Tíminn - 10.11.1995, Blaðsíða 1
*■ *
XWREVffl//
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
79. árgangur
Aflaverðmœti á fjarlœg-
um miöum:
11-12 milljarð-
ar á 2 árum
Aflaverbmæti íslenska skipa á
fjarlægum mibum nam um
5,6 milljörbum króna á síb-
asta ári og veröur eitthvaö
svipað á þessu ári. Þarna er
um ab ræöa þorskveiöar í
Smugunni í Barentshafi, síld-
veiöar úr norsk-íslenska síld-
arstofninum, karfaveiöar á
Reykjaneshrygg og rækjuveiö-
ar á Flæmingjagrunni.
Þetta kom m.a. fram í ræöu
formanns LÍÚ á aðalfundi sam-
takanna í gær. Þar kom einnig
fram aö í fyrra veiddu íslensk
skip 37 þúsund tonn af þorski í
Barentshafi og það sem af er árs-
ins hafa veiðst um 30 þúsund
tonn af þorski í Smugunni einni
saman. Síldaraflinn í fyrra úr
norsk-íslenska stofninum var
um 21 þúsund tonn en 172 þús-
und tonn á þessu ári.
Veiði á úthafskarfa var um 47
þúsund tonn í fyrra en aðeins
24 þúsund tonn í ár. En eitthvað
af þessum samdrætti er talið að
megi rekja til verkfalls sjó-
manna á fiskiskipaflotanum fyrr
á árinu. Þá veiddust alls 2500
tonn af rækju á Flæmingja-
grunni, eða Flæmska hattinum í
fyrra. í ár hefur aflinn vaxið til
muna og nemur um 4500 tonn-
um það sem af er árinu. -grh
Hafís úti fyrir
Vestfjörbum
Óvenju mikill hafís er úti fyrir
Vestfjörbum mibab vib árstíma.
Búist er vib ab ísinn haldist í
svipuðu horfi næstu daga.
Flugvél Landhelgisgæslunnar,
TF-SYN, fór í fyrradag í eftirlits-
og ískönnunarflug úti fyrir Vest-
fjörðum. ísbrúnin er nú næst
landi um 75 sjómílur norðvest-
ur af Barða og 78 sjómílur norð-
vestur af Straumsnesi.
Þór Jakobsson á Veðurstofu ís-
lands segir að hafísinn sé í
meira lagi miðab vib árstíma.
ísinn sé einnig fremur þéttur en
ísdreifar með minni þéttleika
suðaustur af ísbreiöunni.
Þór segir ab von sé á hæglætis-
veðri á þessum slóbum og búast
megi við að ísinn lóni á svipuð-
um slóðum næstu dægur. -GBK
STOFNAÐUR 1917___________________________________________________
Fötudagur 10. nóvember 1995 212. tölublað 1995
AKUREYRI
Togarinn Hannover Luderitz
eiqu þysKs fyrirtœkis sem Samherii hf. á Akureyri hefur fest kaup á aö hluta. Ton
málaöur úr bátnum Toni viö hafnargaröinn á Akureyri. Togarinn er í
eigu þýsks fyrirtækis sem Samherji hf. á Akureyri hefur fest kaup á aö hluta. Toni heitir bátur Slippstöövarinnar Odda sem starfsmenn fyrirtækisins nota
viö málningarstörfin. Myndin ber vitni um uppgang íatvinnulífi á Akureyri þar sem bæöi útgerö og skipaiönaöur koma viö sögu. Tíminn var á Akureyri á
dögunun og meö blaöinu í dag fylgir aukablaö þar sem meöal annars er fjallaö um uppgang og eflingu atvinnulífs á staönum. rímamynd: cs
Kannaö hvort grundvöllur sé fyrir því oð fjöldaframleiöa máltíöir fyrir grunnskólabörn:
Spurö hvaö þau vilji boröa
Fjöldaframleiddar skólamál-
tíðir fyrir grunnskólabörn er
ein þeirra hugmynda sem
veriö er aö kanna á vegum
Atvinnu- og ferbamálastofu
Reykjavíkurborgar. Skipaður
hefur veriö vinnuhópur sem
mun leggja könnun fyrir
nemendur, kennara og for-
eldra til ab sjá hvort grund-
völlur sé fyrir slíkri fram-
leiðslu.
