Tíminn - 03.11.1994, Blaðsíða 4

Tíminn - 03.11.1994, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 3. nóvember 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Jæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Hvalveibar: hættuspil Sjávarútvegsráðherra hefur nú lýst því yfir að hann muni flytja tillögu á Alþingi um að hefja hrefnuveiöar á ný í takmörkuðum mæli. Verði þetta að veruleika á næsta ári, er þarna um að ræða viss þáttaskil í hvalamálinu, sem er eitt af erfiðum milliríkjamálum sem við er að glíma. Það er ljóst að hrefnustofninn er ekki í útrým- ingarhættu. Þab eru gömul og ný sannindi að afstaða náttúruverndarsamtaka til hvalveiða byggist ekki á vísindalegum rökum, heldur til- finningum. Þab er matsatriði fyrir okkur íslendinga hvort við fórnum meiri hagsmunum fyrir minni með því að hefja hvalveiðar á ný. Tíminn er þeirrar skobunar að það sé mjög alvarlegt áfall fyrir at- vinnulíf þjóbarinnar og nýtingu auðlinda að gefast upp í hvalamálinu og hætta veiðum fyrir fullt og allt. Slíkt getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Norðmenn hófu hrefnuveiðar á ný undir mikl- um hótunum um viðskiptáþvinganir. Ekki hefur orðið mikið úr slíkum hótunum. Sömuleiðis hefur verið deilt á framgöngu ís- lands í hvalamálum og hún talin skaða íslenska hagsmuni. Þessi gagnrýni er ekki réttmæt. ís- lendingar hafa ætíð viljað reisa sinn málflutn- ing á vísindalegum rökum og alþjóðlegu sam- starfi. Hins vegar hefur meðhöndlun á vísinda- legum niðurstöðum í Alþjóða hvalveiðiráðinu og starf innan þess verið með þeim hætti að ókleift hefur reynst ab starfa innan vébanda þess. Sérstökum áhyggjum veldur að afstaða ís- lenskra stjórnvalda til alþjóbasamstarfs um hvalveiðimál er mjög misvísandi. Formaður ut- anríkisnefndar og utanríkisráðherra hafa lýst því yfir að ganga eigi í Alþjóða hvalveiðiráðið, en sjávarútvegsráöherra telur að það muni skaða íslenska hagsmuni. Þessar misvísandi yfirlýsing- ar eru afar varhugaveröar og þær hljóta að veikja sjávarútvegsráðherra í þeirri baráttu sem fram- undan er að afla sjónarmiðum íslendinga í hval- veiðimálum fylgis. Okkur íslendingum ber að fylkja libi í barátt- unni fyrir nýtingu auðlinda hafsins. Nýting sjávarspendýra er einn þáttur í þessu ferli og það brýtur ekki í bága við skuldbindingar þjóðarinn- ar í umhverfis- eða hafréttarmálum að nýta þann rétt. Hins vegar er baráttan erfið framundan, eins og ávallt þegar tilfinningar eru með í för. Samstað- an út á við og öflug kynning á málstað íslend- inga er það sem skiptir sköpum í þessu efni. Blönduóstíska að breiðast út? Alþýðuflokksfélag Blönduóss var lagt nibur á fundi í fyrra- kvöld. Ástæðan var ágreining- ur og mótmæli sem risið hafa vegna framgöngu Sighvatar Björgvinssonar heilbrigðisráb- herra vib að skipa formann stjórnar sjúkrahússins á staðn- um. Heimamenn segja emb- ættisveitinguna lykta af ein- hverju, kannski misskilinni spillingu. Málið er nokkuð snúib, þrátt fyrir að hefðbund- in sjónarmið flokksgæðinga og fjölskyldutengsla, sem ver- ið hafa mjög áberandi í öllu starfi Alþýðuflokksins á und- anförnum árum og landskunn eru, hafi verib höfð í heiðri. Þannig valdi Sighvatur tengdason formanns kjör- dæmaráðs Alþýðuflokksins í starfib, og miöaö við að Sig- hvatur er eðalkrati ættu slík rök fyrir ráðningu ekki að koma á óvart. Það, sem hins vegar gerir útslagið