Tíminn - 29.03.1989, Blaðsíða 20

Tíminn - 29.03.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu, S 28822 ^Bármál^'d<arfa9! BtWBHfliMtlflSKIPn SAMVINNUBflNKANS SUOURLANOSBRAUT 18, SlMI: 688568 „LÍFSBJÖRG i NORÐURHÖFUM" Útvegsbankinn Seltj. Gíró-1990 Gegn náttúruvernd á villigötum ^iBILACv ÞRðSTUR 685060 VANIR MENN Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, um heræfingu um varnir íslands: Setur hugsanlega þak á stærð vara- liðs á heræfingu Jón Baldvin Hannibals- son, utanríkisráðherra, telur að til greina komi að setja takmörk við fjölda hermanna sem komi hingað til lands til hefðbundinna heræfinga varaliðs varnarliðsins á Miðnesheiði. Hann bíður nú eftir úttekt Varnarmálaskrif- stofunnar á umfangi heræf- ingar sem fyrirhugað er að halda innan varnarsvæðis bandaríska hersins á Miðnes- heiði síðari huta júnímánað- ar, en þó ekki fyrr en eftir þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Samkvæmt upplýsingaskrifstofu varnarliðsins verður um tveggja vikna æfingu að ræða þar sem farið verður yfir alla þætti í vörnum íslands. I5ar verður farið yfir loft- varnir, landvarnir og varnir með skipunt og kafbátum. Sá þáttur sent lýtur að sjóvörnum verður aðeins æfður með svokallaðri pappírs- vinnu, þ.e. að engin skip eða kafbát- ar koma til landsins, nema með ímyndunaraflinu. Þeir landvarnarmcnn sem hingað koma til æfinganna eru meðlimir í varaliði varnarliðsins á Miðnesheiði og koma hingað í sumarleyfum sínunt. Erfitt er því að halda slíka æfingu nema á þeim tíma árs. Ekki hefur verið staðfest hversu margir Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík' isráðherra. varaliðsmenn koma til íslands, en samkvæmt einhverjum heimildum Útvarpsins hefur því verið fleygt að fjöldi þeirra verði á annað þúsund manns. Svo háa tölu hefur hvorki varnarliðið né utanríkisráðherra viljað staðfesta né neita. Síðast er haldin var svipuð æfing kontu hingað á milli 2-300 varaliðs- menn. í viðtali við Tímann sagði Jón Baldvin að til greina kæmi að tak- marka fjölda varaliðsmannanna. Hins vegar yrðu menn að hafa í huga að í varnarsáttmála íslands og Bandaríkjanna er gert ráð fyrir vara- liðinu. Því yrðu að hníga að því veruleg rök ef banna ætti þessu varaliði að kynna sér að hluta til aðstæður hér á landi eða ntcina því um lágmarks aðstöðu innan varnar- svæðisins á Miðnesheiði. Það væri þó rétt að utanríkisráðherra hefur síðasta orð um hvort, hvar og hve- nær slík æfing verði haldin á fslandi. „Það er lítil sanrkvæmni í því að leita eftir því við bandarísk yfirvöld að þau annist varnir íslands ef til ófriðar dregur, en nteina þeint síðan að kynna sér aðstæður í því landi sem þau hafa skuldbundið sig til að verja,“ sagði Jón Baldvitt. Heræfing þessi var til umræðu í ríkisstjórn í gærmorgun og kom fram talsverð andstaða af hálfu ráð- herra Alþýðubandalagsins við áform varnarliðsins eins og þau hafa birst í fréttum Útvarps og Sjónvarps síð- ustu daga. Einnig hefur Steingrímur Herntannsson, forsætisráðherra, sagt að hann telji slíkar æfingar verulega tímaskekkju og óþarfar. Kvennalistakonur komu saman í gær og samþykktu ályktun þar sem þær mótmæla því að slík æfing fari fram og það á sjálfan þjóðhátíðar- daginn. Það hefur hins vegar komið fram núna að ekki er ætlunin að æfingin hefjist fyrr en eftir 17. júní og standi því fram í júlímánuð. en endanleg dagsetning liggur ekki fyrir ennþá. Sigurgeir Ingólfsson, bóndi ■ Hlíð, handfjatlar fálkann og virðist fara vel á ■neð þeim. Fálki í fóstri á bæ undir Eyjafjöllum hjá Sigurgeir Ingólfssyni í Hlíð: Hlupu fuglinn uppi á túninu „Við erum með fálka í búri. Fálkinn var hér úti á túni og við hreinlega hlupum hann uppi, en hann gat ekki hafið sig til flugs,“ sagði Sigurgeir Ingólfsson í Hlíð