Tíminn - 17.11.1994, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 17. nóvember 1994
9
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
Útlœgir andófsmenn
vilja breytta stefnu á
sjálfstjórnarsvœöum:
PLO heldur
sínu striki
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínuar-
aba, og helstu ráðunautar hans og
bandamenn létu mótmæli arab-
ískra andófsmanna, sem eru enn í
útlegð, sem vind um eyru þjóta og
sögðust ætla að halda til streitu
stefnu PLO um sjálfstjórnarsvæbi á
Gaza og í Jericho. Framkvæmda-
stjórn PLO, sem ákvað þetta, var
ekki fullskipub en ekki þótti fært
annað en að árétta fyrri yfirlýsingar
um að staðið yrði við gert sam-
komulag og ab sama stefna yrði
áfram á svæðinu eftir ab háværar
kröfur um breytingar höfðu komið
UPP-___________________■
Viðskipti þrátt
fyrir aovörun
um mannrétt-
indabrot
Indónesískir abilar hafa undirritab
viðskiptasamninga fyrir meira en
40 milljarða dollara við Bandaríkja-
menn á gríðarstórri verslunarráö-
stefnu í Bogor. Þessi umfangsmiklu
viöskipti komust á þrátt fyrir að
Clinton Bandaríkjaforseti hafi séb
ástæðu til að vara forsetann, Su-
harto, við því ab brjóta mannrétt-
indi á þegnum sínum. ■
Maburinn sem hér heldur á sjö lottókúlum heitir ]ohn Willan og hefur sá umsjón meö
drœtti ínýja þjóöarlottóinu íBretlandi. Þjóöarlottó hefur ekki veriö til þar ílandi í 150 ár. Óhœtt er aö segja aö Bretar hafi tekiö lottóinu
vel því á tveimur dögum hafa selst miöar fyrir 14 milljónir punda.
Mary Robinsson, forseti Irlands, um stjórnarkreppu ríkisstjórnar Reynolds:
Á ekki að spilla fyrir friði
Barist í Bosníu
Friðargæsluliðar í Sarajevo sögðu í
gær Bosníu-Serba halda uppi árás-
um á múslimabæinn Bihac, en Bo-
sníuherinn, sem lýtur stjórn mús-
lima, barðist hatrammlega við að
stöðva framrás Serbanna. ■
Gullit á leið
til Japans
Japönsk blöð slógu því upp í gær að
Ruud Gullit, holienska knatt-
spyrnustjarnan hjá Sampdoria,
myndi leika meb Yokohama Flug-
els á næsta keppnistímabili. Sam-
kvæmt fréttunum er félagið tilbúið
ab borga 3 miljónir dollara fyrir
hinn 32 ára gamla leikmann. Gull-
it hefur lýst því yfir að hann hafi
áhuga á að leika í Japan, og hann
myndi þá feta í fotspor frægra
kappa eins og Zico, Gary Lineker
og Salvatore Schilacci. ■
Mary Robinson, forseti ír-
lands, sagði í gær að hún tryði
því að friðarviðræður héldu
áfram á Norður- írlandi þrátt
fyrir þá kreppu sem ríkisstjórn
írlands stæði frammi fyrir nú
um stundir, en í gærkvöldi
lýsti Verkamannaflokkurinn
því yfir að hann myndi ganga
úr stjórninni. Frú Robinson
var á ferð um Norður- írland í
gær, en það er mjög sjaldgæft
að írskur forseti fari þangað,
og sagði hún að viljinn til að
halda áfram friðarumleitun-
um á N- írlandi væri ekki
bundinn við einhvern einn
pólitískan flokk. „Það er ekki
eingöngu stuöningur við frið-
arferlið þvert yfir hið pólitíska
litróf heldur fullyrði ég að alls
staðar sé fyrir hendi ákafi um
að það komist á koppinn,"
sagði frú Robinson.
Á sama tíma og forsetinn
gaf þessar uppörvandi yfirlýs-
ingar um friðarhorfur á N-ír-
landi var forsætisráðherra
írska lýöveldisins í erfiðum
málum heima fyrir og barðist
fyrir því að halda ríkisstjórn-
inni saman. Tilnefning Reyn-
olds á hæstaréttardómara án
nokkurs samráðs við kollega
sína í stjórninni skók sam-
steypustjórn Fienna Foil
flokksins, sem Reynolds er í
forsvari fyrir, og Verkamanna-
flokksins, sem Dick Spring
leiðir. Banabiti stjórnarinnar
varð svo linkuleg meðferð
dómstóla á máli prests nokk-
urs sem sakaður var um kyn-
ferðislega misnotkun á börn-
um. í gærkvöldi lýsti Dick
Springs því yfir aö flokkur
hans myndi ganga úr ríki-
stjórnarsamstarfinu. Báðir
stjórnarleiðtogarnir hafa verið
lykilmenn í samningaviðræð-
um um að koma á friöi á Norð-
ur írlandi að undanförnu og
því hafa menn haft áhyggjur
af því að erfiðieikar ríkisstjórn-
arinnar kunni að spilla fyrir
framgangi friðar.
