Tíminn - 21.09.1995, Blaðsíða 10
10
t|M§p
Fimmtudagur 21. september 1995
Framsóknarflokkurinn
Breyttur opnunartími
Frá og me& 18. september verbur skrifstofa Framsóknarflokksins opin virka daga frá
kl. 9.00-17.00.
Verib velkomin
Framsóknarfíokkurinn
7. Landsþing LFK
„Konur i framsókn''
verður haldið i Félagsheimili Kópavogs að Fannborg 2, Kópavogi, dagana 20.-22.
október n.k.
Drög að dagskrá:
Föstudagurinn 20. október
Kl. 19.30 Þingsetning að Borgartúni 6.
Setning: Kristjana Bergsdóttir, formaður LFK.
Kjör embættismanna þingsins.
Ávörp gesta:
Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
Siv Friðleifsdóttir, 1. þingmaður Reykjaneskjördæmis.
Kl. 20.00 Fundi frestað til laugardags.
Kl. 20.00 Kvöldverðarhóf I tilefni 50 ára afmælis Félags framsóknarkvenna I
Reykjavlk.
Ávarp: Sigrlður Hjartar, formaður FFR.
Hátlðarræða: Halldór Asgrlmsson, formaður Framsóknarflokksins.
Laugardagurinn 21. október
Kl. 8.30 Afhending þinggagna I Félagsheimili Kópavogs að Fannborg 2,
Kópavogi.
Kl. 9.00 Skýrsla stjórnar.
Kristjana Bergsdóttir, formaður LFK.
Þóra Einarsdóttir gjaldkeri.
Umræður — afgreiðsla.
Kl. 9.20 Mannréttindi kvenna.
Elfn Lfndal, formaður Jafnréttisráðs.
Hanslna Björgvinsdóttir, fulltrúi LFK á kvennaráðstefnunni I Klna.
Umræður.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Umræður um stöðu kvenna I Framsóknarflokknum og framtlóarsýn
þeirra.
Ávörp:
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir, formaður þingllokks framsóknarmanna.
Siv Friðleilsdóttir, 1. þingmaður Reykjaneskjördæmis.
Umræður.
Kl. 15.15 Kaffihlé.
Kl. 15.45 Tillögur að jafnréttisáætlun I flokksstarfi lagðar fram.
Drífa Sigfúsdóttir, vararitari Framsóknarflokksins.
Umræður.
Kl. 17.00 Málefnavinna kjördæmanna lögð fram.
Kl. 17.45 Skoðunar- og skemmtiferð I Mosfellsbæ fram eltir kvöldi.
Kl. 18.15 Léttur málsverður.
Ávörp:
Helga Thoroddsen bæjarfulltrúi.
Guðrún Karlsdóttir, formaður Esju, félags framsóknarkvenna I
Mosfellsbæ.
Sunnudagurinn 23. október
Kl. 9.00 Morgunkafti.
Kl. 9.15 Umræða og afgreiðsla jafnréttisáætlunar.
Kl. 11.00 Umræöa og afgreiðsla málefnavinnu kjördæmanna.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 12.45 Ályktanir þingsins.
Kl. 13.30 Stjórnarkjör.
Kl. 14.30 Þingslit.
Dagskráin verður nánar auglýst með fréttabréfi LFK.
Sími 5631631
Fax: 5516270
V.
J
Absendar greinar
sem birtast eiga í blaöinu þurfa aö vera tölvusettar og
vistaöar á diskling sem texti, hvort sem er í DOS eöa
Macintosh umhverfi. Vélrit-
aöar eöa skrifaöar greinar
%mm
geta þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
Ástkær eiginma&ur minn, fa&ir okkar, tengdafa&ir
og afi
séra Jón Einarsson
prófastur
Saurbæ á Hvalfjar&arströnd
veröur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í Saurbæ
laugardaginn 23. september kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakka&ir. Þeim, sem
vildu minnast hins látna, er bent á sóknarkirkjur
hans: Hallgrímskirkju í Saurbæ, Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju.
Hugrún Cu&jónsdóttir
ríöur Munda jónsdóttir
:&jón Ólafur jónsson Kristín Huld Haraldsdóttir
ey Jónsdóttir Gunnlaugur Aðalbjarnarson
,ar Kristján Jónsson Dagný Jónsdóttir
Hrafnkell Oddi Gu&jónsson
Erla Gunnlaugsdóttir
Kristín Gunnlaugsdóttir ornar fólki á Kjarvalsstööum:
Þarf ekki doktorsgráöu
til aö skilja listina
Hvítur hjörtur. Verkib stendur og er hœgt ab skoba þab frá bábum hlibum
eftir því hvort áhorfandinn er slœmur eba léttur á gebi þá stundina. Hin-
um megin er nefnilega Svartur úlfur, sem er skuggahlibin.
„Eg braut upp þetta ferkant-
aöa form til þess aö vera ekki
alltaf með eitthvaö til a&
negla upp á vegg. Ég mála á
hluti sem eru allavega í lag-
inu, ekki bara ferningar. Mér
finnst Hvíti hjörturinn vera
fegurö og hreinleiki. Svo er
skuggahliðin hinum megin,
Svartur úlfur. Þa& er þessi
spurning um a& hafa birtu og
skugga í öllum hlutum. Þú
skynjar ekki a& þetta sé bjart
nema þa& sé skuggahliö hin-
um megin," segir Kristín
Gunnlaugsdóttir myndlistar-
kona um verk sitt, Hvíta
hjörtinn, í samtali vi& Tím-
ann.
