Tíminn - 26.11.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 26.11.1994, Blaðsíða 9
Laugardagur 26. nóvember 1994 wfntnst) 9 Stjórnmálamenn eru gæslu- menn þessa sáttmála og mega ekki hrófla við meginmarkmið- um hans. Sú kynslóð, sem nú nýtir gögn og gæði landsins sér til lífsafkomu, tók við ákveðn- um skyldum um leiö og hún tók landið í arf. Henni ber að sjá æskufólkinu fyrir betri menntun og uppvaxtarskilyrð- um en hún naut sjálf og að skila landinu í hendur nýrrar kynslóðar í betra ástandi en við var tekið. Skyldur við kynslóðina sem lét okkur í hendur land tæki- færa og lífsgæöa sem hvergi gerast betri - að sú kynslóð geti átt áhyggjulaust ævikvöld og horfið sátt frá dagsverki sínu. Okkar kynslóð á að sjá til þess að þeir sem sjúkir eru fái að- hlynningu sér ab kostnaðar- lausu og aðrir þeir sem fengu skertan hlut nái fram leiðrétt- ingu. Hættan er sú að kynslóðin, sem nú vinnur og nýtir gæði landsins, sætti sig illa við skatt- greiðslur sínar ef stjórnvöld fara illa með almannafé. Sparn- aður, abhald og ráðdeild er því nauðsynleg til að viðhalda sátt- málanum milli kynslóðanna. Við þurfum að vera minnug þess ab kynslóðir koma og kyn- slóðir fara og þab sem fráleitt er í dag er sjálfsagt á morgun, þó ýmis grunngildi sem við að- hyllumst standist ávallt tímans tönn. Sáttmálinn milli kynslób- anna getur því brostið í öllu umrótinu til óbætanlegs tjóns fyrir þjóbina. Vib höldum á brothættu fjöreggi sem þarfnast umhyggju, hlýju og nærfærni. hað hefur aldrei verið meiri þörf en nú aö auka og dýpka skilninginn milli kynslóðanna. í eldri borgurum þessa lands býr sú reynsla, viska, þekking og þroski, sem æskan veröur að kynnast. í æskunni býr það fjör og þor sem eitt getur rutt braut- ina inn í framtíðina. Við höfum gengið of langt í aðskilnaði með byggingu sér- stakra stofnana og íbúba í stað þess ab hafa eðlilegan og á- nægjulegan samgang. Það má ekki sundra þjóðfélaginu og þeir sem eru komnir á svokall- aðan eftirlaunaaldur geta leyst margvísleg verkefni, sér og öðr- um til gagns. Menntun og vísindi Á tímum mikilla tæknifram- fara og síbreytilegra aðstæðna innanlands sem utan hlýtur góð menntun að verba undir- staða allra framfara í landinu og margt bendir til að við séum að dragast aftur úr í þeim efn- um. Tenging skólakerfis og at- vinnulífs getur skipt sköpum fyrir alla framtíðarþróun. Háskóli íslands er æðsta stofnun vísinda og mennta í landinu. Hann verður ab geta sinnt rannsóknum og útskrifað nemendur, sem standa jafnfæt- is og framar í sumum greinum en þeir sem koma frá erlendum háskólum. Þjóð, sem vanrækir menntun og þekkingu, dregst aftur úr. Það er ekki nóg ab fjár- festa í fyrirtækjum og hýbýl- um. Menntun er fjárfesting í fólki. Ef hún er vanrækt skilar önnur fjárfesting sér ekki. Áhugi mennta- og skóla- stofnana beinist í vaxandi mæli aö þörfum framtíðarinnar. Þeim þarf að skapa betri skil- yrði til að starfa meb atvinnu- lífi og rannsóknarstofnunum. Það verður best gert með því að veita styrki til tiltekinna verk- efna og efla þannig frumkvæði alls þess ágæta fólks sem vinn- ur á sviði mennta og vísinda. Þar liggur mikill kraftur sem þarf ab virkja betur. Hvar eru tækifærin? Með fólkið í fyrirrúmi eigum við að leggja megináherslu á at- vinnumál á næstu árum og skapa þannig