Tíminn - 13.01.1996, Page 13
Laugardagur 13. janúar 1996
13
Hagvangur og listaprakkararnir Komar og Melamid leiöa í Ijós
myndlistarsmekk íslensku þjóöarinnar í dag:
Listaverk þeirra eru
í gæslu á Kjarvalsstöðum
í dag veröur listasmekkur ís-
lensku þjóöarinnar — sam-
kvæmt Hagvangi og hinum
spaugsömu Marxistum, Melamid
og Komar, afhjúpabur á Kjarvals-
stööum kl. 4. Menn bíða þess
spenntir aö sjá hvernig þaö mál-
verk lítur út sem þjóöarsálin
sækist eftir, og svo hinu verkinu
sem íslendingar vilja ekki hafa
uppi á vegg hjá sér. í gær voru
listaverk þeirra Komars og Me-
lamids undir strangri gæslu á
Kjarvalsstööum, lokub af á sér-
stöku svæbi. Margir vildu fá for-
skot á sæluna og skoba listsmekk
þjóbarinnar og helst ab Ijós-
mynda hann. Slíkt verbur ekki
leyft um sinn ab sögn Önnu
Margrétar Bjarnadóttur á Kjar-
valsstöbum.
Þeir Komar og Melamid hafa
málað viblíka málverk sem túlka
listasmekk bandarísku þjóðarinnar
samkvæmt skobanakönnun, en
ennfremur rússnesku þjóbarinnar.
Svipabar skobanakannanir hafa
verið gerðar í einum 12 löndum á
vegum listamannanna. Og þeir
segjast halda áfram, næst er það
Indland og Kína, og síðan hvert
land af öðru. Ætlunin er að fá fram
Eftirsóttasta málverk í heimi!
En hvað boðar könnun Hag-
vangs á íslenskum listasmekk? Sú
útkoma gæti orðið nokkub kostu-
leg:
Blár litur (31%) er vinsælasti lit-
urinn hér á landi, síban grænn
(20). Fólk vill útivettvang í mál-
verkinu (80%). Og málverk eiga að
vera raunsæisleg, líkjast ljósmynd-
inni (53%). Ákjósanlegt er þó talið,
samkvæmt könnuninni ab raun-
veruleikinn sé ýktur (59%). Bob-
skapur þarf ekki endilega ab vera í
sófamálverki íslendingsins (69%),
til dæmis trúarsjónarmið (72%).
Fjöll, hraun eða óbyggðir að haust-
lagi (44%) virkar vel á íslcnskan
listneytanda samkvæmt könnun-
inni (41%). Hinsvegar geta fáir
(6%) hugsab sér nekt í málverkinu
sínu. íslenskur almenningur vill
ávala boga í málverki sínu (51%),
færri (19%) hvöss horn.
En hvað vilja menn borga fyrir
þessa listasmíð? Fæstir (19%) eru
reiðubúnir að greiða meira en 60
þúsund fyrir listaverk sem þeir eru
virkilega hrifnir af.
Og stærb „skilirísins"? Jú, mál-
verkið á að vera á stærð við þvotta-
vél (57%) eða 19 tommu sjón-
varpsskjá (67%).
Þetta eru nokkur þeirra 50 atriöa
sem spurt var um fyrir þá spaug-
listamennina Komar og Melamid.
Og hvernig þeir lesa í skobana-
könnun Hagvangs opinberast
þjóðinni á Kjarvalsstöðum í dag.
Þar mun ennfremur koma í ljós
hvernig íslendingar vilja ekki hafa
listaverkin sín.
Samkvæmt könnuninni vilja
menn ekki sjá hvítt eba grátt.
Menn vilja ekki afrísk eða amerísk
áhrif. Menn vilja ekki sjá vetur í
málverkinu. Ekki ávexti eba hús-
muni, og ekki borgarhluta, tún eða
engjar. Yfirleitt eru menn ekki
hrifnir af trúarlegu efni í málverk-
inu, né heldur að í málverkinu sé
fólginn boðskapur af einhverju
tagi. íslenskur almenningur vill
ekki sjá frægt fólk á málverkinu í
stofunni sinni. Og fólk má ekki
vera nakið á myndinni.
Hvab þeir gera úr þessu prakkar-
arnir tveir vita fáir enn sem komið
er. En það afhjúpast á Kjarvals-
stöðum í dag.
Þeir félagarnir urðu heimsfrægir
1974 þegar þeir héldu Jarðýtusýn-
inguna svonefndu í Moskvu. Sú
sýning féll ekki í kramið hjá sov-
éskum yfirvöldum og jarðýtur
látnar ýta yfir verk þeirra. Sú frétt
átti greiðan aðgang á forsíður
heimsblabanna. Þeim varð ekki
vært í heimalandinu og flúðu
land. í Bandaríkjunum beib þeirra
frægð, frami og auðlegö, kapítal-
íseraðir fram í ystu pensilhár. En
þráin eftir heimahögunum blund-
aði í báðum tveim. Eftir fall Berlín-
armúrsins og hrun Sovétríkjanna
héldu þeir til ástkæra föðurlands-
ins.
„Viö erum dálítið úti á þekju í
þessu landi (Bandaríkjunum) en
þegar við gátum loksins heimsótt
Rússland á ný komumst við að
raun um að við tilheyrum því ekki
heldur," segir Komar. „Það er allt í
snrungum. Minnisvarðarnir, göt-
BÍLAR r~
urnar, byggingarnar. Það lítur allt
út eins og mynd eftir Rembrandt.
Meira að segja andlit vina minna
eru þakin sprungum. Þetta er
vissulega nýr stabur en þetta er
líka sami staðurinn, sama gamla
Rússland. Það er eins og bældur
rómur, sama melódían, en einhver
hefur fiktað vib söngtextann. Og
þetta er sorgleg melódía, eins og
Áin Volga, laaaaangt og soooooo-
orglegt lag sem aldrei tekur enda,"
segir Komar. - JBP
Melamid og Komar ásamt sýningarstjóranum Hannesi Sigurbssyni. Tímamynd: CS
I NOfAOIR BTTf 232SI GÓO|K nmi HHbmmAmSI | NOTAOIK II
c 1
z o H > o
5
w
N Æ S T U D A G*
Þegar þú eignast góðan,
notaðan bíl frá okkur, getur
þú valið annað tveggja:
DÆMI UM GREIÐSLUR
af vaxtalausu láni
Verð bíls 800.000 kr.
Útborgun 200.000 kr.
________Eftirst. 26.313 kr.
á mánúði í 24 mánuði
Allur lántökukostnaður
innifalinn
lán til
24 mánaða að upphæð
allt að 600 þús. kr.
Ríflegan
c-^r <~sr'r'
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT12
SÍMI: 568 1200 beint 581 4060
Opið laugardag kl. 10-17
og sunnudag kl 13-17,
virka daga til kl. 19.
|_____
HIOVION TBWI