Tíminn - 16.03.1994, Blaðsíða 11

Tíminn - 16.03.1994, Blaðsíða 11
^^víku3ag^)f--¥&: mars 1994 --— -------------2tí Einleikur í margbreyttu gervi eikfang karlmannsins? jóhanna Jónas sem „dónalega dúkkan" í samnefndu leikríti Darío Fo. Skjallbandalagib: DÓNALEGA DÚKKAN eftir Dario Fo og Fröncu Rame. Þýbendur Jón Kari Helgason og Jóhanna Jónas. Leik- mynd: lllugi Eysteinsson. Ljóshönnun: Jó- hann Bjami Pálmason. Leikari: Jóhanna Jónas. Leikstjórí: María Reyndal. Sýnt í Hébinshúsinu. Dario Fo var mikið leikinn hér á árunum, en hefur lítið sést í seinni tíð. Þaö er því vel til fund- iö að nýr leikhópur sýnir nú þrjá einleiksþætti eftir hann í leik- húsi Frú Emilíu í Héðinshúsinu. Ég komst ekki á frumsýningu, en sá aöra sýningu á föstudags- kvöldið. Þættina samdi Dario Fo í sam- ráöi við konu sína og handa henni, en hún er leikkona. Þetta er því verk „sem fjallar um kven- fólk og stöðu þeirra [svo!] í kyn- lífinu", segir í heldur ljótri og óvandaðri leikskrá. Þetta má til sanns vegar færa og einkuih þó ef kynlíf er skilið víðum skiln- ingi. Kynferði konunnar er hér vissuíega til umfjöllunar. í þeirri umfjöllun er fólgin bæöi erótík og gamansemi, misjafnlega grófgerð, en einnig veruleg þjóðfélagsádeila eins og venju- lega hjá Fo. Enda er skopfærsla í þeim stíl, sem hann iðkar og kenndur er við „Commedia dell’Arte", hið beittasta vopn í leikhúsi, jafnframt því að áhorf- andanum er boöið upp á skemmtilega leikstund, ef vel tekst til. Og það tekst vel til hjá Jó- hönnu Jónas og Maríu Reyndal. Ut er kominn 22. árgang- ur Skagfirðingabókar, rits Sögufélags Skagfirð- inga. Er þar að venju mikinn fróðleik að finna. Hér gefst ekki rúm til að rekja efni bókarinnar að neinu ráði og verður því að fara fljótt yfir sögu. Sú venja hefur skapast, að bók- in hefjist hverju sinni á grein um einhvem látinn skagfirskan merkismann. Er svo einnig nú. Að þessu sinni ritar Jón Þor- bjöm Magnússon rnn móðurafa sinn, Jón Þ. Bjömsson frá Veðramóti. Nefnir hann grein- ina „Kennarinn á Króknum" og á það vel við. Þessi „afaminning" er ákaflega greinargóð. Höfundur segir frá uppmna Jóns og æskustöðvum, því merka menningarheimili Veðramóti í Gönguskörðum, námi hans heima og erlendis og hinum margháttuðu og mikil- vægu störfum, sem Jón Þ. Bjömsson gegndi á löngum og farsælum æviferli. Hann kom heim frá kennaranámi í Dan- mörku árið 1908 og var þá þeg- ar falin stjóm bama- og tmg- lingaskólans á Sauðárkróki, en því starfi gegndi hann með ágætum um áratuga skeið. Fjöl- hæfni Jóns má meðal annars marka af því, að auk bóklegra greina kenndi hann söng, leik- fimi og handavinnu. En áhuga- mál Jóns, utan kennslunnar, vom mörg og kom hann víða við sögu. Hann gekkst fyrir stofnun ungmennafélags á Sauðárkróki. Hann kenndi sund, var í' áratugi helsti for- ystumaöur góðtemplara á Sauð- árkróld, skeleggur baráttumaður fýrir kirkju og kristindóm og 1 oddviti hreppsnefndar Sauðár- króks í rúm 20 ár. Og síðast en ekki síst kom hann upp ásamt konum sínum — en Jón var tví- kvæntur — stórum hópi mann- vænlegra bama. Með þessari LEIKLIST GUNNAR STEFÁNSSON Jóhanna er leikkona sem