Tíminn - 11.11.1994, Blaðsíða 2
2
mme*.—r,------
CTDilKgniriiann
Föstudagur 11. nóvember 1994
Tíminr spyr..
Hvernig líst þér á hugmyndina um hátíb trúar- og þjóbarleið- toga á Þingvöllum árib 2000?
1 I Ijfe '
Séra Gunnlaugur Stefánsson,
formaður fjárlaganefndar:
„Ég hef alltaf verið hlynntur
því að halda góðar hátíðir í göf-
ugum tilgangi. Það er alltaf til
bóta þegar fólk kemur saman til
að ræða góð málefni, en það
þarf náttúrulega að vera ein-
hver raunhæfur grundvöllur
fyrir hátíö sem þessari og fram-
kvæmdin verður líka aö vera
möguleg. Hugmyndin er góð
en við skulum bíða með að
meta hvort hún er raunhæf þar
til við sjáum meira."
Ragnar Þorgeirsson,
varaþingmaður Ingibjargar
Pálmadóttur á Vesturlandi:
„Þeta er jákvæð hugmynd, sem
gæti bætt stöðu okkar varðandi
ímynd hreins lands og um-
hverfisvænna sjónarmiða.
Náttúra landsins og hreinleiki
hennar er auðlind sem er að
fleyta okkur inn í nýja öld."
Guðrún Helgadóttir,
varaforseti Alþingis:
„Mér finnst alltaf gaman aö
nýjum hugmyndum. Það þyrfti
í fyrsta lagi að athuga hvort
þetta er yfirleitt hægt. Mér sýn-
ist aö töluvert þurfi að koma til
ef þetta á að vera gerlegt. Eigi
að halda fund sem þennan meö
einhverri reisn væri ástæða til
aö hefjast þegar handa. Það
þyrfti aö gerbreyta aðkomuleið-
um að Þingvöllum, byggja upp
sjónvarps- og útvarpsaðstöðu,
meta hvað staðurinn þolir af
fólki, hvemig eigi að fæða það
og veita gistingu. Vissulega
væri ánægjulegt ef þetta tækist
án þess að það skaðaði alvar-
lega fjárhag þjóðarinnar og
náttúru Þingvalla."
Ráöstefna um karla gegn ofbeldi haldin um helgina. Ómar Smári Ármannsson:
Lítiíí áhugi á að
fækka afbrotum
„í okkar þjóöfélagi eru að-
stæður þannig að við höfum
öll tök á að ráða því sjálf hver
afbrotatíðnin er. Það eina sem
skortir er áhugi og vilji til aö
taka á málunum," segir Ómar
Smári Ármannsson, aöstoðar-
yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Hann telur tímabært að karl-
menn ræði þessi mál í sínum
röðum, enda séu þeir gerend-
ur í flestum ofbeldisverkum.
Ómar Smári verður einn fyr-
irlesara á ráðstefnu karlanefnd-
ar jafnréttisráðs sem haldin
verður í Norræna húsinu á
morgun. Yfirskrift ráðstefnunn-
ar er „Karlar gegn ofbeldi" og er
ætlunin að hefja með henni
umræðu um ofbeldi á nýjum
grunni með þátttöku og fullri
ábyrgð karla.
Ómar Smári ætlar í erindi
sínu aö fjalla um tvo þætti.
Annars vegar um orsakir og ræt-
ur ofbeldis í samfélaginu og
hins vegar um nauðsyn þess að
kerfið virki gagnvart þeim sem
hafa framið ofbeldi, þannig að
þeir kynnist afleiðingum gerða
sinna. Hann segir aö með rétt-
Fellahell-
ir 20 ára
Félagsmiðstöðin Fellahellir á 20
ára afmæli um þessar mundir.
Hún tók til starfa 9. nóvember
1974 og er elsta starfandi félags-
miðstöðin fyrir unglinga á veg-
um íþrótta- og tómstundaráös
Reykjavíkur. í tilefni afmælisins
verður opið hús og afmæliskaffi
í Fellahelli laugardaginn 12.
nóvember. Þá verður opnuö
sýning á ljósmyndum úr sögu
staðarins og nýlegum listaverk-
um unglinganna í hverfinu.
Allir Breiðhyltingar eru
hvattir til aö koma í heimsókn
og „gamlir" unglingar eru sér-
staklega boðnir velkomnir. ■
um úrlausnum sé hægt að draga
stórlega úr afbrotum hér á landi
en sér virðist sem ekki sé nægur
áhugi fyrir hendi. Lögreglan
hafi t.d. margoft bent á þörf á
úrlausnum en nýlega fengið
svör þess efnis að engin vinna sé
í gangi sem komi til móts við
ábendingar hennar.
