Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 4. apríl 1996 9 ,Mér fannst ég svo heppin a& kynnast vídeó- inu, því ég var ekki mjög hrifin af því sem ég var ab gera, aö spila á fiðlu. Ég var oröin fiöluleikari í hljóm- sveit og heföi getað veriö slíkur þaö sem eftir var æv- innar/' sagöi Steina Vasulka vídeólistakona í samtali við Tímann, en hún er nýlega komin til landsins til aö halda sýningu á Kjarvals- stööum. Hún og eiginmaöur hennar, Woody Vasulka, eru talin meðal helstu frum- kvööla vídeólistar. Steina er fædd^árið 1940 á Suðurgötunni í Reykjavík og bjó á íslandi næstu 17 árin. Hún menntaðist í fiðluleik hjá Birni Ólafssyni og það var svo fiðlunámiö sem rak hana út í heim, en hún segir hljómsveit- arlífið ekki hafa átt við sig. Sumir hafi gaman af að troða upp, en hún taki út fyrir að þurfa að koma fram í svörtu dressi og setja á sig varalit. Að því leyti henti vídeólistin bet- ur — hún þarf ekki einu sinni að vera til staðar, þegar verk hennar eru sýnd. Gift Tímóteusi Fyrst lá leið Steinu til Dan- merkur, þaðan til Þýskalands, en svo hafnaði hún í fiðlu- námi í Tékkóslóvakíu. „Þar hitti ég Woody og kom hon- um úr landi, sem var mjög erf- itt þá. Hann varð faktískt ríkis- fangslaus og þannig gerðist hann íslenskur ríkisborgari og heitir hér Tímóteus Péturs- son," sagði Steina og brosti út í annað. Frá Tékkóslóvakíu ákváðu þau að stefna til Bandaríkj- anna. „Þaö var náttúrlega ómögulegt að lifa í Tékkóslóv- akíu og fyrir kvikmyndagerö- armann var ómögulegt að lifa á íslandi árið 1965. Viö ætluö- um svo sem aldrei að ílendast í Bandaríkjunum." En sú varð raunin og þau hafa nú búið þar í rúm 30 ár, undanfarin ár í Santa Fe í Nýju Mexíkó. Mikka mús-tæki Steina og Woody byrjuöu ekki strax að fást við vídeólist, enda var sú listgrein ekki til ár- ið 1965. Hins vegar komust þau á skrið í henni um 1969 og segir Steina þau aldrei hafa ef- ast um að vídeólistin yrði viö- urkennd listgrein. „En auðvit- að þurfti restin af heiminum ab íhuga þetta, enda var geysi- leg mótspyrna til að byrja meö meðal listamanna, myndlistar- manna og kvikmyndagerðar- manna. Þau kölluöu þetta svona Mikka mús-tæki." Þeirra málning er spenna og tíöni Þau bjuggu þá í New York- fylki og voru svo heppin að Listaráð NY-fylkis var fyrsta listaráðið í Bandaríkjunum til að viöurkenna vídeóið sem Iist árið 1970. Mikil gerjun var í kringum „Mikka mús- tækin" á þessum tíma, sem Woody tók þátt í vegna starfs síns. Steina og Woody höfðu lykil ab vinnustofu náunga, sem var að fikta í þessum tækjum, og þau fóru iðulega í skjóli nætur til aö leika sér með þau. Leikur- inn vatt upp á sig, þegar hljóð- gervlarnir komu svo til sög- unnar. „Fyrir okkur var þetta alltaf sami efniviðurinn sem er í elektrónískri tónlist og myndlist. Spennan (voltage) og tíðnin (frequency) var okk- ar efniviður, nákvæmleg eins . Einn af helstu gúrúum vídeólistar sýnir nú á Kjarvalsstööum — og hún er íslensk: Leiddist svörtu kjólarair og varaliturinn — sneri sér því aö vídeólist og leir, olía eða strigi eða hver annar efniviður sem listamenn nota." Vídeólist þeirra Steinu og Woodys markast mjög af menntun þeirra og bakgrunni og blandast því í henni tónlist og mynd. „Við fórum strax að blanda þessu saman, að nota músíktæki til að búa til mynd- ir eba taka mynd og þræða merkið í gegnum hljóögervil til að fá út tónlist." Eldhúsiö Kringum 1970 stofnuðu þau vídeóleikhúsið The Kitchen meö hjálp styrkja frá Listaráði New York og ráku í tvö ár. Fá- um árum síðar spratt upp fjöldi slíkra vídeóleikhúsa, en að sögn Steinu eru þau nú ab deyja hægum dauðdaga. „Það er ekkert fé orðið eftir í Amer- íku fyrir neitt svona. En á sama tíma er orðinn geysimikill áhugi á þessari listgrein í Evr- ópu." — Er þetta þá eitihver bóla fyrst hún er þegar fariti að hjaðna í Bandaríkjunutn? „Ameríkanar hafa alltaf haft bólur. Allt í