Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 11

Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 7. júní 1995 11 Torfi Magnússon hœttur meö landsliöiö í körfubolta: „ Hægt ab gera betur" „Ég náði ekki þeim árangri, sem ég ætlaði mér með liðið í vor. Ég held að hægt sé að gera betur og það verður einhver annar að fá tækifæri til þess," segir Torfi Magnússon, sem hefur ákveðið að hætta ab þjálfa íslenska karlalandsliöið í körfubolta, en samningur hans rann út eftir Smáþjóöaleikana. „Ég er aðallega óánægbur með það að við skyldum ekki komast áfram í Evrópukeppn- inni og það er stærsta málið." Abspurður hvort ekki hafi ver- ið erfitt að koma mannskapn- um af staö á smáþjóðaleikun- um svo stuttu eftir Evrópu- keppnina, sagði Torfi svo vera. „Það var orðið erfitt að fá strákana af stað í leiki og tapið gegn Lúxemborg var súrt. En þeir eru sterkir og voru m.a. með Bandaríkjamann í sínu liði, sem jók sjálfstraust hjá þeim. Miðað viö það var það í sjálfu sér enginn rosalegur bömmer að tapa fyrir Lúxem- borg í þessu móti. Tapið gegn þeim var enginn punktur yfir i-ið með það hvort ég yrði áfram með liðið, það var löngu ákveðið fyrirfram að ég ætlaði ekki að óska eftir því að endur- nýja samninginn," sagði Torfi. Hann verður einn af stjórn- endum 22ja ára liðsins á Norð- urlandamóti um næstu helgi. „Eftir það skoöa ég mín mál. Það hefur ýmislegt heyrst, en ekkert fast í hendi," sagði Torfi, sem átti fertugsafmæli í gær. Sundmenn óánœgöir meö aöstööuna vegna smáþjóöaleika á íslandi 1997: „Syndum ekki nema það komi önnur aöstaða^ — segir Sœvar Stefánsson, varaformaöur SSÍ. „Álitshnekkir fyrir ísland og íslenskt sundfólk," segir Júlíus Hafstein „Þetta er ósköp einfalt mál. Við ætlum bara ekkert að synda á smáþjóðaleikunum á Islandi (1997), nema til komi önnur að- staða fyrir sundfólk. Þeir vita þetta, sem ab þessu máli standa, en eru bara að reyna aö blekkja okkur og sjálfa sig og trúa ekki því sem við segjum. En það eru allir innan sundíþróttarinnar á einu máli um að við látum ekki valta yfir okkur," segir Sævar Stefánsson; varaformaður Sund- sambands íslands, en hann hefur helst verib í forsvari fyrir sund- hreyfinguna um að fá nýja 50m yfirbyggða sundlaug hér á landi. „Viö guggnum ekkert á þessu. Við erum með mót í Bandaríkj- unum á sama tíma og smáþjóða- leikarnir fara fram, og við getum sent krakkana á það. Þetta er því ekkert grín. Ólympíunefnd ís- lands stendur að leikunum, en hún getur ekki haldið þessa sundkeppni á smáþjóðaleikunum nema meb samþykki okkar. Sundsambandið verður að standa fyrir sundkeppninni á smáþjóða- leikunum og samkvæmt alþjóð- legum reglum má ekkert annað samband standa fýrir sund- keppninni. Ef við tökum ekki þátt, þá getur sundið ekki farið fram," segir Sævar. Hann segir ab planið sé aö keppa í Laugardalslauginni eftir tvö ár, en hún er ólögleg til keppni samkvæmt alþjóðlegum reglum, því m.a. eru fyrsta og átt- unda braut í dýpri endanum ekki jafndjúpar. „Ef keppt væri í laug- inni eins og hún er nú og ein- hver met sett í henni, þá væru þau ekki gild," segir Sævar. Hann segir að laugin í Vestmannaeyj- um myndi helst uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir smá- þjóðaleikana^en ef sundkeppnin fer þar fram, eru keppendur þar úr öllum tengslum við keppnina í Reykjavík. Aöalleikvangurinn í Laugardal: 