og valdið hefur titringi, er að tengda- sonurinn er alþýðubandalags- maður en ekki krati. Slíkt er að sjálfsögðu freklegt brot á helgireglum Alþýðuflokksins, sem hefur haslað sér völl í ís- lenskum stjórnmálum sem helsti talsmaður sérhags- munapots og flokksbundinnar fyrirgreiðslu, og raunar óskilj- anlegt að Sighvatur, eins reyndur og hann nú er í þess- um efnum, skuli flaska á slíku grundvallaratriði. Heitur fundur Samkvæmt útvarpsfréttum í hádeginu í gær var fundurinn í Alþýðuflokksfélaginu á Blönduósi heitur og mikil óánægja með ráðningu Sig- hvatar á kommúnista í stjórn- arformannsstöðu á sjúkrahús- inu. Fjölmargir gagnrýndu ákvörðunina, að því er útvarp- ið sagði, og endaði fundurinn í slíkri hneykslan á því á hvaða stig spillingin hjá ráðherrum Alþýbuflokksins væri komin, að Alþýðuflokkurinn á Blönduósi ákvað að leggja sig niður og beina þeim félögum, sem enn hefðu geð í sér til að starfa í sama flokki og Sighvat- ur, til Alþýðuflokksfélaga í ná- GARRI grenni Blönduóss. Trúlega er það einsdæmi að stjórnmálafélag í stjórnmála- flokki leggi sig beinlínis niður vegna andstöðu við flokksfor- ustuna. Yfirleitt hafa slík félög reynt að kljúfa sig út úr og stofna eigin hreyfingu, óháða og sjálfstæða frá móðurflokkn- um, ef um ágreining hefur ver- ið að ræða. En einhvern tíma verður allt fyrst, og full ástæða er til að spyrja hvort Alþýðuflokksfé- lag Blönduóss á ekki eftir að koma af stað ákveöinni skriðu, ákveðinni tískusveiflu meðal jafnaðarmanna. Niðurlögb Al- þýðuflokksfélög eru vissulega ekki ólíklegri tískuvarningur en margt annað. Jafnaðar- menn, sem ekki eru þegar farnir úr flokknum með Jó- hönnu, munu vilja auðkenna sig meb öðrum hætti en að vera enn einn króginn í pils- faldi „20%-prímadonnunn- ar", eins og farið er að kalla Jó- hönnu eftir síðustu kannanir. Þeir munu því leita annarra forma en að kljúfa félögin, eins og Jóhanna gerði. Að leggja niður Alþýðuflokksfé- lögin er hins vegar nýmæli og gæti þótt töff, og er því hreint ekki ólíklegur farvegur fyrir þá krata sem ekki vilja styðja for- ustuna, en eru þó ekki tilbúnir að fara með Jóhönnu gegn sínum gamla flokki. Sjálfseyöingar- hvötin Garri getur ekki annað en mælt með slíkri tískusveiflu fyrir Alþýðuflokkinn, því hún yrði beinlínis rökrétt framhald af þeirri sjálfseyðingarhvöt sem blossað hefur upp í flokknum á síðustu misserum. Tímabil sjálfseybingarinnar hjá Alþýðuflokknum hófst meb Viðeyjarævintýrinu, þeg- ar flokkurinn gekkst inn á að vinna öll óvinsælustu og óþokkalegustu verkin fyrir frjálshyggjumennina í Sjálf- stæðisflokknum. Atlagan að velferðarkerfinu var stórfeng- leg sjálfstortíming hjá krötun- um, á meðan sjálfstæðismenn stóðu hjá og létu stórsjóina brotna á samstarfsaðilum sín- um. Alþýðuflokkurinn dró Sjálfstæðisflokkinn upp úr spillingu Hrafnsmála, en sekk- ur síðan æ dýpra í spillingar- umræðuna sjálfur og fær enga aðstoð frá Sjálfstæðisflokkn- um, sem er alveg jafn sekur. En allt þetta kalla kratar yfir sig sjálfviljugir og bæta svo gráu ofan á svart meb Jó- hönnumálum. Enginn flokkur með lífsvilja myndi hegða sér á þennan hátt og þarafleið- andi er það ekki stílbrot að flokksdeildir úti á landi séu nú teknar að leggja sjálfar sig nið- ur. Garri Stjórnarandstaða Jóhönnu Gríðarleg uppsveifla Jóhönnu Sigurðardóttur í skoðana- könnunum að undanförnu hafa vakið verðskuldaða at- hygli. Gott