fyrir skömmu er komin hingað heim til starfa eftir langa dvöl vestan- hafs. í vetur má raunar sjá hana allmagnaöa í hlutverki vondu stjúpunnar í Skilaboöaskjóð- unni. Hún er greinilega þraut- þjálfuð og skóluð í látbragðsleik. Allir þrír þættimir gera miklar kröfur til leikkonunnar og skil- aði hún þeim öllum vel, best þó þar sem mest reyndi á líkamlega fimi, eins og í síöasta þættinum. „Samtal fyrir eina rödd" heitir fyrsti þátturinn. Þetta er afar skemmtilegur þáttur, sem sýnir unga konu sem lokkar til sín elskhugann — og hann er raun- ar „ósýnilegur" á sviðinu. Viö heyrum aldrei hvað mótaðilinn segir, en samt er hann þama. Það var með ólíkindum hve mikilli erótískri spennu Jó- hönnu tókst að magna þennan þátt og gera „mótleikarann" næstum því áþreifanlegan. Kom þar strax í ljós bæði líkamstækni hennar, sterkur látbragðsleikur — kannski fullsterkur á köflum — og eirmig blæbrigðarík radd- beiting. í þessu atriði eru skemmtilega notaöar brúður; þær gerði Katrín Þorvaldsdóttir, en Þorbjörg grein sinni hefur Jón Þorbjöm unnið gott verk. „Aö hafa gát á efnahag sínum" — Elín Briem og rit hennar Kvennafræðarinn, nefnist viða- mikil grein eftir Aðalheiði B. Ormsdóttur. Þau orö, sem hér em innan tilvitnunarmerkja, em kaflafyrirsögn úr Kvenna- fræöaranum, en hann kom út árið 1889. Og hver var hún, þessi Elín Briem? er ekki ólíklegt að margt yngra fóik kunni að spyrja. Svo virðist líka „sem það sé aðeins eldra fólk, sem þekkir nafn Elínar og kann nokkur skil á því mikla starfi, sem hún vann á þessu sviði" (menntun kvenna). „Það er því vel við hæfi að rifja upp sögu hennar. Elín var aðeins rúmlega tvítug er hún byrjaði að kenna við ný- stofnaðan kvennaskóla Skag- firðinga, sem þá var á Hjalta- stöðum í Blönduhlíð. Þar með hófst brautryðjendastarf hennar fyrir aukinni og bættri mennt- un kvenna, en fyrir þau störf varð hún síðar þjóðkunn," segir Aðalheiður B. Ormsdóttir. „Mikið sá vann sem vonarísinn braut með súmm sveita." Ætli Elín Briem hafi ekki verið fyrsta kvenréttindakonan á íslandi? Hún lagði þann grunn aö bar- áttunni fyrir alhliða réttindum kvenna, sem síðan hefur verið byggt á. Það er mikill fengur að þessari ágætu grein Aðalheiðar B. Ormsdóttur. Áriö 1914 komst upp um pen- ingafölsunarmál hér á landi. Tveir menn reyndust við það riönir, báðir búsettir á Sauðár- króki, Gunnar Sigurðsson veit- ingamaður og Jón Pálmi Jóns- son Ijósmyndari. Magnús Guð- mundsson, þáverandi sýslu- maður Skagfirðinga, kvað upp þann dóm, að Jón Pálmi skyldi sæta tveggja og hálfs árs fangels- isvist og greiöa allan sakarkostn- að. Jóni Pálma tókst að flýja úr Elenora Jónsdóttir stjómar. Við þennan þátt á vel það, sem í leikskrá stendur og kvað vera úr þýddum og aðlöguðum formála: „Aðalsöguhetja sýningarinnar er karlmaður eða nánar tiltekið kynferöi hans. Þetta karllega kynferði er ekki áþreifanlegt, „holdi klætt", en það er alltaf í grenndinni." í rauninni er ein- gæsluvaröhaldi á Króknum og komst eftir ýmsum krókaleiðum og með næsta ævintýralegum hætti úr landi — með dyggri að- stoð vina sinna. Frásögn af þess- um atburðum hafa þeir