Tíminn - 12.03.1993, Blaðsíða 9

Tíminn - 12.03.1993, Blaðsíða 9
Föstudagur 12. mars 1993 Tíminn 9 ■ DAGBÓK Húnvetningafélagiö Félagsvist á laugardaginn ki. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir vel- komnir. Félag eidri borgara f Reykjavík Lögfræðingur félagsins verður til viðtals á þriðjudag. Panta þarf tíma í síma 28812. Gönguhrólfar fára frá Risinu kl. 10 á laugardagsmorgun. Kynning á íslenskum þjóðsögum kl. 17 á þriðjudag. Dansað í kvöld í Risinu kl. 20. ungt fólk frá Færeyjum og öðrum Norðurlöndum í umsjón Nord- klúbbsins. Svala Sigurieífsdóttir sýn- ir í Gallerí einn einn í dag, föstudaginn 12. mars, verð- ur opnuð sýning á verkum Svölu Sigurleifsdóttur í Gallerí einn einn, Skólavörðustíg 4a. Verkin saman- standa af málverkum og lituðum ljósmyndum. Sýningin stendur til 24. mars og er opin frá kl. 14 til 18 alla daga. Frá Hana nú I Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlag- að molakaffi. Ráöstefna um nýjar starfsmenntabrautir Síðastliðið ár hefur verið unnið að því á vegum Atvinnuþróunarfélags Suðumesja, Fjölbrautaskóla Suður- nesja og fulltrúa atvinnuvega á Suðumesjum að skilgreina tillögur að nýjum starfsmenntabrautum. Boðað er til ráðstefnu á morgun, laugard. 13. mars, kl. 10-13, í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, Keflavík, þar sem áfangaskýrsla af starfi þessu verður kynnt og rædd. Framsögu munu hafa: Dr. Eiríkur Hilmarsson, Hjálmar Árnason skólameistari, Oddný Harðardóttir deildarstjóri, Snorri Konráðsson framkvæmdastjóri, Jóhann Geirdal formaður VS, Ólafur B. Ólafsson framkvæmdastjóri, Guðmundur B. Þorkelsson skólameistari, Jón F. Hjartarson formaður SMÍ. Áð framsöguerindum loknum (há- mark 15 mín. hvert) verða pallborð- sumræður með þátttöku framsegj- enda og Halldóru Rafnar, fræðslu- fulltrúa VSÍ. Ráðstefnan er öllum opin. Ráð- stefnustjóri er Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunar- félags Suðumesja. Málþing á Akureyri um heimspekikennslu Dr. Hreinn Pálsson, Atli Harðar- son MA og dr. Kristján Kristjáns- son flytja fyrirlestra í Háskólanum á Akureyri við Þingvallastræti á morgun laugardag kl. 14-17.30. f fyrirlestrunum verður fjallað um heimspeki sem þátt í uppeldi og kennslu í skólum landsins. Stjómandi málþingsins verður dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson. Allt áhugafólk um heimspeki er vel- komið og aðgangur er ókeypis. Það er Félag áhugafólks um heimspeki á Akureyri sem fyrir málþinginu stendur. Kjarvalsstaöir: íslenskt landslag 1900-1945 Á morgun, laugardaginn 13. mars, kl. 16 opnar að Kjarvalsstöðum sýn- ingin „íslenskt Iandslag 1900- 1945“. Á sýningunni eru um 120 myndir eftir 26 listamenn, þeirra á meðal Þórarin B. Þorláksson, Ás- grím Jónsson, Jón Stefánsson, Jó- hannes S. Kjarval og Jón Engil- berts. Þama verða frægar myndir, eins og Heklumynd Ásgríms og „Fjaliamjólk" Kjarvals. Gefin hefur verið út vönduð sýningarskrá með grein um íslenska landslagslist eftir Kristínu G. Guðnadóttur, safnvörð Kjarvalsstaða. Sýningin er styrkt af Landsbanka íslands. Hún stendur til 18. apríl. Dagskrá Færeyskra daga í Norræna húsinu Laugardaginn 13. mars hefst dag- skráin kl. 14 með sýningu á heim- ildarmyndinni „TVe blink mot vest“. Myndina gerði Ulla Boje Rasmussen og fékk hún verðlaun Norðurlanda- ráðs Nordpris 92 (nú á nýafstöðnu þingi í Ósló). Myndin er tekin á Mykinesi, sem er vestasti útvörður Færeyja. Þema myndarinnar er annars vegar hið fjölskrúðuga fúgla- og mannlíf á sumrín og hins vegar vetrartíminn með fámenni og fábreytni. Um kvöldið kl. 20.30 verður færeyskt skemmtikvöld fyrir Feröafélag íslands Sunnudagsferðir 14. mars 1. Kl. 10.30 Skíðaganga. Farið þangað sem snjóalög leyfa, en ekki á Mosfellsheiðina. 2. Kl. 13 Lyklafell-Litla kaffistofan. Brottför frá BSÍ, austanmegin. 3. Kl. 13 Borgargangan, 2. áfangi. Mæting við Ferðafélagshúsið, Mörkinni 6, austast við Suðurlands- braut. Rútuferð að Öskjuhlíð. Gengið yfir í Fossvogsdalinn að Ell- iðaárdal og til baka í Mörkina 6. Nú er tilvalið að byrja og taka þátt í öll- um 10 göngunum sem eftir eru. Ágæt fjölskylduganga. Vetrarfagnaður að Flúðum 20.-21. mars Brottför Iaugardag kl. 09, en einnig hægt að koma síðar á eigin vegum. Hagstætt verð. Gönguferðir á dag- inn. Vetrarfagnaður í félagsheimil- inu á laugardagskvöldinu. Frábær skemmtiatriði. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Pantið tímanlega. Allir velkomnir, félagar sem aðrir. Magnús Pétur Þorgrímsson sýnir í Gallerí Stöðlakoti Á morgun, Iaugardaginn 13. mars, kl. 15 opnar Magnús Pétur Þor- grímsson sýningu á verkum sínum unnum í steinleir, í Gallerí Stöðla- koti við Bókhlöðustíg. Þetta er fyrsta einkasýning Magnúsar, en hann stundaði nám við Myndlista- skólann í Reykjavík og Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrif- aðist frá Leirlistadeild vorið 1992. Sýningin stendur til 21. mars og er opin daglega milli kl. 14 og 18. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B Föstudaginn 12. mars kl. 20 opnar Níels Hafstein sýningu á bókverkum, laus- blaðabókum og fylgihlutum. Laugardaginn 13. mars kl. 16 verður opnuð samsýning bama í setustofu. Nefnist hún „Það sem okkur dettur í hugl“ Þau sem sýna eru Ásthildur Er- lingsdóttir, Elliði Tumason, Haraldur Ní- elsson, fsak Einarsson, Marta Gall Jergensen, Nína Gall Jorgensen, Ólöf Auður Erlingsdóttir, Pétur Birgisson, Sigrún Þorsteinsdóttir og Þorlákur Ing- ólfsson. Opið daglega frá kl. 14 til 18. Sýningun- um lýkur sunnudaginn 28. mars. Fimmtudaginn 18. mars kl. 20.30 held- ur Þórunn Valdimarsdóttir fyrirlestur í Nýlistasafninu. Nefnist hann „Tilraun til skilnings á hugmyndafræði sfðustu alda“. Fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri Föstudaginn 12. mars kl. 20 flytur Janna Strömberg fyrirlestur á vegum heilbrigðisdeildar HA Fyrirlesturinn verður í stofú 16 á 1. hæð Háskólans við Þingvallastræti og nefnist „Þróun til- finningatengsla milli foreldra og bama“. Janna Strömberg er sænskur sálfræð- ingur og „psykoterapeut" sem hefur um árabil unnið meðferðar- og handleiðslu- störf við heilsugæsluþjónustuna í Stokk- hólmi. Meginefni fyrirlestrarins er tengsla- myndun foreldra og bama fyrsta æviár bamsins. Hvemig eðlileg tilfinninga- tengsl þróast og hver em merki þess að um lélegt tilfinningasamband milli for- eldra og bams sé að ræða. Einnig verður komið inn á þróun tilfmningatengsla á meðgöngu og hvaða þroskaverkefni verðandi foreldrar glíma við. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku og er öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis. PÓSTFAÍX TfMANS - - ■ •- Renée Estevez er 25 ára og rísandi stjama. Enn ein stjarnan fædd í Sheen/Estevez leik- arafjölskyldunni Emilio Estevez og Charlie Sheen hafa fyrir löngu unnið sér frægð sem kvikmyndaleikarar. Þeir eru bræður þó að ólík eftimöfn bendi ekki til þess, synir leikarans Mart- ins Sheen sem er þeirra frægastur. Rétt nafn Martins ættföður er Ra- món Estévez, en hann breytti því þegar hann gerðist leikari og vildi gera það lýðum ljóst að hann væri reyndar hálf-írskur - og enskumæl- andi - jafnt og hálf-spænskur, en pabbi hans fluttist til Bandaríkj- anna frá Madrid. Þetta þætti flestum fjölskyldum nógu stór skammtur af leikurum í einu en sagan er hér ekki nema hálfsögð. Tveir leikarar til viðbótar eru í fjölskyldunni, Ramón sem vinnur á Spáni en þar býr reyndar systir Martins enn, og systirin Renée, 25 ára, er sem óðast að hasla sér völl í kvikmyndum í Hollywood. Þrátt fyrir að Martin Sheen hafi verið eftirsótt kvikmyndastjarna meðan krakkarnir voru enn að vaxa úr grasi og víða þurft að fara, er fjölskyldan samhent enda tók pabbinn helst fjölskylduna með sér þegar hann þurfti að vera á ferða- lögum vegna vinnunnar. „Heima" var í Malibu og þá voru ekki aðrir íbúar þar en hippar og blómaböm, segir Renée. Hún lýsir líka mömm- unni svo að hún hafi verið mjög áhugasöm um heilsufar, makró- bíótískt fæði og jóga hafi verið of- arlega á áhugamálalistanum. Og talsverður listamaður hafi hún líka verið. í samræmi við áhugamálin hafi hún rekið heimilið. Á tímabili sýndi hún því líka áhuga að einka- dóttirin bæri ekki of mikinn svip af því að eiga alla þessa bræður, hún sá til þess að Renée fengi falleg föt og félli vel inn í félagsskapinn í skólanum. „Ég held að það sé vegna þess að hún ólst upp sem fá- tæk stelpa í Kentucky. Hún vildi að ég fengi allt sem hún fékk sjálf aldrei, og hún vildi vemda mig,“ segir Renée. Nú virðist Renée Estevez sjálf vera á þröskuldi frægðarinnar og hlýtur að vera vel undir það búin. Það er ólíklegt að hún þekki ekki vel heim kvikmyndanna í Hollywood. Þó aö fjölskyldan Sheen/Estevez notist viö tvö nöfn er hún mjög nátengd. Hér er nýjasta stjarnan, Renée, milli pabba Martins Sheen (t.h.) og bróöurins Ramon sem býr I Madrid og er líka leikari.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.