3-4000 manna stúkubygging fyrirhuguð „Það er ekki komiö svo langt að það sé búið að ákveba að byggja stúkuna. Ég er þó að vona að það sé farið ab nálgast ákvörðunar- töku, en það virðist vera vilji fyr- ir hendi," segir Eggert Magnús- son, formaður KSI, um fyrirhug- aba beiðni KSÍ um að byggð verði stúka á aðalleikvanginum í Laugardal, á móti þeirri gömlu. „Þab er ekkert leyndarmál að miklar umræður hafa verið und- anfarið um þetta mál. Þab er ekki hægt að spila landsleiki hér, eins og ástandib er. Vib getum alveg eins hætt að taka þátt í þessum keppnum, því völlurinn er kol- ólöglegur eins og hann er núna, þ.e. umgjörðin kringum hann. Það er verið að tala um 3-400 manna stúku og hvenær hún veröur tilbúin ræðst aðeins af ákvörðun borgaryfirvalda. Sam- kvæmt FIFA, þá ætti þessi stúka ab vera löngu tilbúin og átti í raun ab vera tilbúin fyrir Svía- leikinn í fyrra. Við lifum því bara á lukkunni, en ef eitthvað kæmi fyrir, gætum við verið í vondum málum," segir Eggert. Samkvæmt heimildum Tímans er kostnaður við þessa stúku áætlaöur um 150 miljónir. Ómar Einarsson hjá íþrótta- og tóm- stundaráði sagði að þetta mál hefði verið rætt hjá borgaryfir- völdum, en það væri nú ekki al- veg á teikniborðinu. Annars vildi hann lítið segja um málið, því það yrði rætt á fundi hjá borgar- stjóra í dag. „Það er þó alveg ljóst að þab verður ekki byggð stúka á þessu ári, en þab er verið að fara yfir stöðu mála," sagði Ómar. En hvab vilja sundmenn að gert sé? „Við viljum bara fá 50 metra yfirbyggöa laug og erum ekkert að draga af því. Við erum með allar kostnabartölur og þetta er dæmi upp á 250 miljónir, ef þetta verður byggt samkvæmt okkar hugmyndum, þannig ab þab sé verið aö hugsa um innvið- ina en ekki útlitib." Sævar segir að það hafi ekki verið byggð innilaug á Reykjavík- ursvæðinu í langan tíma. „Sund- höllin í Reykjavík var byggð 1930 og í Hafnarfirði fimmtán árum síðar. Þetta þarf ab rísa í Laugardalnum. Laugardalslaugin er ónýt og það þarf ab byggja hana upp og því þarf laug á með- an. Annars þarf að loka öllu mannvirkinu, sem kostar borgina tugmiljónir, að minnsta kosti í ár," segir Sævar. Júlíus Hafstein, formaður Ólympíunefndar íslands og ný- kjörinn forseti Samtaka ólymp- ískra smáþjóða í Evrópu, segir að forgangsverkefni íþróttahreyfing- arinnar á næstu misserum sé að byggja 50 metra innilaug. „Ann- aö, eins og stúkubygging í Laug- ardal og yfirbygging á skauta- svellinu, verða að bíða. Við get- um ekki haldið smáþjóöaleikana með reisn nema þetta sund- mannvirki sé komið. Það verður að raöa í þessa forgangsröð ís- lands og íþróttanna vegna og andlits Islands út á við," segir Orlando Orlando Magic tryggði sér rétt til aö keppa um NBA-meistaratitilinn Shaquille O'Neill átti aubveit meb andstœbinga sína í Indiana. Júlíus. Hann segir að íslenskir sundmenn muni ekki hagnast á því ab vera ekki meb, ef höllin rís ekki. „Þetta er þeirra ákvörðun, þegar ab því kemur, og ég hef náttúrlega alltaf áhyggjur af því þegar menn setja svona kosti, en þeir munu ekki hindra að keppn- in fari fram. Ef þeir kepptu ekki, þá yrði það álitshnekkir fyrir ís- land og íslenskt sundfólk," segir Júlíus. ■ Molar... ... Roberto Bagqio hjá Juvent- us sagði í gær ao þann væri á leið frá félaginu. „Eq geri mér rein fyrir því nú, aö Juventus efur ekki áhuqa á að halda mér, og því er pörf á