RETTUR 9 þ. á., um óþægindi þau, sem stjórn U.S.A. telur að slit á sambands- lagasamningnum milli Islands og Damnerkur fyrir tilskilinn tíma geti valdið, hef ég haft samráð við formenn og forustumenn allra flokka Alþingis, enginn þeirra undantekinn, og standa þeir óskiptir bak við það sem nú skal greina: 1) Það hefur ekki verið og er ekki ósk Islendinga, að baka stjórn U.S.A. nein óþægindi, heldur að áfram haldist það vinsamlega sam- neyti, sem verið hefur. 2) Orðalagið samningsslit fyrir tilskilinn tíma á væntanlega við samningsslit, sem gangi í gildi fyrir 1944, því að frá þeim tíma að telja gefur samningurinn sjálfur skýlausa heimild til þess að slíta sambandinu einhliða. Um það hefur aldrei verið neinn ágreiningur milli Islendinga og Dana né við aðra, enda orð samningsins um það efni ótvíræð. 3) Tvisvar, löngu fyrir núverandi ófrið, hefur Alþingi lýst því yfir einróma, að þessi heimild yrði notuð af Islands hálfu, þ. e. sambandinu slitið þegar eftir árslok 1943. Þetta er á vitorði Dana, hinna Norðurlandaþjóðanna og annarra, sem fylgjast með málefn- um Islands. Hafa menn því verið við því búnir. 4) Ákvörðun um að slíta sambandinu og stofna lýðveldi á Is- landi hefur að baki sér ekki eingöngu alla flokka þingsins, heldur og alla þingmenn án undantekningar (ekki aðeins certain factions) og væntanlega yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Mun það koma fram við þjóðaratkvæði, sem látið verður ganga áður en málinu er ráðið til lykta til fullnustu. 5) Vakin skal athygli á því, að 17. maí 1941 lýsti Alþingi því yfir einróma, að það teldi Island hafa öðlazt rétt til fullra sambands- slita við Danmörku, og það vildi, að stofnað verði lýðveldi á Islandi jafnskjótt og sambandinu við Danmörku verði formlega slitið. Þess- ar ályktanir höfðu þannig verið gerðar og birtar opinberlega áður en hervernd U.S.A. á Islandi kom til tals. Þessar ályktanir Alþingis voru tilkynntar stjórn Dana formlega stjórnarleiðina. 6) Rétturinn til sambandsslita nú þegar byggist á þeirri skoðun íslenzkra fræðimanna, sem þeir telja í samræmi við skoðun flestra