Tíminn - 07.08.1996, Blaðsíða 1
---
WéMM/é
Qss°) Oliufelagiö hf
te Lykill aö
lánsviðskiptum
80. árgangur
Viöey dýrari í rekstri en
miölungs leikskóli:
Vibey kostar
50.000 á dag
Rekstur Viðeyjar kostaði rúm-
lega 21 milljón króna á síðasta
ári, samkvæmt ársreikningi
Reykjavíkurborgar. Rekstar-
tekjur námu tæplega 3 millj-
ónum (14% rekstrarkostnað-
arins), þannig að meginhlut-
inn þurfti að koma úr borgar-
sjóði, rúmlega 18 milljónir á
árinu, eða tæplega 50.000
krónur dag hvern ab meöal-
tali. Svo dæmi sé tekið kostaði
rekstur Rábhússins borgina
rúmlega 77 milljónir umfram
tekjur, þannig ab Viðey vegur
1/4 á vib Rábhúsib.
Til frekari samanburðar má
t.d. benda á að meðalkostnaður
borgarinnar af rekstri leikskóla
var rúmlega 15 milljónir á síö-
asta ári, eða nokkru minna en
það kostaði að reka Viðey. ■
Smá skot í Smugunni um
helgina:
Tíu tonn á
átta tímum
Það var eitthvert skot, smá
veiði um helgina. Þetta var
misjafnt á milli skipa, sum
fengu jafnvel tíu tonna höl í
flottroll," sagbi Pétur Örn
Sverrisson hjá LÍÚ í samtali
við Tímann í gær. Svolítið
glæddist veiðin í Smugunni
um helgina, en í gær hafði
hún dottiö nibur í ekki neitt
aftur.
Tíu tonnin höfðu skipin eftir
að hafa dregið í sjö til átta tíma,
sem er nokkuð langt.
Aðspurður hvort skipin væru
þá bara hálftóm í Smugunni
svaraði Pétur: „Nei, ég held þau
séu bara galtóm, þetta er ekkert
búiö að vera."
Menn eru litlu fegnir eftir að
hafa ekki fengið neitt, segir Pét-
ur. Eitthvað er íslensku skipun-
um í Smugunni farið að fækka
og segir Pétur að nú séu 27 ís-
lensk skip þar að veiðum.
-ohr
STOFNAÐUR 1917
Miðvikudagur 7. ágúst
146. tölublað 1996
Hlegiö meö forsetanum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands og Guörún Katrín Þorbergsdóttir kona
hans heimsóttu bindindismótiö í Galtalœkjarskógi um helgina og heilsuöu upp á mótsgesti. Forsetahjónin fylgdust m.a. meö kvöldvöku og meöal
skemmtikrafta var Ómar Ragnarson. Eftir kvöldvökuna var boöiö upp á vöfflur meö rjóma og sœtabrauö innan dyra og kom Ómar Ragnarsson þangaö
til aö heilsa upp á Ólaf Ragnar, en þeir eru skólabrœöur úr MR. Ómar var kátur eins og honum er einum lagiö og sagöi forseta íslands brandara, sem
þeir hlógu báöir innilega aö eins og myndin sýnir. Á milli þeirra hlœr jón Guöbergsson áfengisvarnarfulltrúi. Vmamynd ctk
Framkvœmdastjóri „Halló Akureyri" segir um 300 milljónir kr. hafa komiö inn í bœjarfelagiö
vegna hátíbarhaldanna:
Jólavertíöin hláleg mibað
vib verslunarmannahelgina
Framkvæmdastjóri samkomunn-
ar „Halló Akureyri", Magnús Már
Þorvaldsson, er mjög ánægbur
meb hátíbarhöldin um verslunar-
mannahelgina ef frá eru skilin af-
brot og vandamál vegna ung-
lingatjaldsvæbanna í mibbænum.
Hann segir um 300 milljónir kr.
hafa komib inn í bæjarfélagib
vegna hátíbarinnar og ný hátíb
verbi haldin ab ári ef bærinn gef-
ur grænt Ijós. Breyta þurfi þó fyr-
irkomulagi t.d. hvab varbar tjald-
svæbin.
Magnús Már er mjög ósáttur vib
þab sem hann kallar „einhæfan
fréttaflutning og neikvæban" af há-
tíðarhöldunum á Akureyri. „Hér var
fullur bær af ánægðu fólki. Það var í
miðbænum, upp við sundlaugar-
svæðið, á tívolísvæðinu í Kjarna-
skógi og við Hamar. Öll umræða
hefur hins vegar snúist um fyllerí
sem er alveg út í hött. Ég hef spurn-
ir af því að stærsti veitingastaður
Akureyrar, Greifinn, seldi nánast
ekkert af víni um helgina þrátt fyrir
að fullt hafi verið út úr dyrum frá
miðvikudegi fram á mánudag. Það
sýnir að drykkja var ekki mikil."
Það eru hagsmunaaðilar í feröa-
þjónustu á Akureyri sem standa að
Halló Akureyri en auk þess koma
ýmsir stuðningsaðilar að málum
auk fulltingis bæjaryfirvalda. „Ef
einhverjir hér fyrir noröan telja sig
svo efnaða að þeir hafi ekki þörf fyr-
ir þessar 300 milljónir þá skora ég á
þá að stíga á stokk. Þaö hringdi í
mig eigandi tískuverslunar áðan og
hann sagði mér að jólaösin væri
hláleg miðað við þetta. Vandamálið
er bara þaö að margir vilja hafa
þessa krakka einhvers staðar úti á
túni, eftirlitslausa þar sem enginn
sér þá drekka. Ekki í bæinn minn,
ekkiíbæinnminnsegirfólk." -BÞ
Sjá einnig blabsíbu 3
Evrópunefnd Noröurlandaráös fundar í Reykjavík. Siv Friöleifsdóttir:
Sérstaba íslands í
Evrópustarfi kynnt
Fyrsti sumarfundur Evrópunefndar
Norburlandsrábs, sem tók til starfa
um áramótin í kjölfar umfangsmik-
illa breytinga á Norðurlandasam-
starfinu, hófst í gær í Reykjavík og
stendur yfir í þrjá daga. Siv Frib-
leifsdóttir og Sigríbur Anna Þórbar-
dóttir eru fulltrúar íslands í nefnd-
inni en Siv er jafnframt varafor-
mabur hennar.
„Það er mjög mikilvægt að fá
svona stóra þingmannanefnd frá
Norðurlöndunum til íslands. Við
fáum þarna tækifæri, sem við mun-
um nýta okkur, til að kynna fyrir
þessum þingmönnum okkar sér-
stöðu í sambandi við Evrópumál-
efnin og þá umræðu sem hér hefur
farið fram," sagbi Siv í samtali við
Tímann og bætti því við að þessir
þingmenn væru í lykilabstöðu til að
hafa áhrif á umræðu um Evrópu-
samstarf á Norburlöndunum.
Sjávarútvegsmál skipa stærstan
þátt í sérstöðu íslands í Evrópusam-
starfi og þingmennirnir norrænu
munu því heimsækja höfuðstöðvar
íslenskra sjávarafurða, Útflutnings-
ráð íslands og eiga fund með utan-
ríkismálanefnd Alþingis. Einnig
Norrœnu fulltruarnir viö komuna til landsins i gcer
verður flogið til Stykkishólms og baka meö miklu meiri þekkingu á
hópnum sýnd sjávarútvegsfyrirtæki íslenskum aðstæðum."
þar í bæ. „Þetta fólk mun fara til -LÓA