„Það er sérstaklega mikilvægt
að grípa til aðgerða í málefnum
yngstu afbrotamannanna. Við
hjálpum þeim ekki með því að
leyfa þeim aö vera áfram í því
ástandi sem þeir em komnir í og
viö þær aðstæður sem þeir kjósa
sér. Það er vís leið til að fram-
Ieiða síbrotamenn. Við þurfum
að geta tekið þessa ungu menn
til hliðar og haft þá undir hand-
leiöslu góðra manna sem leið-
beina þeim. Þannig náum viö
beint til þeirra og það er líklegra
aö þeir taki tali en ef þeir fá
Skýrslur Sjávarútvegsstofnun-
ar og Hagfræðistofnunar Há-
skóla íslands um kosti og
galla aðildar íslands að ESB
verða gefnar út af viðkom-
andi stofnunum. Innan ann-
arra stofnana hefur ekki verið
tekin endanleg ákvörðun um
útgáfu.
Eftir að ríkisstjórnin ákvað að
standa ekki straum af kostnaði
við kynningu á efni skýrsln-
anna hefur verið rætt innan Há-
skólans að gefa út bók meö öll-
um skýrslunum fjórum. Um
það hefur hins vegar ekki verið
tekin formleg ákvörðun að sögn
Ragnars Árnasonar prófessors
sem sæti á í stjórn Hagfræöi-
stofnunar. Hann segir að tvær
fyrrnefndu stofnanirnar hafi
hins vegar ákveðið að gefa út
sínar skýrslur en ekki sé enn
Ómar Smári Ármannsson.
tækifæri til að skemma sjálfa sig
og aöra og enda jafnvel sem
stofnanamatur. í lögreglunni er-
ljóst hvort það verði í umræddri
bók eða í sérstakri útgáfu. Innan
Hagfræðistofnunar, a.m.k., sé
báöum möguleikunum haldið
opnum. Ragnar vildi þó ekki
segja til um hvenær skýrslurnar
koma fyrir sjónir almennings.
Skýrslurnar voru unnar fyrir
ríkisstjórnina og fyrir gerð
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri:
Aukakjördæmisþing mun taka
ákvörðun um framboðslista
framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra fyrir
um við að fást við afleiðingar
gerða þessara manna en flestir
þeirra eru skynsamir og hægt að
ræða við þá ef aðstæður og vilji
er fyrir hendi."
Ömar Smári telur þörf á að
vekja karlmenn meira til um-
hugsunar um þennan mála-
flokk eins og ætlunin er með
ráðstefnunni. „Karlmenn eru
gerendur í langflestum ofbeldis-
málum. Það er þess vegna full
ástæða til að þeir taki þessi mál
upp og leggi sig fram við að
leiða þau til betri vegar. Það er
eins og konur séu miklu með-
vitaðri um ábyrgð sína og skyld-
ur gagnvart samfélaginu og sín-
um nánustu. Við karlmenn,
ættum kannski að horfa til þess
besta sem býr í konum, reyna að
tileinka okkur það og nýta okk-
ur til góðra verka."
þeirra voru borgaðar alls 2,8
milljónir króna. Fyrir skýrslu Al-
þjóðamálastofnunar voru borg-
uð 400 þúsund, 500 þúsund fyr-
ir skýrslu Félagsvísindastofnum
ar og Hagfræðistofnunar og
1400 þúsund fyrir skýrslu Sjáv-
arútvegsstofnunar.
komandi alþingiskosningar eins
og fráfarandi stjórn sambands-
ins hefur lagt til. Á fundi kjör-
dæmissambandsins fyrir
skömmu kom fram tillaga um
að viðhafa prófkjör vegna upp-
stillingar framboðslista en hún
var felld með 44 atkvæöum
gegn 17.
Prófkjörstillagan var borin
fram af félögum í Framsóknarfé-
lagi Akureyrar og Félagi ungra
framsóknarmanna. Kjördæmis-
þingið skipaði nefnd til að leita
eftir tilnefningum á framboðs-
lista sem aukakjördæmisþing
mun síðan greiða atkvæði um.
Rétt til setu á aukakjördæmis-
þingi hafa allir fulltrúar á aðal-
kjördæmisþingi auk tveggja
varamanna fyrir hvern fulltrúa
eða 200 manns.
Guölaug Björnsdóttir frá Dal-
vík hlaut kosningu til formanns
Kjördæmissambands framsókn-
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra í stað Valdimars
Bragasonar sem ekki gaf kost á
sér til áframhaldandi stjórnar-
setu, en aðrir í stjórn kjördæ-
missambandsins eru Daníel
Árnason, Akureyri, Erlingur
Teitsson, Brún í Reykjadal, Sig-
urbjörg Jónsdóttir, Raufarhöfn,
Anný Larsdóttir, Sveinbjarnar-
gerði á Svalbarðsströnd, Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, Akur-
eyri og Vigfús Sigurðsson, Húsa-
vík. ■
Erótískar teikningar
Lennons sýndar hér
Rœtt um aö gefa út bók meö ESB-skýrslum stofnana Háskólans:
Gefa út tvær skýrslur
Framsóknarmenn á Noröurlandi eystra:
Kjördæmisþing ákveð-
ur framboðslista