Tíminn - 14.07.1994, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.07.1994, Blaðsíða 16
mmrnm Fimmtudagur 14. júlí 1994 Veörib í dag (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland, Faxaflói, Su&vesturmiö og Faxaflóamib: Gengur í norban og norövestan kalda síödegis meö áframhaldandi skúrum. • Breiöafjöröur og Breiöafjaröarmiö: Noröan kaldi og rigning meö köflum. • Vestfiröir og Vestfjaröamiö: Noröan kaldi eba stinningskaldi Rign- ing. • Strandir og Noröurland vestra og Norövesturmiö: Austan kaldi en síöan suöaustan gola eöa kaldi og skúrir. • Noröurland eystra, Austurland aö Glettingi, Noröausturmiö og Austurmiö: Suöaustan gola eöa kaldi og léttir tH. • Austfiröir og Austfjaröamiö: Sunnan kaldi, súld á mibum en létt- ir til inn tii landsins. • Suöausturland og Suöausturmiö: Sunnan og suövestan kaldi og skúrir. Eimabur daubhreinsivökvi reynist stórhœttulegur: Sala takmörk- uð eftir ab unglingar urbu fárveikir Umhverfisrábuneytib setti í gær reglugerb um takmörkun á sölu ákvebinna sótthreinsi- efna, eba gerileybandi efna sem innihalda hátt hlutfall et- anóls, en þessi takmörkum kom samkvæmt tillögu Holl- ustuverndar ríkisins. Ástæban fyrir þessari takmörk- un er sú að efnið „gerildeyðir" sem er selt í verslunum og inni- heldur hátt magn etanóls hefur verið misnotað af unglingum sem hafa verið að eima etanólið úr vökvanum til að búa sér til spíra. Upplýst hefur verið af lög- eimaöan gerildeyði. í gerildeyði er blandað efni sem heitir ísó- própanól og er það krabba- meinsvaldandi, en tilgangurinn með að blanda því saman við gerildeyðinn er að koma í veg fyrir að lögurinn sé drukkinn. Ekki er hægt aö ná ísóprópanóli burt við eimingu. Reglugerðin hefur þegar tekið gildi og er hér eftir bannað að selja gerileyðandi efni sem inni- halda hátt hlutfall af etanóli í almennum verslunum, öðrum en lyfjverslunum og verslunum sem fengið hafa sérstakt leyfi Bílastœöiö bakviö Landsbókasafniö þar sem hús Hœstaréttar á aö rísa. Hús Hœstaréttar: Ákveðið að hefja framkvæmdir reglunni að kalla hafi þurft til Hollustuverndar og þá aðeins til lækni til unglinga sem reyndust einstaklinga sem eru orðnir 18 fárveikir eftir að hafa drukkið ára. „Vib erum aubvitab ánægb meb þessa niburstöbu og Hefur árekstur halastjörnu á Júpíter áhrif á mannlífiö á jörbinni? Gypnlaugur Guömundsson: Áreksturinn gæti þýtt vitundarbreytingu Vísindamenn víba um heim bíba nú spenntir eftir árekstri halastjörnunnar Shoemaker- Levy á reikistjörnuna Júpíter sem reiknab er meb ab verbi 20. eba 21. júlí næstkomandi. Hib mikla abdráttarafl Júpít- ers sem er stærsta reikistjarna sólkerfisins hefur sveigt þessa stóru halastjörnu af braut hennar um sólkerfib og stefnir nú stærstur hluti hennar meb ofsahraba á Júpíter. Tíminn leitaði eftir áliti Gunn- laugs Guðmundssonar hjá Stjörnuspekistöbinni og spurði hann hvort þessi árekstur hala- stjörnunnar á Júpíter hefði áhrif á daglegt líf fólksins á jörðinni. „Ég hef ekki hugmynd um þaö. Hins vegar ef maður tekur þetta útúr fræðunum þar sem grunn- hugmyndin í stjörnuspekinni að allt sé nátengt og allt sem ger- ist í heiminum hafi áhrif annars staðar, þá stendur Júpíter fyrir þenslu og hefur áhrif á þenslu og vitund manna. Högg á Júpíter gæti hugsanlega þýtt einhverskonar breytingu í hugmyndum mannkynsins um það hvaba hlutir eru eftirsóknar- verðir. Einnig gæti högg á Júpít- er haft áhrif á efnahagslífið en ég sé þetta frekar fyrir mér sem vitundarbreytingu án þess að ég vilji neitt vera að spá í þetta," sagbi Gunnlaugur Guðmunds- son. Gunnlaugur vildi taka fram að hann er ekki að fullyrða neitt um hvaö gerist. Hann segist vera að mestu leyti hættur spádóm- Mikiö hefur veriö fjallaö um árekst- ur halastjörnunnar á júpíter og um máliö er m.a. fjallaö á forsíöu nýj- asta heftis Der Spiegel. Þar er spurt: „Erjöröin í hættu?" um og hefur meira verið inná svibi