möguleika til að lyfta skuldaokinu af heimilun- um. Veiku hlekkirnir í atvinnu- málum eru lítil fjárfesting, ó- fullkomið og sundurlaust stofn- anakerfi, dobi í markaðsmálum og ófullnægjandi nýsköpun og þróun. Tækifærin eru víða, svo sem í sjávarútvegi, ferðamálum, al- mennum iðnabi, stóriðju, hug- búnaði, fiskeldi og landbúnaði. Bestu möguleikarnir eru á þeim svibum þar sem við höf- um hlutfallslega yfirburði yfir aðrar þjóðir. Viðskiptavernd hefur minnk- aö og enn mun draga úr henni á næstu árum. Það verður að vera okkar helsta efnahags- markmið að þoka okkur úr þeirri stöðu að vera fyrst og fremst hráefnisútflytjendur í að vera útflytjendur á fullunnum vörum. Slík breyting verður ekki aðeins til að auka verð- mætasköpun og atvinnu heldur einnig til að skapa stöðugra efnahagsumhverfi. Á fjórum sviðum eru mögu- leikarnir mestir. í fyrsta lagi í fiskvinnslu og öðrum matvæla- iðnaði, í öðru lagi í ferðaþjón- ustu, í þriðja lagi á sviði fræða og hugvits og í fjóröa lagi meb nýtingu fallvatna og jarðvarma. Það starfsumhverfi, sem stjórnvöld skapa þessum at- vinnugreinum, mun á næstu árum ráða úrslitum um alla lífs- afkomu í landinu. Stofnanir atvinnulífsins Það þarf að gera starfsemi stofnana á vegum ríkisins mun markvissari en nú er og fækka þeim með sameiningu. Góð samvinna ríkisvalds, sveitarfé- laga og aðila vinnumarkaðarins skiptir sköpum um samræmt og markvisst átak í atvinnumál- um. Þeirri samvinnu verbur að finna vettvang. Það er mín skoöun ab Byggðastofnun í núverandi mynd hafi runnið sitt skeið. Ríkisstjórnin hefur dregið úr henni allan mátt og henni þarf að gefa nýtt líf og hlutverk í samræmi við nýjar aöstæöur. Eðlilegt er ab komið verði á fót Atvinnuþróunarstofnun í stað Byggðastofnunar fyrir landið allt, þéttbýli og dreifbýli. Að stjórn þeirrar stofnunar þurfa að koma fulltrúar atvinnulífs, verkalýöshreyfingar og sveitar- félaga. Eðlilegt væri ab starf- semi Atvinnuleysistrygginga- sjóðs væri sameinuð Atvinnu- þróunarstofnun. Sérstakar stjórnir gætu starfað í hverju kjördæmi eða landsfjórðungi sem þekkingu hafa á málefnum hvers svæðis. Verkefni Atvinnuþróunar- stofnunar verði að aðstoða þá sem vilja stofna til atvinnu- rekstrar við að stíga fyrstu skrefin, hjálpa til vib áætlana- gerb, markaðsöflun og annan undirbúning. Stofnunin þarf jafnframt að hafa möguleika á að lána fé, veita styrki og að- stoða við að útvega áhættufé. Það er jafnframt nauðsynlegt að auka samvinnu atvinnu- lánasjóðanna og á þessu flokks- þingi er sett fram sú hugmynd að Iðnþróunarsjóði verði breytt í sérstakan styrktar- og áhættu- sjóð sem sinni nýjum verkefn- um og stuðli að nýsköpun. Hann fengi helminginn af arbi stofnlánasjóðanna, en þeir ættu síðan aöild að stjórn sjóbsins. Slík samvinna gæti orðið til að auka samstarf milli atvinnugreina og draga úr þeim skörpu skilum sem eru á milli þeirra. Einnig þarf að auka sam- vinnu atvinnugreinanna í markaðsmálum. Því skyldi há- þróab og árangursríkt sölukerfi sjávarútvegs ekki geta selt land- búnaðarvörur og íslenskt vatn með fiskafurðunum? Nauðsyn- legt er að samræma starf á sviði markaðsmála þannig að sú starfsemi sem nú er á vegum ríkisins verði falin Útflutnings- ráði og utanríkisrábuneytið og sendiráðin stórauki þjónustu við íslenskt útflutningsstarf. Við teljum að fleira