RETTUR 29 Og því skyldi þetta ekki geta veriS einhver varðanna, sem svaraði honum með því að banka tóma vitleysu, að gamni sínu? Bankið byrjaði á ný. Þessa ódrepandi ,þrjóskulegu þolinmæði gat enginn átt nema fangi; og slík aðgæzla, slík einbeiting á aðferðina var óhugsandi af vitskertum manni. Með jafnmikilli þolinmæði mundi liann finna lykilinn. Bára að hann ruglaðist ekki í tölunum meðan hann var að reyna við þær eina hugmyndina af annarri, og yrði einmana og allslaus, svona nálægt þessum þrotlausa bróðurhug. En hvert hljóð sem heyrðist í fangelsinu var að verða að bánki í fjarska, og fangelsið allt minnti meir og meir á næturfundinn í Ham- borg, þar sem hver maður kveikti á eldspýtu aS bón hans, og hægt var aS fá hugmynd um mannfjöldann af þeim ótölulega grúa ör- smárra ljósa, sem blossuSu snöggvast í náttmyrkrinu svo langt sem augaS eygSi. . . . Hann minntist götu í verkamannahverfi skammt frá Alexanderplatz, í tunglskini, meS lokaSar tóbaksbúSirnar, bardaganótt. Kommúnislarnir voru nýfarnir af götunni og síSustu ljósin voru aS slokkna; drunurnar í lögreglubílunum færSust nær. En varla höfðu þeir brunað framhjá er hver gluggi var upplj ómaður og í þeim skuggi við skugga. FólkiS hélt sér dálítiS til baka vegna kúlnahættunnar, en hafði allt þotið út í gluggana, líka börnin, án þess að spyrja um leyfi. Dyr opnuSust fyrir félögum sem kynnu aS hafa falizt í göngum og skotum. Og svo jafnsnögglega og þessi bróðurlegi samúðarvottur hafði birzt, hvarf allt; enn einn lögreglubíll var að koma, og brun- aði milli húsaraðanna sveipaðra í tunglskinsbjart afskiptaleysi. Klukkustundum saman vissi Kassner ekki af öðru en tölunum og verðinum, sem gekk framhjá klefanum. Loksins, nærri af tilviljun, eins og það hefði orðið til í huga hans af sjálfsdáðum, fékk hann þá hugmynd aS 5 þyrfti ekki aS þýSa aS 1 væri fimmti bókstafurinn, heldur aS stafrófiS byrjaSi eftir fimm fyrstu stafina. F væri þá 1, G 2.. Z 21; A 22; B 23. ... E 26. Fanginn var enn að banka og Kassner hlustaSi, teljandi höggin á fingrum sér og stafandi: 2 : G; 26 : E; 9 N1 1) Genosse félagi.