Tíminn - 22.11.1994, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.11.1994, Blaðsíða 7
Þri&judagur 22. nóvember 1994 7 Abalsteinn J. Magnússon hjá Abgengi hf.: Lögmenn ánægðir meö tölvutækt Lagasafn „Lögfræöingar, sem reynt hafa tilraunaútgáfu Lagasafns íslands AG, hafa allir sem einn lýst ánægju sinni meö a& fá lagasafnib á tölvutæku formi. Viö erum nú aö setja lagasafniö á almennan mark- aö og vonumst eftir góöum viötökum/' segir Aöalsteinn J. Magnússon lektor, einn eig- enda Abgengis hf. Abgengi hf. geröi fyrir nokkru samning við dóms- Reykjavíkurlistinn: Hverfisfélag í Vestur- bænum Nýtt hverfisfélag Reykja- víkurlistans veröur stofnaö í Vesturbænum á fundi í Tæknigaröi, Dunhaga 5, í kvöld kl. 20.30. Félagssvæö- iö er gamli Vesturbærinn, Melar, Hagar, Grandi, Skjól og Skerjafjöröur. Allir stuön- ingsmenn Reykjavíkurlist- ans geta oröiö félagar. Samkvæmt drögum að log- um er markmið hverfisfélags- ins meðal annars að vera starfs- og umræðuvettvangur stuðningsfólks Reykjavíkur- listans og koma málefnum hverfisins á framfæri við borg- armálaráð Reykjavíkurlistans. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri kemur á stofn- fundinn og mun ræða borgar- málefni og svara fyrirspurn- um. Eru stuðningsmenn Reykjavíkurlistans hvattir til að mæta og gerast virkir þátt- takendur í starfi félagsins og með því móti hafa áhrif á mál- efni hverfisins. ■ málaráðuneytið þess efnis að koma Lagasafni íslands í hand- hægt tölvutækt form í sam- ræmi við kröfur nútíma upplýs- ingatækni. Lagasafniö er að koma á almennan markað í handhægu tölvutæku formi allra næstu daga undir nafninu Lagasafn íslands AG, en Að- gengi hf. hefur hannað hug- búnað sem gerir leit í texta safnsins einfalda og fljótvirka, enda byggir hún á gluggaum- hverfi Windows-kerfisins, sem gengur í allar algengustu einka- tölvur á markaðnum. Aðalsteinn segir að lögfræð- ingastéttin og aðrir þeir, sem þurfa að beita Lagasafni íslands við störf sín, sjái nú fram á að þurfa ekki sífellt að taka fram úr hillum sínum hinar voldugu hefðbundnu lagasafnsbækur. Þess í stað noti þeir Lagasafn ís- lands AG í tölvutæku formi með öllum þeim þægindum og vinnusparnaöi sem því fylgir. F.v. Abalsteinn Magnússon, lektor vib Samvinnuháskólann á Bifröst, og Axel V. Gunnlaugsson, tölvu- og upplýs- ingafrœbingur. Tímamynd GS Aðilar bæði í einkageiranum og opinbera geiranum hafi reynt tilraunaútgáfu Lagasafns íslands AG og séu menn sam- mála um hve einfalt og þægi- legt lagasafnið er. „Þetta er í rauninni upplýs- ingabylting fyrir lögmenn og aöra þá, sem þurfa aö nota Lagasafn íslands í starfi sínu. Dómsmálaráðuneytiö selur Að- gengi hf. nýtt lagasafn eftir hvert vor- og haustþing, þannig að Lagasafn íslands AG inni- heldur alltaf nýjustu lög sem í gildi eru, en gömlu lagasöfnin voru einungis prentuö á nokk- urra ára fresti, svo lögfræðingar þurftu sífellt aö vera að fletta Stjórnartíðindum til að fylgjast með þeim lagabreytingum sem oröið höfðu," segir Aðalsteinn. Aðalsteinn bendir á aö notk- un lagasafnsins í tölvutæku formi spari ótrúlegan tíma við leit, auk þess sem hægt sé að prenta beint út á skjal þær greinar lagasafnsins sem beita þarf í hverju tilfelli fyrir sig. Lagasafnið sé inni á hörðum diski tölvunnar og með fistölv- um sé hægt aö taka það hvert á land sem er og nálgast hinar ýmsu lagagreinar á stuttum tíma, þess vegna í réttarsalnum ef svo ber undir. Þetta fyrirkomulag gefur Aö- gengi hf. nokkurt samkeppnis- forskot á Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem bjóða viðskiptavinum sínum aðgengi að lagasafninu í tölvu- banka sínum gegn ákveðnu gjaldi fyrir hverja leit, auk stofnkostnaðar og símakostn- aðar, sem verður verulegur við mikla notkun. Lagasafn Islands AG er hins vegar tiltækt not- endum sínum hvenær sem er og hvar sem er án nokkurs aukakostnaðar. -HM 8 milljón króna sparnaöur: Verkefni hérabslækna flutt til heilsugæslu I byrjun mánaöarins mótmælti almennur félagsfundur í Læknafélagi Akureyrar harö- lega „aöför aö embætti héraös- læknis Noröurlands eystra", eins og segir í ályktun þar sem því er haldiö fram aö fjárlaga- frumvarpiö, sem