Á ferð sinni um Norður-ír-
land í gær fagnaði frú Robin-
son framgangi vopnahlésins á
svæöinu og sagðist greinilega
merkja ákveðna slökun í dag-
lega lífinu hjá fólki, „sem er
mikil breyting frá því ég kom
síðast til Belfast," sagði Robin-
son.
Forsetinn heimsótti einn af
fáum skólum í héraðinu sem
er blandaður, meö bæði kaþ-
ólska nemendur og mótmæl-
endatrúar, og gerði mikið úr
því breytta andrúmslofti sem
virtist vera aö skapast efir að
vopnahlé náðist og friðarum-
leitanir hófust. Fíún sagði
fréttamönnum að opnast
hefði gluggi vonar sem ekki
mætti loka á ný.
Hafréttarsáttmála
fagnað á Jamaíka
I gær hófst hátíðarfundur á Ja-
maíka í tilefni af gildistöku Haf-
réttarsamnings Sameinuðu þjóð-
anna. Fulltrúi íslenska utanríkis-
ráðuneytisins sótti fundinn og
flutti ávarp fyrir hönd utanríkis-
ráðherra, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, þar sem lögð var
áhersla á mikilvægi samningsins.
Samningurinn heföi að geyma yf-
irgripsmiklar reglur um mikil-
vægustu málefni varbandi hafið
og veiti strandríkjum og land-
luktum ríkjum tiltekin réttindi
yfir 70% af yfirborði jarðar. Meb
stofnun hafréttardómsins, meö
absetur í Hamborg, og alþjóba-
hafsbotnsstofnunarinnar á Ja-
maíka, verbi síbasti hornsteinn-
inn lagbur ab árangursríkri fram-
kvæmd hafréttarsamningsins.
Einnig var tekib frám ab ísland
hefbi fullgilt hafréttarsamning-
inn þegar árib 1985, fyrst allra
vestrænna ríkja, og var þar til ný-
lega eina vestræna ríkib sem þab
hafbi gert. Ástæban fyrir hinni
tímanlegu ákvörbun íslenskra
stjórnvalda hefbi einkum verib sú
ab íslensk stjórnvöld hafi talib af-
ar mikilvægt ab tryggja verndun
lífríkis sjávar.
Loks var lögb áhersla á ab haf-
réttarsamningurinn hefbi aldrei
litib dagsins ljós ef samfélag þjób-
anna hefbi ekki notib glögg-
skyggni og óeigingjarna starfa til-
tölulega fámenns hóps manna,
sem leiddu gerb samningsins í
gegnum langar og erfibar samn-
ingavibræbur. Þar af leibandi
væri vib hæfi ab votta þeim virb-
ingu sem áttu mestan þátt í þessu
starfi. Fyrst bæri ab nefna starf
fyrsta forseta rábstefnunnar,
Shirley Amerashinge sendiherra,
og Tommy Koo sendiherra, sem
tók vib af honum og leiddi starfib
til lykta á árangursríkan hátt.
Einnig væri rétt ab tilgreina sér-
staklega framlag tveggja afburba
stjórnarerindreka og samninga-
manna, þeirra Jens Evensen frá
Noregi og Hans heitins Andersen,
sendiherra frá íslandi. Þessir
menn hefbu haft meiri áhrif á at-
burbarásina en flestir abrir. Fram-
lag þeirra verbi metib ab vebleik-
um um ókomna framtíb.
Fluqmenn —
flugáhugamenn
Fundur okkar um flugöryggismál verður haldinn í kvöld á
Hótel Loftleiðum og hefst kl. 20.00.
FUNDAREFNI:
Viðbrögð viö vá í yfirlandsflugi.
— Erfiðleikar sem geta komið upp í vetrarflugi.
— Viðbrögð og fyrirbyggjandi búnaður.
— Grunnatriði „Fyrstu hjálpar".
Kaffihlé.
Kvikmyndasýning.
Allir velkomnir.
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík.
Flugmálafélag íslands.
Flugmálastjórn.
Öryggisnefnd FÍA.