skráð Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöðum og Jón Jóhanns- son Siglufirði. Em þættir þeirra birtir í Skagfirðingabók. Jón Ámi Friðjónsson í Smiðs- gerði segir frá sýslumanninum Lúsa-Finni. Finnur þessi var af fyrirmönnum kominn, sonur Jóns Teitssonar Hólabiskups og Margrétar, dóttur Finns Skál- holtsbiskups. Finnur fór til náms í Kaupmannahöfn, en stóðst illa margháttaðar freist- ingar Hafnarlífsins. Hann hlaut þó sýslumannsembætti, en þar gekk á ýmsu. Varð hann að lok- um úti haustiö 1807 og var jarð- settur að Hólum í Hjaltadal. Jón hét maður og var Þórðar- son, kenndur við Háaskála í Ól- afsfirði, en var annars ekki við eina fjölina felldur hvað snerti búsetu og barnsmæður. En „ættfaöir varð hann mikill og ágætur", segir Guðmundur Sig- urður Jóhannsson í frásögn sinni af Jóni Þórðarsyni. Þá er og í bókinni stutt frásögn, „Skúli fógeti og Bjami frá Vögl- um", skráö af Baldvini Bárðdal kennara eftir Stefáni Sveinssyni, fyrrverandi bónda á Uppsölum í Blönduhlíö. Loks er svo að geta Bræðravísu séra Hallgríms Thorlaciusar í Glaumbæ, sem hann orti um sex elstu syni þeirra Hátúns- hjóna, Jónasar Gunnarssonar og Steinunnar Sigurjónsdóttur. Með vísunni er birt mynd af þeim bræðrufri, tekin áriö 1930, þar sem þeir sitja undir kirkju- vegg í Glaumbæ. Og svo er þama lítið ljóð, sem ég get ómögulega stillt mig um að birta. Svo var mál með vexti aö verkstjórar í Skagafiröi höfðu leikur af þessu tagi hin hreinasta mynd leiklistar, af því aö hér er virkjuð hugarsjón áhorfandans. Útkoman var mjög skemmtileg, á léttum nótum, en ekki eins grótesk og síðar um kvöldið mátti sjá. Annar þátturinn, „Það gerist á morgun", er allt annars eðlis. Það er frásögn konu af hroðaleg- Fréttir af bókum um skeiö með sér félagsskap. Aðalfundurinn 1943 var hald- inn milli jóla og nýárs. „Að fundi loknum var sest að drykkju og var skorað á einn fé- lagann, Stefán Vagnsson, að yrkja sína vísuna um hvem meðlim. Brást hann vel við og orti um flesta í hófinu og suma síðar." Eftirfarandi vísa er um Áma Hansen vegaverkstjóra: Allir hafa á því trúna að Ámi byggi upp Hofsósveginn. Lengst hann var við Vatnabrúna að víkka buginn austanmegin. En þegar hann lauk þessu verki þá var sett upp hœttumerki. Ritstjórn Skagfiröingabókar skipa sem áöur þeir Gísli Magn- ússon, Hjalti Pálsson, Sigurjón Páll ísaksson og Sölvi Sveinsson. Magnús H. Gíslason Ungur rithöfundur, Bjami Bjama- son, sendi undir ársiok 1993 frá sér aðra bók sína, sem flytur sjö ein- þáttunga. Þrír þeina — „Sameigin- legur vinur", sem fram fer á kaffi- húsi, „Talkossinn" og ,Jörð kallar himin", sem fram fara í stofu — heyra til daglegu lífi, samskiptum pilts og stúlku, manns og konu. Skilja þeir lítið eftir í huga lesand- ans, virðast eins konar æfing. Einn þeirra, Dú Dú, er súrrealískur, fjallar um tvo umkomuleysingja á ókom- inni tíð, annán þeirra vélmenni. í tveimur einþáttunganna, „HiII- ingavatnið" og „Nú er lygamælir- inn fullur", er brugðið upp sam- fléttun mannlífs og tölvuverundar framtíðarinnar. Eru þeir snjallir, jafnvel bráðsnjallir. í hinum fyrri halda tvær skapanomir, Debet og Kredit, fmmmanni