nú liggur fyr- ir Alþingi, miöi aö því aö gera embættið óstarfhæft. Þar segir jafnframt aö brýnt sé aö hamla gegn miöstýringu úr Reykjavík meö því aö auka virkni héraös- læknisembættanna fremur en draga úr henni, enda sé þaö í fullu samræmi viö samþykkt íslenskrar heilbrigöisáætlunar frá 1991. Varðandi héraðslæknisemb- ættin svaraði heilbrigöis- og tryggingamálaráðherra nýlega fyrirspurn frá Hjörleifi Gutt- ormssyni á Alþingi um breyting- ar á embættum héraðslækna. í svarinu kemur fram að ákveöiö hafi veriö aö leggja niöur föst embætti héraðslækna í Norður- landshéraði eystra og Reykjanes- héraði, en fjárveitingar hafi aldr- ei fengist til embættis héraðs- læknis í Reykjaneshéraði. Gert er ráð fyrir að starfsemi héraðs- læknis í Reykjavík flytjist til embættis landlæknis, en fram- vegis verði öll störf héraðslækna meö sama hætti, þ.e. þau verða Stjórnunarfélagiö: Ráögjafi Reagans kennir sam- skipti og framleiöniaukningu Bandaríkjamaöurinn Richard Endres, sérfræbingur í sam- skiptastjórnun og framleiöni- aukningu stofnana, fyrir- tækja og einstaklinga, veröur framsögumaöur á námstefnu um samskiptastjórnun sem Stjórnunarfélag Islands efnir til aö Hótel Loftleiöum nk. fimmtudag. í kynningu frá Stjórnunarfé- laginu kemur fram að Endres hafi gegnt mikilvægu hlutverki í kosningabaráttu Ronalds Re- agan fyrir forsetakosningarnar 1980, en síðan hafi hann starf- ab í Hvíta húsinu sem ráðgjafi forsetans. Einnig í forsetatíð Georges Bush gegndi Endres ábyrgðarstöðum. Hann var að- stoöarviöskiptaráðherra, yngst- ur manna í ríkisstjórninni, en síðar skipaði Bush hann fram- kvæmdastjóra nefndar á veg- um forsetaembættisins, er hafði þab hlutverk að skipu- leggja og stýra fjárhagsaðstoö Bandaríkjanna við erlend ríki og stofnanir. Richard Endres er höfundur bókar um samskiptastjórnun, „The People Principle", sem kemur út í Bandaríkjunum á næstunni. Á námstefnunni í næstu viku fjallar Endres um þær öru breytingar, sem nú eiga sér stað á viðskiptasviði, og bendir á leiðir til að skilja þær og skynja svo að gagni megi koma í rekstri, m.a. með tilliti til þeirr- ar staðreyndar að starfsöryggi heyri nú sögunni til. Hann bendir m.a. á abferðir til að skapa góða ímynd og vibhalda henni gagnvart starfsfélögum, viðskiptavinum og öðrum þeim sem stjórnendur um- gangast. Á námskeiðinu gerir hann m.a. grein fyrir möguleikum tölvutækni til að greiða fyrir öllum samskiptum í stjórnun og leysa ýmis viðfangsefni. Þátttakendur í námskeiðinu fá tölvudisk með nýju forriti, sem verndar tölvugögn fyrir óvið- komandi. Þá fjallar Endres um tímastjórnun og rétta notkun símans. í kynningu kemur fram að á námskeiðinu kenni hann fimm „leyniráb" sem tryggi að skilabobum sé svarað. Það kostar 19.900 krónur að taka þátt í þessari námstefnu, sem hefst kl. 9 og stendur til kl. 16. Félagar í Stjórnunarfélaginu greiða þó 17.900, en innifalin eru námsgögn, tveir tölvudisk- ar með gögnum og forriti, létt- ur morgunverður, hádegisverð- arhlaðborð og síðdegiskaffi. ■ falin einum heilsugæslulækna í viökomandi héraöi. Þá kemur fram í svarinu að ekki sé stefnt að því að leggja formlega niður embætti héraöslækna, en þó þurfi aö gera breytingar á lögum um heilbrigöisþjónustu til að koma á ofangreindum breyting- um. Heilsugæslulæknar, sem skip- aðir eru héraðslæknar til fjögurra ára í senn, fá álag á laun sín vegna þessara starfa, en gert er ráð fyrir því í fjárlagafrumvarp- inu að þessar breytingar hafi um 8 milljón króna sparnaö í för með sér. ■ Kynningarkvöld á Hótel Borg: „Þab eru skáld á skipinu. íslenskur skaldskapur 1994'' Þriðjudagskvöldiö 22. nóvember kl. 20.30 gangast útgáfufyrirtæk- in Mál og menning og Forlagið fyrir skáldakvöldi á Hótel Borg þar sem hátt í tuttugu höfundar lesa úr nýútkomnum bókum sín- um. Meöal þeirra má nefna Pétur Gunnarsson, Jóhönnu Sveins- dóttur, Megas, Vilborgu Davíös- dóttur, Einar Kárason, Gerði Kristnýju, Friðrik Þór Friöriksson, Guöberg Bergsson og Sjón. Auk þess mun Ásgerður Júní- usdóttir mezzosópran syngja viö píanóundirleik Margrétar Örnólfsdóttur. Aögangur er ókeypis. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.