Verði niðurstaöa könnunar-
innar jákvæð verður kannað
hver kostnabur yrði af því ab
gera tilraun til að fjöldafram-
leiða skólamáltíðir fyrir tvo
skóla til að byrja meb og með
hvaða hætti væri best að gera
þab. Reynslan af slíkri tilraun,
verði hún gerð, mun svo
væntanlega skera úr um fram-
haldið, þ.e. hvort fjöldafram-
leiðsla á máltíðum fyrir alla
grunnskóla borgarinnar verði
að veruleika. Verið er að tala
um heitar máltíðir í svipuðu
formi og máltíðir sem bornar
em fram í flugvélum.
Könnunin verður að líkind-
um lögð fyrir 8, 10 og 12 ára
börn í Breiðagerðisskóla og
Foldaskóla. Samkvæmt þeim
drögum sem hafa verið samin
verður leitast við að fá svör vib
því m.a. hvernig mat nemend-
ur hafa með sér í skólann og
hvort þeim þætti betra að fá
mat í skólanum en koma með
hann að heiman. Þá verður
farið yfir þab úrval sem verbur
á boðstólnum og spurt hvern-
ig þeim líki við það úrval.
Foreldrum barnanna verbur
einnig sent bréf þar sem leitað
verbur álits þeirra á hugmynd-
inni, m.a. með tilliti til þess
hvað yrði í bobi og á hvaða
veröi. Að lokum verður talað
við kennara og skoöanir þeirra
á hugmyndinni fengnar fram.
Róbert Jónsson, forstöðu-
maður Atvinnu- og ferðamála-
stofu, stýrir vinnuhópnum
sem vinnur að hugmyndinni.
Auk hans eru í hópnum full-
trúi frá Skólaskrifstofu Reykja-
víkur, fulltrúar kennara og for-
eldra og næringafræðingur.
-GBK
Útvegsmenn hvattir til aö breyta ímynd atvinnugreinarinnar hjá almenningi. Sjávarútvegsráöherra:
Sægreifar, grátkonur, braskarar og villimenn
„Ef ég ætti ab draga ályktun af
því sem oftast heyrist í fjöl-
miðlum um íslenskan sjávar-
útveg og draga upp mynd af
því, þá myndi maöur setja í
forgrunn sægreifa sem væri aö
aröræna alþýöuna í skjóli for-
réttinda sem vondir stjórn-
málamenn halda utan um. Til
hliöar væri grátkona meö
betlistaf vegna langvarandi
tapreksturs. í einu horninu
væru kvótabraskarar sem
væru ab upphefja nýtt sibleysi
í viöskiptum. í hinu horninu
væru svo villimenn sem
henda fiski og svíkja vigt,"
sagöi Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra.
Hann lét útvegsmenn heldur
betur heyra það í ræðu sinni við
upphaf aðalfundar LÍÚ í gær
þegar hann gerði ímynd sjávar-
útvegsins að umtalsefni. Hann
sagði að sú ímynd sem blasir við
fjölda fólks í fjölmiðlum væri
ekki sem skyldi og gaf í skyn að
það væri vegna þess að tals-
menn fyrirtækja og samtaka í
greinni væru of feimnir og ekki
nógu duglegir að bera á borð
fyrir fjölmiðla þann mikla ár-
angur sem náðst hefur í at-
vinnugreininni og þá fram-
sækni og aðlögunarhæfni sem
þar væri að finna.
Ráðherrann brýndi útvegs-
menn m.a. til ab viðurkenna
það þegar vel áraði í atvinnu-
greininni. Hann sagði að um-
hverfi atvinnugreinarinnar
hefði tekið miklum stakkaskipt-
um á umliðnum árum og það
væri Iibin tíð þegar allt kerfið
var miðstýrt á einn eða annan
máta. Þar fyrir utan væri það
einnig liðin tíð að hægt væri að
gera kröfu til stjórnmálamanna
og stjórnvalda ab verja og hygla
sérhagsmunum. Þess í stað væri
það í verkahring stjórnmála-
manna ab gæta heildarhags-
muna hverju sinni. -grh
Grátkona meö betlistaf? Svo
mœtti ætla af fjölmiölaumræöu
samkvæmt því sem sjávarútvegs-
ráöherrg sagöi í gær á landsfundi
LÍÚ aö vœri ímyndin út á viö.
Tímamynd: CS