fólk þurfi að rába til að sinna markaðs- málum erlendis. Fjárfestingar allt of litlar Fjárfestingar innlendra og er- lendra aðila hér á landi eru allt of litlar. Með sama áframhaldi mun atvinnuleysi stóraukast en ekki draga úr því. Það verður að hvetja til meiri þátttöku al- mennings í atvinnulífinu með því að rýmka skattaleg hlunn- indi. Núverandi ríkisstjórn hef- ur dregiö úr þeim og þrátt fyrir loforð um breytingar s.l. vor bólar ekkert á þeim á Alþingi. Við teljum ab ekki verbi hjá því komist ab auka þátttöku lífeyr- issjóbanna í atvinnustarfsemi landsmanna. Þeir hafa aðeins lagt u.þ.b. 2% af eignum sínum í atvinnufyrirtæki. Þetta gengur ekki og mun koma lífeyrissjóð- unum sjálfum og þjóðinni allri í koll. Lífeyrissjóöirnir hafa allt of litla tilburbi til að breyta til. Það verður að semja við þá um meiri þátttöku í nauðsynlegri uppbyggingu. Erlendar fjárfestingar eru of litlar hér á landi og lítið gengur að breyta því. Með öflugri sókn Útflutningsráðs og utanríkis- rábuneytisins má ná árangri. Það kemur jafnframt til greina að bjóba sérstakt verð á orku til að laða hingað ný fyrirtæki. Sama verbur að sjálfsögðu ab gilda um ný íslensk fyrirtæki. Mikil umframorka er í raforku- kerfinu sem sjálfsagt er að selja með afslætti. Það er mikið kvartað í at- vinnulífinu yfir tómlæti banka- kerfisins varðandi nýjungar í atvinnumálum. Því er haldið fram að bankastofnanir séu ó- fúsar til að lána út á annað en veb í fasteignum en hugi lítið að framtíöartekjum. Bankarnir verða ab sýna meiri vilja til ab greiða fyrir fjárfestingum og mikilvægast af öllu er að lækka vextina. Háir vextir hafa dregið verulega úr fjárfestingunni og þab er því enn eitt verkefnið sem ríkisvaldið verður að hafa forystu um á næsta kjörtíma- bili, að halda vöxtum í þeim skefjum að áhugi sé fyrir að leggja fjármagn í atvinnulífið. Samtenging at- vinnugreinanna Okkur íslendingum er tamt að tala um einstakar atvinnu- greinar. Við sem störfum í stjórnmálunum finnum þetta vel því mörgum finnst að við gleymum oft að nefna mikil- væg atriði einstakra atvinnu- greina. Ég skal ekki neita því að á átta ára ferli mínum sem sjáv- arútvegsráðherra var ég mjög upptekinn af afkomu sjávarút- vegsins. Ég taldi og tel enn að fiskveiðar og fiskvinnsla hafi slíka grundvallarþýðingu fyrir framtíð landsins að skipulag og starfshættir greinarinnar skipti sköpum um velmegun kom- andi ára. Núverandi forsætisrábherra heldur því fram að ísland hafi verið á svipuðu róli í efnahags- málum og Færeyjar áður en hann kom inn á svið landsmál- anna. Þetta er alrangt. Það er rúmur áratugur síðan við fram- sóknarmenn höfðum forystu um að taka hér upp fiskveiði- stjórnunarkerfi sem gæti dregið úr offjárfestingum og skapaö meiri hagræðingu í greininni. Þab tók mörg ár að koma henni á og seint vildu menn viður- kenna vandann sem við blasti. Ég er ekki í nokkrum vafa um að sú barátta, sem við fórum út í til aö ná skynsamlegri stjórn á fiskveiöunum, hafði grundvall- arþýöingu fyrir framtíð sjávar- útvegsins. Það er því furðulegt ab forsætisráðherra, sem á þess- um árum var m.a. upptekinn vib að byggja rábhús og fjár- festa í hótelum og veitingahús- um á vegum Reykjavíkurborg- ar, skuli leyfa sér að halda því fram að við höfum verið á Fær- eyjabrautinni. Hallirnar, sem hann