24 R É T T U R 4. maí barst syohljóðandi boðskapur frá Kristjáni konungi 10.: I tilefni af þeim tilkynningum, sem komið hafa frá Islandi um á- lyktanir Alþingis og ríkisstjórnarinnar viðvíkjandi breytingu á stjórnarforminu, óskum Vér að eftirfarandi boðskapur sé birtur ríkisstjórn Islands og þjóð. Alla stjórnartíð Vora hefur það stöðugt verið viðleitni Vor að efla velgengni hinnar íslenzku þjóðar, og á þessum árum, þegar styrjaldarviðburðirnir hafa svo djúptæk áhrif á líf þjóðanna, höf- urn Vér reynt að fylgjast með þróuninni á Islandi og nákvæmlega íhugað afstöðu Vora til íslenzku þjóðarinnar um leið og Vér jafn- framt höfum einnig haft fyrir augum það, sem mætti verða til hagsmuna fyrir ríkið sem norrænt ríki. Þeim næmleika fyrir ósk- um þjóðarinnar, sem ævinlega hefur komið fram hjá Oss gagnvart Alþingi Islands og stjórn, mun að sjálfsögðu svo miklu fremur mega gera ráð fyrir í úrslitamálum fyrir örlög landsins í framtíð- inni. Vér hljótum samt sem áður á Vora hlið að hafa heimild til að ala þá von, að ákvarðanir um það framtíðarstjórnarform, sem sker í sundur að fullu bandið milli íslenzku þjóðarinnar og kon- ungs hennar, verði ekki látnar komast í framkvæmd á meðan bæði Island og Danmörk eru hernumin af útlendum veldum. Og Vér höf- um þá öruggu sannfæringu, að ef þetta færi fram, myndi það vera miður farsælt fyrir hið góða bræðralag milli þessara tveggja nor- rænu ríkja sem liggur Oss svo mjög á hjarta. Vér óskum þessvegna, að áður en úrslitaákvörðun verður tekin. verði ríkisstjórn íslands og þjóðinni tilkynnt, að Vér getum ekki á meðan núverandi ástand varir viðurkennt þá breytingu á stjórnarforminu sem Alþingi Is- lands og ríkisstjórn hafa ákveðið án samningaviðræðna við Oss. Gefið í höll Vorri Sorgenfrí, 2. maí 1944. Christian R." 5. maí var fregnin um boðskap þennan birt og samtímis birtu þingflokkarnir allir og ríkisstjórn svohljóðandi yfirlýsingu: Það er réttur íslenzku þjóðarinnar sjálfrar og hennar einnar