Eins og sést á myndinni
standa tvær renndar súlur upp
úr myndinni og var Kristín
spurð að því hvað þær ættu að
fyrirstilla: „Bara djók. Það halda
allir að það þurfi doktorsgráðu
til að skilja þetta, en ég hef bara
mjög gaman af því aö hafa verk
sem hægt er að snúa við þannig
að stundum er maður í skapi til
að horfa á eina myndina og
stundum hina. Mér fannst verk-
ið bjóða alveg upp á þetta,
þannig að ég skellti súlunum of-
an á."
Kristín opnaði sýningu á Kjar-
valsstööum síðastliðinn laugar-
dag og verður hún opin til 15.
okt. í fréttatilkynningu segir að
Kristín sé einn af þeim mynd-
listarmönnum sem aðhyllast
nýja málverkið, en sjálf vill hún
sem minnst gera úr þeirri skil-
greiningu. „Nýja málverkið get-
ur bara verið allt það sem málað
er í dag. Það má segja að það
gangi m.a. út á að endurskoöa
hefðbundin gömul gildi innan
myndlistarinnar." Hún segir
hægt aö vinna úr þeirri endur-
skoðun á ýmsan hátt, t.d. með
því að nýta sér hefðina að ein-
hverju leyti eða fara þveröfuga
leið. „Það er bara verið að skoða
hefðina frá ýmsum sjónarhorn-
um og útkoman getur verið
mismunandi augljós. Ég hef
verið að skoða mikið list mið-
alda, sérstaklega þá sem tengist
Ítalíu, t.d. handritamálun. Þetta
eru mikið verk sem eru unnin
með gyllingu. Tengingin hjá
mér er nokkuð augljós, því ég
nota þessa fornu tækni og mála
á tréplötur með blaðgulli og
eggtemperu, sem er hreint litað
duft og eggjarauöa."
Kristín segir bragðið af sýn-
ingunni vera hárautt. „Veggur-
inn sem gylltu verkin eru á er
hárauður til að draga gullið enn
frekar fram. Ég vildi gera eitt-
hvað sem ornaði fólki aðeins,
hlýjaöi því."
Er hún að koma einhverjum
alvarlegum boöskap áleiðis með
verkum sínum? „Að taka lífinu
létt og taka mig alls ekki of há-
tíðlega." ■
Hin dýra list
SinfÓníuhljómsveit íslands — 70
opinberir starfsmenn að syngja
fyrir þjóðina — hélt sérstaka sölu-
tónleika í Háskólabíói 14., 15. og
16. september. Þetta voru vel aug-
lýstir tónleikar og dagskráin líkleg
til vinsælda, enda var húsfyllir á
öllum tónleikum, eöa því sem
næst. Og aðger&in var ekki til
einskis, því ég varð vitni ab því að
ung kona úr Hafnarfiröi sagði í
hléinu: „Ég hef aldrei komiö á sin-
fóníutónleika ábur, en mér finnst
svo gaman að ég á örugglega eftir
að koma oft í framtíöinni."
Um tónleikana er ekki margt aö
segja annað en það að menn
skemmtu sér vel. Hljómsveitar-
stjóri var frá Mexíkó, Enrique Bát-
iz, sem auk starfa í sínu heima-
landi hefur unnið mikiö með sin-
fóníuhljómsveitum Lundúna-
borgar og „hefur veriö lýst sem
heldrimanni af gamla skólanum,
en um leið þykir hann stjórna af
ástríöu og eldmóði", eins og segir
í skránni. Hegðun Bátiz á stjórn-
palli var athyglisverð og í stíl viö
þaö, aö atvinnumenn í spila-
TONLIST
SIGURÐUR STEINÞÓRSSON
mennsku þurfa ekki fyrst og
fremst á taktmæli að halda, held-
ur á styrk- og tilfinningamæli —
nefnilega hve mjög hver hljóö-
færahópur á að hafa sig í frammi á
hverjum tíma. En auðvitað er
þetta allt skrifað í nóturnar, eftir
því sem Stravinskíj segir.
Spilararnir stóbu sig auðvitaö
með mestu ágætum. Framvaröa-
sveitin tók fína einleikskafla: Ás-
geir Steingrímsson á trompet, Ein-
ar Jóhannesson á klarinettu, Haf-
steinn Guömundsson á fagott,
Kristján Stephensen á óbó, Daði
Kolbeinsson á „enskt horn" (sem
raunar er krummhorn, bogið
horn), Jón Sigurbjörnsson á
flautu, Jósef Ognibene á horn,
Gubný á fiðlu og Richard Talkow-
sky á knéfiðlu — sjálfsagt hef ég
gleymt einhverjum.
Ekki er síður ástæða til ab nefna
einleikara á tónleikunum, flautu-
spilarana Guörúnu Birgisdóttur
og Martial Nardeau í „Minning-
um frá Prag", léttvigtarverki eftir
Franz Doppler með tilbúinni
hljómsveitarútsetningu A.H.
Sveinssonar, og Einar Kr. Einars-
son gítarleikara í konsert eftir
mann aö nafni Joaquin Rodrigo.
Mínar skobanir á þessari tónlist
skipta ekki máli, en vel spilaði
einleiksfólkið, og prýðilega var
leyst meö raftæknilegum aðferö-
um hiö eilífa vandamál klassíska
gítarsins, sem er raddlítill í 600
manna sal og í samkeppni við sin-
fóníuhljómsveit.
Og ekki má gleyma Eddu Þórar-
insdóttur leikkonu sem flutti upp-
lýsandi efni um tónskáid og tón-
verk. Við, sem þekkjum til Eddu,
vitum að hún var ekki að lesa eins
og bavían, heldur vissi hún í aðal-
atriðum hvað hún var að tala um.
Enda hitti það beint í mark.
Semsagt, skemmtilegir tónleik-
ar, og vonandi líklegir til að
trekkja á raðirnar þrjár, græna,
gula og rauða. ■