Tíminn - 11.11.1994, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.11.1994, Blaðsíða 1
SÍMI 631600 78. árgangur STOFNAÐUR 1917 Föstudagur 11. nóvember 1994 Stakkholti 4 Inngangur frá Brautarholti 213. tölublað 1994 Sextíu millj. kr. konan Þab hlýtur ab vera draumur margra heimila ab lækka matarreikninginn og gera matinn jafnframt lystugri, fallegri og heilnæmari en fyrr. Þetta var gert í eldhúsum Ríkis- spítalanna meö góbum árangri. Líklega hafa fáir, ef nokkrir, í scarfsliöi Ríkisspítala unniö jafn vel fyrir kaupinu sínu og Val- geröur Hildibrandsdóttir, matar- fræðingur og næringarráðgjafi, sem tók viö stjórn eldhúsanna fyrir tveim árum. Með aðgerö- um sínum og starfsfólksins hefur tekist að spara skattborgurum 60 milljónir króna á ári og óumdeilt er aö maturinn hefur jafnframt batnað. Eldhús spítalanna er stór vinnustaður meö meira en 100 manns í vinnu, og sé veltan skoöuö þá er hún ennfremur mikil, eða 420 milljónir króna á ári. Valgerður og hennar fólk voru að ljúka viö matargerðina um hádegisbiliö í gær, þegar þessi mynd var tekin, kjötsósu meö pasta og skyrtertu. Nánar um þennan athyglisverða sparnað á blS. 3. TínuimymiGS tfflMfl Sjúkraliöar: Höfnubu 3% hækkun Fjölmennur fundur Sjúkraliöa- félags íslands hafnaöi í gær til- bobi vibsemjenda þeirra um 3% launahækkun. Á fundinum kom fram að ekk- ert nýtt væri í þessu tilboði, enda væri þaö efnislega svipað þeim sem samninganefndin hefur áöur hafnað. Það vakti hinsvegar at- hygli fundarins aö viðsemjendur þeirra skyldu hafa sent fjölmiðl- um þetta tilboð nokkrum tímum áður en boðað verkfall kæmi til framkvæmda. I þessu tilboði samninganefnd- ar ríkisins, Reykjavíkurborgar og sjálfseignarstofnana er m.a. lagt til að sjúkraliðar fái sömu launa- uppbætur og eingreiðslur og sam- ið var um við önnur stéttarfélög í ár og í fyrra, röðun í launaflokka verði breytt með nýjum starfs- heitum sem taki m.a. mið af sér- hæfingu, starfsreynslu og sérstök- um verkefnum, boðin ný ákvæði um hækkun launa vegna viðbót- armenntunar og starfstengdra námskeiöa og ákvæði um sérkjör sjúkraliða utan höfuðborgarsvæð- isins verði felld inn í væntanleg- an kjarasamning. Stjórn Banda- lags háskólamanna — BHMR, Starfsmannafélag ríkisstofnana og Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar sendu sjúkraliðum stuðn- ingsyfirlýsingar í gær. Þar eru við- semjendur sjúkraliða hvattir til að ganga þegar til samninga við sjúkraliða og koma þannig í veg fyrir boðað verkfall og afleiðingar þess fyrir sjúklinga og aðstand- endur þeirra. ■ Engan bilbug var ab finna á sjúkralibum á félagsfundi ígær. Tímamynd GS Sigurgeir ekki í framboð „Fimmta herdeildin" til aöstoöar skattinum: Spáb í spákonur Frestur til aö tilkynna þátttöku í prófkjöri sjálfstæöismanna í Norðurlandskjördæmi vestra rann út í gærkvöldi. Orðrómur var um að Sigurgeir Þorgeirsson, aöstoðarmaður landbúnaðarráö- herra, gæfi kost á sér í annað tveggja efstu sætanna en hann reyndist ekki á rökum reistur. Þetta staðfesti Sigurgeir í sam- tali viö Tímann í gærkvöld. Pálmi Jónsson á Akri gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu og séra Hjálmar Jónsson varaþing- maður og Vilhjálmur Egilsson þingmaður hafa báðir gefið kost á sér til aö leiða listannn. ■ Spákonur og abrir sem ekki hafa haft sjóbsvélar eba skráb tekjur sínar vegna sölu á ýms- um heimilisvarningi, geta bú- ast vib því ab embætti ríkis- skattstjóra hafi samband vib hlutabeigandi innan tíbar. Ásgeir Heimir Guðmundsson hjá embætti ríkisskattstjóra seg- ir að allir þeir sem hafa tekjur af einhverskonar atvinnustarfsemi eigi að hafa sjóðsvélar eða tekju- skráningu. Hann segir að vegna umræðna um skattsvik í þjóðfé- laginu þá hafi þab færst í vöxt að almenningur láti embætti ríkisskattstjóra í té ýmsar upp- lýsingar um hugsanlegan und- andrátt náungans frá skatti. Meðal þess sem er til skoðun- ar hjá skattinum um þessar mundir er t.d. allskyns sölu- mennska sem á sér stað fyrir jól- in og sala á ýmsum varningi í heimahúsum. En eins og kunn- ugt er þá er einatt töluvert um það ab t.d. harðfiskur, rækja, lakkrís og kleinur séu boðin til kaups á vinnustöðum og heim- ilum landsins. Þær tekjur sem þessi kaupmennska gefur í aðra hönd er sjaldnast gefin upp til skatts og tilheyrir hinu svokall- aða nebanjaröarhagkerfi sem fá- ir styöja í oröi en trúlega fleiri í verki. ■ Verkfall sjúkraliba: Sparar litla peninga Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítal- ans, telur ab verkfall sjúkra- iiba muni ekki hafa mikinn sparnab í för meb sér fyrir spítalann. Rekstrarvandi Borgarspítalans hefur verib mikib til umræbu undanfarib og því var Jóhannes spurbur hvort verkfaliib yrbi til ab bjarga honum. „Nei, síður en svo. Áhrifin verða auðvitað einhver en þau munu ekki skipta sköpum í rekstri Borgarspítalans. Launa- kostnaður er 70% af heildar- rekstrarkostnaði hvers sjúkra- húss. Hér starfa um 220 sjúkra- liöar og um 60% þeirra munu starfa í verkfallinu. Það er því tiltölulega lítill hópur sem fer í verkfall og allir aðrir eru í vinnu. Heildarstarfsmanna- fjöldi spítalans er um 1500 þannig ab þetta er ekki hátt hlutfall," segir Jóhannes. Hann bendir einnig á að verkfallið geti leitt til kostnaðarauka á öðrum sviöum. „Það sparar eitt- hvab í peningum ef verkfallið dregst á langinn, sem ég vona ab verði ekki, en það tapast líka fé af því að vera með annað fólk sem getur ekki sinnt sínum störfum af þessum orsökum. Ég held því að heildarsparnaður- inn verbi lítill. Það má heldur ekki gleyma því ab þótt það sparist eitthvað, innan gæsa- lappa, getur það verið tíma- bundið ástand. Á meðan fjölgar á biðlistum og vandamálin hlabast upp. Þau hellast síðan yfir þegar verkfallið leysist og þá margfaldast kostnabur aftur." ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.