aðgerð- um frá rrjinni hendi," sagði Baggio. Itölsk blöð segja að Ju- ventus hafi bobið Baggio þriðj- ungi minni laun í nýjum samn- ingi, en hann hafnað því. Fé- lög á borð við Real Madrid, AC Milan og Parma eru sögð á eftir Baggio, auk japanskra fé- laga. Baggio mun kosta um 13 miljónir dollara. ... Paul Ince er sagður á leið til Inter Milan frá Man. Utd, en stjórinn Alex Ferguson segir þvert nei. „Ince er ekki,til sölu," segir Ferguson. Itölsk blöb greindu hins vegar frá því að Inter-menn væru a leið til Englands til að handsala samn- ing vib Ince og iafnvel Lee Sharpe einnig. Talið er að Inter bjóði 7 miljón pund í Ince. í úrslit gegn Houston eftir 105-81 stórsig- ur gegn Indiana Pacers í 7. viöur- eign liðanna aðfaranótt mánudags- ins. Það varö því 51 stigs sveifla frá því í sjötta leiknum þar sem Indi- ana vann 123-96, en maburinn á bakvið velgengni Orlando í vetur og 7. leiknum var Shaquille O’Neill, sem gerði 25 stig og tók 8 fráköst. Þá spiluðu Orlandomenn geysi- góða vörn og náðu að halda Reggie Miller alveg niðri, en hann skoraði aöeins 12 stig, en 36 í sjötta Ieikn- um. „Við töpuðum heidur illa fyrir þeim um daginn, en vib vildum sýna þeim núna hvers megnugir við erum," sagði Shaq. Fyrsti úrslitaleikur Orlando og Houston fer fram í kvöld í Or- lando. ■ Evrópuknatt- spyrnan Ítalía Fiorentina-AC Milan........1-2 Napoli-Parma...............1-0 Bari-Sampdoria.............1-2 Juventus-Cagliari..........3-1 Genoa-Torino...............1-0 Cremonese-Roma.............2-5 Inter-Padova...............2-1 Reggiana-Foggia ...........1-1 Lazio-Brescia..............1-0 Juventus hlaut 73 stig, Parma 63 og Lazio 63. Parma fer í Evrópu- keppni bikarhafa, en AC Milan, Lazio, Roma og Inter Milan í Evrópukeppni félagsliöa. Danmörk Árhus-Bröndby............3-0 Álborg-Odense ...........0-0 FK Köbenhavn-Silkeborg ..2-2 Næstved-Lyngby ..........2-1 Staðan Álborg.......1264 2 25-11 29 Bröndby .....125 3 4 19-16 27 Silkeborg ...126 3 3 22-1224 Árhus...........12624 18-17 23 Odense .........12 3 3 6 15-21 21 Næstved ........12345 16-20 20 Lyngby .v....12 4 1 7 16-25 19 FK Köbenhavn 12 3 4 5 18-27 18 Spánn Real Madrid-Coruna ......2-1 Espanol-Valencia ........5-1 Barcelona-Logrones ......4-1 Betis-Celta .............1-1 Staba efstu liða Real Madrid 36 22 9 5 74-27 53 Coruna ...36 18 11 7 55-30 47 Barcelona ...36 17 10 9 58-44 42 Evrópukeppni landsliða — 6. riöill: Portúgal-Lettland ...3-2 (3-0) Liechtenstein-írland ....0-0 Staban Portúgal.......65 0 1 17-5 15 írland..........6 4 2 0 13-1 14 N.-írland.......6 3 1 2 9-9 10 Austurríki .....5 3 0 2 17-3 9 Lettland........6 1 0 5 4-15 3 Liechtenstein ..7 0 1 6 1-28 1 í kvöld leika N.-írar og Lettar. Verblaun á Smá- þjóðaleikunum Skipting verðlauna á Smáþjóðaleik- unum í Lúxemborg varð eftirfar- andi: gull silfur brons ísland 33 17 28 Kýpur 22 25 22 Lúxemborg 20 26 12 Liechtenstein 5 2 1 Mónakó 3 4 17 Andorra 2 5 8 San Marinó 2 5 2 Martha Ernstdóttir lenti í 12. sœti í Hollandi. Marthaí 12. sæti Mörthu Ernstdóttur gekk ekki eins vel og hún vonaðist til á víða- vangshlaupi í Hollandi í fyrradag, þar sem hún hafnaði í 12. sæti. Hún hljóp á rúmum 16 mínútum, sem er talsvert frá hennar besta. Eflaust hefur nýafstaðin keppni á Smáþjóöaleikunum í Lúxemborg verib Mörthu erfið. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.