gengi hennar verð- skuldar athygli fyrir ýmissa hluta sakir, ekki síst þær að framboð hennar er að miklu leyti ómótað og fólk hefur lít- ið á ab byggja annað en per- sónu Jóhönnu sjálfrar. Jó- hanna er hins vegar búin að sitja í afskaplega óvinsælli rík- isstjórn og ber verulega ábyrgð á því hvernig stöbu þjóðmála og afkomu fólks er háttað í dag. Eðlilegt hefði því verið að Jóhanna hlyti sinn skerf af þeim óvinsældum sem ríkis- stjórnin bakaði sér með skil- yrbislausum stubningi henn- ar. Slíkt gerðist hins vegar ekki og hlýtur það að teljast ein- kennilegt á þessum síbustu tímum, þegar þjóbin virðist krefjast þess og ganga hart eft- ir að stjórnmálamenn, þar á meðal fyrrum samstarfsmenn Jóhönnu, beri ábyrgb á því sem þeir hafa verið að gera upp á síðkastið. Ekki dæmd af verkum sínum Jóhanna hélt uppi ákveðnu andófi innan stjórnarinnar meðan hún sat þar, og það andóf á eflaust sinn þátt í því að fólk virðist ekki telja að hún eigi ab dæmast af verkum stjórnarinnar sem hún sat í. Það, að hún sagði af sér ráb- herradómi, er líka mjög afger- andi aðgerð af hennar hálfu við að axla ábyrgð og mjög óvenjuleg á íslandi. Sú aögerð Jóhönnu, að segja af sér ráb- herradómi og halda um leið langar ræbur um misskiptingu og fátækt, er trúlega önnur af tveim stærstu skýringunum á því hvers vegna hún geldur ekki verka sinna í ríkisstjórn. Með þessu gaf Jóhanna nefni- lega frat í stjórnina, um leið og hún tók á máli sem allur al- menningur fann brenna á sér, Á vfóavangi en þab voru afkomumál heim- ilanna. Svo virðist sem mál- flutningur af slíku tagi, þar sem stjórnmálamaður kemur og æsir sig upp í hástert út af hversdagslegum hlutum — daglega, litla lífinu — hafi átt gríðarmikinn hljómgrunn. Þab eitt, að Jóhanna kemur fram með þessar áherslur og með þessum óvænta en áhrifa- ríka hætti, virðist hafa dugað henni til syndaaflausnar fyrir ab hafa verið ráðherra. Glæpnum stoliö Hin meginskýringin á því hvers vegna Jóhanna geldur ekki ríkisstjórnarsetu sinnar er einfaldlega sú, ab hún stelur glæpnum frá stjórnarandstöö- unni. Stjórnarandstaðan í fyrravetur snerist ekki nema aö mjög litlu leyti um afkomu heimilanna. Stóru málin voru að egna upp einhvern hanaslag milli ráðherra um landbúnað- armál, sjávarútvegsmál, Evr- ópumál eða einhver sértæk mál, sem snerta ekki Jón og Gunnu með sama hætti og af- koma heimilanna og ójöfnuð- urinn sem þau horfa upp á dags daglega. Velgengni Jóhönnu í skoðana- könnunum núna er því að öðr- um þræði áfellisdómur yfir stjórnarandstöðunni í heild sinni, sem ekki hefur borið fram þann málflutning sem nær eyrum almennings og lað- ar til sín óánægjuna meö ríkis- stjórnina. Fram kemur í Morg- unblaðinu í gær, í umfjöllun um skoðanakönnun Félagsvís- indastofnunar, að Jóhanna sækir fylgi sitt til þeirra sem telja sig andstæðinga ríkis- stjórnarinnar. Kvennalistakon- ur, framsóknarmenn og al- þýðubandalagsmenn hljóta að spyrja sig hvers vegna þetta fólk kemur ekki til þeirra, í stað þess að styðja uppgjafaher- mann stjórnarinnar. Enn er langt til kosninga og ráðrúm fyrir stjórnarandstöðu- flokkana að skoöa sín mál. Þrátt fyrir allt er ólíklegt aö Jó- hanna haldi þessum dampi í allan vetur, en þessi fyrrum rábherra hefur svo sannarlega kennt stjórnarandstöbunni lexíu í stjórnarandstöðu vib sína eigin ríkisstjórn. -BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.