undir Eyjafjöllum við Tímann. Sigurgeir sagði að þetta væri ungur fálki og svo virtist sem hann væri heill og óbrotinn, en hefði verið slappur og tuskulegur. Það var á miðvikudagskvöldið sem Sigurgeir handsamaði fálkann og var hann afar framlágur í fyrstunni. Sigurgeir hafði strax samband við Dýraspítal- ann í Reykjavík og héraðsdýralækn- inn sem ráðlögðu að gefa fálkanum hrámeti, helst hrátt kjöt og lifur. Fuglinn var mjög farinn að hressast í gær og hafði Sigurgeir smíðað handa honum stórt búr sem hann geymir úti í hlöðu. Fuglinn var þá mjög farinn að venjast heimilisfólkinu og var ekkert sérlega órólegur yfir heimsóknum. Sigurgeir sagði að hann hefði verið búinn að veita fuglinum athygli, en hann hefði haldið sig nokkuð við bæinn undanfarið og hefði hann meðal annars flogið inn í fjósið fyrir nokkru, eftir smáfugli sem hann var að eltast við. Heimilisfólkið í Hlíð ætlar að fóðra fuglinn og hlynna að honum þar til hann verður ferðafær og sjálfbjarga aftur. Þá verður honum sleppt. -sá Ný biðröö myndast í Húsnæðisstofnun: Um 900 í nýrri kaupleigubiðröð „Ljóst er að enn ein biðröðin hefur myndast hjá Húsnæðisstofnun því ekki verður unnt að sinna nema hluta af þessum lánsumsóknum (um byggingu kaupleiguíbúða) á árinu," segir m.a. í umfjöllun um íbúða- byggingar í nýrri ársskýrslu Verk- takasambands íslands. Samkvæmt skýrslunni liggja nú fyrir 900 umsóknir vegna byggingar kaupleiguíbúða á árinu 1989 á þess- um nýjasta biðlista Húsnæðisstofn- unar. Alls 240 lán til byggingar kaupleiguíbúða voru veitt á s.l. ári. Alls hafa því borist um 1.140 um- sóknir um lán til byggingar kaup- leiguíbúða á því eina ári síðan lögin um kaupleiguíbúðir voru sett. Á árunum 1981-1986 var lokið byggingu á unt 1.650 íbúðum ár hvert að meðaltali. Fái allur „kaup- leigubiðlistinn" lánsloforð virðist ljóst að kaupleiguíbúðir verða ntjög stór hluti væntanlegra íbúðabygg- inga á næstunni. Jafnframt má ætla að hundruð nýrra kaupleiguíbúða komi til með að fækka umsóknunt um almenn húsnæðislán frá Bygg- ingarsjóði ríkisins vegna nýbygginga eða kaupa á eldri íbúðum. - HEI Veröur ekkert af frekari viðræðum um byggingu nýs álvers í Straumsvík? Kostnaðurinn meiri en reiknað var með Stofnkostnaður við byggingu nýs álvers í Straumsvík er mun meiri en ráðgert var í upphafi. Hækkun- ina má að hluta til rekja til kostnað- arhækkana innanlands frá því að upphafleg áætlun var gerð í sept- ember á síðasta ári, en auk þess hefur verð á tækjabúnaði til álvera hækkað almennt. Álviðræðunefnd sú er skipuð var af fyrirtækjunum fjórum (Grángers Aluminium, Svíþjóð, Aluminet, Hollandi. Austria Metal, Austurríki og Alusuisse, Sviss) og gerði hagkvæmniathugun á stækkun álversins í Straumsvík ntun halda fund með fyrirtækjun- um í fyrstu viku næsta mánaðar, þar sem skýrt verður frá niðurstöð- um hagkvæmniathugananna. Þá mun væntanlega liggja fyrir hvort áhugi er fyrir hendi hjá viðkomandi fyrirtækjum til áframhaldandi at- hugana. Að sögn Guðntundar G. Þórarinssonar alþingismanns, sem á sæti í samstarfsnefnd er skipuð var af hállu íslendinga til að vinna að forkönnun á hagkvæmni nvs álvers, er mjög erfitt að átta sig á hver framvinda málsins verður. Guðmundur flutti ítarlegt erindi um nýtt álver og uppbyggingu stóriðju á íslandi á miðstjórnar- fundi Sambands ungra framsókn- arntanna fyrir skemmstu. þar sem hann sagði að áhugi álfyrirtækj- anna fjögurra hefði minnkað til muna eftir að athuganir hefðu leitt í Ijós að kostnaður við nýtt álver í Straumsvík væri mun meiri en gert var ráð fyrir í upphafi. Guðmundur vildi, í samtali við Tímann í gær, ekki segja hversu hækkunin væri mikil í prósentum. en Ijóst væri að hún væri veruleg. - ÁG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.