persónuleikastjörnuspeki. „Ég hef miklu meiri áhuga á persónuleikanum og hvernig er hægt að hjálpa fólki að skilja sjálft sig þannig að okkur gangi betur í nútíðinni. Það halda margir að stjörnuspeki séu ein- hver geimvísindi. Það er hún alls ekki. Það er stjörnufræði sem er geimvísindi og fjallar um eðli plánetnanna úti í geimnum en stjörnuspeki fjallar um „áhrif" stjarnanna á mannlífið. Stjörnuspekin stúderar mannlíf- ið útfrá náttúrulögmálum. Heimurinn er ein lífræn heild, það eru sömu lögmál að verki alls staðar í lífheildinni, sem hafa áhrif á mannlífið og það er það sem ég er ab vinna vib," sagbi Gunnlaugur Guðmunds- son að lokum. ■ hlökkum bara til þess ab fyrsta skóflustungan verbi tekin svo ab hægt sé ab byrja ab smíba," segja þau Margrét Harbardóttir og Steve Christ- er, arkitektar hjá Studio Granda, sigurvegarar í hönn- unarkeppni vegna húss Hæstaréttar sem efnt var til í fyrra, en dómsmálarábu- neytib tilkynnti í gær þá ákvörbun sína ab vinna skyldi hafin vib smíbi hæsta- réttarhúss á grundvelli þess undirbúnings og samþykkta sem fyrir lægju. Samningar við verktaka voru að hefjast í febrúar sl. þegar dómsmálaráðuneytið ákvab í framhaldi af mótmælum og ágreiningi um staðarval að kanna á ný þá kosti er til greina kæmu og óskaði leið- beiningar frá borgarráði þar um. Af hálfu Reykjavíkurborg- ar hefur ekkert gerst í málinu fyrr en í síðustu viku en þá hafði verið skipuð nefnd í málið. í nefndinni em borgar- fulltrúarnir Sigrún Magnús- dóttir og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, auk Guðrúnar Jónsdóttur arkitekts. Fyrir helgi fór nefndin svo fram á upplýsingar ráðuneytisins um hvort óskað væri ábendinga um lóðir fyrir alveg nýtt hús eba það hús sem þegar hefði verið hannað. Ákvörðun ráðuneytisins nú hefur í för með sér að ekki verður tekið tillit til hugsan- legra ábendinga Reykjavíkur- borgar um nýjan stað fyrir húsið. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að hefja smíbi húss Hæstaréttar á lóöinni að Lind- argötu 2, eins og fyrirhugað var áður en ágreiningur um stabarval kom upp á yfirborð- ið og varð til þess að dóms- málaráðuneytið frestaði fram- kvæmdum enda þótt það hefði þá fengiö öll tilskilin leyfi til að reisa húsib á þess- um stað. í frétt frá dómsmálaráðuneyt- inu kemur fram að heildar- kostnaður vegna dómhússins nemi orðiö um 60 milljónum króna þótt ekkert yrbi af fram- kvæmdum. Þetta er helmingi hærri tala en ábur hefur verið nefnd í þessu sambandi. í frétt rábuneytisins segir að kostn- aðarauki hafi orðið á síðustu mánuðum vegna samnings- bundinnar vinnu í sambandi við endanlega hönnun húss- ins fyrir útboð og hafi sú vinna farið fram síðan. Góö byrjun á sumarvertíö í loönuveiöi: Rúm 68 þúsund tonn af loönu BEINN SIMI AFGREIÐSLU TÍMANS ER 631•631 Búib er ab landa rúmlega 68 þúsund tonnum af lobnu þab sem af er sumarvertíb, sem hófst í byrjun mánabarins. Veibi hefur gengib vel þab sem af er, en mikil áta er í lobn- unni og geymsluþol hennar lítib. Meira hefur verið landað af lobnu það sem af er þessari sum- arvertíð en á sama tíma í fyrra. Loðnan er að veiðast norbaustur og norður af landinu en heldur fleiri skip eru að veiðum en í upphafi sumarvertíðar á síðasta ári. Sjö skip með samtals 7,2 tonn voru á leið til lands í gær, en að sögn Teits Stefánssonar hjá Félagi íslenskra fiskmjöls- framleiðenda verður helst ab koma loðnunni í vinnslu innan tveggja sólarhringa, vegna þess hve mikil áta er í henni. Af einstökum verksmiðjum hefur SR á Siglufirði tekið við mestri loðnu, eða tæplega 14 þúsund tonnum. Aflinn hefur annars dreifst á nokkuð margar verksmiðjur svo að segja um allt land. Heildarloðnukvóti sem gefinn var út á þessari vertíð var rúm- lega 636 þúsund tonn, en eftir- stöbvar hans eru um 580 þús- und tonn þegar búið er að draga frá það sem veiðst hefur. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.