona neitaði að tala við blaðamenn við komuna til baka en sagði þó að sér fyndist leiðin- legt að hafa tapað fyrir Logrones um helgina. Maradona var ekki einn í förinni því Simeone, arg- entínski landsliðsmaðurinn sem leikur með Sevilla, fór með hon- um en honum hafði einnig verið bannað að fara. í gærkvöld var ráðgerður fund- ur hjá stjórn Sevilla þar sem hún ætlaði að ræða þá stöðu sem upp er komin. Líklegt þykir að stjórnin ákveði að sekta þá. Körfuknattleikur 1. deild: Met hjá Þórs- urum Þórsarar heimsóttu Bolvíkinga í 1. deild karla í körfuknattleik. Þórsarar hreinlega völtuðu yfir heimamenn og sigruðu 160-59. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu KKÍ er hér um stiga- met aö ræða í keppni í meistara- flokki karla. Ungmennafélag Akureyrar lék þrjá leiki fyrir sunnan, vann tvo en tapaði einum. UMFA sigraði ÍS 60-53 og ÍR-inga 70-68, en lá fyrir Reyni Sandgerði 48-105. Skagamenn tóku á móti ÍR-ing- um á föstudag og sigruðu Skaga- menn 66-62. Staðan A-riöill Reynir.... 18 13 5 1623-1442 28 Þór .....1712 51584-131124 Höttur ....19 5 14 1331-1476 10 UMFA ....16 5 11 1203-141810 B-riðill Akranes ..17 16 1 1451-1131 32 ÍR ......18 10 8 1418-1339 20 ÍS.......17 7101086-1176 14 Bolungarv 15 1 14 1004-1407 2 Japisdeildin í körfuknattleik: Eins stigs tap hjá KR-ingum Tindastólsmenn tryggðu sér sigur, 88-87, á KR-ingum á síðustu sek- úndum leiksins. Þeir gerðu sex síð- ustu stig leiksins og breyttu stöð- unni úr 82-87 í 88-87 og var Karl Jónsson hetja heimamanna. Gerði hann síðustu tvö stigin úr vítaskot- um. Staðan í hálfleik var 37-56, KR-ingum í vil, en þeir höfðu und- irtökin allan lcikinn. Dómarar: Víglundur Sverrisson og Héðinn Gunnarsson. Stig UMFT: Raymond Foster 30, Karl Jónsson 17, Valur Ingimundar- son 15, Ingi Þór Rúnarsson 12, Páll Kolbeinsson 10, Ingvar Ormarsson 4. Stig KR: Keith Nelson 49, Friðrik Ragnarsson 12, Hermann Hauksson 10, Guðni Guðnason 8, Lárus Árna- son 4, Hrafn Kristjánsson 2, Tómas Hermannsson 2.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.