í hillingavatni í um pyndingum í fangelsi. Þetta var flutt af látleysi og í þættin- um vom hljóð og ljós notuð til að magna andrúmsloftið. í þætt- inum er lýst hinni ýtrustu kvennakúgun, en pyndingum er raunar beitt jafnt viö karla og konur þar sem slíkum böðuls- hætti er að mæta. Þessi þáttur jók efnislega fjölbreytni sýning- arinnar, en bætti að ööm leyti ekki við hana, leikhúslega séb. Þarna nýtur Jóhanna ekki lík- amsfæminnar, heldur byggist allt á textaflutningi. Hann var vissulega sléttur og felldur, en vantaði djúpan undirtón skelf- ingarinnar til að þátturinn yTði vemlega áhrifamikill, þrátt fyrir þá hroðalegu reynslu sem hér er lýst. í síðasta þættinum, „Við höf- um öll sömu sögu að segja", var aftur bmgðið á leik. Við sjáum unga konu, fyrst í samfömm, síðan hjá lækni þar sem hún ákveður að eiga barnið. Þar næst er stúss við ungbarniö og svo kemur sagan um dónalegu dúkkuna og tölvufræðinginn, sem ekki veröur sögð hér. Þetta var mjög skemmtilega af hendi leyst hjá Jóhönnu. Húmorinn var býsna stórkarlalegur og gró- teskur og þar nær Dario Fo sér niðri. Líklega er ádeilan hvergi beittari en hér og útmálunin á bælingu konunnar skarpari. Þessi sýning er stutt, en var að óþörfu slitin I sundur með tveimur hléum, sem orkaöi tmflandi á áhorfandann. Lengsta hléið hefði átt að vera eftir öðmm þætti, en ekki þeim fyrsta. Síöasti þátturinn gat fremur staðið einn, enda hefur hann víst verið sýndur áður út af fyrir sig. Það má vel vera aö uppsetn- ingu sýningarinnar ráði fem- ínískur áhugi og síst er ástæða til ab amast við því að nota leiklist- ina til að þjóna þjóðfélagslegum boðskap, enda er slíkt hvatinn á bak við verk Dario Fo og Rame. En þau vita vel ab einimgis skemmtileg og snjöll leiklist þjónar málstabnum. Skjall- bandalagið vinnur í sama anda, af nákvæmni og alúð. Salurinn í Héðinshúsinu er óttalegt gímald fyrir leik af þessu tagi og vildi ég gjaman sjá þetta í þrengri og „intímari" sal. Þab er erfitt að beita lýsingunni á markvissan hátt í svona ólánleg- um húsakynnum. En engu ab síður er hér á ferð vönduð sýn- ing þeirra Jóhönnu og Maríu, sem auögar leikhúslífið hjá okk- ur. Meira af slíku! ■ 36 ár og í því hefur hann lifab ab forriti þeirra. Og orðaskipti leikper- sónanna svara vel til þess efnis. í hinum síðari, „Nú er lygamælirinn fullur", ræöir geðlæknir við forrit- aðan einstakling og tekst báðum vel upp. I síöasta einþáttungnum, „Degin- um í dag", virðist höfundur hafa færst fullmikið í fang. Tveir menn ræðast við, skiptast á ásökunum, í sokknu skipi (eins konar örk Nóa). Er tekið undir boðskap ákafra nátt- úmvemdarsinna: „... Vina þinna sem gátu ekki beðið eftir því aö viö fyndum land og hrúguðu niður bömum, hentu síðan dýrategund- um í sjóinn til að stækka káetur sín- ar og búa til leikvelli. Vina þinna sem notuðu síðan timbrið úr skil- veggjunum niðri til að auka yfir- bygginguna þar til eitthvað gaf sig og allt sökk í grænan sjó." Gamall Akumesingur Skagfirbingabók 1993 Ævihermur Dagurinn í dag. Sjö einþáttungar eftir Bjarna Bjamason. 86 bls. Augnhvíta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.