RÉTTUR ]_]_ Sendiráð Bandaríkja Norður-Ameríku Reykjavík, 20. ág. 1942. Herra ráðherra. Með skírskotun til álitsgjörðar yðar, herra ráðherra, sem mér var afhent 8. ág. 1942, leyfi ég mér, samkvæmt fyrirmælum ríkisstjórn- ar minnar, að selja fram hér að neðan athugasemdir ríkisstjórnar Bandaríkja Norður-Ameríku við efni álitsgjörðar yðar. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur athugað gaumgæfilega álits- gjörðina, sem lýsir sjónarmiði Islands, að því er varðar einhliða uppsögn í náinni framtíð á samhandslagasamningnum milli íslands og Danmerkur og sambandi því, sem byggist á honum. Ríkisstjórn Bandaríkjanna viðurkennir, að ógilding samningsins og sambandsins og hinar fyrirhuguðu breytingar á grundvallarat- riðum í stjórnarfari Islands, sé mál, sem íslenzka þjóðin ein ætti á friðartímum að taka ákvörðun um, eftir óskum sínum og þörfum. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ekki minnstu löngun til þess að skerða á nokkurn hátt athafnafrelsi íslenzku þjóðarinnar í þessu máli, en það er hinsvegar ósk Bandaríkjastjórnar, að á þessum erf- iðu tímum sé ekkert það aðhafzt, sem kynni að hafa óheppileg áhrif á hernaðarátök hinna sameinuðu þjóða, en undir árangri þeirra er svo mjög komið frelsi og framtíðarvelferð, ekki einasta Bandaríkj- anna og Islands, heldur og annarra þjóða. Það er skoðun Banda- ríkjastjórnar, að sameiginlegir hagsmunir í góðum árangri af hern- aðaraðgerðum hinna sameinuðu þjóða sé bezt tryggðir með því, að óbreytt ástand (status quo) sé nú látið haldast á Islandi. Það að viðhalda óbreyttu ástandi mundi forða því að fram kæmu ásak- anir um að Islendingar hefðu notað sér ólán Danmerkur, sem og koma í veg fyrir þá fölsku ásökun, að Bandaríkjastjórn hefði notað sér hérveru Bandaríkjahers og ástandið í Danmörku til þess að greiða fyrir sambandsslitum. Stjórn yðar og mín stjórn vita það báðar, að Bandaríkin eru á engan hátt riðin við hinar fyrirhuguðu aðgerðir Islendinga í sjálf- stæðismálinu, en öxulríkin mundu lelja öðrum þjóðum og stjórnum trú um, að Bandaríkin ættu þar upptökin. Af framansögðum ástæðum vill Bandaríkjastjórn endurtaka þá