barbist fyrir á sama tíma, kostuðu milljarba og þeir voru fleiri sem byggðu og byggðu án þess að arðsemin væri lögb til grundvallar. í einu þessara veitingahúsa var núverandi ríkisstjórn mynduð. Þar var lagt á ráðin um að gera miklar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og pólitískar nefndir skipabar í þeim tilgangi. Eftir þriggja ára starf var niðurstaðan að gera tiltölulega litlar breytingar. Okkur tókst með málefnalegri stjórnarandstöbu að forða slysi, þótt ýmislegt hafi ekki verið ab okkar skapi. Með þessu er ég ekki að halda því fram að núverandi kerfi sé gallalaust. Það hefur mikla galla en jafnframt stóra kosti. Það verður áfram verkefni stjórnmálanna að leita sátta milli ólíkra hagsmunahópa innan þess og auka jöfnuö vegna áfalla. Á það hefur vissu- lega skort því þeir sem hafa misst miklar aflaheimildir í þorski hafa fengib litla úrlausn sinna mála. En þrátt fyrir allt hefur lifað hér þróttmikill sjáv- arútvegur sem hefur aðlagast með ótrúlegum hætti breyttum aðstæðum. Víða má samt sjá hættumerki og margir eru ugg- andi um sinn hag og þá ekki síst bátaútgerðin sem byggir ab mestu á þorskveiðum. Mikilvægasta verkefni sjávar- útvegsins er að byggja upp fiskistofnana, greiða niður skuldimar og skapa sem mest svigrúm til að fara út í nýjung- ar og meiri fullvinnslu. Það þarf ab auka alþjóðlegt samstarf og skapa stöðu og þrótt til ab reka öflugt markaðs- og þróumr- starf. Skattpíningarmennirnir, sem halda að lífið kvikni með skattlagningu undir nafninu „auðlindaskattur", eru á villi- götum. Þær skoðanir eiga mik- inn hljómgrunn innan ríkis- stjórnarinnar og fara þar fremstir núverandi fjármálaráð- herra Friðrik Sophusson og fyrrverandi fjármálaráðherra Jón Baldvin Hannibalsson. Ef þeirra skoöanir verða ofan á verður þrek og sókn lömuð einmitt þegar við þurfum á hinu gagnstæða að halda. Landbúnaðurinn á í reynd erfiðast uppdráttar allra at- vinnugreina. Mikill samdráttur er í sauðfjárrækt og allt bendir til að GÁTT-samkomulagið verði að veruleika og innflutn- ingur verði hafinn á landbún- aðarvörum í einhverjum mæli. Þessi innflutningur getur þó haft mikil áhrif. Því er nauð- synlegt að búa greinina undir vaxandi samkeppni. Það er of mikiö af sláturhúsum og mjólk- urstöbvum og þeim verður að fækka til þess að ná fram meiri hagræðingu. Það er ekki auö- velt verk og verður ekki gert án forystu ríkisvaldsins. Það verður jafnframt ab draga úr eða fella niður sjóba- gjöld í landbúnaðinum og styrkja betur þá útflutnings- möguleika sem eru fyrir hendi. Það er ekki nokkur vafi á að það má selja framleiðsluvörur landbúnaðarins sem hágæöa vöru á erlendum markaði, en í fyrstu verður það ekki gert nema með stuðningi. Það verð- ur enginn var vib að núverandi landbúnaöarráðherra sé að sinna þessum málum. í þess stað notar hann kraftana í að deila við utanríkisráðherrann sem aldrei þreytist á að tala gegn landbúnaðinum. Þab virð- ist vera þab sama uppi á ten- ingnum hér sem annars staðar að ágreiningur kemur í veg fyr- ir aðgerbir. Ég er sannfærður um að það er mikilvægt að draga úr ab- skilnaði atvinnugreinanna. Þab skiptir mestu máli að sinna öllu jóhannes Ceir Sigurgeirsson alþingismaöur í góbum félagsskap á flokksþinginu á Hótel Sögu í gœr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.