þeirra þjóöfélagi fer inn og út aftur. Evrópa er stöðugri. Þeir eru tortryggnari á að meðtaka, en það hangir nú lengur vib hjá þeim, ætla ég að minnsta kosti að vona." Þrátt fyrir þetta segir Steina þau ekki ætla að flytja sig til Evrópu, enda búi þau á svo yndislegum stað í Santa Fe í Nýju Mexíkó. Hins vegar sýni þau nánast aldrei í Ameríku, heldur eingöngu í Evrópu. Þess vegna hafa þau hjónin verið á ferð og flugi hin síðustu ár. Þegar sýningunni á Kjarvals- stöðum lýkur, er Steina á leið til Amsterdam þar sem hún tekur viö starfi forstöðumanns tónlistarstofnunar og gegnir því næsta árið. Hvaö er vídeólist? Ansi margir starfa sem vídeó- listamenn nú orðið, þó þeir hafi ekki orðið áberandi hér á landi. Greinin tekur til ýmissa þátta, svo sem ljósmyndunar, myndlistar, tónlistar og kvik- myndagerðar, en verk Steinu spanna aballega tónlist og ljós- myndir. Sýning hennar á Kjar- valsstöðum greinist í þrjú verk, sem eru tekin á járnsmíðaverk- stæði, heimili hennar og í Jap- an. Steina dvaldi í Japan um tíma og tók þar mannamyndir, en hún hefur aldrei áður notað myndir af mönnum í verk sín. Hvert verk er sýnt tvær vikur í einu. — En hvernig í ósköþunum virkar þessi vídeólist? „Það sem ég vonast til, er ab fólk gangi inn í aðra veröld þegar það gengur inn í salinn og upplifi eitthvað óvenjulegt. Fyrir mér er það svipað og ég upplifi þegar ég fer á tónleika." Eftir því sem blaðamaður komst næst, koma gestir inn í sal þar sem stöðugur tónlistar- glymjandi ríkir. Síðan ganga þeir um herbergið þar sem sex skermum er raðað tilviljunar- kennt á gólfið og á þeim end- urvarpast myndir, sem á ein- hvern hátt endurskapa aðra Steina Vasulka. útgáfu af heiminum en við er- um vön. — En hvernig er svona verk skaþað? „Ja, í einu verkinu setti ég myndavél t.d. á snúð og svo fór hún stöðugt í 360 gráðu hringi á ýmsa vegu, til hliðar. Svo sýni ég það sem ég sé út um gluggann eða ég held á henni og læt hana fara út um allt. Neðan á myndavélinni er ég með hljóðdós sem skiptir um tón eftir því sem ég hreyfi myndavélina. Ég var að sanna það fyrir sjálfri mér og heirnin- um að það skipti engu máli hver myndin væri, mabur þyrfti ekki að velja neitt. Ég er alveg á móti því að hagræba myndum eða hlutum fyrir framan myndavélina." „Fyrir mér er myndin ekki aðalatriðið, heldur tónninn og hreyfingin. Ég vil ekki gera íkonska list. Ef tónninn stopp- ar þá er þögn, þá er engin hreyfing, þá er þab bara ljós- mynd. Eg gæti aldrei gert stilli- mynd. Mér finnst ógurlega gaman að fara þarna inn og skoða Kjarval, en það er voöa- leg mystería fyrir mér hvernig það er hægt að velja eina mynd. Ég er alltaf að berjast við að komast út úr ramman- um." LÓA Myndir með íslensku yfirbragði í London „Falleg og sterk meö áber- andi íslensku yfirbragöi" var lýsing opnunargesta á sýn- ingu á verkum Siguröar Magnússonar í Galerie Ver- million í London, sem opnuö var 22. mars sl. Galleríið var opnað fyrir um ári og er í eigu Helgu Láru Har- aldsdóttur, en áhersla er lögð á að sýna þar íslenska myndlist. Fjölmenni var á opnun sýning- arinnar á verkum Sigurðar og seldust strax nokkrar myndir. Er þetta fyrsta einkasýning Siguröar Magnússonar, en hann mun ljúka MA-námi í myndlist í haust frá St. Mart- „Sjöfuglar", ein mynda Sigurðar Magnússonar. in's College of Art and Design. Sigurður er fæddur árið 1948 í Reykjavík og starfaði í mörg ár sem rafvélavirki og rafverktaki. Einnig var hann virkur þátttak- andi í stjórnmálum og m.a. í forystu fyrir Alþýðubandalagið á ýmsum svibum. Á sýningunni eru 10 stór ol- íumálverk og 13 litlar myndir með blandaðri tækni. Hvetur galleríið íslendinga í Englandi og ferðamenn til ab skoba sýn- ingu Sigurðar, en hún er opin til 20. apríl. Galleríiö er til húsa að 120 Upper Tooting Road í London. luiiya biIKl'J .113300211193210'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.